Morgunblaðið - 17.12.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.12.2018, Blaðsíða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 DRIFSKÖFT LAGFÆRUM – SMÍÐUM JAFNVÆGISSTILLUM OG SELJUM NÝ Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða Mynd um Matthías Johannessen frumsýnd Glöð Ásdís Egilsdóttir, Ásdís Ásmundardóttir og Helgi E. Helgason. Framleiðendur myndarinnar Sigurður Sverrir Pálsson og Erlendur Sveinsson á frumsýningu heimildarmyndarinnar um Matthías í Háskólabíói. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Hafsteinn Þórólfsson er aldeilis með mörg járn í eldinum um þessar mundir. Í sumar útsetti hann „Sofðu unga ástin mín“ fyrir kammerkórinn Cantoque Ensemble og hann vinnur núna að því að útsetja djassplötu Kasper Staube-djasstríósins fyrir raddir auk þess að undirbúa upp- töku á mjög svo óvenjulegu tónverki í leynihelli í Bláfjöllum. Á sunnudag lauk síðan tveggja ára verkefni Haf- steins fyrir Mariehøj-kirkju í Silke- borg í Danmörku með flutningi tíu tónverka sem hann samdi fyrir aft- ansöng á jólum. Áður en haldið er til Silkeborg er ágætt að rifja upp feril Hafsteins til þessa: Í tæp tuttugu ár hefur hann starfað sem söngvari og árið 2005 lauk hann meistaranámi í söng frá Guildhall í London. Árið 2011 lauk Hafsteinn gráðu í tónsmíðum frá LHÍ og í framhaldinu útskrifaðist hann með meistaragráðu í tón- og lagasmíðum frá Árósaháskóla 2013. Hafsteinn frumflutti íslensku útgáf- una af „Ég er eins og ég er“ á Hin- segin dögum 2003 og hefur að jafn- aði flutt lagið á annarri hverri hátíð síðan þá. Hann lenti líka í 3. sæti í forkeppni Eurovision 2007 með lagið „Þú tryllir mig“ og var einn af bak- raddasöngvurum Gretu Salóme í Evróvisjónkeppninni í Svíþjóð 2016. Þá var Hafsteinn tilnefndur til ís- lensku tónlistarverðlaunanna á síð- asta ári fyrir flutning ársins fyrir einsöng sinn á tónleikum Ægisifjar. Svo er hann nýfluttur til Eyrar- bakka með manni sínum: „Það var annaðhvort að búa á heimaslóðum hans í stóru einbýlishúsi eða vera í agnarsmárri kytru í Reykjavík,“ segir Hafsteinn. „Ég játa að ég kveið því svolítið að taka þetta stökk, því ég hef aldrei búið í smærra þorpi en Reykjavík, en þeg- ar á hólminn var komið reyndist fara mjög vel um okkur á Eyrarbakka og góður staður fyrir listamann að búa – þótt ég nái kannski ekki að sækja alveg jafn marga tónleika og áður.“ Messa á enska vísu Verkefnið fyrir Mariehøj-kirkju bar þannig til að á lokaári námsins í Árósum samdi Hafsteinn sex laga flokk fyrir dönsku hljómsveitina Tirilil sem samanstendur af þremur sópransöngkonum og orgelleikara. „Þau fluttu þennan flokk víðsvegar um Danmörku og þar á meðal í þess- ari kirkju í Silkeborg. Bæði org- anista og kórstjóra kirkjunnar þóttu tónsmíðarnar áhugaverðar og báðu mig að semja fyrir sig verk í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar og 25 ára afmæli Evensong-jólamessu sem þar er fastur liður,“ útskýrir Hafsteinn. Messan sem um ræðir fer fram með svipuðum hætti og aftansöngur á jólum hjá ensku biskupakirkjunni og þykir mörgum ákaflega fallegt messuform. „Ég játa að ég þekkti ekki þessa hefð fyrr en þau höfðu samband við mig þarna í Danmörku, en messan fer þannig fram að lesnir eru valdir kaflar úr Biblíunni, allt frá sköpun mannsins fram til fæð- ingar Jesú í Betlehem og inn á milli sungin lög eða sálmar,“ segir Haf- steinn. Vill flytja á Íslandi að ári liðnu Ekki var nóg með að Hafsteinn þyrfti að semja samtals tíu stutt verk heldur þurftu bæði lag og texti að hæfa yfirbragði messunnar og ekki vera of krefjandi í flutningi. „Það kom sér vel fyrir mig í þessu verkefni að búa að mikilli reynslu sem einsöngvari og kórsöngvari því hjá kirkjunni er annars vegar barnakór með frekar ungum börn- um og síðan fullorðinskór sem samanstendur aðallega af ungmenn- Íslensk tónskáld bæði hæfileikarík Upplifun „Dreymdi mig að ég væri látin kona og hvíldi í kistu minni en væri vakin upp af jarðskjálfta svo ég ákveð að stíga upp úr gröfinni sem draugur og skoða landslagið,“ segir Hafsteinn um magnaðan draum sem varð innblásturinn að næsta stóra tónlistarverkefni hans.  Tíu tónverk eftir Hafstein Þórólfs- son voru frumflutt á hátíðarmessu Mariehøj-kirkju í Danmörku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.