Fréttablaðið - 06.05.2019, Síða 16

Fréttablaðið - 06.05.2019, Síða 16
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is s. 550 5725 Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Mér finnst ég hálfpartinn önnur manneskja en ég var fyrir ári. Ég hef þrosk­ ast og lært svo mikið síðan ég flutti út,“ segir söngkonan Glowie þar sem hún teygir úr sér í morgunsól Lundúna klukkustundum áður en hún stígur á svið í Royal Albert Hall til að hita upp fyrir velsku söngkonuna Marinu síðastliðið föstudagskvöld. „Lífið er bara yndislegt hér í London. Mér líður of boðslega vel enda að vinna með frábæru fólki. Dagarnir eru mismunandi en það er alltaf nóg að gera og það þykir mér gaman. Mér finnst best að byrja daginn á því að skokka í garðinum eldsnemma morguns og verja svo tímanum í stúdíóinu með Cameron, félaga mínum. Hann er svo vinalegur og skemmtilegur að vinna með. Þegar kvöldar þykir mér ljúft að elda eitthvað gott heima og lesa ljóð áður en ég fer í háttinn.“ Hlakkar til að fá kærastann Glowie eyddi dágóðum tíma í heimsborginni Lundúnum áður en hún flutti þangað í byrjun sumars 2018. „Ég var því nokkurn veginn búin að venjast borginni áður en flutn­ ingurinn átti sér stað. Þetta var að sjálfsögðu mikil breyting en á sama tíma rosalega spennandi. Ég sakna fjölskyldu og vina vitaskuld mjög mikið, kem í heimsókn til Íslands þegar tími gefst og hlakka til þegar kærastinn minn, Guð­ laugur Andri Eyþórsson, f lytur út til mín í sumar. Ég sakna þess líka að sjá hafið og íslensku fjöllin, drekka hreina vatnið og anda að mér fersku og köldu loftinu heima,“ segir Glowie sem leitaði oft í einveru í friðsæld íslenskrar náttúru þegar hún óx úr grasi. „Ég hef komist að því að ég er svolítill einfari í mér. Þess vegna hef ég dálæti á morgnunum hér úti því þá get ég farið út í garð til að eiga náðarstund með sjálfri mér áður en dagurinn og stórborgar­ ysinn hefst. Ég held að það sé nauð­ synlegt fyrir alla að geta notið þess að eiga stund með sjálfum sér, hugsa vel um sig og byggja upp sjálfstraust.“ Erfitt að bæta á sig kílóum Í ársbyrjun 2018 setti Glowie sér markmið um að vera ætíð hún sjálf, hamingjusöm og tilfinn­ ingarík. Hún afneitaði kröfum samfélagsins að þurfa að vera lýta­ og gallalaus til þess eins að öðrum líkaði við hana. „Nú er rúmt ár liðið og þetta er nákvæmlega sú sem ég er og hvernig ég lifi lífi mínu í dag. Ég hef á ákveðinn hátt til að öðrum þókn­ ist í tónlistarbransanum,“ segir Glowie sem fékk iðulega athuga­ semdir annarra um að hún væri of grönn á uppvaxtarárunum. „Frá náttúrunnar hendi hef ég alltaf verið of boðslega grönn og afar hröð brennsla gerir mér erfitt fyrir að bæta á mig kílóum. Ég ein­ beiti mér því að því að borða hollt og hreyfa mig reglulega því heilsan skiptir mig mestu, en ekki hvernig ég lít út.“ Er að upplifa draum sinn Glowie er nýorðin 22 ára. Hún vakti fyrst athygli þegar hún sigraði í Söngvakeppni framhalds­ skólanna árið 2014, þá sautján ára gömul. Í kjölfarið buðust mýmörg tækifæri en Glowie bað um frest til að þroska og þróa rödd sína. Árin 2015 og 2016 kom hún lögunum No More, Party, One Day og No Lie á íslenska vinsældalista og í mars 2017 var tilkynnt að Glowie hefði skrifað undir samning við alþjóðlega útgáfurisann Columbia Records og RCA Records, sem sagður er stærsti útgáfusamningur sem íslenskur listamaður hefur gert. Fyrsta lag Glowie fyrir Columbia var Body, sem kom út í nóvember, og nýlega bættist við smellurinn Cruel sem heyrist nú oft á öldum ljósvakans. „Samningurinn við Columbia var draumur sem rættist og ég er algjörlega að upplifa drauminn. Það fylgir eflaust öllum störfum að þurfa að klífa háa tinda en ég hef svo mikla ástríðu fyrir því sem ég er að fást við að ég nýt mín í öllu sem fylgir starfinu, hvort sem það eru góðu eða erfiðu hlutirnir,“ segir Glowie