Fréttablaðið - 03.05.2019, Síða 8
Skipið sem um ræðir er í
eigu Vísindakirkjunnar en
hún hefur ekki viljað tjá sig
um málið.
VENESÚELA Nicolás Maduro, for-
seti Venesúela, birtist í gær í
venesúelsku sjónvarpi með valda-
mestu mönnum hersins og reyndi
þannig að hrekja fullyrðingar
Bandaríkjamanna um að það
styttist í að herstjórar myndu
snúast gegn honum.
Tímasetningin er væntanlega
engin tilviljum. Fyrr í vikunni
birti Juan Guaidó, forseti þingsins
og samkvæmt þinginu starfandi
forseti, myndband með herfor-
ingjum þar sem hann sást með
einkennisklæddum hermönnum
fyrir utan La Carlota-herstöðina í
höfuðborginni Karakas.
Guaidó sagði að hermenn hefðu
svarað kalli stjórnarandstöð-
unnar og sagði að gærdagurinn
markaði „endalok valdaráns“
Maduro en þingið telur hann hafa
svindlað í forsetakosningum síð-
asta árs og því ekki réttkjörinn.
Maduro hafnar þessu og álítur
þingið valdalaust eftir stofnun
stjórnlaga ráðs sem er einvörð-
ungu skipað samf lokksmönnum
Maduro.
Maduro birti sömuleiðis ávarp á
samfélagsmiðlum í gær. Þar sagði
hann að herinn stæði saman, þétt
við bakið á forsetanum.
Þetta stangast á við greiningu
Elliotts Abrams, erindreka Banda-
ríkjanna í Venesúela. Bandaríkja-
menn álíta Guaidó réttmætan,
starfandi forseta en Abrams telur
að Maduro geti ekki treyst her-
stjórum. „Jafnvel ef þeir segjast
ætla að halda tryggð við forsetann
getur hann ekki treyst þeim,“
sagði erindrekinn en aðrir banda-
rískir embættismenn hafa fullyrt
að æðsta yfirstjórn hersins hafi
átt í viðræðum við bæði hæstarétt
og fulltrúa Guaidó að undanförnu
um afsögn Maduro. – þea
Maduro sýnir styrk sinn með herinn sér við hlið
Maduro í útsendingunni sem sýnd
var í gær. NORDICPHOTOS/AFP
BRETLAND Julian Assange, stofnandi
WikiLeaks, mætti fyrir dóm í gær
þar sem beiðni Bandaríkjastjórnar
um framsal hans frá Bretlandi var til
umræðu. Assange sagðist ekki vilja
vera framseldur. „Ég er blaðamaður
sem hefur unnið til fjölmargra verð-
launa og verndað fjölmarga,“ sagði
hann.
Saksóknarar í Bandaríkjunum
hafa ákært Assange fyrir samsæri
um að fremja stafrænan glæp og á
hann yfir höfði sér fimm ára fang-
elsisdóm verði hann sakfelldur, að
sögn bandaríska dómsmálaráðu-
neytisins.
„Þessi ákæra snýst um einn
stærsta þjófnað leyniskjala í sögu
Bandaríkjanna,“ hafði Reuters eftir
Ben Brandon, lögmanni banda-
ríska ríkisins. Hann sagði málið
snúast um meint samráð Assange
við Chelsea Manning.
Árið 2010 starfaði Manning við
greiningu upplýsinga fyrir banda-
ríska herinn og tók ólögleg afrit af
90.000 skjölum sem tengdust stríð-
inu í Afganistan, 400.000 sem tengd-
ust Íraksstríðinu, 800 um fanga í
Guantanamo og 250.000 skjölum
bandarískra erindreka. Stærstur
hluti þessara skjala var síðar birtur
á WikiLeaks.
Að sögn Brandons áttu Mann-
ing og Assange í stafrænum sam-
skiptum um að brjóta upp læstan
gagnagrunn og þannig komast
yfir leyniskjöl. Það er hinn meinti
glæpur Assange.
