Morgunblaðið - 07.01.2019, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019 21
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Óska eftir að annast bókhaldsvinnu
og fleira þess háttar.
Upplýsingar í síma 831-8682.
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Lausafjáruppboð mun fara fram á bílastæðinu við Stjórnsýsluhúsið
að Heiðarvegi 15, 900 Vestmannaeyjum klukkan 15.00 þriðjudaginn
15. janúar 2019 á eftirfarandi eignum:
Mazda, 3, Árgerð 2007, skráningarnr. DTE18 , þingl. eig. Valgeir Ólafur
Kragh, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Skoda, Octavia, Árgerð 2003, skráningarnr. ZZ308 , þingl. eig. Valgeir
Ólafur Kragh, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Toyota Prius, Árgerð 2007, skráningarnr.NJ525, þingl. eig, Magnfreð
Ingi Jensson, gerðarbeiðandi Tollstjóri,
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
4. janúar 2019
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um
10.000 tonn á vegum Laxa fiskeldis
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum
samkvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá
Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Laxa
fiskeldis er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt
á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700.
Boðinn Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 12.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Spjallhópur kl. 15.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 /15. Kvennaleikfimi Sjá-
landi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl.
11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Innritun á saumanámskeið mánudaginn
7. janúar í Jónshúsi kl. 10-12.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15
kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, handavinna / brids kl.
13, jóga kl. 17, félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8.30-16. Frítt kaffi og
spjall kl. 9-11. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Sögustund kl. 13-14, sagan Refurinn eftir Sólveigu Pálsdóttur verður
lesin. Jóga kl. 14.15-15.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12, byrjendanám-
skeið í línudansi kl. 10, hádegismatur kl. 11.30, myndlistarnámskeið
hjá Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30, Handavinnuhornið kl. 13-15,
félagsvist kl. 13.15. eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð
aldri. Nánari upp. í s. 411 2790.
Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í
Egilshöll, allir velkomnir í hópinn. Skartgripagerð með Sesselju kl. 13
í Borgum í dag og kóræfing Korpusystkina kl. 16 í Borgum í dag.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, gönguhópurinn kl. 14, bíó á 2. hæð kl.
15.30. Uppl. í s. 411 2760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
569 1100Rað- og smáauglýsingar
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝ Guðrún Ingi-björg Björns-
dóttir fæddist á
Söndum á Borgar-
eyju í Skagafirði
7. september 1926.
Hún lést á Hjúkr-
unar- og dvalar-
heimilinu Hlíð á
Akureyri 25. des-
ember 2018.
Foreldrar Guð-
rúnar voru Björn
Skúlason, f. 7.12. 1893, d. 11.7.
1975, og Ingibjörg Jósafats-
dóttir, f. 12.3. 1896, d. 10.2.
1938. Bræður Guðrúnar voru
Hafsteinn Björnsson, f. 30.10.
1914, d. 15.8. 1977, og Val-
Gísli Karl Sigurðsson og eiga
þau tvær dætur, Guðrúnu og
Huldu. 2) Sigþrúður, f. 28.6.
1949. Hún var gift Sigurði
Ólafssyni, þau skildu. Þau eiga
þrjú börn: Ragnheiði, Tobias
og Elínu Ösp. Eiginmaður Sig-
þrúðar er Lúðvík F. Jóhannes-
son. 3) Sigurlaug Anna, f.
23.8. 1952. Eiginmaður hennar
er Páll E. Þorkelsson og sam-
an eiga þau fjóra syni, Þorkel
Má, Gísla, Björn og Hafstein
Inga.
Guðrún flutti frá Sauðár-
króki til Akureyrar árið 1943.
Hún stundaði saumaskap
fyrstu árin en var heimavinn-
andi eftir að dæturnar fædd-
ust. Guðrún fór að vinna
hlutastarf 1966 en lengst af
starfaði hún hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa. Útför
Guðrúnar fer fram frá Akur-
eyrarkirkju í dag, 7. janúar
2019, klukkan 13.30.
garð Björnsson, f.
30.11. 1918, d.
15.10. 2000.
Þann 31. mars
1945 giftist Guð-
rún Tobiasi Jó-
hannessyni, f.
25.3. 1914, d. 5.6.
1998. Foreldrar
hans voru Sig-
þrúður Konráðs-
dóttir, f. 7.5. 1895,
d. 22.7. 1969, og
Jóhannes Guðmundsson, f.
25.1. 1888, d. 7.9. 1957.
Guðrún og Tobias eignuðust
þrjár dætur. 1) Birna Ingi-
björg, f. 12.6. 1947, d. 27.8.
