Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
glussaslanga undir dráttarspilinu
sprakk og spilið var óstarfhæft
vegna glussaleka.
Af einhverjum ástæðum hafði
umrædd glussaslanga orðið eftir við
endurnýjun á öllum glussaslöngum
sem gerð var reglulega en þessi
slanga sem gaf sig var falin undir
undirstöðum dráttarspilsins og við-
gerðarmönnum hafði yfirsést hún.
Aldeilis glæsileg staða sem við
vorum nú komnir í, með eitthvað um
400 farþega á vélarvana skipi í
drætti, bilað dráttarspil í svarta
myrkri rétt undan landi. Lögmál
Murphys, það klikkar ekki.
Vélstjórar varðskipsins voru
strax kallaðir út til viðgerðar og far-
ið yfir málið með þeim. Í ljós kom að
engin varaslanga var tiltæk sem
passaði en til voru aðrar slöngur
sem þeir ætluðu að reyna að blanda
saman þannig að hægt yrði að
tengja þær við spilið.
Einnig var hafist handa við að
hafa plan B tiltækt og púllari og
annar búnaður gerður klár til að
reyna að ná inn dráttarvírnum ef
ekki tækist að gera við dráttarspilið.
Síðan gætum við alltaf notað svo-
kallaðan „capstan“, eða drátt-
arkopp, til að stytta í dráttartaug-
inni þegar vírinn væri kominn inn.
Ég hafði fulla trú á því að vél-
stjórarnir gætu lagfært spilið og dró
því úr ferð Týs þar sem ljóst var að
einhver seinkun yrði á komu til
hafnar, þó ekki það mikil að hætta
væri á því að dráttarvírinn færi í
botn því þá var mögulegt að hann
eða dráttartaugin slitnaði sem ekki
væri gott mál.
Upp úr kl. 21.00 kom hafn-
sögumaðurinn um borð, tæpar tvær
sjómílur utan við höfnina, með
dráttarbát og skömmu síðar var sett
dráttartaug úr stefni dráttarbátsins
í skut EZADEEN.
Þegar ég ræddi við hafnsögu-
manninn fyrr um daginn og skoðaði
sjókortin okkar af höfninni þar sem
hann vildi að skipið færi upp að
bryggju rak ég augun í það að um-
ræddur hafnarbakki var ekki í okk-
ar sjókortum, fann hann ekki þó að
við ættum að vera með nýuppfærð
rafræn sjókort svo ég bað hann að
taka með sér sjókort þegar hann
kæmi um borð til okkar.
Hafnsögumaðurinn var strax
upplýstur um ástand dráttarspils-
ins, ég sagði honum að ég væri með
góða vélstjóra sem myndu án efa
redda þessu. Hann virtist ekki eins
sannfærður og stakk upp á að drátt-
arbáturinn sem enn fylgdi okkur
tæki við drættinum en ég hafnaði
því, sagði honum að hafa engar
áhyggjur af þessu.
Góðir vélstjórar eru gulls ígildi
eins og reyndar allar áhafnir skipa,
keðjan er aldrei sterkari en veikasti
hlekkurinn.
Einnig kom hafnsögumaðurinn
með sjókort af höfninni í Corigliano
í stórum Ipad og kom þá í ljós að
höfnin hafði verið stækkuð en ekki
búið að senda út leiðréttinguna og
mér skildist á hafnsögumanninum
að höfnin ætti sjálf að sjá um þetta,
væri einkarekin, sem hún hefði
greinilega ekki gert, var í ein-
hverjum fjárhagsörðugleikum.
Ipadinn og kortið í honum dugði
mér vel og hafði ég hann til hlið-
sjónar á leið okkar inn í höfnina.
Um kl. 21.30 tókst Tryggva yf-
irvélstjóra og hans mönnum í vél-
inni að lagfæra dráttarspilið, tekin
var varaslanga úr öðrum krana
skipsins, hún rafsoðin föst við vara-
tengi sem til voru um borð og pöss-
uðu upp á gengjurnar á drátt-
arspilinu.
Þetta var vandasamt verk því
margþurfti að sjóða þetta saman og
kæla á milli því annars var hætta á
að skemma slöngurnar ef þetta of-
hitnaði.
