Fréttablaðið - 06.05.2019, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 06.05.2019, Blaðsíða 33
Fjölmargar rannsóknir sýna fram á kosti þess að taka inn Bio-Kult Original gegn hinum ýmsu kvillum. Þarmaflóran samanstendur af meira en 1.000 tegundum örvera sem vega hátt í 2 kíló. Hún gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að heilsufari okkar og eins og nafnið gefur til kynna er hún að stórum hluta stað- sett í þörmunum og meltingarveg- inum. Meltingarvegurinn nær frá munni og til endaþarms og gegnir þarmaflóran sama hlutverki hjá okkur öllum. Þar sem hún verður fyrir áhrifum frá ytra umhverfi í formi fæðu og lyfja upplifa flestir ýmiss konar óþægindi einhvern tímann á lífsleiðinni. Ristilkrampar og iðrabólga (IBS) Þegar þarmaflóran (örveruflóran) í meltingarveginum verður fyrir hnjaski og það kemst ójafnvægi þar á koma fram óþægindi sem geta verið af ýmsum toga. Þetta er t.d.: l Uppþemba l Brjóstsviði l Harðlífi/niðurgangur l Sveppasýkingar l Blöðrubólga l Ristilkrampar l Iðrabólga (IBS) Mataræði, lyf og streita Það er ýmislegt sem getur valdið ójafnvægi á þarma flórunni þannig að við finnum fyrir fyrir því. Slæmt mataræði hefur mikil áhrif og eins og alltaf eru unnin mat- væli og sykur þar fremst í f lokki. Lyf eins og sýklalyf, sýrubindandi lyf og gigtarlyf eru slæm fyrir þarmaflóruna og svo getur streita einnig haft alvarlegar afleiðingar í þörmunum, eins og víða annars staðar í líkamanum. Bio Kult minnkar einkenni iðrabólgu „Vísindalegum rannsóknum á þarma flóru okkar mannanna fleygir hratt fram og þurfum við sífellt að vera að endurskoða viðhorf okkar og sjónarmið því skilningur okkar á hlutverki hennar í líkama okkar er sífellt að aukast. Framleiðendur Bio-Kult gerlanna hafa látið gera mikið af tví- blindum, klínískum rannsóknum sem sýna fram á ótrúlega jákvæða virkni gerlanna þegar kemur að því að draga úr þeim einkennum sem nefnd voru hér áður. Nýlega voru birtar niðurstöður rann- sóknar sem gerð var á hópi fólks sem þjáðist af iðrabólgu og voru þær afar áhugaverðar,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsuráðgjafi hjá Artasan. 70% minni verkir Í rannsókninni var 360 manna hóp skipt til helminga og fékk annar hópurinn Bio-Kult original sem inniheldur 14 mismunandi gerlastofna á meðan hinir fengu lyfleysu (placebo). Tekin voru 4 hylki á dag í 16 vikur áður en árangurinn var metinn. Mark- tækur munur var á hópunum en iðraverkir þeirra sem tóku inn Bio-Kult Original höfðu minnkað um nærri 70% (samanborið við 47% í samanburðarhópnum). Einnig hafði tíðni verkjakasta hjá Bio-Kult hópnum dregist saman um rúm 70%. Í lok rannsóknar voru 34% þeirra sem höfðu fengið Bio-Kult Orginal einkennalausir á meðan það voru einungis 13% í samanburðarhópnum. Mismunandi tegundir Fjölmargar rannsóknir eru til sem hafa sýnt fram á kosti þess að taka inn Bio-Kult gegn hinum ýmsu kvillum. Til dæmis hefur verið hægt að draga úr einkennum barnaexems, laga hægðir, hvort sem um harðlífi eða niðurgang er að ræða, minnka ristilkrampa og bæta lifrarstarfsemi sjúklinga með (non-alcoholic) fitulifur. Bio-Kult vörurnar hafa verið framleiddar með tilliti til þessara einkenna m.a. og hefur hver vara sitt sér- kenni. Við erum öll einstök Uppruni, búseta, mataræði, líferni, hreyfing og svefn eru allt þættir sem móta okkur sem einstaklinga og hafa þeir líka áhrif á þarma- flóruna. Þarmaflóran hefur ekki bara líkamleg áhrif á okkur því rannsóknir hafa sýnt að hún hefur einnig áhrif á andlegu hliðina. Talið er að hátt í 90% af seró- tóníni (gleðihormóninu) séu framleidd í þörmunum og getur því ójafnvægi aukið líkur á kvíða og þunglyndi. Heilbrigð þarma- flóra er grunnurinn að góðri heilsu og verður hver og einn að reyna að finna sitt jafnægi. „Ég er mikill talsmaður þess að allir taki inn góðgerla til að hjálpa til við að halda jafnvægi í þörmunum. Fjöldi örvera í meltingarveginum er gríðarlega mikill og ekki er hægt að greina hvert tilfelli fyrir sig nákvæmlega. Sem betur fer eru góðgerlar til inntöku hættulausir með öllu og mega allir aldurshóp- ar taka þá inn,“ segir Hrönn. Aukin lífsgæði á 16 vikum Rannsóknir hafa sýnt fram á að inntaka á Bio-Kult Original dregur verulega úr einkennum iðra- bólgu og tíðni verkjakasta lækkar um rúmlega 70%. Góðgerlar hafa góð áhrif á meltinguna. Hrönn Hjálmarsdóttir heilsuráðgjafi. Einkenni iðrabólgu (IBS) minnka verulega með Bio Kult Original. Grænn og vænn smoothie daglega! Vel samsett boost getur verið uppfullt af næringarefnum sem auka orkuna, jafna blóðsykurinn og örvar meltinguna. Hin fullkomna þrenna fyrir öflugri meltingu Öflugir gerlar sem styrkja meltinguna 7 gerlastofnar sem hjálpa við að byggja upp og koma jafnvægi á þarmaflóruna, bakteríudrepandi hvítlaukur sem er einnig öflugur fyrir ónæmiskerfið og þykkni úr fræjum greipaldins sem vinnur gegn fjölmörgum bakteríutegundum, veirum og sveppum. Digest - gegn þrálátum meltingarvandamálum • Fullkomin ensímblanda sem styður meltinguna. • Eykur orku. • Lítil hylki sem auðvelda inntöku. • 1 tafla með mat F llkomin renna 5x10 Digest copy.pdf 1 23/01/2018 11:24 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M Á N U DAG U R 6 . M A Í 2 0 1 9 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -8 F 5 4 2 2 E E -8 E 1 8 2 2 E E -8 C D C 2 2 E E -8 B A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.