Kraftur - 01.01.2018, Síða 15

Kraftur - 01.01.2018, Síða 15
B ls. 15 Kraftur á ofanskráðum þáttum. Loks nýtast upplýsingar um nýgengi krabbameina stjórnvöldum svo hægt sé að áætla sjúklingafjölda fram í tímann.“ Aðspurðar um þróun krabbameina á undanförnum sex áratugum eru þær sammála um að stærstu tíðindin séu að horfur þeirra sem greinast með krabbamein hafa batnað mjög á þessum árum, eða um 35% prósentu- stig. Það þýðir að um 70% allra sem greinast lifa leng- ur en 5 ár eftir greiningu og því ljóst að æ fleiri ýmist læknast alveg eða lifa með krabbameininu. „Í raun hefur tíðni dauðsfalla af völdum krabbameina í heild lækkað, jafnvel þótt nýgengi hafi hækkað mikið með tímanum í ákveðnum krabbameinum,“ segir Laufey. Hún nefnir sem dæmi brjóstakrabbamein og blöðruhálskirtilskrabbamein en reyndar hafi nýgengi þess síðarnefnda lækkað dálítið síðustu árin og mikil lækkun orðið á nýgengi magakrabbameins og leghálskrabbameins. Ástæður lækkandi dánartíðni eru margvíslegar, þar á meðal bætt meðferð, aukið eftirlit og forvarnir; „Vondu fréttirnar eru aftur á móti þær að dánartíðni vegna lungnakrabbameins er enn alltof há. Þetta er það krabbamein sem tekur flest mannslíf á Íslandi í dag þótt það sé eitt fárra krabba- meina þar sem við þekkjum vel meginorsök og því auðvelt að fyrirbyggja. Þannig verða líkurnar á að fá lungnakrabbamein mjög litlar ef við reykjum aldrei og þær lækka mikið hjá reykingarfólki sem hættir að reykja. Jákvætt er þó að við sjáum viðsnúning hjá yngra fólki þar sem dánartíðnin fer hratt lækkandi, enda hefur reykingafólki fækkað mjög.“ Árlega greinast tæplega 1600 manns með krabba- mein hér á landi og meðalaldur við greiningu nálægt 66 árum. En hvað segja tölurnar þegar við skoðum aðeins ungt fólk á aldrinum 20-40 ára? Um 70 manns greinast árlega með krabbmein á þessum aldri og eins og í öðrum aldurshópum hefur lifun í þessum aldurshópi aukist verulega, en allt að 90% lifa lengur en fimm ár. Algengustu tegundir krabbameina hjá konum í þessum aldurshópi eru krabbamein í brjóst- um, leghálsi og skjaldkirtli en hjá körlunum eru það eistnakrabbamein, krabbamein í miðtaugakerfi (heili o.fl.) og sortuæxli. Athygli vekur að nýgengi sortu- æxla jókst mikið um tíma og lækkaði svo aftur, en skýringin á því er m.a. mikil notkun sólarlampa á tímabili. Aðspurð um orsakir fyrir aukningu ný- gengis einstakra krabbameinstegunda, eins og t.d. krabbameina í brjóstum og blöðruhálskirtli, segir Laufey að þar komi til áhrif margra þátta, sem ekki séu allir þekktir. „Það er þekkt staðreynd að áfengis- neysla hefur áhrif á brjóstakrabbamein en nútíma- konur neyta mun frekar áfengis en konur gerðu hér áður fyrr. Þá eignast konur færri börn nú til dags en það er líka staðreynd að meðganga og brjóstagjöf vernda konur gegn krabbameini. Hins vegar er erfiðara að segja hvað veldur fjölgun greindra með blöðruháls- kirtilskrabbamein. Það kunna að vera margar ástæð- ur, þar á meðal aukin greiningarvirkni vegna mikillar notkunar PSA mælinga“ segir Laufey. Nánari upplýsingar má finna á www.krabbameinsskra.is Grein Starfsfólk Krabbameinsskrárinnar. Frá vinstri: Elínborg J. Ólafsdóttir, Guðríður H. Ólafsdóttir, Helgi Birgisson, Hrefna Stefánsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Kristín Alexíusdóttir og Laufey Tryggvadóttir

x

Kraftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.