Dráttartaugin var nú stytt ennþá
meira, og nú niður í innan við 50
metra rétt utan hafnargarðanna í
Corigliano og lónað hægustu ferð
inn á höfnina.
Mér fannst hafnsögumaðurinn
vera nokkuð órólegur þegar hann
kom upp í brú og ég spurði hann því
hvort hann hefði áður tekið skip inn
í höfn í drætti. Sagði hann svo ekki
vera, þetta væri í fyrsta skipti.
Ég sagði honum að hann væri
heppinn. Ég hefði gert þetta nokkr-
um sinnum og einnig án dráttarbáta
sem ekki væru margir við Ísland.
Við myndum klóra okkur út úr
þessu sameiginlega.
Haldið í höfn á Ítalíu
Við vorum ljónheppnir með vindátt
þegar inn í höfnina kom, en þá hafði
vind lægt talsvert og stóð beint upp
á þá bryggju sem við áttum að
leggja skipinu upp að.
Rétt fyrir miðnætti föstudagsins
2. janúar 2015 var síðan EZADEEN
komin að bryggju í Corigliano og
formlega afhent ítölskum yfirvöld-
um.
Einnig voru gögn sem fundust
uppi í brú eins og leiðbeiningar um
hvernig ætti að nota sjálfstýringu
skipsins og þær kompásstefnur sem
átti að stýra til Ítalíu, allt skrifað á
bakhlið sjókorts.
Í ljós kom daginn eftir, við taln-
ingu ítalskra yfirvalda, að um borð í
EZADEEN voru alls 360 flótta-
menn og nær allir frá Sýrlandi.
Daginn eftir eða 3. janúar héldum
við síðan aftur út til eftirlits á Mið-
jarðarhafi, eftir ansi annasöm ára-
mót. Frestuðum áramótaveisluföng-
um okkar voru síðan að lokum gerð
góð skil á Sikiley í næstu inniveru
skipsins, nokkrum dögum síðar.
Að lokum skal þess getið að strax
að morgni 2. janúar barst okkur
þakkarbréf frá björgunarstjórn-
stöðinni í Róm. Sjálfum fannst mér
þetta ekki alveg tímabært því björg-
un fólksins var alls ekki lokið en
bréfið var eftirfarandi og þakk-
arvert:
„Dear sirs.
Conserning the search and rescue
operation that is still going on in-
volving your OPV, the italian Mari-
time Rescue Coordination centre
wants to thank the crew for the job
very well done and the excellent
cooperation. Thanking to your tan-
gible seamanship expertise, it has
been possible to save more than 450
lives in distress on board of a ship
left adrift in the Medirerranean sea.
Rear Admiral (ITCG) Giovanni
Pettorino.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í heimahöfn Varðskipin Týr og Ægir við bryggju í Reykjavík. Verkefni við eftirlit í Miðjarðarhafi hafa dregið varðskipin fjarri Íslandsmiðum undanfarin ár. Reynsla áhafna skipanna getur þá komið að góðum notum.
Í Corigliano Flóttamennirnir höfðu ferðast langa leið frá Sýrlandi vestur til Ítalíu.
Ezadeen Um borð reyndust að lokum vera alls 360 flóttamenn, flestir frá Sýrlandi. Kom skipið til hafnar að kvöldi nýársdags.
Halldór B. Nellett skipherra.
Andri Leifsson yfirstýrimaður.
Jóhann Ferdinandsson
2. stýrimaður.
Gísli Valur Arnarsson
3. stýrimaður.
Tryggvi Ólafsson yfirvélstjóri.
Pétur Kristjánsson 1. vélstjóri.
Gísli Páll Ingólfsson 2. vélstjóri.
Kristófer Helgason bryti.
Jóhann Örn Sigurjónsson
bátsmaður.
Magnús Þ. Guðjónsson háseti.
Andri Már Johnsen háseti.
Valgeir Baldursson háseti.
Martin Sövang háseti/sprengju-
sérfræðingur.
Garðar Rafn Nellett háseti.
Aron Karl Ásgeirsson háseti.
Karen Ósk Þórisdóttir háseti.
Jarl Bjarnason smyrjari.
Brynjólfur H. Bjarnason smyrjari.
Níels Finsen fulltrúi LHG í Róm.
Áhöfn Týs
í umræddri
björgun