Morgunblaðið - 07.01.2019, Síða 23
Ljóðin í sálinni, inniheldur ein-
göngu lög með ljóðum eftir Davíð
Stefánsson, alls 21 lag.“
Tónlist Guðmundar Óla hefur
heyrst víða og reglulega er óskað
eftir henni í óskalagaþáttum á
RÚV. „Ég bjóst ekki við því en
það er mjög gaman að hafa náð til
fólksins.“ Guðmundur Óli var með
fasta pistla bæði í Fréttablaðinu
og Stundinni og skrifaði einnig
pólitískar kjallaragreinar í Vísi á
9. áratugnum þegar hann var í
Bandalagi jafnaðarmanna.
Undanfarin fimm ár hefur hann
verið þáttastjórnandi með út-
varpsþátt á Útvarpi Sögu. „300.
þátturinn minn verður núna í
byrjun árs.“
Þá hefur Guðmundur Óli kennt
og miðlað þekkingu sinni hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands þeg-
ar námskeið um meindýravarnir
eru haldin þar.
Fjölskylda
Sambýliskona Guðmundar Óla
er Kristín Margrét Harðardóttir,
f. 4.3. 1951, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu.
Fyrrverandi eiginkona er Jón-
ína Stefánsdóttir leikskólakennari.
Börn þeirra eru Kristín, 9.3. 1973,
myndlistarmaður, Jón Stefán, f.
10.12. 1974, vaktstjóri hjá Innnesi,
Guðrún Sesselja, f. 27.10. 1980,
matráður hjá N1 á Blönduósi, og
Guðmundur Óli, f. 9.9. 1988, flug-
maður hjá Mýflugi. Barnabörnin
eru orðin 12.
Systkini: Ómar J. Scheving, f.
17.8. 1953, bifvélavirki, bús. í
Reykjavík, Viðar J. Scheving, f.
11.11. 1956, múrarameistari, bús. í
Garðabæ, Hrafnhildur J. Schev-
ing, f. 3.7. 1961, d. 24.7. 2014, hús-
móðir í Reykjavík.
Foreldrar: Jón G. Scheving,
fæddur í Vestmannaeyjum 1.3.
1924, d. 19.12. 1995, forstjóri, mál-
ari og vaktmaður í Reykjavík, og
Guðrún Sesselja Guðmundsdóttir,
frá Suðureyri í Súgandafirði, f.
16.9. 1927, fyrrverandi skrif-
stofumaður, bús. í Mosfellsbæ.
Guðmundur
Óli Scheving
Sigrún Sigurðardóttir
húsfr., f. á Hofsstöðum í Gufudalssveit
Hallbjörn Eðvarð Oddsson
kennari og sjómaður á Suðureyri,
síðast bús. áAkranesi
Valgerður Friðrika Hallbjörnsdóttir
húsfr., f. á Laugabóli íArnarfirði
Guðmundur Þorleifur Geirmundsson
sjómaður og síðar smiður á Suðureyri
Guðrún Sesselja Guðmundsdóttir
skrifstofum. og húsfr. í Rvík
Guðrún Einarsdóttir
húsfr., f. í Kvíanesi í
Súgandafirði
Geirmundur Jónsson
húsmaður í Breiðadal í Önundarfirði
Aðalheiður Steina
Scheving hjúkrunarfr.
í Eyjum, síðar á
Borgarspítala
Hreinn Loftsson
lögmaður
Magnús
Loftsson frkvstj.
Listaháskóla Ísl.
Sigurður Scheving ritstjóri í Eyjum
og skrifstofustj. í Eyjum og Rvík
Edda Scheving ballettkennari og
frkvstj. Íslenska dansflokksins
Nína Dögg
Filippusdóttir
leikkona
áll Scheving
erksmiðjustj.
