Fréttablaðið - 03.05.2019, Page 17

Fréttablaðið - 03.05.2019, Page 17
Annað kvöld klukkan níu stígur hópurinn á svið á Húrra og skemmtir gestum sínum af list og lyst og í ofanálag verður slegið í bingó þar sem glæsi- legir vinningar verða í boði. En hvernig er burlesque-sýning? „Hún samanstendur af stuttum atriðum þar sem fólk er að leika sér að því að vera fyndið, fara út úr kynjakassanum og nýta hæfileika sína,“ segir Helga Thoroddsen, f lúrari og myndlistarmaður. „Stutt atriði fyrir fullorðna þar sem blandast saman bæði hæfi- leikar, húmor og kynþokki,“ bætir María Kristín Steinsson, ljósmynd- ari og magadansmær, við. Sýningin á morgun verður með svokölluðu nerdlesque-yfirbragði þar sem áhrifa gætir úr dægur- menningu. „Þar verða ýmsar frægar per- sónur úr bíómyndum og teikni- myndum, tölvuleikjum og jafnvel auglýsingum að skemmta sér og öðrum,“ segja þær leyndardóms- fullar á svip. Vildi finna sitt sexí Dömur og herra hafa verið starf- andi í tvö ár. „Við kynntumst í burlesque-tím- um hjá Margréti Erlu Maack í Kram- húsinu í janúar 2017 og nokkrum mánuðum síðar settum við upp okkar fyrstu sýningu,“ segir María. „Þessi hópur small svo vel saman að við höfum verið starfandi síðan og sett upp sýningar reglulega.“ Helga segist hafa heillast af leiknum sem fylgir burlesque-list- forminu. „Ég byrjaði í burlesque af því að mig langaði að reyna að finna mitt sexí sem ég var ekki búin að finna áður en svo kom fljótlega þörfin fyrir að búa til atriði og fara á svið,“ segir hún. María kynntist burlesque þegar hún bjó í London. „Ég var í magadansi og heillaðist af þessu listformi og frelsinu til að geta gert það sem mig langaði til að gera. Ég lifi fyrir þetta, það er bara þannig,“ bætir hún við og brosir. Þær eru báðar mjög spenntar fyrir sýningunni á laugardaginn. „Ég sýni dragatriði í fyrsta sinn,“ segir Helga, „og blanda því saman við þverflautuleik en ég lærði á f lautu í mörg ár og það er gaman að geta nýtt það.“ María sýnir svokallað klassískt burlesque en hún hefur sérhæft sig í því. „Þetta er svona það sem fólk hugsar um þegar það heyrir orðið burlesque, fjaðravængir, seiðandi tónlist og mjaðmasveiflur.“ Sýningin og bingóið er loka- hnykkurinn í söfnunarátaki hópsins sem stefnir í náms- og rannsóknarleiðangur til New York í lok maí. „Við höfum lagt allan ágóða af öllum sýningunum okkar frá upphafi í sjóð og ætlum að heim- sækja þetta mekka búrlesksins í New York; fara á sýningar og í tíma og sækja okkur innblástur,“ segir Helga. Þá segja þær hluta hópsins einnig á leið á Brighton Fringe-hátíðina um miðjan maí þar sem hann sýnir tvær sýningar í The Old Market leikhúsinu. Að lokum hvetja þær stöllur alla sem hafa áhuga á öðruvísi skemmtun til að koma á Húrra annað kvöld. „Og ekki má gleyma frábærum vinningum. Bingó og burlesque, það gerist ekki betra!“ Nánari upplýsingar á Facebook undir Burlesque+bingó og miðar fást á tix.is og við innganginn. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Burlesque og bingó? – það gerist ekki betra Burlesque-hópurinn Dömur og herra samanstendur af dömum og einum herra sem öll eiga sam- eiginlegt að njóta þess að búa til og flytja fjölbreytt skemmtiatriði við hæfi fullorðinna þar sem saman koma kynþokki, skemmtun og hæfileikar. Hann stendur fyrir burlesque-bingói á morgun. María Kristín Steinsson og Helga Thoroddsen verða á Húrra annað kvöld að skemmta sér og öðrum á burlesque-bingói. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sýningin verður með nerdlesque-yfirbragði og sjá má frægar persónur úr bíómyndum, teiknimyndum og tölvuleikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 3 . M A Í 2 0 1 9 0 3 -0 5 -2 0 1 9 0 8 :3 8 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E B -D 7 2 4 2 2 E B -D 5 E 8 2 2 E B -D 4 A C 2 2 E B -D 3 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 2 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.