Morgunblaðið - 08.01.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 9,8 milljónir farþega fóru um
Keflavíkurflugföll í fyrra. Það er
metfjöldi og til dæmis tvöföldun frá
árinu 2015. Hins vegar eru þetta
töluvert færri farþegar en Isavia
spáði að færu um völlinn í spám sín-
um í nóvember 2017 og maí 2018.
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, bendir á að óvissa sé
jafnan um síðasta ársfjórðung þegar
farþegaspárnar eru gerðar. Gera
megi ráð fyrir að gengi krónu hafi
haft einhver áhrif á að farþegar voru
færri í fyrra en Isavia spáði. Þá verði
að horfa til þess að breytingar hafi
orðið í flugrekstri á Íslandi í fyrra,
bæði hjá WOW air og Icelandair.
Mun skýrast með WOW air
„Hvað spá fyrir árið 2019 varðar
þá verður hún tilbúin innan tíðar
þegar áform Wow air og mögulega
annarra félaga skýrast,“ segir hann.
Isavia kynnti fyrir nokkrum árum
langtímaáætlun um þróun Kefla-
víkurflugvallar fyrir tímabilið 2015-
2040. Þar var að finna áætlun um
þróun farþegafjölda á tímabilinu.
Skv. henni áttu 10 milljónir farþega
að fara um völlinn 2030. Umferðin í
fyrra var því næstum jafn mikil og
þarna var áætlað að hún yrði 2030.
Samkvæmt bráðabirgðaspá Isavia
fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs
munu þá 8,9% færri farþegar fara
um völlinn en sömu mánuði í fyrra.
Fækkunin þessa mánuði verður
-1,8%, -9,6 og -14,3%
Rúmlegar 2,3 milljónir
Ferðamálastofa áætlar að 2,316
milljónir brottfara erlendra farþega
frá landinu hafi verið í fyrra, eða um
5,5% fleiri en árið 2017. Aukningin
milli ára 2016 og 2017 var 24,2%.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir aðspurður útlit
fyrir 5% árlega fjölgun ferðamanna
á næstu 3-4 árum. Fjöldinn í ár sé í
takt við væntingar. Hann segir það
vekja athygli að Isavia hafi ekki gef-
ið út farþegaspá fyrir árið 2019.
Isavia hafi enda bestu gögnin.
Metár en þó
undir spám
9,8 milljónir farþega í Leifsstöð 2018
Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli
Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar 2015-2040
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
14
12
10
8
6
4
2
0
Heildarfjöldi
Skiptifarþegar
Komur
Brottfarir
(milljónir)
Heimild: Isavia
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Skiptifarþegar 2018
3.871.636
Heildarfarþegafjöldi 2018
9.804.388
Komur 2018
2.950.842
Brottfarir 2018
2.970.927
’15 ’20 ’25 ’30 ’35 ’40
Milljónir farþega (spá)
Skiptifarþegar
Komur og brottfarir
Rauntölur og spár um heildar-
farþegafjölda árið 2018
10,07
milljónir
Spá Isavia frá
nóvember 2017
Spá Isavia frá
maí 2018
Heildarfjöldi
farþega 2018
9,8
milljónir
10,38
milljónir
12% fleirifarþegar
fóru um Keflavíkur-
flugvöll 2018 en árið
á undan
Stefnt er að því að niðurstaða af at-
hugun Tryggingastofnunar á áhrif-
um búsetu erlendis á útreikning ör-
orkulífeyris liggi fyrir í lok mánaðar-
ins. Þá verði framkvæmdinni breytt
og farið að vinna hvert mál fyrir sig.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá
Tryggingastofnun.
Fram hefur komið hjá velferðar-
ráðuneytinu að Tryggingastofnun
muni endurreikna og leiðrétta
greiðslur til örorkulífeyrisþega sem
urðu fyrir skerðingu vegna búsetu
erlendis. Það verði gert fjögur ár aft-
ur í tímann. Jafnframt hefur komið
fram að um þúsund einstaklingar
geti átt von á leiðréttingu á hverju
ári, samtals um hálfan milljarð á ári.
Einstaklingar gætu átt von á millj-
ónum í endurgreiðslu fyrir allt tíma-
bilið.
Breyting á langri framkvæmd
Í tilkynningu frá Tryggingastofn-
un kemur fram að málið hafi verið í
skoðun hjá stofnuninni frá því álit
umboðsmanns Alþingis (8955/2016)
var birt og hefur hún í samvinnu við
velferðarráðuneytið unnið að því að
útfæra leiðir til að bregðast við. Tek-
ið er fram að aðgerðin sé flókin og
umfangsmikil þar sem um sé að
ræða breytingu á áralangri fram-
kvæmd sem úrskurðarnefndir hafi
staðfest með úrskurðum.