sem var útnefnd heitasta útflutningsafurð Íslands í tónlist af gagnrýnendum Vice, Vogue og i­D. Hún upplifir enga streitu í hörku tónlistarheimsins. „Ég lít ekki á tónlistarbransann sem keppni og finnst hálf asnalegt þegar tónlistarmenn fara í sam­ keppni. Mér finnst frekar að við ættum að standa saman og styðja hvort annað. Að vera í endalausri samkeppni tekur frá manni óþarf­ lega mikla orku; orku sem maður getur í staðinn notað til að búa til góða list. Þess vegna á maður að njóta þess að gera það sem manni þykir skemmtilegt og það er ein­ mitt það sem ég einbeiti mér að.“ Góðir hlutir gerast hægt Nýju lögin hennar Glowie eru samin af þungavigtarfólki í tónlistarheiminum. Lagið Body var samið af Juliu Michaels sem hefur til dæmis samið smelli fyrir Justin Bieber, Demi Lovato, Britney Spears og Selenu Gomez, og lagið Cruel samdi Tayla Parx sem hefur meðal annars unnið með Ariönu Grande, Jennifer Lopez, Rihönnu og Mariuh Carey. „Bæði Body og Cruel innihalda skilaboð sem standa nærri hjarta mínu en þeim er ekki eingöngu beint til kvenna heldur líka karla. Ég reyni að gefa út lög sem ná til allra og í tónlist minni fjalla ég mikið um mismunandi tilfinn­ ingar og andlega heilsu, og því geta bæði kynin samsamað sig,“ útskýrir Glowie um textasmíð­ arnar sem eru þrungnar merkingu um andlega heilsu, líkamsvirðingu og mannlegar tilfinningar. Hún segir gaman að vinna með svo hæfileikaríku fólki en allt að fimmtíu manns vinna eingöngu í kringum Glowie hjá Columbia Records. „Það er ansi mikið af fólki og getur stundum orðið yfirþyrm­ andi að hugsa út í það, en allt er þetta yndislegir einstaklingar og einstaklega gaman að vinna með þeim. Við Tayla Parx erum orðnar góðar vinkonur. Hún er of boðs­ lega indæl og algjör stuðbolti. Við höfum átt skemmtilegar sam­ ræður um alls konar hluti og það er gott að geta talað við einhvern sem hefur verið lengi í bransanum og getur gefið góð ráð þegar maður þarf á að halda.“ Í smíðum er ný plata sem Glowie vonast til að komi út í ár eða á næsta ári. „Við tökum eitt skref í einu því að góðir hlutir gerast hægt. Þessa dagana vinnum við að því að gefa út nýja smáskífu í sumar og það eru komin svo mörg góð lög í sigtið að það er um að gera að leyfa öðrum að heyra hvað við höfum verið að bralla á bak við tjöldin. Það er alltaf nóg að gera og næst á dagskrá er að koma fram á tón­ listarhátíðinni The Great Escape sem fer fram í Brighton í vikunni,“ segir Glowie sem vekur jafnan mikla athygli fyrir þjóðerni sitt. „Þegar ég hitti nýtt fólk tek ég yfirleitt alltaf fram að ég sé íslensk. Það þykir bæði merkilegt og gaman, og ég er mjög stolt af því að vera frá Íslandi. Það er því um að gera að monta sig aðeins af því,“ segir hún og hlær. Fylgstu með ævintýrum Glowie á glowiemusic.com og á Instagram undir itsglowie. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is aldrei fyrr verið jafn hamingjusöm og ég er á of boðslega góðum stað í lífinu,“ segir Glowie sem lætur engan stjórna því hvernig hún lítur út. „Þvert á móti klæði ég mig og mála eins og mig langar. Mér finnst heldur alls ekki ætlast til þess af mér að ég líti út eða hagi mér Í tónlist minni fjalla ég mikið um mismunandi tilfinningar og andlega heilsu, og því geta bæði kynin sam- samað sig. Glowie Mér finnst hálf asnalegt þegar tónlistarmenn fara í samkeppni. Það tekur frá manni óþarflega mikla orku; orku sem má frekar nýta í góða list. Glowie Glowie er á góðum stað í lífinu og segist aldrei hafa verið jafn hamingjusöm og nú. MYND/GUÐLAUGUR ANDRI EYÞÓRSSON 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A Í 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 0 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E E -8 F 5 4 2 2 E E -8 E 1 8 2 2 E E -8 C D C 2 2 E E -8 B A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.