Fréttablaðið - 03.05.2019, Blaðsíða 2
Veður
Vægt næturfrost norðan og aust-
an til. Snýst í suðlæga eða breyti-
lega átt 3-8 í dag með lítils háttar
skúrum á Suður- og Vesturlandi,
en rofar smám saman til fyrir
norðan og austan. Hiti víða 3 til 8
stig. SJÁ SÍÐU 18
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
BORGARMÁL „Það hefur aldrei leikið
neinn vafi á því að Secret Solstice
mun fara fram í Laugardalnum í lok
júní,“ segir Víkingur Heiðar Arnórs-
son, framkvæmdastjóri tónlistarhá-
tíðarinnar Secret Solstice.
Nokkur óvissa hefur verið um
afdrif hátíðarinnar vegna kröfu
borgarinnar um að nýir eigendur
greiði skuld fyrri eigenda upp á 10
milljónir, sagði Þórdís Lóa Þórhalls-
dóttir, formaður borgarráðs, að
ef skuldin verði ekki greidd muni
hátíðin ekki fara fram.
„Samtalið hófst við Reykjavíkur-
borg síðasta haust, við fengum þau
skilaboð frá borgaryfirvöldum í
september að við mættum fara af
stað með miðasölu ásamt skilyrðum
borgarinnar. Í nóvember var fyrsta
útgáfa af samningnum tilbúin. Nú
er verið að klára nokkur formsatriði
og verður gengið frá samningum á
næsta fundi hjá borgarráði,“ segir
Víkingur. „Þetta tekur allt sinn
tíma. Við værum ekki að auglýsa
hátíðina nema við vissum að hún
færi fram.“
Þórdís Lóa vildi lítið tjá sig um
málið. Málefni tónlistarhátíðarinn-
ar voru ekki rædd á fundi borgar-
ráðs í gær. „Við erum búin að vera í
viðræðum og þær hafa bara gengið
vel. Þegar þeim viðræðum lýkur
þá munum við leggja málið fyrir í
borgarráði.“
Guðrún B. Ágústsdóttir, f jöl-
skylduráðgjafi hjá Foreldrahúsi,
segir foreldra barna í vímuefna-
neyslu hafa miklar áhyggjur af
hátíðinni. „Þessir foreldrar eiga allir
eitt kvíðaefni sameiginlegt, það er
Secret Solstice. “
Hún seg ist ek k i get a sag t
nákvæmlega hvers vegna Secret
Solstice sker sig úr. „Einhverra hluta
vegna virðist vera meira um vímu-
efnanotkun unglinga þarna. Það er
auðveldara fyrir þau að komast inn
á svæðið. Það er stutt fyrir þau að
fara, þetta er inni í Reykjavík,“ segir
Guðrún. „Og einhverra hluta vegna
tekst þeim ekki að halda nógu vel
utan um eftirlitið. Börnum hefur
verið hleypt þarna inn og þau getað
keypt vímuefni.“
Víkingur segir allt gert til þess að
stuðla að forvörnum og að lögum
og reglum sé fylgt. „Gæslan okkar
er betri en í Leifsstöð. Einnig verð-
ur forvarnarstarfið í ár unnið náið
með Reykjavíkurborg. Aðeins 11%
af íbúum við Laugardalinn hafa eitt-
hvað við hljómstyrk tónlistarinn-
ar að athuga. Mikill áhugi hefur
verið frá íbúum Laugardals fyrir
sérstökum „nágrannamiðum“ sem
segir okkur að flestir eru ánægðir.“
Hlustað sé á allar athugasemdir
og búið sé að koma til móts við allar
sem hægt er og núna í ár verði geng-
ið enn harðar til verks. „Við verðum
með sérstök áfengisarmbönd, þau
eiga að tryggja að enginn undir 20
ára geti verslað á barnum. Svo verða
mismunandi armbönd fyrir hvern
dag til að gera fólki erfiðara fyrir að
fá armband frá þriðja aðila.“
arib@frettabladid.is
Enginn vafi að Secret
Solstice fer fram í júní
Framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice segir að gengið verði
frá samningum við Reykjavíkurborg á næsta fundi borgarráðs. Ráðgjafi hjá
Foreldrahúsi segir foreldra barna í vímuefnaneyslu kvíða tónlistarhátíðinni.