„Þetta er fólk sem komið hefur
verið illa fram við,“ segir Þuríður
Harpa Sigurðardóttir, formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands. Mikið hafi
verið að gera hjá bandalaginu eftir
að fréttir voru fluttar um fyrirhug-
aða endurgreiðslu. Þuríður segir að
dæmi séu um að skerðingar á grund-
velli búsetu séu í sumum tilfellum
miklar. Þær geti skipt milljónum.
Varðandi hugmyndir formanns
Sambands íslenskra sveitarfélaga að
til greina komi að endureikna fjár-
hagsaðstoð sem sveitarfélög hafi
veitt fólki sem nú fær leiðréttingu
sinna mála segir Þuríður að hún voni
að ekki komi til þess að reynt verði
að hafa fé af þessum einstaklingum
sem hafi verið hlunnfarnir um árabil.
Tryggingastofnun breytir
framkvæmd í lok mánaðar
Formaður ÖBÍ vonar að ekki verði reynt að hafa fé af fólki
„Ég hafði aldrei hugmynd um það,“
sagði Hákon Örn Bergmann fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær-
morgun við aðalmeðferð svokallaðs
Skáksambandsmáls spurður hvað
hann hefði talið að væri í sendingu
sem kom frá Spáni og merkt var
Skáksambandi Íslands. Málið snýst
um fyrirhugaðan innflutning á rúm-
lega fimm kílóum af amfetamíni til
landsins og er Hákon ákærður fyrir
að hafa verið einn þeirra sem stóðu
að innflutningnum en hann neitar
sök í málinu. Tveir aðrir eru ákærðir
í málinu, Sigurður Kristinsson og Jó-
hann Axel Viðarsson.
Hinir ákærðu voru allir mættir í
dómsal en þegar til stóð að taka
skýrslu af Sigurði við upphaf aðal-
meðferðarinnar lýsti hann því yfir að
hann ætlaði ekki að tjá sig meira um
málið. Hann hefði engu við það að
bæta sem hann hefði greint lögregl-
unni frá á fyrri stigum málsins. Sig-
urður hefur gengist við því að hafa
ætlað að flytja inn fíkniefnin en þeim
var pakkað inn í skákmuni og send-
ingin sem fyrr segir merkt Skák-
sambandi Íslands. Hins vegar hefur
hann hafnað ákærunni á hendur sér
á þeim forsendum að raunverulegt
magn fíkniefnanna sé ekki það sem
ákæruvaldið heldur fram. Áður en
sendingin var send til Íslands var
hald lagt á hana og efnunum skipt úr
fyrir annað efni.
Hákon sagðist fyrir dómi aðeins
hafa verið að gera Sigurði greiða
með aðkomu sinni að málinu. Hann
hefði ekki vitað hvað væri í sending-
unni og Sigurður hefði sagt að málið
yrði til þess að hann gæti greitt Há-
koni skuld við hann. Tvær grímur
hefðu farið að renna á hann eftir jólin
2017 og hann viljað koma sér út úr
málinu. Hann hefði því fengið Jó-
hann til þess að sjá um að sækja
sendinguna gegn loforði um að gefa
honum upp gamla 300 þúsund króna
skuld. Hákon sagði einnig að Sigurð-
ur hefði talið óheppilegt að hann
sækti sendinguna sjálfur. Hákon gaf
Jóhanni leiðbeiningar um hvað
þyrfti að gera og fylgdi honum síðan
eftir á bifreið sinni.
Feginn að losna við skuldina
Jóhann var handtekinn í kjölfar
þess að hann sótti sendinguna og
Hákon í framhaldinu þar sem hann
sást fylgjast með Jóhanni. Jóhann
sagðist fyrir dómi ekki hafa vitað
hvað væri í sendingunni en talið að
hugsanlega væri um að ræða stera í
ljósi þess að Hákon væri tilbúinn að
gefa honum eftir svo háa skuld.
Hann hefði þó lítið velt því fyrir sér
og aðallega verið ánægður með að fá
skuldina afskrifaða.
Aðalmeðferð málsins heldur
áfram 25. janúar. hjortur@mbl.is
„Ég hafði aldrei hugmynd um það“
Sigurður Kristinsson kaus að tjá sig ekki frekar um Skáksambandsmálið þegar aðalmeðferðin hófst
Hinir tveir sakborningarnir segjast ekki hafa vitað hvað var í sendingunni sem kom frá Spáni
Morgunblaðið/Eggert
Sakamál Sigurður Kristinsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun ásamt verjendum sakborninga í Skák-
sambandsmálinu. Hann hefur hafnað því að málið snúist um það magn fíkniefna sem ákæruvaldið heldur fram.