Morgunblaðið - 07.01.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 07.01.2019, Síða 14
FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Hlutabréfaverð bandaríska tækni- risans Apple tók dýfu í síðustu viku þegar fyrirtækið lækkaði tekjuspá sína fyrir fyrsta ársfjórðung yfir- standandi reikningsárs. Helsta ástæðan fyrir fyrstu afkomuviðvör- un Apple í sextán ár er að hægt hef- ur á sölu iPhone snjallsíma og í bréfi til hluthafa tiltók forstjórinn Tim Cook sérstaklega að sölutöl- urnar í Kína væru áhyggjuefni. Apple er ekki fyrsta alþjóðlega fyrirtækið til að finna fyrir því að kínverska hagkerfið er tekið að hægja ferðina. Í desember upplýsti Starbucks að tekjur kaffihúsakeðj- unnar í Kína hefðu aukist sáralítið á liðnu ári og bílasmiðurinn Ford upplýsti í nóvember að fyrirtækið hefði selt 30% færri bíla þar í landi á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs en árið á undan. Lúxusvöruveldið LVMH varaði við því í október að kínverskir ferðamenn væru farnir að eyða minna í lúxusvarning. Kínverski hlutabréfamarkaður- inn hefur líka verið á niðurleið allt síðasta ár en eins og Morgunblaðið greindi frá í byrjun mánaðarins lækkaði CSI-300 hlutabréfavísital- an um 25% á síðasta ári – meira en nokkur önnur aðalhlutabréfavísi- tala. Snemma í haust var verð kín- verskra hlutabréfa komið á svipað- an stað og eftir hrunið sem hófst á markaðinum um mitt ár 2015 og náði botni snemma árs 2016. AGS spáir því nú að á þessu ári minnki hagvöxtur í Kína enn eina ferðina, og fari úr 6,6% niður í 6,2%. Í öðrum löndum þætti það mjög góður árangur, en frá árinu 1991 og fram til 2015 fór hagvöxtur í Kína aldrei undir 7% og margir sem finna áhrifin þegar eitt stærsta hagkerfi heims er á fleygiferð en tiplar litlutá á bremsuna. Erfiðar breytingar Finna má nokkrar skýringar á þeirri þróun sem hefur átt sér stað í kínversku efnahagslífi. Tollastríðið við Bandaríkin hefur ekki aukið á bjartsýni fjárfesta og fyrirtækja og sannarlega haft neikvæð áhrif á inn- og útflutning, en að auki virð- ast mörg fyrirtæki ekki standa mjög vel að vígi: Huang Yiping, aðstoðarrektor hagrannsóknaskóla Peking-há- skóla, segir í viðtali við FT að það sé að vissu leyti eðlilegt að dregið hafi úr þrótti atvinnulífsins vegna þeirrar stefnu sem stjórnvöld eru að reyna að koma til leiðar. „Kína er að breyta úr ódýrari framleiðslu yfir í dýrari og því ljóst að sum gömlu fyrirtækjanna verða ekki lengur lífvænleg,“ útskýrir hann. Lækkunina á hlutabréfamarkaði má bæði rekja til þessa, sem og til þess að stjórnvöld hafa reynt að girða fyrir fjármögnun verðbréfa- kaupa með lántökum og sett lán- veitingum utan bankakerfisins strangari skorður. Fyrir þremur árum brugðust stjórnvöld við hruninu á hlutabréfamarkaði með vægum örvunaraðgerðum og gjald- eyrishöftum. Verð hlutabréfa tók að hækka, en margir höfðu áhyggj- ur af bólueinkennum og miklu skuldafjalli sem stækkaði jafnt og þétt. Nú þegar sum kínversk fyr- irtæki standa frammi fyrir því að velta þeirra minnkar eða stendur í stað eiga einhver þeirra ekki ann- arra kosta völ en að taka enn meira að láni – ef þeim standa yfir höfuð lán til boða, en FT bendir á að til- raunir stjórnvalda til að reyna að hægja á vexti lánabólunnar hafi bitnað harðast á smærri einkarekn- um fyrirtækjum sem mynda um 60% af hagvexti Kína og skaffa 90% af öllum störfum, á meðan fyrirtæki í eigu hins opinbera – sem oft eru ekki eins vel rekin – hafa greiðan aðgang að bankalánum. Með mikil umsvif í Afríku En vandinn er ekki takmarkaður við Kína og rétt eins og bandarísk fyrirtæki finna fyrir því að eyðslu- gleði kínversks almennings er ekki