Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 14
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
V
ið höfum séð hlýnun fyrir
norðan land frá því í kring-
um aldamótin, eða árin þar
rétt á undan. Síðan þá hef-
ur verið tiltölulega hlýr
sjór fyrir norðan land, miðað við það
sem við áttum áður að venjast,“ segir
Birkir.
„Á sama tíma sjáum við þessa
færslu loðnunnar til vesturs og
norðurs, og þetta virðist því haldast
í hendur, því það er talsvert ólíkt
þeirri útbreiðslu sem tíðkaðist fyrir
aldamót. Loðnan
virðist vilja vera
á mörkum pól-
sjávar og hlýrri
sjávar, og færist
með þeim breyt-
ingum sem á
þeim verða. Þessi
hlýnun hefur að
minnsta kosti
skapað ein-
hverjar aðstæður
sem valda því að
hún færir sig til norðurs og vest-
urs.“
Birkir bendir á að hitastig sjávar
eitt og sér eigi þó ekki allan hlut að
máli þegar kemur að útbreiðslu
loðnunnar. „Auk annarra þátta hef-
ur framboð á fæðu auðvitað líka
áhrif á göngurnar, þar sem hún er í
fæðuleit.“
Nýliðun léleg á þessari öld
Vart varð við kólnun á yfirborði
sjávar norður af Íslandi upp úr
árinu 1960. „Þá á sér þarna stað
ákveðin kólnun, og um sama leyti
eru loðnuveiðar reyndar að hefjast í
fyrsta sinn. Fram undir aldamót
virðist sem loðnustofninn sé í góðu
ástandi – á þessum kaldari árum.
En við vitum auðvitað ekki hver
staða stofnsins var fyrir þann tíma,
þar sem veiðar voru ekki hafnar.“
Vísitala ungfisks í loðnustofninum
hefur verið lág undanfarin ár, og í
raun hefur nýliðun innan stofnsins
reynst léleg flest ár sem liðin eru frá
aldamótum. „Að sumu leyti skýrist
það þó af því að einhver árin áttum
við í erfiðleikum með að ná almenni-
lega utan um ungloðnu í okkar mæl-
ingum. Samt sem áður má álykta að
nýliðun hafi verið léleg flest ár á
þessari öld.“
Aðspurður viðurkennir Birkir að
loðnustofninn hafi varla verið lélegri
en nú, frá upphafi mælinga. „Það eru
kannski tilvik á níunda áratugnum, í
kringum 1982, og svo aftur í kring-
um 2009. En það er alveg óhætt að
segja að þetta er óvenju slæmt
ástand, ef rétt reynist,“ segir hann
og bendir á að nú í vikunni hafi
Heimaey VE-1, skip Ísfélagsins,
haldið frá Eskifirði til loðnuleitar.
Rúmur áratugur er síðan síðast var
farið í leit að loðnu í desember-
mánuði. „Þá geri ég ráð fyrir að við
munum reyna að mæla stofninn aft-
ur í janúar á nýju ári.“
Breytingar stofninum í hag?
Birkir segir að þegar horft sé fram á
veginn, þá megi hugsanlega vænta
töluverðra breytinga á næstu árum.
„Við höfum verið að sjá, fyrir suð-
vestan og sunnan land, að þar hefur
sjór verið að kólna. Eins og haf-
straumarnir liggja þá má búast við að
þessi kólnun muni að lokum berast
norður fyrir land, á þessi svæði þar
sem loðnan heldur sig, og það verður
fróðlegt að sjá hvaða áhrif kólnunin
hefur á stofninn.“
Úti fyrir Faxaflóa eru nú þegar
farin að sjást merki um kólnun og
minni sjávarseltu, sem getur verið
fyrsta vísbending um að þessi kaldi
sjávarmassi sé að fara að berast
norður fyrir land.
„Við eigum því mjög áhugaverða
tíma í vændum hvað loðnuna varðar,
og út frá þeim gögnum sem fyrir
liggja þá er hugsanlegt að þessar
breytingar verði stofninum í hag. En
þekking okkar er enn sem komið er
svo takmörkuð að það má ekkert full-
yrða um þetta með vissu – hvað ná-
kvæmlega muni gerast. Það eru að
minnsta kosti breytingar í farvatn-
inu, það er það eina sem ég get sagt.“
Í máli Birkis kemur einnig fram að
útbreiðsla hafíss hafi nokkur áhrif á
göngur loðnunnar.
