Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 40

Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Við óskum sjómönnum, útgerðum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Gleðilega hátíð K lukkan 7.20 laugardaginn 14. nóvember 1956. Um borð í aflaskipinu Fylki RE 161, rúma 50 kíló- metra (27 sjómílur) út af Straumnesi. Togarinn Fylkir velkist þunglega til og frá í haugasjó og kolniðamyrkri í Þverálnum, fiskimiðum úti af Vest- fjörðum. Flestir um borð eru sofandi eða að vakna. Vaktin á dekkinu er að hífa inn, skvera trollið eftir að hafa kastað þeg- ar stórviðri hafði gengið niður um nóttina. Gunnar Hjálmarsson, fyrsti stýrimað- ur, stendur við opinn brúar- glugga og fylgist með öllu. Skipið er ferðlaust, aðalvélin hefur verið stöðvuð. Valdimar Einarsson, annar stýrimaður, stígur þunga öld- una við spilið stjórnborðsmegin og Kristmundur A. Þorsteinsson háseti dregur af því. Aftur í ganginum eru þrír hásetar að taka veiðarfærin inn. Jóhannes H. Jónsson stendur í svelgnum en Ólafur Halldórsson og Gunnar Eiríksson eru fyrir framan hann. Þegar Fylkir veltur yfir í stjórn- borða sjást í skini vinnuljósanna belgurinn og pokinn sem fljóta við síðuna. Skyndilega glittir í svarta og undarlega þúst neðst í belgnum sem verið er að hífa. Jóhannes og Ólafur hrópa nær samtímis: „Það er tund- urdufl í vörpunni!“ Valdimar stöðvar spilið samstundis. Einhver kallar: „Eigum við að …“ En það gefst ekkert ráðrúm til að hugsa eða bregðast við. Fylkir tekur skarpa dýfu yfir í bakborða og um leið verður hrikaleg sprenging. Tundurduflið hefur sprungið á stjórnborðssíðu togarans. Hann nötrar stafna á milli og allir þrjátíu og tveir skipverjarnir um borð kast- ast harkalega til. Skipið hrekkur svo enn lengra yfir í bakborða undan heljarafli sprengingarinnar, öll ljós á því slokkna og um leið lyftist sjórinn við stjórnborðssíðuna upp eins og í sprengigosi. Botnvarpan, netið og bobbingarnir þeytast upp í ógurlegum sjó- stróknum. Í sömu svifum tekur Fylk- ir djúpa dýfu yfir í stjórnborða. Valdimar sér grænan blossa en kast- ast svo utan í eitthvað og rotast. Kristmundur hendist niður á þilfarið en Ólafur þeytist þvert yfir það og út í bakborðslunninguna, fer utan í spil- ið og vankast. Hluti veiðarfæranna kemur fljúg- andi inn yfir borðstokkinn svo að bobbingarnir lenda niðri á milli mannanna og þeir hverfa undir þungt netið á kaf í sjó. Þungar hurðir hrökkva af hjörum og menn hendast sofandi fram á gólf. Margir hálfla- mast af ótta því að þeir vita sem er að stríðstól sem þessi drepa oftast allt sem fyrir verður. Auðunn Auðunsson, einn kunnasti aflaskipstjóri flotans, hrekkur illilega við í koju sinni. Hávaðinn er yf- irþyrmandi. Hann telur fyrst að það hafi orðið ketilsprenging og að hann komist ekki upp í brú. En þegar hann kemst á fætur og fer að fikra sig upp á myrkvaðan stjórnpallinn heyrir hann sársaukastunur neðan frá þil- farinu í gegnum opinn gluggann. Eitthvað hræðilegt hefur gerst, þarna eru greinilega slasaðir menn. Skipstjórinn áttar sig strax á því að staðan er grafalvarleg hjá skipi hans og áhöfn. Hann biður Gunnar fyrsta stýrimann að láta áhöfnina sjósetja björgunarbátana strax og hafa þá til- búna við síðurnar ef á þarf að halda. Niðri í vélarrúmi er þreifandi myrkur eftir að ljósavélin stöðvaðist. Þórður Hannesson, þriðji vélstjóri, sem er þar á vakt ásamt kyndara, hefur fundið vasaljós. Hann veit að öryggisbúnaður í olíuverki ljósavél- arinnar hefur slegið út. Vélstjórinn hraðar sér upp á pall til að gangsetja vélina á ný. Það tekst og nú kvikna ljós um borð. En togarinn er farinn að hallast ískyggilega í stjórnborða. Skipverjar óttast að Fylkir sé að sökkva. Meðal skipverja er faðir skipstjór- ans, Auðunn Sæmundsson, bræðslu- maður og aldursforseti um borð. Úti á dekki er Ólafur Halldórsson að komast til meðvitundar. Hann er