eins og margur hefði viljað, þá ótt- ast vina- og viðskiptaþjóðir Kína að skrúfað verði fyrir flæði kínversks fjármagns. Guardian fjallaði um helgina um hættuna á slíkri keðjuverkun en Kína hefur reynt að auka áhrif sín um allan heim með lánum og fjár- festingum, s.s. undir merkjum „Belt and Road“-verkefnisins sem miðar að því að bæta samgöngu- og flutningainnviði í Asíu, Evrópu og Afríku. Í sumum tilvikum hefur Kína haft veg og vanda af fram- kvæmdum sem hafa kostað meira en samanlögð fjárlög viðkomandi landa. Til að setja gríðarmikil um- svif Kína í samhengi námu lánveit- ingar frá tveimur helstu þróunar- bönkum Kína samtals 675 milljörðum dala árið 2016, sem var meira en tvöfalt hærri upphæð en Alþjóðabankinn lánaði á sama tíma- bili. Þurfi Kína að draga saman seglin er hætt við að muni bitna á fjárfest- ingum þeirra og verkefnum erlend- is samhliða því að kínverskur iðn- aður mun ekki þurfa að kaupa jafnmikið af hrávöru frá seljendum í þróunarlöndum. Skjálftinn í Kína finnst víða AFP Skipt um gír Því fer fjarri að Kína sé að snöggbremsa, og má reikna með a.m.k. 5% hagvexti næstu tvö árin. Margt bendir til að kínversk fyrirtæki séu farin að finna fyrir minnkandi eftirspurn, m.a. vegna tollastríðs við Bandaríkin. Margir þræðir » Apple, Starbucks og Ford eru meðal þeirra sem greina erfiðleika í Kína. » Gæti haft afleiðingar í þró- unarlöndum ef Kína þarf að draga saman seglin. » Tollastríð, aðgerðir gegn lánabólu og breytingar á at- vinnulífinu skýra þróunina að hluta.  Tekið er að hægja á hagkerfi Kína og veldur það bæði nýmarkaðslöndum og vestrænum stórfyrir- tækjum áhyggjum  Þróunarbankar Kína voru tvöfalt umsvifameiri en Alþjóðabankinn árið 2016 14 FRÉTTIRViðskipti | Arvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Carlos Ghosn, sem áður var forstjóri Renault, Nissan og Mitsubishi, hefur lést um 10 kíló frá því hann var hnepptur í varðhald í Japan 19. nóv- ember síðastliðinn. Sonur hans Ant- hony greindi franska vikuritinu Journal du Dimanche frá þessu, og upplýsti að Carlos fengi að borða þrjár skálar af hrísgrjónum á dag. Eins og aðrir gæsluvarðhaldsfangar er Ghosn haldið í litlum, köldum klefa og hefur lögfræðingur hans ekki fengið að vera viðstaddur yfir- heyrslur. Þá hefur saksóknari freistað þess að fá Ghosn til að undirrita játningu sem rituð er á japönsku sem for- stjórinn fyrrverandi getur hvorki lesið né skilið. Að sögn Reuters hefur gæsluvarð- haldsvist Ghosn vakið ýmsar spurn- ingar um japanska réttarkerfið en sérfræðingar segja algengt að sak- sóknarar þar í landi reyni að þvinga gæsluvarðhaldsfanga til að játa meinta glæpi sína. Ghosn mun mæta fyrir dómara á þriðjudag og verður það í fyrsta skipti í sjö vikur sem hann sést á al- mannafæri. Fór Ghosn sjálfur fram á að málflutningur færi fram fyrir opnum tjöldum svo hann gæti fengið skýringu á því hvers vegna honum hefur verið haldið föngnum svona lengi. Alla jafna leyfa japanskir dóm- stólar ekki að gæsluvarðhald vari lengur en 10 til 20 daga. „Hann fær þar í fyrsta skipti að svara þeim ásökunum sem hafa verið á hann bornar og segja frá sinni hlið mála,“ sagði Anthony um föður sinn sem verður bæði handjárnaður og í fangelsisklæðnaði í dómsal. Ghosn er gefið að sök að hafa leynt hluta tekna sinna og fyrir að bregð- ast trúnaðarskyldum sínum með því að hafa látið Nissan taka á sig tapið af persónulegum fjárfestingum hans. ai@mbl.is AFP Sakir Langt gæsluvarðhald Ghosn hefur vakið upp ýmsar spurningar. Ghosn haldið við slæm skilyrði  Hefur lést um 10 kíló og fær ekki aðstoð lögfræðings við yfirheyrslur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.