„Hafís hefur jafnt og þétt farið
minnkandi á þessu svæði sem loðnan
heldur sig á, og maður veltir því fyrir
sér hvaða áhrif sú þróun hefur – og
hvaða áhrif hafísinn hefur yfirhöfuð á
loðnuna. Við vitum ekki mikið um það
en þarna getur verið að eiga sér stað
töluvert samspil, sem nú reynir á
þegar hafísröndin færist sífellt norð-
ar. Meðal annars hvað varðar aðgang
afræningja að loðnunni og birtustig,
svo dæmi séu nefnd. Hugsanlega
verður minna um það að loðnan haldi
sig í grennd við hafísröndina.“
Ekki fylgst nógu vel með
Birkir tekur fram að auk þess að vera
mikilvægur nytjastofn sé loðnan líka
mikilvæg sem fæða fyrir aðrar verð-
mætar tegundir. „Hún nærist og vex
þarna norður í höfum, og svo með
hrygningargöngunni upp á land-
grunnið okkar, þá er hún að bera
hingað gríðarlegan lífmassa sem er
ómetanlegur fyrir vistkerfið og þá
nytjastofna sem þar eru, eins og
þorsk, ýsu, ufsa og fleiri fiskteg-
undir.“
Að lokum segir hann að ljóst sé að
almennt séu miklar breytingar að
eiga sér stað á hafsvæðinu umhverfis
Ísland. „Við höfum einfaldlega ekki
fylgst nógu vel með, fram til þessa.
Þetta eru stór verkefni sem bíða okk-
ar og þess vegna er mikilvægt að
vera með góð tól í höndunum til að
takast á við þau. Í þessum efnum
þurfum við sem Íslendingar að taka
okkur á, efla rannsóknir, bæta þekk-
ingaröflun og virkja frekara samstarf
við nágrannaþjóðir. Við þurfum að
draga fleiri með okkur í þetta, þar
sem þessi málefni varða jú fleiri en
okkur,“ segir Birkir.
Hann vonast þá til að tilvonandi
nýtt skip Hafrannsóknastofnunar,
sem ætlað er að koma í stað hálfrar
aldar gamals Bjarna Sæmundssonar,
muni koma að góðum notum. „Það er
mikilvægt að vel verði að því staðið,
og að það henti okkar aðstæðum.
Þekking kostar peninga, en þekking-
arleysi er ennþá dýrara.“
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Ráðgert er að leiðangur Heimaeyjar, sem lagði úr höfn á mánudag til loðnu-
leitar, standi í um vikutíma. Að leitinni standa Hafrannsóknastofnun og út-
gerðir uppsjávarskipa.
Fer skipið norðaustur frá Eskifirði og síðan í vestur eftir fyrirfram ákveð-
inni leið með landgrunnskantinum á þekktri gönguslóð loðnunnar, en með
þessu móti er reynt að tryggja að ekkert af loðnu fari framhjá án þess að
menn hafi upplýsingar um það.
Rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson fara síðan í hefð-
bundinn loðnuleiðangur eftir áramót og væntanlega sömuleiðis skip frá út-
gerðinni.
Hafrannsóknastofnun mun að þeim mælingum loknum endurskoða ráðgjöf
sína um aflaheimildir í loðnu. Lítið mældist í haust af ungloðnu, sem ætti að
bera uppi veiði fiskveiðiársins 2019/2020.
Áhugaverðir tímar í vændum
Niðurstöður úr loðnuleiðangri í september þóttu hvorki gefa ástæðu til að gefa út kvóta loðnu í vetur né upphafskvóta fyrir næsta
fiskveiðiár. Birkir Bárðarson, fiskifræðingur á sviði uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknastofnun, segir í samtali við 200 mílur að loðnu-
stofninn hafi varla verið lélegri frá upphafi mælinga. Þó megi velta fyrir sér hvort fram undan séu breytingar til betri vegar, í kjölfar
kólnunar sjávar við Ísland undanfarin ár.
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir
Vertíð Loðnustofninn hefur sjaldan ef nokkru sinni verið lélegri, segir Birkir.
Birkir
Bárðarson
Bjarni Sæmundsson siglir í var
Við mælingar á loðnustofninum í
janúar leituðu skip Hafrann-
sóknastofnunar í var á Ísafirði.
Myndin er tekin um borð í Árna
Friðrikssyni, sem sigldi samsíða
Bjarna Sæmundssyni inn Ísafjarð-
ardjúpið. Í baksýn má sjá hrikaleg
fjöllin á Hornströndum.
Loðnan fari ekki framhjá