slasaður, annar handleggurinn er máttlaus. Þeir sem lentu undir net- inu, Gunnar Eiríksson og Jóhannes H. Jónsson, eru hætt komnir undir belgnum. Jóhannesi tekst að ná í hníf í vasa sínum og skera netið fyrir ofan sig. Gunnar hefur lent á bakinu og fengið svo mikið högg að hann nær ekki andanum. Þórður sér að Viggó Gíslason, fyrsti vélstjóri, er kominn niður í vél- arrúm. Hann hafði hrokkið upp í koju sinni og haldið í svefnrofunum að at- ómsprenging hefði orðið. Á leiðinni niður í vél hafði hann heyrt hrópað að menn ættu að hraða sér í bátana. Níu menn eru frammi í lúkar. Sumir þeirra kastast fram úr við sprenginguna. Rafn Kristjánsson há- seti hendist upp undir næstu koju og fær mikið högg á bakið þegar hann lendir á rúmstokknum um leið og hann fellur niður á gólf. Skipið hall- ast gríðarlega í stjórnborða en Rafni tekst við illan leik að brölta á fætur. Hann kemst að dyrunum og sér mikla gufu og reyk aftur á þilfarinu. Þar er allt í hers höndum. Rafn fer í utanyfirföt og kemst út á þilfar. Þar sér hann Gunnar Eiríksson liggja fálmandi í sjónum undir netinu að reyna að komast undan því. Rafn og annar háseti grípa strax hnífa og skera á netið og tekst þannig að koma Gunnari til hjálpar. Hann er illa haldinn og búinn að drekka mik- inn sjó. Ragnar Zophoníasson, 21 árs Reykvíkingur, hafði verið sjö mánuði um borð í Fylki, í hásetaplássi: „Ég var í koju þegar sprengingin varð – þetta var óskaplegur hvellur svo að skipið hentist til. Það var kallað neð- an af dekki: „Það er tundurdufl – skipið er að sökkva!“ Þarna ríkti mikil örvænting. Ég fór fram og hitti þar Auðun skipstjóra og spurði hann hvort ég gæti gert eitthvað. „Já, farðu fram í og athugaðu hvort ein- hverjir eru þar,“ sagði hann. Hann vildi að ég drifi þá sem þar kynnu að vera aftur á bátadekk. Ég fór fram í og sá þar Friðþjóf Strand- berg háseta sem var að hafa fata- skipti og vissi hvorki í þennan heim né annan. Hann virtist hafa fengið högg og vankast þegar sprengingin varð.“ Í bakborðsganginum er Valdimar annar stýrimaður kominn til meðvit- undar. Hann fer upp á bátadekkið þar sem skipsfélagar hans eru að reyna að sjósetja bakborðsbjörg- unarbátinn. Til þess þarf að snúa sveif með mjög stirðum skrúfgangi en skipið hallast svo mikið að ill- mögulegt er að athafna sig. Það reynist vera útilokað að sjó- setja bakborðsbátinn. Undir honum er trébjörgunarfleki sem er fastur. Menn reyna eins og þeir geta að toga hann undan bátnum en allt kemur fyrir ekki. Fylkir er nú nánast að leggjast á stjórnborðshliðina. Vélstjórarnir verða þess fljótt áskynja að síðutankur sem átti að vera tómur er orðinn fullur af sjó, en þeir vonast þó til að hægt verði að dæla sjó úr skipinu til að halda því of- ansjávar. Uppi á stjórnpalli er mönnum orð- ið ljóst að loftskeytatæki skipsins eru orðin óstarfhæf að mestu. Loft- net hafa fallið niður með masturs- toppnum sem brotnaði svo að við- tækin í stöðinni eru óvirk. Jörundur Sveinsson loftskeytamaður er að blindsenda út SOS-neyðarkall, án þess að vita hvort nokkur skip muni heyra það. Auðunn skipstjóri sækir svifblys og skýtur þeim upp í þeirri von að þau sjáist í myrkrinu. Hann veit að næstu togarar gætu verið í um tíu kílómetra (rúmlega fimm sjó- mílna) fjarlægð. „Út með bátana!“ kallar Auðunn nú ákveðinn. Hann fer síðan niður í vélarrúm þar sem sjór er farinn að flæða inn. Fullvíst er hins vegar að „Það er tundurdufl – skipið Þrír hildarleikir á þremur árum eru umfjöllunar- efni nýjustu bókar Ótt- ars Sveinssonar. Með góðfúslegu leyfi Óttars er hér stuttlega gripið niður í einn þeirra at- burða sem greint er frá. Hildarleikur Afturhluti Egils rauða á nöturlegum vettvangi afdrifaríkra atburða, eftir að hann strandaði í foráttubrimi undir Grænuhlíð. Frétt Forsíða Morgunblaðsins dag- inn eftir að togarinn Fylkir sekkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.