Jennifer Robinson, lögmaður Ass-
ange, sagði að málið snerist ekki um
tölvuhökkun. „Þetta mál snýst um
blaðamann og útgefanda sem átti í
samræðum við heimildarmann um
aðgengi að upplýsingum. Blaða-
mann sem hvatti heimildarmann
sinn til þess að verða sér úti um
efni og um það hvernig hægt væri
að tryggja nafnleynd heimildar-
mannsins. Þetta er verndað athæfi
sem blaðamenn stunda daglega.“
Manning var sjálf í varðhaldi frá
2010 en dæmd í 35 ára fangelsi fyrir
njósnir árið 2013. Hún sat inni í tæp
sjö ár áður en Barack Obama forseti
fyrirskipaði að leysa hana úr haldi.
Hlé var í gær gert á meðferð máls-
ins. Reuters hafði eftir Michael Snow
dómara að mánuðir væru þangað til
niðurstaða fengist í málinu.
Hins vegar er búið að dæma í máli
breska ríkisins gegn Assange. Hann
var á miðvikudag dæmdur í fimmtíu
vikna fangelsi fyrir að hafa brotið
gegn skilmálum lausnar gegn trygg-
ingu. Assange var sakfelldur fyrir að
hafa flúið í ekvadorska sendiráðið
og sótt þar um pólitískt hæli til þess
að forðast framsal til Svíþjóðar þar
sem hann var sakaður um kyn-
ferðislegt of beldi. Hinn ástralski
Assange dvaldi í sendiráðinu í sjö
ár áður en honum var úthýst í apríl
síðastliðnum.
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri
WikiLeaks, var staddur fyrir utan
dómhúsið á miðvikudag. „Þetta er
er spurning um líf eða dauða fyrir
Assange. Þetta er einnig spurning
um líf eða dauða fyrir grundvallar-
gildi blaðamennsku,“ sagði ritstjór-
inn við blaðamenn á staðnum.
Ef Assange verður framseldur til
Bandaríkjanna er ekki loku fyrir
það skotið að bandarísk stjórnvöld
ákæri hann fyrir fleiri meinta glæpi,
samkvæmt lögfróðum sérfræðing-
um sem The New York Times ræddi
við.
Þá er ekki heldur ómögulegt að
rannsókn á máli Assange í Svíþjóð
verði tekin upp á nýjan leik.
thorgnyr@frettabladid.is
Assange sagðist hafa verndað
marga er hann kom fyrir dóm
Stofnandi WikiLeaks leggst alfarið gegn framsali til Bandaríkjanna. Lögmaður bandaríska ríkisins segir
málið snúast um einn stærsta þjófnað leyniskjala í bandarískri sögu. Lögmaður Assange segir málið hins
vegar snúast um verndaða starfshætti blaðamanna. Assange gæti verið ákærður fyrir fleiri meinta glæpi.
Þetta er ekki Assange sjálfur heldur kínverski listamaðurinn Ai Weiwei sem styður Ástralann. NORDICPHOTOS/AFP
Ég er blaðamaður
sem hefur unnið til
fjölmargra verðlauna og
verndað fjölmarga.
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks
Þessi ákæra snýst
um einn stærsta
þjófnað leyniskjala í sögu
Bandaríkjanna.
Ben Brandon, lögmaður bandaríska
ríkisins
BANDARÍKIN Demókratar í fulltrúa-
deild bandaríska þingsins, sem eru í
meirihluta, kölluðu í gær eftir því að
þingið lýsti því yfir að William P. Barr
dómsmálaráðherra hefði sýnt þing-
inu lítilsvirðingu með því að mæta
hvorki fyrir dómsmálanefnd fulltrúa-
deildarinnar til að svara spurningum
né afhenda óritskoðaða skýrslu um
rannsókn Roberts Mueller, sérstaks
saksóknara, á Rússa málinu fyrir til-
skilinn skilafrest.
Samkvæmt The New York Times
vakti bréf Muellers til dómsmálaráð-
herrans, þar sem hann sagði að Barr
hafi ekki sagt rétt frá niðurstöðum
rannsóknarinnar um hvort Donald
Trump forseti hafi hindrað fram-
gang réttvísinnar, reiði Demókrata.
