Fréttablaðið - 06.05.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.05.2019, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Það er óhuggulegt að þing- maðurinn skuli hafa komist að þessari niðurstöðu. Við munum lyfta mál- efnum hafsins í okkar for- mennskutíð og beina sérstaklega kastljósinu að plast- mengun í norður- höfum. Furðulegar ræður er stundum haldnar Alþingi og ein slík var einmitt f lutt á dögunum. Þar steig í pontu þingmaður Miðflokksins, Birgir Þórarinsson, sem var undrandi á því að Guðlaugur Þór Þórðar- son utanríkisráðherra hefði á vettvangi Mannrétt- indaráðs Sameinuðu þjóðanna gagnrýnt stjórnvöld á Filippseyjum fyrir mannréttindabrot. Birgi fannst þessi gagnrýni ósanngjörn enda hefði stjórnvöldum á Filippseyjum tekist að snarlækka glæpatíðni. Forseti Filippseyja er Rodrigo Dutarte og í valdatíð hans hafa mörg þúsund fíkniefnasalar og neytendur verið teknir af lífi án dóms og laga. Forsetinn hefur hvatt til slíkra morða og sjálfur sagst hafa tekið fólk af lífi þegar hann var borgarstjóri. Hver sem séð hefur sjónvarpsmyndir þar sem þessi maður tjáir sig hlýtur að átta sig á því að hann er stórhættulegur. Þingmaður Miðflokksins sagði að Dutarte forseti nyti mikils stuðnings meðal landsmanna sinna. Ólíklegt er þó að konur í landinu hafi hann í sérstök- um hávegum eftir að hann sagði í ræðu að feg urð kvenna út skýrði fjölda nauðgana í land inu. Eflaust á hann þó sína aðdáendur, en sá stuðningur segir ekk- ert um mannkosti hans eða hæfni til að gegna starfi sínu. Það er ekkert nýtt að þjóð hafi grimma leiðtoga í hávegum. Í nýlegri könnun í Rússlandi sögðu 70 prósent aðspurðra að þáttur Jósefs Stalíns í Rúss- landi hafi verið algjörlega eða að mestu jákvæður. Þeir þátttakendur sem þarna hneigðu höfuð sitt í þakkarskuld við Stalín eru örugglega margir afkom- endur fólks sem lét lífið í skelfilegum hreinsunum hans. Núverandi forseti, Vladímír Pútín, sem síst verður flokkaður sem talsmaður tjáningarfrelsis og mannréttinda, nýtur stuðnings landsmanna sinna. Í Bandaríkjunum á forseti, sem hefur sett fram rúmlega 10.000 röng eða misvísandi ummæli á rúmlega 800 dögum í embætti, góða möguleika á endurkjöri. Og talandi um Trump þá haga þingmenn Miðflokksins máli sínu stundum eins og þeir séu sérstakir sendiherrar Donalds Trump hér á landi. Í þessari furðulegu ræðu þar sem Birgir Þórarinsson lýsti vonbrigðum með gagnrýni utanríkisráðherra á stjórnvöld á Filippseyjum notaði hann ítrekað orðið „falsfréttir“. Hans skoðun er sú að umræðan um ástandið á Filippseyjum sé lituð af falsfréttum, settum fram til að sverta stjórnvöld þar í landi. Það er óhuggulegt að þingmaðurinn skuli hafa komist að þessari niðurstöðu. Það ætti að teljast til siðferðilegrar skyldu hvers þingmanns að hlusta á fulltrúa mannréttindasam- taka sem vara við ástandi í löndum þar sem mann- réttindi eru fótum troðin. Það er ískyggilegt að íslenskur þingmaður skuli gera tilraun til að flokka slíkt sem falsfréttir. Það er því gott að vita til þess að annar þingmaður, Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hafi ekki setið þegjandi undir stórundarlegri ræðu þingmanns Miðflokks- ins. Kolbeinn, sem er með hjartað á réttum stað, sagði að sér væri misboðið. Þar talaði hann fyrir hönd fjölmargra. Furðuleg ræða Á morgun renna upp tímamót á sviði norður-slóðasamvinnunnar