Morgunblaðið - 07.01.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.01.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019 Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is „Ég var í námi í Danmörku sem höfðaði ekki nægilega til mín. Ég átti félaga sem hafði verið í þessu og svo komu menn sem voru að kynna nám innan danska hersins og þá ákvað ég að prufa þetta, fékk einhverja ævintýraþrá eftir að hafa talað við þá,“ segir Guðjón Gíslason, slökkviliðsmaður og fyrrverandi liðsmaður lífvarðarsveitar Dana- drottningar. Guðjón gekk í danska herinn árið 2015 og gegndi þar her- þjónustu í átta mánuði. „Fyrstu fjórir mánuðirnir fóru í grunnþjálfun og að læra alls kyns hertækni. Hinir fjórir fóru í þá skyldu að verja drottninguna, fjöl- skyldu hennar og allt sem þeim til- heyrði eins og hallirnar og annað sem heyrir undir dönsku krúnuna. Við vorum alltaf mjög nálægt henni.“ Þjálfunin hefur komið sér vel Guðjón segir það hafa verið ein- kennilega tilfinningu fyrir Íslending að búa á herstöð og hefja vopna- þjálfun. „Já, það var það, en þetta var mjög spennandi og skemmti- legt. Við fengum riffilinn eftir þrjá daga og vorum alltaf með hann. Þegar við vorum með drottningunni var alltaf kúla í hlaupi.“ Á þeim tíma sem Guðjón þjónaði í varðsveit drottningarinnar segist hann hafa þurft að grípa inn í óæskilegar aðstæður þó nokkrum sinnum. „En við hleyptum aldrei af, vopn- um hefur ekki verið beitt í Amalíu- borg síðan í seinni heimsstyrjöld.“ Guðjón starfar hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag og segir þá þjálfun sem hann hlaut hjá danska hernum hafa komið sér vel í því starfi. „Í herskyldunni lærum við að vinna undir miklu álagi. Þetta er kannski ekki alveg eins og í bíó- myndunum en það er samt virki- lega verið að prófa álagið á þér. Við vöknuðum klukkan fimm á morgn- ana, þurftum þá að þrífa herbergin og svo var farið yfir þau og svona.“ Sváfu tvo tíma á sólarhring Guðjón segir stærstu áskorunina í hernum hafa verið hinn svokallaða Rex-túr, sem er hálfgert lokapróf sem hann þreytti í lok grunnþjálf- unarinnar áður en hann hóf þjón- ustu hjá drottningunni. „Þetta tók fimm daga. Fyrsti dagurinn var mjög erfiður andlega. Það var verið að prófa mann mikið. Við borðuðum um það bil 300 ka- loríur á dag og sváfum í tvo tíma á sólarhring. Við gengum á fjórum dögum 160 kílómetra. Við þurftum að bera allt með okkur; bakpoka sem var 30 kíló, riffillinn var sjö kíló og vestið sem ég var í 12 kíló. Þetta voru örugglega alveg góð 50 kíló sem við bárum með okkur allan tímann,“ segir Guðjón um Rex- túrinn. „Þetta var sett upp eins og ratleikur og við þurftum að mæta á ákveðna staði klukkan eitthvað ákveðið. Ef við vorum ekki mættir á réttum tíma þurftum við að bera yf- ir á næsta stað skriðdreka- jarðsprengjur sem eru mjög þung- ar. Ef við vorum ekki síðastir fengum við annaðhvort ekki neitt eða eina Coca Cola-dós.“ Aðspurður hvort það hafi nokk- urn tímann hvarflað að honum að hætta segir Guðjón að það hafi aldrei verið möguleiki. „Það voru mjög margir sem vildu gefast upp en við vorum heild og það var enginn sterkari en veikasti hlekkurinn svo það fékk enginn að gefast upp. Við hjálpuðumst að til að allir kæmust í gegnum þetta.“ Var alltaf með riffilinn Hersveitin Guðjón ásamt hersveit sinni í svokölluðum Rex-túr. Alls var 300 hermönnum skipt í álíka sveitir. Guðjón er hér þriðji frá hægri í neðri röðinni. Hann segir stærstu áskorunina í hernum hafa verið Rex-túrinn.  Ævintýraþráin leiddi til herþjónustu Ljósmyndir/Militærphoto DK Lokapróf Hersveitirnar kepptust við að komast sem fyrst á milli sérstakra stöðva og þurftu að klára ýmis verkefni þess á milli. Hér má sjá Guðjón á skot- æfingu, en meðal annarra verkefna voru skyndihjálp og hindrunarhlaup. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Uppskera er að meðatali 24% minni á túnum sem gæsir eru á en á friðuðum túnum, miðað við þurrefni. Samsvar- ar það því að liðlega 3 heyrúllur tapist af hverjum hektara vegna gæsabeit- ar og er áætlað að uppskerutapið kosti bændur 25 þúsund krónur á hektara. Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu Náttúrustofu Suðaustur- lands um uppskerutap vegna ágangs gæsa á valin ræktarlönd á Suðaust- urlandi sl. vor. Verkefnið var sam- starfsverkefni Fuglaathugunarstöðv- ar Suðausturlands, Búnaðar- sambands Austur-Skaftafellssýslu og Landbúnaðarháskóla Íslands. Nátt- úrustofan hefur unnið að slíkum at- hugunum undanfarin ár. Ástæðan fyrir þessari rannsókn er að margir bændur á Suðausturlandi hafa talið sig hafa orðið fyrir fjár- hagslegu tjóni vegna þess að gæsir og álftir éti töluvert af vorsprettu á tún- um þeirra. Það sama á raunar við um margar sveitir á Suðurlandi og víðar um land, ekki síst þar sem korn er ræktað. Mælingar á fimm stöðum Náttúrustofa Suðausturlands setti út 18 tilraunareiti á fimm stöðum á svæðinu frá Síðu og austur í Lón vor- ið 2018. Túnin voru öll friðuð fyrir beit búpenings á meðan á rannsókn stóð. Gæsir gátu farið um túnin að vild nema hvað járnbúr voru sett út tilviljanakennt á túnin og afmörkuðu friðuðu reitina. Uppskera innan búranna og utan var síðan metin og borin saman. Töluverður breytileiki var á upp- skeru túna eftir stöðum sem rakinn er til breytileika í túngerðum. Á frið- uðu reitunum reyndist þurrefnisupp- skera vera 3,61 tonn á hektara að meðaltali og á viðmiðunarreitunum 2,74 tonn. Mismunurinn var því 0,87 tonn eða sem svarar til 24%. Mest af heiðagæs Talningar á fuglum á rannsóknar- túnunum sýna að heiðagæs var lang- algengasti fuglinn en lítið var af öðr- um gæsategundum eins og grágæs og helsingja. Þá sáust álftir í einu tún- anna, einnig varð vart við hreindýr í túni. Fjöldi gæsa var afar mismunandi á milli staða. Mesta uppskerutapið var í Flatey á Mýrum og á Prestbakka á Síðu. Á fyrrnefnda staðnum voru flestar gæsir taldar en fæstar á Prestbakka. Rannsakendur telja ekki hægt að alhæfa um að talningartölur á fuglum séu lýsandi fyrir fjöldann þar sem þeir flytja sig mikið um set. Þarf að finna lausnir Eins og í fyrri rannsóknum eru niðurstöðurnar túlkaðar þannig að gæsir éti töluvert af voruppskeru á túnum hjá bændum á Suðaustur- landi. Á það er jafnframt bent að sumir bændur geri ráðstafanir til að halda fuglum frá túnum sínum og hafi því hugsanlega minnkað tjón. „Það er mikilvægt að finna viðunandi lausnir á þeim vanda og tjóni sem bændur standa frammi fyrir á jörðum sínum en öruggar upplýsingar um stofn- stærð og þróun íslenska grágæsa- stofnsins og grænlensk-íslenska heiðagæsastofnsins er ein af forsend- um þess,“ segja höfundar. Gæsir éta hluta af voruppskeru á túnum  Rannsókn sýnir að 24% uppskerunnar fer í gæsina Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Grágæs á ferð Heiðagæsin veldur meira tjóni á túnum bænda á vorin á Suð- austurlandi en grágæs og álft. Þessar grágæsir éta á blettum á Blönduósi. Í gær tóku gildi breytingar á akst- ursleið númer 14 hjá Strætó. Um er að ræða fyrri breytingu af tveimur sem fyrirhugaðar eru á leiðakerfi Strætó á árinu 2019. Breytingin felst í því að í stað þess að aka um Lækjargötu, Hring- braut og Snorrabraut til og frá Hlemmi munu strætisvagnar á leið 14 nú aka eftir Hverfisgötu. Breyt- ingin er gerð í ljósi örðugleika sem strætisvagnar á þessari leið hafa átt með að halda áætlun á anna- tímum seinni hluta dagsins. Strætó vonast til þess að breytingin muni auka áreiðanleika leiðar 14. Ýmsir strætófarar sem nýta sér jafnan leið 14 virðast ekki ánægðir með breytinguna og hafa kvartað yfir henni í hverfisumræðum Lang- holts- og Laugarneshverfis á sam- félagsmiðlum. Þá er helst kvartað yfir því að ekki sé lengur hægt að taka leið 14 beint úr hverfum þeirra að Landspítalanum heldur þurfi nú að skipta um vagn á leið- inni. Aðrir segjast skilja breyt- inguna í ljósi þess að á gömlu leið- inni hafi strætisvagninn sjaldan náð að halda tímaáætlun og það hafi haft óþægindi í för með sér. Akstursleið breytt vegna seinagangs  Breyting gerð á leið 14 hjá Strætó Morgunblaðið/Hari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.