Morgunblaðið - 07.01.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Veggjöld hafa verið nokkuð tilumræðu og verða meðal helstu
mála Alþingis á næstunni ef marka
má svör fulltrúa þingflokka í Morg-
unblaðinu á laugardag og umræður
í þættinum Þing-
völlum á K100 í
gær.
Skiljanlegt erað þessi um-
ræða eigi sér stað
og að veggjöld séu til skoðunar
þegar horft er til verulega aukins
álags á vegakerfi landsins og ófull-
nægjandi vega víða um land.
Þá eru nauðsynlegar vegabæturá höfuðborgarsvæðinu oft
nefndar í þessu sambandi, en í
þeirri umræðu má þó ekki gleyma
því að þar hefur skortur á fé ekki
verið helsti vandinn, heldur skortur
á vilja meirihlutans í borginni til að
ráðast í eða jafnvel að leyfa vega-
framkvæmdir sem ríkið hefur vilj-
að ráðast í.
Í umræðunni um veggjöld þarflíka að taka tillit til þess að bíla-
eigendur eru nú þegar skattlagðir
mjög rækilega, bæði þegar þeir
fjárfesta í bílum og þegar þeir nota
þá.
Þegar upp koma hugmyndir umveggjöld sem virðast eiga að
vera viðbót við þessa almennu
skattlagningu er eðlilegt að slíkar
hugmyndir sæti gagnrýni.
Veggjöld kunna að vera gagnlegleið til að ná ýmsum mark-
miðum, svo sem að allir, þar með
taldir erlendir ferðamenn, greiði
fyrir notkun veganna.
Þá hlýtur þó að mega ætlast til að
önnur gjöld á bifreiðaeigendur
lækki á móti.
Fjármögnunarleið
eða skattahækkun?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Björgun átti lægsta tilboð í viðbótar-
dýpkun í og við Landeyjahöfn á
komandi vori. Félagið býðst til að
dýpka um 100 þúsund rúmmetra
fyrir tæpar 135 milljónir sem er að-
eins 5 milljónum yfir kostnaðar-
áætlun. Önnur tilboð voru mun
hærri.
Björgun er með samning við
Vegagerðina um dýpkun í Landeyja-
höfn næstu þrjú árin og tók hann
gildi nú um áramótin. Fyrsta dýpk-
unin er fyrirhuguð í næsta mánuði.
Vegagerðin bauð út viðbótardýpkun
sem vinna á í febrúar. Tilgangur
þess var að flýta fyrir dýpkun eftir
veturinn og opna höfnina.
Björgun mun nota bæði dýpk-
unarskip sín, Dísu og Sóley, sam-
kvæmt uppýsingum Vegagerðar-
innar. Fyrirtækið hefur einnig yfir
að ráða öðrum tækjum, eins og
gröfu- og flutningaprömmum. Áður
hefur komið fram hjá fyrirtækinu að
það stefnir að því að endurnýja hluta
skipakostar síns á næstu misserum,
annaðhvort með nýsmíði dæluskips
eða fjárfestingu í notuðu skipi. Það
ferli muni þó taka töluverðan tíma.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landeyjahöfn Dýpkað verður áður en nýr Herjólfur hefur siglingar.
Björgun mun einnig annast aukadýpkun
Sigurður E. Guð-
mundsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar
ríkisins og borgar-
fulltrúi Alþýðuflokks-
ins, lést í Reykjavík í
gærmorgun eftir
skamma sjúkdóms-
legu. Hann var á 87.
aldursári.
Sigurður var fædd-
ur 18. maí 1932 í
Reykjavík. Foreldrar
hans voru hjónin Guð-
rún Ástríður Elimund-
ardóttir húsfreyja og
Guðmundur Kristinsson verkamað-
ur í Reykjavík.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1952 hóf hann nám í læknisfræði
við Háskóla Íslands en lauk ekki
prófi. Eftir starfslok lauk hann
sagnfræðinámi við Háskóla Ís-
lands.
Sigurður starfaði sem blaðamað-
ur á Alþýðublaðinu og var fram-
kvæmdastjóri Alþýðuflokksins.
Hann var skrifstofustjóri Húsnæð-
isstofnunar ríkisins frá 1965 og
framkvæmdastjóri frá 1971 til árs-
ins 1998.
Sigurður tók virkan þátt í starfi
Alþýðuflokksins frá því um tvítugt,
meðal annars sem
formaður Félags
ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík, Sam-
bands ungra jafnaðar-
manna, Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur og
fulltrúaráðsins í
Reykjavík. Þá sat
hann í miðstjórn og
flokksstjórn um ára-
bil. Sigurður var
varaþingmaður Al-
þýðuflokksins í
Reykjavík og tók sæti
á Alþingi um skeið á
árunum 1970 og 1971.
Hann var borgarfulltrúi flokksins
á árunum 1981 til 1986.
Sigurður skrifaði mikið um
stjórnmál og húsnæðismál í dag-
blöð og tímarit. Að loknu meist-
araprófi í sagnfræði vann hann að
ritgerð um sögu velferðar á Ís-
landi frá 1889 til 1946 sem nefnist
„Öryggi þjóðar frá vöggu til graf-
ar“.
Sigurður var kvæntur Aldísi
Pálu Benediktsdóttur bankastarfs-
manni, frá Grímsstöðum á Fjöll-
um, sem lést árið 2007. Hann læt-
ur eftir sig þrjú börn, Guðrúnu
Helgu, Benedikt og Kjartan Emil,
tvö barnabörn og eitt barna-
barnabarn.
Andlát
Sigurður E. Guðmunds-
son, fv. framkvæmdastjóri