Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 45
EZADEEN, skipverjar varðskipsins
náðu línunni en skotlínan slitnaði
skömmu áður en svokölluð tildrátt-
artaug var komin yfir, mikið rek var
á skipunum eða um 2,5-3,0 sjómílur
á klukkustund.
Kl. 04.37 var línu skotið aftur yfir í
EZADEEN og tókst að ná henni og
draga allar dráttartaugar um borð.
Gísli Valur stýrimaður um borð í
Ezadeen:
„En þegar við drógum leggina um
borð og komum þessu upp á polla þá
vorum það bara við fjórir, ég, Mart-
in, Jói stóri og Maggi Guðjóns. Ég
man að það slitnaði hjá okkur til-
dráttartógið eða fyrsta eða önnur
línan úr fluglínubyssunni.
Svo í seinni tilrauninni heppnaðist
þetta alveg fullkomlega en það voru
þvílík átök að draga þetta inn á
höndunum, við stóðum næstum því
láréttir með lappirnar á pollunum og
út í lunningu til að halda við þegar
skipin fjarlægðust, svo við myndum
ekki missa tógið og svo leggina út
þótt það væri verið að slaka út með
jöfnum hraða út af spilinu.“
Kl. 05.30 var lokið við að slaka út
dráttartauginni sem samanstóð af
áðurnefndu „dynex“-ofurtógi og síð-
an var slakað út öflugum 5 tomma
dráttarvír en alls var dráttartaugin
um 630 metrar að lengd.
Björgunarstjórnstöðin í Róm
hafði ákveðið áður að farið yrði með
skipið til Corigliano á Suður-Ítalíu,
stefnan sett þangað og siglt í fyrstu
á um fimm sjómílna hraða á móti
veðrinu.
Þegar ljóst var að vel fór á öllu í
drættinum var óskað eftir aðstoð
ítalska varðskipsins CP-310 að
sækja okkar menn um borð í EZA-
DEEN og komu þeir um borð aftur
klukkan rúmlega sex um morguninn.
Allir úr áhöfn varðskipsins voru
komnir um borð og varðskipið full-
mannað en sex Ítalir skildir eftir um
borð í EZADEEN.
Næst á dagskrá var að senda
menn í kojur eftir ansi langa törn,
sumir búnir að vera uppi í sólar-
hring og vaktir skipaðar eins og efni
stóðu til.
Sjálfur tók ég fyrstu vakt í brú og
sendi stýrimenn og háseta utan einn
í brú með mér í langþráða hvíld.
Ég vissi eins og kom í ljós að best
væri að ég tæki fyrstu vakt til að
hnýta ýmsa lausa enda og til að und-
irbúa komu okkar í höfn, ég gæti
lagt mig um hádegið þegar stýri-
menn kæmu úr stuttri hvíld.
Fyrir hádegið hafði ég samband
við ýmsa, eins og mína yfirmenn
heima á Íslandi og hafnsögumann í
Corigliano, og við fórum yfir það
hvernig best væri að koma EZA-
DEEN að bryggju.
Einn dráttarbátur yrði einnig til-
tækur til að aðstoða við að koma
skipinu að bryggju. Ákveðið var að
varðskipið drægi skipið inn í höfnina
og dráttarbáturinn yrði tengdur aft-
an í EZADEEN.
Rétt fyrir hádegið kom annað
skip Ítölsku strandgæslunnar,
CP-321, að skipunum og fylgdi okk-
ur. Stuttu síðar kom dráttarskipið
A.H. VARAZZE og fylgdi skipalest-
inni sömuleiðis til hafnar. Þegar var
orðin ágætis sjö skipa skipalest, Týr
með EZADEEN í togi, síðan tvö
flutningaskip, stórt dráttarskip og
tvö ítölsk varðskip, eða réttara sagt
varðbátar.
Sjálfur komst ég í koju um hádeg-
ið og var ljúft að leggjast á koddann
eftir að hafa verið á fótum í um þrjá-
tíu klukkustundir.
Allan daginn héldum við norður
um, áleiðis til hafnar á Ítalíu, vind
lægði aðeins þegar leið á daginn og
gerði ferðina þægilegri. Upp úr
kvöldmat var hafist handa við að
stytta í dráttartauginni, um fjórar
sjómílur utan við höfnina í Corig-
liano.
Dráttarspilið bilar
Rétt fyrir klukkan 20.00 þegar langt
var komið með að hífa inn dráttarvír
varðskipsins bilaði dráttarspilið,
Varðskipið Týr
Með Ezadeen í eftirdragi
í ítölsku höfninni.
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 45
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Seljum og þjónustum frysti- og kælikerfi
Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerð
og flutning
Iðnaðar- einingar
mikð úrval
ir sendi-
abíla
Kæli- &
frystiklefar
í öllum stærðum
Loftkælings-
& varmadælur