Fréttablaðið - 03.05.2019, Síða 17
Annað kvöld klukkan níu stígur hópurinn á svið á Húrra og skemmtir gestum
sínum af list og lyst og í ofanálag
verður slegið í bingó þar sem glæsi-
legir vinningar verða í boði.
En hvernig er burlesque-sýning?
„Hún samanstendur af stuttum
atriðum þar sem fólk er að leika
sér að því að vera fyndið, fara út úr
kynjakassanum og nýta hæfileika
sína,“ segir Helga Thoroddsen,
f lúrari og myndlistarmaður.
„Stutt atriði fyrir fullorðna þar
sem blandast saman bæði hæfi-
leikar, húmor og kynþokki,“ bætir
María Kristín Steinsson, ljósmynd-
ari og magadansmær, við.
Sýningin á morgun verður með
svokölluðu nerdlesque-yfirbragði
þar sem áhrifa gætir úr dægur-
menningu.
„Þar verða ýmsar frægar per-
sónur úr bíómyndum og teikni-
myndum, tölvuleikjum og jafnvel
auglýsingum að skemmta sér og
öðrum,“ segja þær leyndardóms-
fullar á svip.
Vildi finna sitt sexí
Dömur og herra hafa verið starf-
andi í tvö ár.
„Við kynntumst í burlesque-tím-
um hjá Margréti Erlu Maack í Kram-
húsinu í janúar 2017 og nokkrum
mánuðum síðar settum við upp
okkar fyrstu sýningu,“ segir María.
„Þessi hópur small svo vel saman að
við höfum verið starfandi síðan og
sett upp sýningar reglulega.“
Helga segist hafa heillast af
leiknum sem fylgir burlesque-list-
forminu.
„Ég byrjaði í burlesque af því að
mig langaði að reyna að finna mitt
sexí sem ég var ekki búin að finna
áður en svo kom fljótlega þörfin
fyrir að búa til atriði og fara á svið,“
segir hún.
María kynntist burlesque þegar
hún bjó í London.
„Ég var í magadansi og heillaðist
af þessu listformi og frelsinu til að
geta gert það sem mig langaði til að
gera. Ég lifi fyrir þetta, það er bara
þannig,“ bætir hún við og brosir.
Þær eru báðar mjög spenntar
fyrir sýningunni á laugardaginn.
„Ég sýni dragatriði í fyrsta sinn,“
segir Helga, „og blanda því saman
við þverflautuleik en ég lærði á
f lautu í mörg ár og það er gaman að
geta nýtt það.“
María sýnir svokallað klassískt
burlesque en hún hefur sérhæft sig
í því.
„Þetta er svona það sem fólk
hugsar um þegar það heyrir orðið
burlesque, fjaðravængir, seiðandi
tónlist og mjaðmasveiflur.“
Sýningin og bingóið er loka-
hnykkurinn í söfnunarátaki
hópsins sem stefnir í náms- og
rannsóknarleiðangur til New York
í lok maí.
„Við höfum lagt allan ágóða
af öllum sýningunum okkar frá
upphafi í sjóð og ætlum að heim-
sækja þetta mekka búrlesksins í
New York; fara á sýningar og í tíma
og sækja okkur innblástur,“ segir
Helga.
Þá segja þær hluta hópsins einnig
á leið á Brighton Fringe-hátíðina
um miðjan maí þar sem hann sýnir
tvær sýningar í The Old Market
leikhúsinu.
Að lokum hvetja þær stöllur
alla sem hafa áhuga á öðruvísi
skemmtun til að koma á Húrra
annað kvöld.
„Og ekki má gleyma frábærum
vinningum. Bingó og burlesque,
það gerist ekki betra!“
Nánari upplýsingar á Facebook
undir Burlesque+bingó og miðar
fást á tix.is og við innganginn.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Burlesque og bingó?
– það gerist ekki betra
Burlesque-hópurinn Dömur og herra samanstendur af dömum og einum herra sem öll eiga sam-
eiginlegt að njóta þess að búa til og flytja fjölbreytt skemmtiatriði við hæfi fullorðinna þar sem
saman koma kynþokki, skemmtun og hæfileikar. Hann stendur fyrir burlesque-bingói á morgun.
María Kristín Steinsson og Helga Thoroddsen verða á Húrra annað kvöld að
skemmta sér og öðrum á burlesque-bingói. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sýningin verður með nerdlesque-yfirbragði og sjá má frægar persónur úr
bíómyndum, teiknimyndum og tölvuleikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 3 . M A Í 2 0 1 9
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
B
-D
7
2
4
2
2
E
B
-D
5
E
8
2
2
E
B
-D
4
A
C
2
2
E
B
-D
3
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K