í Eyjum
P
v
Sigurgeir Scheving
eikari og leikstj. í
Eyjum
lBylgja Schevingfélagsráðgjafi í Rvík
Kristey Hallbjarnardóttir
húsfr. á Suðureyri
Eðvarð Sturluson
bifreiðarstj. og
oddviti á Suðureyri
Sturla Gunnar Eðvarðsson
framkvæmdastjóri
Smáralindar
Sigurður Hallbjörnsson
tgerðarm. á AkranesiúRafn Sigurðsson fv. forstjóri Hrafnistu
Jón Páls
Guðmundsson
jómaður í Rvíks
Ágúst Ingi Jónsson
blaðamaður á
Morgunblaðinu
Cæsar Benjamín Hallbjarnarson Mar
kaupm. í RvíkElías Mar rithöfundur í Rvík
Þuríður Ketilsdóttir
húsfr., f. á Ásólfsskála undir Eyjafjöllum
Jón Stefánsson
b. og formaður í Varmahlíð og
Gerðakoti undir Eyjafjöllum,
fórst með Haffara
Ólafía Kristný Jónsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Guðjón Scheving
málarameistari og kaupmaður í Vestmannaeyjum
Kristólína Bergsteinsdóttir
húsfr., fædd á Tjörnum
undir Eyjafjöllum
Sveinn Scheving
bóndi, lögregluþj. og hreppstj. á Steinsstöðum í Eyjum
Úr frændgarði Guðmundar Óla Scheving
Jón Guðjónsson Scheving
forstjóri, málari og
vaktmaður í Rvík
Afmælisbarnið Guðmundur Óli.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019
90 ára
Jónas Thorarensen
85 ára
Sæunn Magnúsdóttir
Þórir Þorsteinsson
70 ára
Ásta Jónsdóttir
Bergur Höskuldsson
Bjarni Reykjalín
Gísli Geir Jónsson
Guðmundur Óli Scheving
Guðrún Guðmundsdóttir
Hildur Sveinsdóttir
Inga Jóna Andrésdóttir
Knútur Eyjólfsson
María N. Guðmundsdóttir
Páll Gunnar Loftsson
Valgerður Guðmundsdóttir
Þorsteinn G. Benjamínsson
Þórdís Guðmundsdóttir
60 ára
Árný Gyða Steindórsdóttir
Benóní Torfi Eggertsson
Guðný Ólafsdóttir
Gunnar Magnússon
Haraldur Guðmundsson
Hilmar Heiðar Eiríksson
Jóhann Gestur Jóhannsson
Jómundur G. Hjörleifsson
Margrét Kjartansdóttir
Þorsteinn Einarsson
50 ára
Ari Þór Jónsson
Elísabet Á. Sigurjónsdóttir
Guðmundur H. Kjartansson
Guðrún Kristmanns
Birgisdóttir
Hlynur Örn Sigurðsson
Hulda Júlía Sigurðardóttir
Leonila Morales Perez
Ragnar Kristinn Ingason
Rögnvaldur Kristbjörnsson
Valgerður Halldórsdóttir
Valur Páll Viborg
Vilhjálmur Hreinsson
Þorbjörn Sigurðsson
Þórdís Sólmundardóttir
40 ára
Dominik Piotr Sikora
Helena Liene
Voldemarsdóttir
Jaroslaw Piotr Kumpicki
Jenný Lovísa Árnadóttir
Julius Caesar Rivera
Deiparine
Katarzyna Urszula Walczak
Katla Sigurðardóttir
Páll Þórir Daníelsson
Sigurður Örn Kolbeins
Svava Gísladóttir
Sveinn Sævar Frímannsson
Unnur Ingimundardóttir
30 ára
Arkadiusz Michal
Dojnikowski
Aron Örn Jónsson
Ásdís Elfarsdóttir
Birkir Smári B.
Sigurgeirsson
Daníel Trausti Róbertsson
Grzegorz Marcin Lakomski
Guðmundur Hrafn
Gunnarsson
Ingólfur Ásgeirsson
Martin Rucek
Pálmi Ragnar Ásgeirsson
Soffía Hlynsdóttir
Steinar Geirdal Snorrason
Til hamingju með daginn
40 ára Katla er Hafnfirð-
ingur og er sjálfstætt
starfandi klæðskera- og
kjólameistari.
