Kraftur - 01.01.2018, Qupperneq 6

Kraftur - 01.01.2018, Qupperneq 6
B ls .6 Kraftur Kynlíf og krabbamein Krabbamein getur haft veruleg áhrif á kynlíf þess sem veikist en oftar en ekki ræðum við ekki um það. Margir upplifa að þegar við tökumst á við svo alvarleg veikindi eins og krabbamein ætti enginn að vera að hugsa um kynlíf. Það á kannski vel við á fyrstu stigum veikinda að kynlíf sé fjarri huga flestra. En það er hinsvegar staðreynd að margir Íslendingar lifa í dag eftir að hafa læknast af krabbameini. Það er því mikilvægt að huga að kynlífinu í veikindum og eftir þau. Krabbamein og þær meðferðir sem við beitum til að bola þeim burt hafa mikil áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Það er þekkt að krabba- mein hafa oft í för með sér kynferðislegar afleiðingar, s.s. minnkaða kynlöngun, risvandamál, sársauka við samfarir og neikvæðari líkams- ímynd. Sumar af þessum afleiðingum eru ekki afturkræfar. Því tala kyn- fræðingar um kynlífsendurhæfingu í kjölfar veikinda. Endurhæfingin felst í því að fræðast um þær breytingar sem fólk upplifir í kjölfar veik- inda og aðferðir til að lifa og njóta í breyttum líkama. Unnið er með breytta líkamlega eða andlega getu. Það getur verið persónubundið hvað truflar mest en líklega glíma flestir sem hafa greinst með krabbamein að einhverju leyti við sömu afleiðingarnar. Kynfræðsla fyrir fullorðna er nauðsynlegur hluti af kynlífsendur- hæfingu. Slík kynfræðsla fjallar um það hversu fjölbreytt og skemmti- legt kynlíf getur verið ef við erum bara tilbúin að opna hugann fyrir því. Kynfræðsla í slíkri endurhæfingu setur áhersluna á hvað er jákvætt við kynlíf, líkamlega og andlega. Flestir fagna aukinni kyn- fræðslu og einn mikilvægur þáttur sem farið er í er hversu fjölbreytt kynlíf getur verið. Kynlíf og samfarir eru ekki samheiti. En algeng- ast er að kynlífsraskanir tengist samförum og einhverra hluta vegna hefur nútímafólk sett þær í aðalhlutverk í kynlífi. Jafnvel getur fólk upplifað að samfarirnar séu eina hlutverkið og sé þeim sleppt sé ekki verið að stunda kynlíf. En það er margt sem styður það að kynlíf sé ekki svo einfalt að bara ein athöfn skilgreini það. Til dæmis kom út úr þjóðarkönnun í Bandaríkjunum að þegar fólk svaraði spurning- unni “hvað gerðir þú síðast þegar þú stundaðir kynlíf?”, þá var niðurstaðan yfir 40 mismunandi athafnir. Kynlíf snýst um lífsgæði og því skiptir máli að tala um og hlúa að því þegar veikindi koma upp. Grein: Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur. Kynlífsráðgjafi í ráðgjafar- þjónustu Krabbameinsfélagsins.

x

Kraftur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.