Morgunblaðið - 07.01.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2019
»Leikhópurinn
Lotta frumsýndi
fjölskyldusöngleikinn
Rauðhettu í Tjarnarbíói
í gær en í honum er
ólíkum og þekktum
ævintýrum blandað
saman, m.a. þeim um
Rauðhettu og úlfinn og
Hans og Grétu. Lotta
sýndi söngleikinn fyrst
árið 2009 og ákvað að
dusta rykið af honum nú
tíu árum síðar og setja í
nýjan búning. Leikstjóri
er Ágústa Skúladóttir
og leikarar Andrea Ösp
Karlsdóttir, Anna Berg-
ljót Thorarensen, Árni
Beinteinn Árnason,
Sigsteinn Sigurbergs-
son og Stefán Benedikt
Vilhelmsson.
Börnin skemmtu sér yfir ævintýrasöngleiknum Rauðhettu í Tjarnarbíói
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Líf og fjör Í afgreiðslunni var stemning og stuð og kunnu ungir gestir vel að meta það.
Spennandi Sóldís, Halla Rún og Brynjar voru spennt að sjá Rauðhettu.
Góð stund Fólk á
öllum aldri gerði
sér ferð í Tjarnar-
bíó til að sjá söng-
leikinn. Ásgerður
Snævarr, Iðunn
Andradóttir og
Flóki Ásgeirsson.
Gaman Þórunn Ása, Gísli Ólafsson, Bjarney Lilja, Jóhanna Björk og Ingibjörg voru kát.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
ICQC 2018-20
Söngleikurinn Matthildur er stór-
sýning sem verður frumsýnd á
Stóra sviði Borgarleikhússins í
mars, en í dag, mánudag 7. janúar,
kl. 13 verður opinn samlestur þar
sem leikarar sýningarinnar munu
lesa í gegnum allt verkið undir
stjórn Bergs Þórs Ingólfssonar leik-
stjóra. Einnig verða nokkur lög úr
söngleiknum sungin við undirleik
Agnars Más Magnússonar tónlistar-
stjóra. Leikarar í sýningunni eru
Arnar Dan Kristjánsson, Björgvin
Franz Gíslason, Björn Stefánsson,
Ebba Katrín Finnsdóttir, Rakel
Björk Björnsdóttir, Vala Kristín Ei-
ríksdóttir og Þorleifur Einarsson.
Þær Erna Tómasdóttir, Ísabel Dís
Sheehan og Salka Ýr Ómarsdóttir
skipta með sér hlutverki Matt-
hildar. Einnig leikur í sýningunni
hópur barna sem voru valin úr þeim
rúmlega 1.100 börnum sem mættu í
áheyrnarprufur í fyrra.
Gísli Rúnar Jónsson sá um að ís-
lenska söngleikinn og aðstoðarleik-
stjóri er Hlynur Páll Pálsson.
Samlesturinn í dag verður á
Stóra sviði Borgarleikhússins og er
öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Ungar leikkonur Erna Tómasdóttir, Ísabel Dís Sheehan og Salka Ýr
Ómarsdóttir munu skiptast á að sjá um að leika aðalpersónuna Matthildi.
Opinn samlestur á
söngleiknum Matthildi