Maki: Þórhallur Sverris-
son, f. 1976, kerfisfr. hjá
Reiknistofu bankanna.
Börn: Erpur, f. 2007,
Freyr, f. 2009, Salka, f.
2011, og Jökull, f. 2018.
Foreldrar: Sigurður
Gíslason, f. 1946, arkitekt
og Sigrún Einarsdóttir, f.
1948, tækniteiknari,
kennari og arkitekt.
Katla
Sigurðardóttir
30 ára Ingólfur er Njarð-
víkingur og er atvinnu-
flugnemi hjá Keili.
Maki: Elísabet Mjöll Jens-
dóttir, f. 1993.
Börn: Hálfdán Logi, f.
2013, drengur f. 19. des-
ember 2018.
Foreldrar: Ásgeir Ás-
geirsson, f. 1954, lyfja-
fræðingur, og María Ing-
ólfsdóttir, f. 1954,
húsmóðir og fjármála-
fulltrúi. Þau eru bús. í
Njarðvík.
Ingólfur
Ásgeirsson
30 ára Steinar er Reykvík-
ingur og vélaverkfræð-
ingur og starfar hjá Mann-
viti.
Maki: Katrín Þuríður Páls-
dóttir, f. 1989, bygginga-
verkfræðingur og verk-
efnastjóri hjá
Malbikunarstöðinni Höfða.
Dóttir: Sara Björk, f. 2018.
Foreldrar: Snorri Geirdal,
f. 1967, þjónn í Danmörku,
og Guðrún Sigríður Stef-
ánsdóttir, f. 1969, þjónn í
Reykjavík.
Steinar Geirdal
Snorrason
Thomas Brorsen Smidt hefur
lokið doktorsvörn í kynjafræði við
Háskóla Íslands. Heiti ritgerðar-
innar er Fílabeinsturninn í kynjuðu
ljósi: Stefnumótun, óvissa og and-
spyrna í fræðasamfélagi nýfrjáls-
hyggjunnar.
Andmælendur voru Louise Mor-
ley, prófessor í menntunarfræði við
Sussex-háskóla, og Ingólfur Ásgeir
Jóhannesson, prófessor og deildar-
forseti deildar menntunar og marg-
breytileika við Háskóla Íslands.
Leiðbeinandi var dr. Gyða Mar-
grét Pétursdóttir dósent í kynja-
fræði.
Aðrir í doktorsnefnd voru dr.
Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í
kynjafræði við Háskóla Íslands, dr.
Nicky Le Feuvre, prófessor við Há-
skólann í Lausanne, og dr. Fredrik
Bondestam, rannsóknastjóri við
Gautaborgarháskóla.
Í kjölfar markaðsvæðingar hafa
háskólar farið að reiða sig í aukn-
um mæli á ný viðmið og verklag
sem hafa fest sig í sessi í vísinda-
samfélaginu. Þar birtist ósamræmi
milli þess sem kemur fram í
stefnum um kynjajafnrétti og fram-
kvæmd stefnanna. Í rannsókninni
er þetta ósamræmi skoðað ásamt
því hvernig kyn hefur áhrif á upp-
lifun fólks í háskólasamfélagi sem
er mótað af hugmyndum um stöð-
ugan vöxt og frammistöðu.
Sjónum er einnig beint að því
hvernig fólk bæði styður við og
veitir þessari menningu viðnám.
Thomas Brorsen Smidt
Thomas Brorsen Smidt fæddist í Esbjerg 14. júní 1985 og ólst upp í þorpinu
Hunderup, sem er 15 km frá Ribe. Hann stundaði nám í ensku við Syddansk Uni-
versitet sem hann lauk árið 2010 og MA prófi í kynjafræði frá Háskóla Íslands
lauk hann árið 2013. Hann er verkefnastjóri hjá Jafnréttisskóla Háskóla Samein-
uðu þjóðanna (UNU-GEST) og býr í Mosfellsbæ ásamt eiginkonu sinni, Maríu
Logn Kristínardóttur Ólafsdóttur.
Doktor
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is