2012. Eiginmaður hennar var
Andlát mágkonu minnar, Guð-
rúnar Björnsdóttur, kom ekki á
óvart, en hún lést á jóladag á
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri, 92 ára að aldri.
Við töluðum saman í síma nokkr-
um dögum áður, hún var skýr í
hugsun, en það leyndi sér ekki að
líkamlegur þróttur hennar fór
þverrandi og að stutt yrði í
kveðjustundina.
Það var haustið 1976, á fimm-
tugsafmæli Guðrúnar, 7. septem-
ber, sem maðurinn minn Haf-
steinn Björnsson kynnti mig
fyrir Guðrúnu og Valgarði, systk-
inum sínum fyrir norðan, og
þeirra fjölskyldum. Djúp vinátta
myndaðist. Ljósmynd af okkur,
mökum og systkinunum þremur
geymir góðar minningar frá
þessum degi. Við Hafsteinn
heimsóttum þau aftur að ári og
vini um landið – en í ágúst það ár
varð Hafsteinn bráðkvaddur, 62
ára að aldri.
Guðrún, sem var mjög flug-
hrædd, kom suður með flugi
sama dag og Hafsteinn lést og
dvaldi hjá mér nokkrar nætur.
Mér fannst mjög vænt um það, en
Guðrún hafði aldrei stigið upp í
flugvél áður. Eftir ferðina lækn-
aðist hún af flughræðslunni.
Næstu árin kom ég norður í frí-
um og dvaldi í nokkra daga hjá
Guðrúnu og Tobíasi, manninum
hennar, og alltaf var mér vel
fagnað.
Tobías var traustur maður og
skemmtilegur, hann söng lengi
með Karlakórnum Geysi. Hann
rak bílasprautunarverkstæði á
Akureyri. Ég þakka allar sam-
verustundirnar með þeim og fjöl-
skyldunni. Við Jakobína, ekkja
Valgarðs, erum einar eftir á lífi.
Þegar Guðrún var 11 ára
missti hún móður sína, Ingi-
björgu Jósafatsdóttur, og fór í
fóstur til móðursystur sinnar,
Sigurlaugar, sem var búsett á
Sauðárkróki. Guðrún sagði mér
frá því, að hún hefði eitt sinn tog-
að aðeins í pilsið hennar fóstru
sinnar, þá er hún var svöng, Sig-
urlaug gat sér til um það og
spurði, „ertu svöng, Gunna mín?“
Guðrún svaraði játandi. Þetta er
lýsandi dæmi um hlédrægni Guð-
rúnar. Síðar var Guðrún hjá ann-
arri móðursystur sinni, Önnu, um
tíma, á Hranastöðum í Eyjafirði.
Það sem mér fannst einkenna
Guðrúnu var hógværð, hún var
orðvör og aldrei talaði hún niðr-
andi orð um nokkra manneskju,
hún bar hag annarra fyrir brjósti,
og sérstaklega dætra sinna og
barnabarna. Guðrún var fróð og
minnisgóð, hún fylgdist mjög vel
með öllum fréttum og þjóðmál-
unum, og mátti alls ekki missa af
„dánarfregnum og jarðarförum“.
Guðrún var verkakona og studdi
vinstri vænginn í þjóðmálum.
Heimili Guðrúnar og Tobíasar
bar vott um snyrtimennsku.
Þó símtölum okkar hafi fækk-
að síðustu árin, en við höfðum
alltaf nóg um að spjalla, þá voru
ákveðnir dagar, tyllidagar, sem
alltaf var minnst og þá slógum við
á þráðinn hvor til annarrar.
Mér finnst ég eiga Guðrúnu
óendanlega margt að þakka, og
ég sakna hennar, en tíminn var
kominn. Ég tek undir orð Jak-
obínu, er ég innti hana eftir því,
hvað henni fyndist lýsa Guðrúnu
best, hún svaraði að bragði: „Hún
var yndisleg manneskja.“ Guð-
rún var sannfærð um það að líf
væri eftir þetta líf – og þá verða
fagnaðarfundir „hinum megin“.
Blessuð sé minning kærrar mág-
konu, Guðrúnar Ingibjargar
Björnsdóttur.
Guðlaug Elísa Kristinsdóttir.
Guðrún I.
Björnsdóttir
✝ GuðmundurHelgi Hall-
dórsson fæddist á
Skeggjastöðum í
Hraungerðis-
hreppi í Flóa 24.
maí 1929. Hann
lést á Skógarbæ
24. desember
2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
rún Gísladóttir
húsfreyja, fædd í Laxárdal í
Gnúpverjahreppi en alin upp
að mestu í Bitru í Flóa, og
Halldór Jónsson, bóndi á föð-
urleifð sinni á
Skeggjastöðum.
