Morgunblaðið - 17.12.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.12.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Evrópsku kvikmyndaverðlaunin, EFA, voru afhent í Sevilla á Spáni í 31. sinn í fyrrakvöld, 15. desember og voru tveir Íslendingar á meðal til- nefndra að þessu sinni, Sverrir Guðnason sem hlaut tilnefningu sem besti leikari fyrir túlkun sína á tenn- isstjörnunni Björn Borg í Borg/ McEnroe og Halldóra Geirharðs- dóttir sem var tilnefnd sem besta leikkona fyrir túlkun sína á bar- áttukonunni Höllu í kvikmynd Bene- dikts Erlingssonar, Kona fer í stríð. Hvorugt hlaut verðlaun en tilnefn- ingin engu að síður mikill heiður. Mesta spennan ríkti að vanda um hvaða leikna kvikmynd hlyti verð- launin sem sú besta og voru fimm kvikmyndir tilnefndar: sænska myndin Gräns eða Mæri á íslensku; hollenska myndin Girl, Stúlka; ítalska myndin Dogman, Hundamaðurinn; pólska myndin Zimna wojna eða Kalt stríð og ítalska myndin Lazzaro fe- lice, Lasarus hinn glaði. Sú síðast- nefnda hlaut kvikmyndaverðlaun evr- ópskra háskóla, EUFA. Allar kvikmyndirnar þóttu sigurstrangleg- ar en þó sérstaklega Kalt stríð, eftir því sem blaðamaður komst næst þeg- ar rætt var við evrópska kollega sem fylgdust með og fjölluðu um verð- launin. Vegna mikils fjölda verðlauna hafði þegar verið tilkynnt um nokkur þeirra fyrir hátíðina auk þess sem tveir leikarar og einn leikstjóri skyldu heiðraðir sérstaklega: Eng- lendingurinn Ralph Fiennes fyrir framlag sitt til evrópskrar kvik- myndalistar, gríski leikstjórinn Costa-Gavras sem hlaut sérstök heið- ursverðlaun Evrópsku kvikmynda- akademíunnar og leikkonan Carmen Maura sem var heiðruð fyrir ævi- starfið en hún er ein þekktasta og virtasta leikkona Spánar. Palma í stuði Eins og við mátti búast hófst verð- launahátíðin með flamenkódansi og -tónlistarflutningi, annað hefði líklega þótt undarlegt í hinni erkispænsku og undurfögru Sevilla þar sem tapasbar- ir eru á hverju horni og fólk brestur í söng og dans af minnsta tilefni. Spænska kvikmyndastjarnan Rossy de Palma stal senunni af þokkafullum karldansara strax í upphafi athafn- arinnar, steig flamenkódans af mikilli ástríðu og minnti meira á sirk- usstjóra en kynni á sviðinu, slíkur var ákafinn. Af viðbrögðum gesta að dæma lagðist spaug Palma misjafn- lega í fólk, sumir voru sem stein- runnir en aðrir hlógu innilega. Og það átti við um kvöldið í heild, margir brandarar fóru fyrir ofan garð og neðan en sem betur fer var oftar en ekki hlegið. Í flokkum bestu leikara og leik- kvenna var samkeppnin hörð og erfitt að spá fyrir um úrslitin. Þótti Victor Polster þó einna sigurstranglegastur fyrir túlkun sína á stúlku í líkama drengs í Girl . Það var hins vegar Marcello Fonte sem hreppti verð- launin fyrir leik sinn í Dogman og hélt hann þakkarræðu á ítölsku sem enginn skildi nema þeir sem tala ítölsku. Þeir sem skildu ræðuna hlógu mikið en ekki fer neinum sögum af því hvað Fonte var að segja. Sérstök verðlaun samtaka kvik- myndagagnrýnenda, FIPRESCI, European Discovery eða evrópsk uppgötvun, hlaut kvikmyndin Girl og klöppuðu þá fjölmiðlamenn, aug- ljóslega sáttir við valið og 16 ára aðal- leikari myndarinnar, Victor Polster, brosti breitt. Og talandi um káta fjöl- miðlamenn þá urðu þeir býsna hissa og enn kátari þegar Marcello Fonte birtist allt í einu með verðlaunastytt- una sína í fjölmiðlasalnum, settist