Fréttablaðið - 03.05.2019, Qupperneq 6
Gunnar Jóhann neitar að
hafa myrt hálfbróður sinn
en játar aðild að dauða hans.
LÖGREGLUMÁL Búið er að yfirheyra
Gunnar Jóhann Gunnars son sem
grunaður er um að hafa myrt hálf-
bróður sinn, Gísla Þór Þórarins-
son, á laugardagsmorgun í bænum
Mehamn í Noregi. Í tilkynningu
frá lögreglunni í Finnmörk í Nor-
egi í gær segir að hann neiti sök í
morði hálf bróður síns, en játi aðild
að málinu.
Þar kemur enn fremur fram að
hinn Íslendingurinn sem sakaður
er um aðild að morðinu hafi einn-
ig verið yfirheyrður í gær og hann
neiti allri sök í málinu, líkt og hann
hefur gert frá upphafi.
„Við erum búin að fá mynd af því
sem gerðist á þeim tíma áður en
morðið var framið. Við höfum yfir-
heyrt vitni sem þekktu hinn látna
og þann grunaða, eða sem voru
með hinum grunuðu tímana áður.
Við höfum einnig rætt við vitni
sem geta lýst tengslum hins látna
og þeirra grunuðu og hvernig þau
voru aftur í tímann,“ segir Torstein
Petter sen hjá lögreglunni í Finn-
mörku.
Búið er að yf irheyra um 40
manns í tengslum við morðið.
Rannsókn er enn í fullum gangi og
vinnur lögregla að því að kortleggja
ferðir hinna grunuðu fyrir og eftir
glæpinn og safnar frekari vitnis-
burðum.
Í yfirlýsingu lögreglu segir að
komin sé mynd af atburðarásinni
sem átti sér stað áður en morðið
var framið. Þar kemur einnig fram
að rannsókn á vettvangi sé lokið og
að öll sýni hafi verið send til grein-
ingar. Lögreglan hefur lagt hald á
eitt skotvopn og bíður niðurstöðu
rannsóknar sem mun sýna fram á
hvort um morðvopnið sé að ræða.
Þannig er fyrsta hluta rannsókn-
ar lögreglu að ljúka og mun hún í
framhaldinu einbeita sér að því að
fá skýrari mynd af atburðarásinni. Í
yfirlýsingunni segir einnig að í
framhaldi af því að fyrsta hluta sé
lokið þurfi að takmarka upplýs-
ingagjöf til almennings. – la
Lögreglan í Noregi yfirheyrt Gunnar
Jóhann og fjörutíu aðra í Mehamn
Ársfundur 2019
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar
verður haldinn þriðjudaginn 14. maí kl. 17.30 í húsakynnum
Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42 í Reykjavík.
Lífeyrissjóður
starfsmanna Reykjavíkurborgar
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
Yfirlit yfir a
omu ársins 2018
Breyting á hreinni eign í m.kr. 2018 2017
Iðgjöld 2.780 2.566
Lífeyrir -4.988 -4.446
Hreinar árfestingatekjur 4.561 4.671
Rekstrarkostnaður -200 -190 _________ ________
Breyting á hreinni eign 2.153 2.601
Hrein eign frá fyrra ári 76.662 74.061 _________ _________
Hrein eign til greiðslu lífeyris 78.815 76.662 _________ _________
Efnahagsreikningur í m.kr.
Eignarhlutir í félögum og sjóðum 8.723 8.902
Skuldabréf 69.815 67.492
Bundnar bankainnstæður 0 60
Kröfur 182 217
Handbært fé 437 533
Ýmsar skuldir -342 -542 _________ _________
Hrein eign til greiðslu lífeyris 78.815 76.662 _________ _________
Kennitölur
Nafnávöxtun 5,8% 6,1%
Raunávöxtun 2,4% 4,3%
Raunávöxtun 5 ára meðaltal 3,7% 4,0%
Raunávöxtun 10 ára meðaltal 3,5% 3,5%
Hrein eign umfram heildarskuldbindingar 19,8% 20,7%
Virkir sjóðfélagar 343 392
Fjöldi lífeyrisþega 3.254 3.151
Sjóðfélagar í árslok 16.397 16.577
Á árinu 2018 greiddu að meðaltali 343 sjóðfélagar iðgjöld til
sjóðsins og námu heildariðgjöld ársins 2.780 m.kr. með auka-
framlagi launagreiðenda. Að meðaltali fengu 3.254 einstaklingar
greiddan lífeyri frá sjóðnum og nam hann 4.988 m.kr.
