Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 28
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þ að var Hermann Bridde, starfsmaður Faxaflóa- hafna, sem teiknaði vitann eftir samtímalýsingu og Bjarni Þór Bjarnason, myndlistarmaður á Akranesi, málaði mynd af honum á grundvelli lýsing- arinnar. Faxaflóahafnir sáu um byggingu staursins, sem stendur á Akurshóli, og Sf. smiðir sáu um upp- setningu. Ljóskerið kemur frá fyr- irtækinu Jóhann Ólafsson & Co en um er að ræða Led-perur sem geta m.a. breytt litum líkt og á miðbæjar- reitnum Akratorgi. Akraneshöfn er sem kunnugt er innan Faxaflóahafna og hafnarstjór- inn, Gísli Gíslason, er Skagamaður. Fyrstu vitar við Faxaflóa voru reistir eftir 1880 og voru það svokall- aðir vörðuvitar eða fiskimannsvitar með einföldu ljóskeri til að lýsa sjó- farendum leið. Fyrsti vísir að vita á Akranesi var ljósker á 7 metra háum staur sem reistur var inni á lóð bæj- arins Teigakots, en hann stóð efst á Akurshól fyrir suðurenda götunnar Vitateigs. Það var Björn Ólafsson (1857-1890) húsmaður í Oddsbæ sem átti hugmyndina um vitabyggingu á Akranesi og bar hana upp á fundi Æfingarfélagsins sem stofnað var árið 1882 og lét ýmis framfaramál til sín taka. Sigurður Jónsson (1843- 1935) járnsmiður byggði mannvirkið í janúar 1890, en ekki var kveikt á ljóskerinu fyrr en rúmu ári seinna, 1. mars 1891, vegna vangaveltna um rekstur vitans og hnattstöðu hans. Skagamenn miklir sjósóknarar Fyrsti gæslumaður vitans, Bjarni Jörundsson, smiður á Litlateig (1853-1901), hóf störf strax árið 1890 þrátt fyrir að ekki væri búið að kveikja á vitanum og gegndi hann því starfi í eitt ár. Magnús Magnús- son Hólm, húsmaður í Teigakoti, tók við af honum í febrúar árið 1891, en Magnús drukknaði í róðri þann 16. nóvember sama ár. Ekki er vitað hverjir gegndu vitavörslu næstu ár. Skagamenn voru miklir sjósókn- arar og á seinni hluta 19. aldar var farið að ræða nauðsyn þess að reisa vita til að auðvelda sæfarendum að ná landi í myrkri og dimmu en sjó- slys voru tíð á þessum árum. Í óprentuðu handriti rifjar Gunn- laugur Haraldsson sagnfræðingur upp tilurð og sögu þessa máls. Ekki verður með vissu ráðið, hve- nær fyrst var hreyft innan Æfing- arfélagsins hugmynd um byggingu vita og stofnun söfnunarsjóðs í því augnamiði, segir Gunnlaugur. Fram kemur í fundargjörð 8. mars 1885 að lesin var uppástunga frá Birni Ólafssyni á Bjargi, „er fór fram á að efla [h]inn svokallaða Vita- sjóð með því að gefinn væri á næstu vetrarvertíð einn fiskur (þorskur) af hverjum hlut fríviljuglega“. Fund- armönnum þótti þá sumum „það ekki eiga við að biðja um gjafir til þessarar stofnunar meðan fyrir- tækið ekki væri lengra á veg komið“, og umræðu því frestað. Svo virðist sem málið hafi legið í salti næstu árin, en það kom til um- ræðu af og til. Á fundum Æfingarfélagsins 6. og 14. desember 1889 bar Björn Ólafs- son (þá í Oddsbæ) upp að nýju til- lögu um stofnun vita á Breiðinni: „Mér hefur dottið í hug að vekja athygli fundarmanna á því, hvort þeim sýndist ekki nauðsynlegt að hér stæði viti á Skaganum, á Breið- inni, nefnilega svo góð lugt er bæri það ljós er sjófarendur gætu farið eftir í myrkri, bæði innlendir og út- lendir. Árið 1885 var haldinn fundur í Ytri-Akraneshreppi í Heimaskaga, er fór fram á að koma sér upp ljósi sunnanverðu hér á Skaga og skutu þá nokkrir menn saman og gáfu nokkrar krónur og margir lofuðu miklu, því öllum sýndist þetta mikið áríðandi. Hvað við erum á eftir öðr- um þarf jeg ekki að lýsa fyrir mönn- um í þessu falli. Hér að sunnanverðu við Faxaflóa er ljós á flestum annesj- um og mörg af þeim (vitum) komnir í kortið, og þá eru ekki svoleiðis vitar tilfinnanlegir í peningalegu tilliti.