þegar Ísland tekur við for-mennsku í Norðurskautsráðinu til næstu tveggja ára. Fullyrða má að hlutverk ráðsins hafi aldrei verið brýnna en nú og athygli á málefnum norðurslóða aldrei meiri samfara hlýnun loftslags og sviptinga í alþjóða- stjórnmálum. Undir yfirskriftinni „Saman til sjálfbærni á norður- slóðum“ leggur Ísland áherslu á sjálfbæra þróun í efnahagslegu, umhverfislegu og félagslegu tilliti og beinir sjónum sérstaklega að málefnum hafsins, lofts- lagsmálum og grænum orkulausnum, svo og fólkinu á norðurslóðum. Á vettvangi Norðurskautsráðsins hefur um ára- bil verið unnið mikilvægt starf við að meta ástand hafsins. Við munum lyfta málefnum hafsins í okkar formennskutíð og beina sérstaklega kastljósinu að plastmengun í norðurhöfum, sem og bláa hagkerfinu og nýsköpun sem til dæmis lýtur að fullnýtingu sjávarafurða. Ummerki um loftslagsbreytingar eru hvergi jafn sýnileg og á norðurslóðum þar sem hitastigið hefur hækkað tvöfalt meira en heimsmeðaltalið. Um leið hækkar sjávarhitinn, hafís minnkar og jöklar hopa. Í formennskutíð Íslands verður lögð áhersla á vöktun og greiningu og unnið að hagkvæmum lausnum til orku- skipta í litlum og afskekktum samfélögum samhliða áframhaldandi vinnu við að draga úr losun skammlífra mengunarefna. Síðast en ekki síst verður að styðja við sjálfbæra efna- hagsþróun á norðurslóðum í þágu þeirra fjögurra millj- óna sem búa á svæðinu. Grípa þarf tækifæri sem felast í tækniþróun og bættum samgöngum til að styrkja nýsköpun og fjölbreytta atvinnuvegi. Á formennsku- tímanum heldur Ísland enn fremur áfram að leiða verkefni um jafnrétti kynjanna á norðurslóðum. Framundan eru ærnar áskoranir sem ekki verður tek- ist á við nema með samvinnu og sjálfbærni að leiðar- ljósi. Á þessum stefjum byggist formennska Íslands. Saman til sjálfbærni á norðurslóðum Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis­ ráðherra Orkulítið íhald Sjálfstæðisflokkurinn virðist eiga í nokkrum erfiðleikum með hinn sívinsæla þriðja orkupakka. Popúlistar virðast vera að höggva nokkuð í þann hóp sem hefur í áratugi kosið Sjálfstæðisflokkinn af gömlum vana og er annt um fálkann í brjósti sínu. Margir úr svokall- aðri grasrót flokksins eru afar óánægðir með flokkinn sinn að standa ekki í lappirnar þegar kemur að þessum vágesti sem orkupakkinn kann að vera. Nú geti sambandið seilst í íslenska strauminn í gegnum sæstreng. Hatur margra í garð ESB virðist nú vera að smitast yfir á EES- samninginn og því gætu næstu misseri verið mjög athyglisverð í utanríkispólitík Íslands. Mikið mun mæða á Guðlaugi Þór það sem eftir er kjörtímabilsins. Trússhestur ei meir Einn þeirra sem hafa sagt skilið við flokkinn er Geir Jón Þóris- son, fyrrum yfirlögregluþjónn. „Kristilegt uppeldi mitt segir að ekki skal treysta þeim sem fara með falsspár og því hefur mér ekki þóknast að fylgja þeim sem fara á svig við hið heilnæma orð,“ segir Geir Jón og segir bless við ránfuglinn eftir að hafa bundið trúss sitt við téðan flokk í fimm áratugi. Hins vegar er áhugavert að nú skuli hann fara úr flokkn- um út af Evróputilskipun. Nægar hafa nú ástæðurnar getað verið á þessum fimm áratugum. sveinn@frettabladid.is 6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -8 0 8 4 2 2 E E -7 F 4 8 2 2 E E -7 E 0 C 2 2 E E -7 C D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.