nið- ur og fór að rabba við viðstadda. Sló þetta fólk út af laginu, margir ruku til og tóku myndir og gleymdu um stund að fylgjast með verðlaunaafhending- unni. Fonte lét sig fljótlega hverfa og gátu fjölmiðlamenn og -konur þá aft- ur einbeitt sér að hátíðinni. Kulig sú besta Og þá voru það verðlaunin fyrir bestu leikkonu. Halldóra virkaði pollróleg þegar myndavélin beindist að henni og sagt var frá hlutverki hennar í Kona fer í stríð. Var sam- keppnin mjög hörð í þessum verð- launaflokki, jafnvel harðari en í flokki leikara. Þegar búið var að greina frá öllum tilnefningum stökk flamenkó- dansarinn þokkafulli upp á borð á sviðinu og steig villtan dans í dágóða stund. Gestir og sjónvarpsáhorfendur áttu greinilega ekki að gleyma því hvar hátíðin væri haldin. Verðlaunin hlaut Joanna Kulig fyrir leik sinn í Köldu stríði en hún gat ekki tekið við þeim þar sem hún var við störf í öðru landi. Besta gamanmynd Evrópu að þessu sinni var Death of Stalin, Dauði Stalíns, og kom það fáum á óvart því myndin hefur hvarvetna hlotið mikið lof. Carmen Maura felldi tár þegar far- ið var fögrum orðum um leiklistar- hæfileika hennar og mikilvægi fyrir spænska kvikmyndagerð. Wenders hélt ræðu á spænsku og sagðist vera maður á barmi taugaáfalls, vísaði með því í eina þekktustu kvikmynd Pedro Almodóvar, Konur á barmi taugaáfalls, sem Maura lék í á sínum tíma og fór á kostum. „Ég tala ensku mjög illa,“ sagði Maura eftir að hafa óvart skipt yfir í móðurmálið. „Enska er ekki í líkama mínum,“ bætti hún við og var þá skellihlegið í salnum. Í geðshræringu sinni skipti Maura í sí- fellu úr ensku yfir í spænsku og meira að segja frönsku og steig svo undir lokin dans við þokkafulla flamenkód- ansarann, Andrés Marín. Hin eftirsóttu verðlaun besti leik- stjóri Evrópu hlaut Pawel Pawli- kowski fyrir Kalt stríð og var þá orðið ljóst að kvikmyndin væri sú sigursæl- asta á hátíðnni. Verðlaun fyrir bestu heimildarmynd hlaut sænska kvik- myndagerðarkonan Jane Magnusson fyrir Bergman – ett år, ett liv sem fjallar um Ingmar Bergman og þriðji og síðasti heiðursverðlaunahafi kvöldsins, Ralph Fiennes, sjálfur Voldemort, hélt svo innblásna ræðu þar sem sundrung í Evrópu kom m.a. við sögu. Og besta kvikmyndin er … Rúsínan í pylsuendanum var besta kvikmynd Evrópu og hlaut enski leik- arinn Chiwetel Ejiofor þann heiður að kynna verðlaunin. Sagði hann evr- ópskar kvikmyndir ekki þekktar fyrir hamingjuríkan endi og var dátt hleg- ið að þeim ummælum. Kalt stríð var það að lokum, besta evrópska kvik- myndin 2018 og kom það fáum á óvart. Fimm verðlaun komin í hús og pólskur sigur að þessu sinni. Flamenkódans og Kalt stríð  Pólska kvikmyndin Zimna wojna, Kalt stríð, hlaut flest verðlaun á Evrópsku kvikmyndaverðlaun- unum, fimm alls  Sverrir og Halldóra tilnefnd  Fiennes, Gavras og Maura heiðruð fyrir störf sín AFP Gleði Pólski leikstjórinn Pawel Pawlikowski hafði ástæðu til að gleðjast í Sevilla í fyrrakvöld. Hér sést hann með framleiðanda Kalds stríðs, Ewu Puszczynska, eftir að tilkynnt var að myndin hefði hlotið verðlaun sem sú besta. Tárvot Carmen Maura grét og skipti milli tungumála þegar hún var heiðruð fyrir ævistarfið. Wim Wenders kynnti hana á svið og bar glæsilegan hatt. Heiðraður Ralph Fiennes hlaut heiðursverðlaun fyrir störf sín. ICQC 2018-20 Meira til skiptanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.