Fjöldi mætti á Secret Solstice í fyrra. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir
gæsluna í ár verða betri en í Leifsstöð. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN SIGURÐSSON
Við erum búin að
vera í viðræðum og
þær hafa bara gengið vel.
Þegar þeim viðræðum lýkur
þá munum við leggja málið
fyrir í borgar-
ráði.
Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir,
formaður
borgarráðs
STJÓRNMÁL Ungliðahreyfing Mið-
f lokksins var formlega stofnuð
um liðna helgi. Karl Liljendal
Hólmgeirsson, varaþingmaður
f lokksins, var kjörinn formaður.
Karl settist á þing fyrir f lokkinn
síðasta sumar og varð þá yngsti
þingmaður frá upphafi, 20 ára og
355 daga gamall.
Nok k ur aðdragandi var að
stofnun ungliðahreyfingarinnar,
fyrst var auglýstur stofnfundur
í október í fyrra og síðan aftur í
mars. Karl segir núverandi stjórn
vera til bráðabirgða fram að næsta
landsþingi Miðf lokksins sem fer
fram á næsta ári.
Fram undan bíður stórt verk-
efni. „Það þarf að koma félaginu
af stað, fá f leiri til liðs við okkur
og gera það sýnilegt. Ég ætla að
byggja félagið upp til að það geti
lifað til lengri tíma,“ segir Karl.
„Við erum í góðu sambandi við
stjórn f lokksins. Nú eru erfiðir
tímar og við þurfum að sækja fram
af dugnaði.“ – ab
Karl leiðir unga
Miðflokksmenn
Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu hófst í gær með fjórum leikjum. Í Árbænum mættu Kef lvíkingar í heimsókn. Fylkiskonur komust yfir á
annarri mínútu en gestirnir jöfnuðu mínútu síðar. Hart var barist en Fylkir uppskar sigurmark í byrjun síðari hálf leiks FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Barist í byrjun móts
FJÖLMIÐLAR Landspítali varði um
4,6 milljónum króna í auglýsingar
á samfélagsmiðlum í fyrra. Þetta
kemur fram í svari heilbrigðisráð-
herra við fyrirspurn Björns Levís
Gunnarssonar á þingi.
Deildarstjóri samskiptadeildar
spítalans segir að með því að færa
auglýsingar á samfélagsmiðla sparist
um tíu milljónir króna árlega.
Til samanburðar var samanlagður
kostnaður Landlæknisembættis,
Sjúkratrygginga Íslands, Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins, Lyfja-
stofnunar og Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands einungis rúm ein millj-
ón króna.
„Útgjöld Landspítala til aug-
lýsinga í samfélagsmiðlum eru ekki
nema um 20 prósent af því sem
útgjöldin voru áður til prentmiðla.
Auglýsingar í rafrænum miðlum
eru árangursríkari og skilvirkari.
Þessi þróun snýst alfarið um fag-
legri vinnubrögð og sparnað,“ segir
Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri
samskiptadeildar Landspítala.
Björn Leví spurði ráðherra hvort
kaup á auglýsingum á erlendum
samfélagsmiðlum samræmdust
stefnu stjórnvalda um að ef la
íslenska fjölmiðla. Heilbrigðisráð-
herra svaraði því til að kaup á aug-
lýsingum væru ekki leið til að efla
íslenska fjölmiðla. „Til þess þurfi að
fara aðrar leiðir sem hafi það tiltekna
markmið, byggist á skýrri stefnu og
feli í sér sanngirni og jafnræði.“ – sa
Spara tíu
milljónir
LSH auglýsir fyrir 400 þúsund á
mánuði á samfélagsmiðlum.
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
B
-D
2
3
4
2
2
E
B
-D
0
F
8
2
2
E
B
-C
F
B
C
2
2
E
B
-C
E
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K