Fréttablaðið - 06.05.2019, Page 12

Fréttablaðið - 06.05.2019, Page 12
HK - Breiðablik 2-2 1-0 Ásgeir Marteinsson (46.), 2-0 Björn Berg Bryde (50.), 2-1 Thomas Mikkelsen (89.), 2-2 Viktor Örn Margeirsson (94.). KA - Valur 1-0 1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson, víti (54.), KR - ÍBV 3-0 1-0 Pálmi Rafn Pálmason (55.), 2-0 Óskar Örn Hauksson (66.), 3-0 Björgvin Stefáns- son (87.). Grindavík - Stjarnan 1-1 0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson, víti (29.), 1-1 Patrick N’Koyi, víti (65.) Fylkir - ÍA 2-2 0-1 Hörður Ingi Gunnarsson (13.), 1-1 Einar Logi Einarsson, sjálfsm. (52.), 2-1 Geoffrey Castillion (71.), 2-2 Óttar Bjarni Guðmunds- son (90+1.). Nýjast Pepsi Max-deild karla Haukar - ÍBV 32-27 Haukar: Daníel Þór Ingason 9, Tjörvi Þor- geirsson 6, Heimir Óli Heimisson 5, Einar Pétur Pétursson 5, Brynjólfur Snær Brynj- ólfsson 4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Atli Már Báruson 1.. ÍBV: Dagur Arnarsson 5, Friðrik Hólm Jóns- son 4, Kristján Örn Kristjánsson 4, Fannar Þór Friðgeirsson 4, Hákon Styrmir Daðason 3, Gabríel Martinez Róbertsson 2, Elliði Snær Viðarsson 2, Sigurbergur Sveinsson 1, Daníel Örn Griffin 1, Magnús Stefánsson 1. Staðan í einvíginu 2-1 fyrir Hauka. Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslitin. Olís-deild karla Undanúrslit Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, 8. maí 2019, kl. 8–10, Hótel Sögu, Kötlusal Síðastliðin misseri hefur verið unnið markvisst að því að bæta aðgengi að gögnum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Á fundinum verða kynntar marg víslegar nýjungar við miðlun á menningararfinum og tengdum rannsóknum, hvort sem litið er til örnefna eða orðaforða, bókmennta eða tungumálakennslu. Boðið verður upp á morgunmat frá kl. 8. Dagskrá 8.00 Morgunmatur 8.30 Fundur settur Dagný Jónsdóttir, formaður stjórnar stofnunarinnar, flytur ávarp Guðrún Nordal forstöðumaður stofnunarinnar segir frá starfinu undanfarin misseri og ársskýrslunni Trausti Dagsson verkefnisstjóri: Nýjungar Árnastofnunar á veraldarvefnum Árni Davíð Magnússon, starfsmaður við rafræna útgáfu á Orðabók Blöndals: Blöndal til framtíðar Birna Lárusdóttir, sérfræðingur í rannsóknarstöðu Sigurðar Nordals: Örnefnin og hugmyndir okkar um heiminn Haraldur Bernharðsson, dósent við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og forstöðumaður Miðaldastofu: Íslensk miðaldafræði of veröld víða Branislav Bédi verkefnisstjóri: Íslenskukennsla í sýndarheimum Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flytur ávarp Fundarstjóri er Eva María Jónsdóttir Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn á vefnum: arnastofnun.is/arsfundur-2019 Notað og nýtt Kraftajötnar tókust á í Laugardalshöll um helgina Jacqueline Dahlström skaraði fram úr í kvennaf lokki á fyrsta alþjóðlega Cross- Fit-mótinu sem fór fram í Laugardalshöll um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK KR - ÍR 98-70 KR: Michele Di Nunno 29, Julian Boyd 21/10 fráköst, Emil Barja 12, Jón Arnór Stefánsson 10, Björn Kristjánsson 9, Kristófer Acox 8, Helgi Már Magnússon 5, Sigurður Á. Þor- valdsson 3, Vilhjálmur Kári Jensson 1. ÍR: Hákon Örn Hjálmarsson 18, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16, Matthías Orri Sigurðarson 14, Sigurkarl Róbert Jóhannes- son 9, Sæþór Elmar Kristjánsson 7, Gerald Robinson 4, Hjalti