Barr sagði í tvígang við þingnefndir
að hann vissi ekki af neinni óánægju
Muellers með minnisblaðið.
„Það alvarlega í þessu máli er að
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna
sagði fulltrúadeild bandaríska
þingsins ósatt,“ sagði Nancy Pelosi,
demókrati og forseti fulltrúadeildar-
innar, við blaðamenn í gær og bætti
því við að slíkt væri ólöglegt.
Kerri Kupec, upplýsingafull-
trúi ráðuneytisins, var ósammála
túlkun Pelosi. „Tilhæfulausar ásak-
anir Pelosi forseta á hendur dóms-
málaráðherranum eru alvarlegar,
óábyrgar og rangar.“ – þea
Demókratar í
hart gegn Barr
MAROKKÓ Réttarhöld hófust í gær
yfir 24 einstaklingum í Marokkó
sem sakaðir eru um að stofna
hryðjuverkasellu og að leggja á
ráðin um að myrða þær Louisu
Vester ager Jespersen, 24 ára Dana,
og Maren Ueland, 28 ára Norð-
mann, í Atlasfjöllum í desember
síðastliðnum.
Þrír sakborningar eru sérstaklega
sakaðir um að hafa svarið hryðju-
verkasamtökunum sem kenna sig
við Íslamskt ríki hollustueið og að
hafa framið morðin. Þeir eiga yfir
höfði sér dauðarefsingu.
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu
samþykktu Marokkómenn tíma-
bundið að hætta aftökum árið 1993
og er sú samþykkt enn í gildi þótt af
og til falli dauðadómar. Hins vegar
hefur nokkur fjöldi undirskrifta-
safnana farið af stað að undanförnu
þar sem þess er krafist að sakborn-
ingarnir þrír verði teknir af lífi verði
þeir sakfelldir. – þea
Réttarhöldin
hafin í Marokkó
Fórnarlömbin. NORDICPHOTOS/AFP
William P. Barr
dómsmála
ráðherra
SANKTI LÚSÍA Bandarískt skemmti-
ferðaskip var sett í sóttkví á eyrík-
inu Sankti Lúsíu í Karíbahafi í gær
eftir að tilkynnt var um mislinga-
tilfelli um borð. Frá þessu greindi
Merlene Fredericks James, land-
læknir á Sankti Lúsíu, í tilkynn-
ingu sem hún birti á myndbanda-
veitunni YouTube í gær.
James sagði að aðrir möguleikar
hafi ekki verið á borðinu eftir
að tvær tilkynningar bárust um
smitið þar sem mislingar eru bráð-
smitandi. „Ein sýkt manneskja
getur auðveldlega smitað aðra
með því að hnerra, hósta eða skilja
eftir svita einhvers staðar. Þann-
ig að hættan á frekara smiti olli
því að okkur þótti skynsamlegast
að ákveða að leyfa engum að fara
frá borði eins og stendur,“ sagði
læknirinn.
Bandaríski fréttamiðillinn NBC
News hafði eftir landhelgisgæslu á
Sankti Lúsíu að skipið væri starf-
rækt af og í eigu Vísindakirkjunnar.
Skipið var sagt heita Freewinds
og á að vera með um 300 farþega
innanborðs. Þetta rímar við það
sem sjá mátti á vefsíðunni Marine-
Traffic.com í gærkvöldi. Vísinda-
kirkjan hafði hvorki sent frá sér
yfirlýsingu um málið né tjáð sig um
það með öðrum hætti þegar Frétta-
blaðið fór í prentun.
Að sögn James staðfesti skips-
læknirinn að sjúklingurinn hefði
ekki yfirgefið skipið og því ekki
smitað neinn á eyjunni. Aukin-
heldur sagði James að mislinga-
sjúklingurinn væri ekki í lífshættu
vegna sjúkdómsins. – þea
Skemmtiferðaskip í sóttkví vegna mislingasmits
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
B
-C
D
4
4
2
2
E
B
-C
C
0
8
2
2
E
B
-C
A
C
C
2
2
E
B
-C
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K