Rekstrarkostnaður ársins var um 200 m.kr. Hreinar árfestinga-
tekjur ársins voru 4.561 m.kr. Nafnávöxtun sjóðsins var 5,8%
en raunávöxtun 2,4%. Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði
um 2.152 m.kr. á árinu og nam 78.815 m.kr. í árslok.
Tryggingafræðileg athugun sjóðsins sýnir að heildareignir
sjóðsins umfram heildarskuldbindingar eru um 21.143 m.kr.
Enginn starfsmaður var á launaskrá hjá sjóðnum, en
Brú lífeyrissjóður hefur annast rekstur sjóðsins frá 1998.
Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi
sté©arfélaga eiga ré© til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hva©ir til að mæta á fundinn.
Reykjavík, 12. apríl 2019
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar
Í stjórn sjóðsins sitja:
Þórdís Lóa Þórhallsdó©ir, formaður stjórnar,
Ása Clausen, Janus Arn Guðmundsson,
Rannveig Ernudó©ir og Þorgrímur Hallgrímsson
Framkvæmdastjóri:
Gerður Guðjónsdó©ir
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2018
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
6. Kynning á breytingum samþykkta sjóðsins
7. Önnur mál
DÓMSMÁL Búast má við að réttar-
höldum í lagastuldarmáli vegna
laganna Söknuðar og You Raise Me
Up verði ekki lokið fyrr en eftir um
eitt ár. Lögmenn fyrirtækja sem
Jóhann Helgason hefur stefnt segja
bæði lögin byggja á sömu gömlu
tónsmíðunum, sérstaklega írska
þjóðlaginu Danny Boy.
Þetta segir í skjali sem lagt var
fyrir alríkisdómstól í Los Angeles
fyrir viku. Um er að ræða sameigin-
legt skjal þar sem lögmaður Jóhanns
Helgasonar annars vegar og lög-
menn ýmissa stórfyrirtækja sem
Jóhann hefur stefnt hins vegar fara
yfir meginsjónarmið sín í málinu.
Eins og fram hefur komið hefur
Jóhann Helgason stefnt norska
lagahöfundinum Rolf Løvland og
stórfyrirtækjum á borð við Warner,
Universal, Apple og Spotify vegna
meints stuldar á laginu Söknuði frá
árinu 1977. Það hafi verið gert með
laginu You Raise Me Up sem fyrst
kom út 2001.
Vegna fyrningarreglna kemur
fram að Jóhann fer ekki fram á
hlutdeild í tekjum sem sköpuðust
vegna You Raise Me Up nema þrjú
ár aftur í tímann frá því stefna var
lögð fram 29. nóvember síðastlið-
inn. Ofan á þetta gerir Jóhann hins
vegar kröfu um bætur. Lögmenn
fyrirtækjanna segjast munu skila
inn yfirliti yfir tekjur sem You Raise
Me Up skilað frá og með 29. nóvem-
ber 2015.
Þau Ava Badiee, Barry I. Slotnick
og Tal E. Dickstein, lögmenn sem
fara með málið fyrir hönd Univer-
sal, Warner Bros, UMG Recordings
og Peermusic, Ltd., segja það ekki
koma sér á óvart að Jóhann hafi ekki
sett fram stefnu í málinu öll þau ár
sem liðin séu frá því You Raise Me
Up náði heimsfrægð í flutningi Josh
Groban árið 2003. Þau litlu tón-
listarlegu líkindi sem séu með lög-
unum tveimur megi einnig finna í
vinsælum lögum sem séu eldri en
bæði umrædd lög, sérstaklega í írska
þjóðlaginu Danny Boy.