Friðriksson 2. KR er Íslandsmeistari í karlaflokki sjötta árið í röð. Nánar er fjallað um leikinn á síðu 15. Domino’s-deild karla Úrslit FÓTBOLTI Íslenska piltalandsliðið skipað leikmönnum undir sautján ára aldri vann fyrsta leik sinn með  naumindum  í lokakeppni Evrópumótsins sem hófst í Dublin á Írlandi um helgina. Íslenska liðið komst 3-0 yfir í fyrri hálf leik  en andstæðingarnir, Rússar, hleyptu spennu í leikinn á ný með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Íslenska liðið byrjaði af krafti og komst yfir með sjálfsmarki frá Rússum. Stuttu síðar bætti Jón Gísli Eyland Gíslason við marki áður en Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi 3-0 yfir af vítapunktinum eftir að hafa krækt sjálfur í vítið. Drengirnir mæta Ungverjalandi sem vann Portúgal í næsta leik á þriðjudaginn áður en þeir mæta Portúgölum í lokaumferðinni á föstudaginn. Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í átta liða úrslitin og fimm efstu liðin í lok móts komast á Heimsmeistaramótið í Brasilíu sem fer fram í haust. – kpt Sigur í fyrsta leik á Írlandi Fleiri myndir frá mótinu er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS FÓTBOLTI Sara Björk Gunnars- dóttir og stöllur hennar í Wolfsburg tryggðu sér þýska meistaratitilinn um helgina með 1-0 sigri á Hoffen- heim. Er þetta þriðja árið í röð sem Sara Björk verður meistari með Wolfsburg eftir að hafa gengið til liðs við þýska stórveldið árið 2016 frá Rosengard í Svíþjóð. Aðeins fjórir dagar liðu á milli þess að Wolfsburg var að taka við bikarmeistaratitlinum í Þýska- landi þar til leikmenn liðsins fóru í leik þar sem sigur myndi gera það að verkum að Bayern München myndi ekki eiga möguleika á að ná Wolfsburg. Sara fékk því að fagna tveimur stærstu titlum Þýskalands á innan við viku. „Þetta var ótrúlega góð tilfinn- ing, við vissum að það væru tvær umferðir eftir og við þyrftum tvö stig til að tryggja okkur titilinn. Það var frábært að klára þetta strax í fyrstu atrennu og við eigum þennan titil skilið eftir gott tímabil og loka þessum tveimur titlum.“ Það er mikið álag á leikmönnum í Þýskalandi. „Við erum kannski vanar þessari viku og álaginu sem fylgir því, þetta er ótrúlegt álag, margir leikir sem taka á. Maður þurfti að vera ein- beittur fyrir bikarúrslitaleikinn sem var erfiður og maður fagnaði sigrinum þar en svo tók bara strax við næsti leikur. Við vissum hvað var undir, að við gætum tryggt okkur titilinn og við erum með reynslumikið lið sem hefur tek- ist á við þetta áður. Það gerði okkur auðveldara fyrir, “ segir Sara aðspurð út í stuttan undirbúnings- tíma á milli leikja. „Við áttum tvo erfiða leiki eftir, Hoffenheim hafa verið sterkar í ár og þetta var erfiður leikur í dag,“ segir Sara um leikinn í gær þar sem hún byrj- aði að vanda á miðjunni. Hafnfirðingurinn er ánægð með spilamennsku sína á þriðja tímabilinu í Þýskalandi. „Ég er búin að hugsa betur um mig á þessu ári og hef bætt mikið við æfingarnar hjá mér, fyrirbyggjandi æfingar til að takast betur á við álagið sem fylgir því að spila fyrir Wolfsburg. Ég tók það í mínar eigin hendur að reyna að bæta mig þar og það munaði miklu,“ segir Sara að lokum. – kpt Sara Björk Þýskalandsmeistari þriðja árið í röð 6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -6 C C 4 2 2 E E -6 B 8 8 2 2 E E -6 A 4 C 2 2 E E -6 9 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.