Þau hjón bjuggu á
Skeggjastöðum
alla sína búskap-
artíð.
Guðmundur
Helgi var yngstur
fimm barna
þeirra. Hin voru
Margrét, Bjarn-
heiður, Gunnar og
Gísli, og eru þau
öll látin.
Útför Guðmundar Helga fer
fram frá Fossvogskirkju í dag,
7. janúar 2019, klukkan 13.
Guðmundur Helgi lærði raf-
virkjun hjá föður okkar Gísla Jó-
hanni Sigurðssyni, sem var
gjarnan kenndur við Raforku.
Samskipti þeirra þróuðust strax
frá upphafi meira í vináttusam-
band en meistara- og nemasam-
band. Helgi vann áfram á raf-
tækjaverkstæðinu eftir að
námstímanum lauk. Það var
ekki fyrr en rekstri raftækja-
verkstæðisins var hætt, sem
Helgi stofnaði sjálfur sitt fyr-
irtæki, Rafvakann, ásamt öðrum
rafvirkja. Helgi vann við iðn sína
alla tíð en dró úr vinnu eftir því
sem hann eltist og hætti alfarið
kominn vel á áttræðisaldur.
Helgi naut virðingar á meðal
viðskiptavina sinna vegna áreið-
anleika og vandaðra vinnu-
bragða. Hann þótti laghentur og
vandvirkur handverksmaður.
Það var ekki eingöngu í rafvirkj-
un sem faðir okkar sóttist eftir
liðsinni hans heldur einnig þeg-
ar kom að trésmíðavinnu.
Einungis ein kvörtun barst
vegna starfa Guðmundar Helga
á meðan hann vann hjá Raforku.
Ekki var það vegna vinnubragða
hans eða verklags heldur þótti
viðskiptavininum hann heldur
fámáll eftir að búið var að
skiptast á kveðjuorðunum „góð-
an daginn“.
Helgi var tónelskur maður og
var um árabil m.a. félagi í karla-
kórnum Fóstbræðrum.
Helgi var meira en nemi í lífi
okkar. Hann bjó á heimili okkar
þegar hann var nýfluttur í bæ-
inn og kominn á samning hjá
föður okkar. Heimafyrir voru
tveir sem gegndu nafninu Helgi;
bæði neminn Guðmundur Helgi
og strákhnokkinn Karl Helgi.
Guðmundur Helgi fékk nafnið
„Helgi stóri-bóndi“ til aðgrein-
ingar frá þeim yngri.
Iðulega var Helgi með okkur í
leik og starfi. Þeir nafnar, Guð-
mundur Helgi og Karl Helgi,
deildu sama afmælisdegi þótt
nítján ár skildu þá að og ósjald-
an fögnuðu þeir deginum saman.
Karl Helgi var í sveit til fjölda
ára á Skeggjastöðum hjá móður
Guðmundar Helga og Gunnari
bróður hans. Seinna voru yngri
bræðurnir einnig í sveit hjá
Gunnari og Sigríði konu hans.
Helgi stóri-bóndi tók Kjartan á
námssamning í rafvirkjun þegar
eftir því var leitað og naut
Kjartan leiðsagnar og fyrir-
myndar hans í vönduðum vinnu-
brögðum og þjónustu. Sigurður
Rúnar vann með Guðmundi
Helga um árabil og með þeim
skapaðist ágætur vinskapur.
Ferðuðust þeir meðal annars
saman til Grænlands með
Trimmklúbbi Seltjarnarness til
að taka þátt í styttri vegalengd í
maraþonhlaupi í Nuuk. Guð-
mundur Helgi hafði tekið þátt í
Flóahlaupinu á árum áður og
vildi ólmur hlaupa með. Nesarar
máttu hafa sig alla við að halda í
við hann.
Helgi lagði upp úr því að eiga
góða bíla og hafði gaman af því
að ferðast um landið. Helgi og
Gísli bróðir hans ferðuðust mik-
ið og víða saman. Missir Helga
var mikill þegar bróðir hans og
félagi féll frá. Hin síðari ár sótti
Helgi gjarnan veitingasölu sem
Sigurður Rúnar rak, ekki síður
vegna félagsskapar en veitinga.
Eftir að heilsu Helga hrakaði
naut hann þess m.a. að fara í bíl-
túr með Sigurði Rúnari, fá sér
kaffisopa og heimsækja kunnug-
lega staði.
Við vottum skyldmennum
Guðmundar Helga samúð okkar.
Sigurður Rúnar, Karl Helgi
og Kjartan Gíslasynir.
Guðmundur Helgi
Halldórsson