„Greining tónlist arsér f ræð-
ings staðfestir, í ljósi þess hversu
aðgengileg eldri lög eru, að stefn-
andi [Jóhann] getur ekki komist
nálægt því að sýna fram á markverð
líkindi,“ segja lögmennirnir. „Jafn-
vel þótt stefnandi gæti sýnt fram
á að Løvland hafi einhvern tíma
heyrt Söknuð þá væri það ekki nóg
til að setja fram kröfu um lagastuld
þegar markverð líkindi eru ekki
fyrir hendi.“
Í þessu ljósi boða Badiee, Slotnick
og Dickstein kröfu um frávísun en
lögmenn beggja aðila eiga að mæta
fyrir dómara í Los Angeles eftir viku
eða í framhaldi af því. Þau segja að
kostnaðarsamt og tímafrekt yrði að
að komast að því hvort Løvland hafi
haft aðgang að Söknuði og hvort
um sjálfstæð sköpunarverk væri að
ræða og fullyrða að hvorugt þessara
atriða ætti að hafa áhrif á ákvörðun
um að vísa málinu frá.
Þá setja lögmenn fyrirtækjanna
fram efasemdir um lagið Söknuð.
Segja þeir Jóhann „halda því fram“
að hann hafi samið Söknuð sem
„hafi að sögn“ komið út á Íslandi
árið 1977.
Fram kemur í skjalinu að ekki hafi
tekist að birta Rolf Løvland sjálfum
stefnuna. Lögmaður Jóhanns segir
Løvland í tvígang hafa endursent
stefnuna óundirritaða. Unnið sé að
því að stefna Norðmanninum sam-
kvæmt alþjóðlegum samningum.
Því eigi að vera lokið í síðasta lagi
26. júní næstkomandi.
Samkvæmt skjalinu hafa lög-
mennirnir rætt möguleikann á sátt
í málinu. „Aðilarnir hafa átt forvið-
ræður um sátt sem ekki báru ávöxt,“
segir um þetta atriði. Verði af frek-
ari sáttaviðræðum kjósi þeir að ráða
einkamálamiðlara til að taka þátt í
þeim.
Þann tíunda maí eiga fulltrúar
málsaðilanna að mæta fyrir Andre
Birotte Jr. dómara til að ákveða
dagskrá málsins í framhaldinu.
Lögmaður Jóhanns gerir fyrir sitt
leyti kröfu um að málið verði rekið
frammi fyrir kviðdómi. Miðað við
tímaáætlun í margnefndu skjali
verður málið ekki til lykta leitt fyrr
en eftir eitt ár með réttarhöldum
sem gætu tekið fimm til sjö daga.
Verði af réttarhöldunum boða
báðir aðilar að þeir muni kalla til
að minnsta kosti sjö vitni. Lög-
maður Jóhanns tilgreinir íslenska
tónlistarmenn og útvarpsfólk sem
hefur haft kynni af Rolf Løvland
eða talið er geta varpað ljósi á það
hvernig Løvland gæti hafa komist í
snertingu við lagið Söknuð á sínum
tíma, meðal annars í heimsóknum
og vinnuferðum á Íslandi.
Meðal þeirra sem eru sérstaklega
nefndir á vitnalistanum af hálfu
lögmanns Jóhanns er írska söng-
konan og fiðuleikarinn Fionnuala
Sherry, meðlimur Secret Garden,
hljómsveitar Løvlands.
gar@frettabladid.is
Dregið í efa að Jóhann
hafi samið Söknuð
Lögmenn fyrirtækja sem Jóhann Helgason stefnir í Bandaríkjunum vegna
meints stuldar á laginu Söknuði með útgáfu á laginu You Raise Me Up segja
bæði lögin byggð á írska þjóðlaginu Danny Boy og boða kröfu um frávísun.
Alríkisdómstóllinn í miðbæ Los Angeles í Kaliforníu. MYND/GOOGLE STREETVIEW
Fionnuala Sherry, samstarfsmaður
Rolfs Løvland, er á vitnalistanum.
MYND/WIKIPEDIA
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
B
-E
1
0
4
2
2
E
B
-D
F
C
8
2
2
E
B
-D
E
8
C
2
2
E
B
-D
D
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K