“ Kosin var framkvæmdanefnd sem skilaði áliti. Þar sagði m.a.: „Á Teigakotsteignum (hæsta punkti Skagans) ætti að byggja steinvörðu (til stuðnings) sem ekki þyrfti að vera sementeruð. Uppúr miðri vörðunni stæði svo sjálf lugt- arstöngin (hér um bil 12 áln. langt tré) studd af vörðunni og þar að auk af nokkrum skástífum úr tré. Á tvo vegu við þessa lugtarstöng þyrfti svo sína járnstöngina hvoru megin fyrir lugtina að renna eftir upp og ofan, en lugtin væri hreyfð upp og ofan eftir járnstöngunum með þar til gjörðum járnkeðjum. Að síðustu þyrfti skýli úr borðum neðst við stöngina fyrir þann sem kveikja á. Lugt sú sem hér mundi þurfa ætti að vera í lagi sem venjulegt götulugt, en stærðin 20 þuml. að hæð, 8 þuml. að breidd neðan og 18 þuml. að breidd ofan. Ef fyrirkomulagi þessu verður fylgt, álítum vér þar kostn- aðurinn ekki mun fara yfir 200 kr. enga frágangssök að byrja nú þegar fyrirtækið svo farið verði að nota vit- ann um byrjun næstkomandi vetrar- vertíðar.“ Töldu Æfingarfélags- menn sér því ekkert að vanbúnaði að hefjast handa á fundi þann 11. jan- úar 1890 eftir að hafa tínt sjálfir upp úr vösum sínum 47 krónur til við- bótar. Samþykkt var að Sveinn Guð- mundsson (formaður) gjörði samn- ing fyrir félagsins hönd við Sigurð kaupmann Jónsson um vitabygg- inguna. Sigurður var skjótur til og lauk smíðinni á skömmum tíma. Til stóð að kveikja ljósin hinn 1. febrúar 1890. En þá kom óvænt babb í bát- inn. Landshöfðingi hafði fengið spurnir af byggingu vitans og gefið amtmanni fyrirmæli um að banna Akurnesingum að kveikja á honum fyrr en búið væri að reikna út hnatt- stöðu hans og auglýsa hana af rétt- bærum yfirvöldum, jafnt fyrir inn- lendum og útlendum sæfarendum. Um haustið var vitamálið loks í höfn enda hafði hnattstaða ljóskers- ins verið mæld. Ljósker var svo tendrað á Skipaskaga á Akranesi hinn 1. mars 1891. „Ljós er sjófarendur gætu farið eftir í myrkri, bæði innlendir og útlendir“ Að frumkvæði Faxaflóa- hafna var efnt til sam- starfs við Akranes- kaupstað um minnis- varða um fyrsta vita á Akranesi en kveikt var á honum árið 1891. Minn- isvarðinn verður form- lega vígður síðar í þess- um mánuði í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá byggingu Gamla vitans á Suðurflös á Breið. Ljósmynd/akranes.is Málverk/Bjarni Þór Bjarnason Minnisvarðinn Eftir er að ganga frá grjóthleðslu neðst við stöngina. Fyrsti vitinn Tilgátumynd sem Bjarni Þór Bjarnason, myndlistarmaður á Akranesi, málaði af vitanum og umhverfi. Bæjarprýðin Akrafjall er í bakgrunni. Vitarnir tveir Árið 1918 var byggður steinsteyptur viti yst á Suðurflös á Akranesi eftir teikningum Thorvalds Krabbe verkfræðings. Nýrri vitinn var byggður árin 1943-44 eftir teikningum Axels Sveinssonar verkfræðings. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.