Morgunblaðið - 08.01.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Útsala
Buxur, Kjólar,
Túnikur, Bolir,
Peysur, Jakkar,
Úlpur
40-
60%
afsláttur
VINDORKA OG RAMMAÁÆTLUN
Í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið
býður verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar
til opins fundar um vindorku
miðvikudaginn 9. janúar 2019 kl. 13-17.
Fundurinn verður haldinn í sal Þjóðminjasafnsins.
Beint streymi verður frá fundinum.
Nánari upplýsingar og dagskrá málþingsins
er að finna á www.ramma.is
!"# &'
( )*+
, *+ -(* ./(/
0) . ( 1/
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Niðurstöður vísindarannsókna benda
til þess að heildar-blómgunartími
plöntutegunda á norðurslóðum stytt-
ist með hlýnun loftslags. Þetta getur
haft áhrif á afkomu ýmissa dýrateg-
unda, t.d. skordýra sem bera frjó, að
því er fram kemur í vísindagrein eftir
38 plöntuvistfræðinga. Greinin birtist
í hinu virta vísindatímariti Nature
Ecology and Evolution í desember
2018.
Ingibjörg Svala Jónsdóttir, pró-
fessor við Líf- og umhverfisvísinda-
deild Háskóla Íslands, er í hópi vís-
indamannanna sem könnuðu
blómgunartíma 253 plöntutegunda á
23 mismunandi stöðum á heimskauta-
túndrunni á allt að 20 ára tímabili.
Hún hefur lagt stund á rannsóknir á
gróðurbreytingum á Íslandi og Sval-
barða um árabil. Ingibjörg sagði að
gögnin byggðust bæði á tilraununum
þar sem líkt var eftir hlýnun og at-
hugunum á svæðum þar sem hlýnun
hefur átt sér stað. Sterkustu viðbrögð
plantnanna voru að þær blómguðust
fyrr en ella.
„Hröðun blómgunar við aukna
hlýnun er misjöfn eftir því hvort teg-
undirnar blómgast að jafnaði seint
eða snemma á sumri. Þær tegundir
sem að jafnaði blómgast fyrst blómg-
ast aðeins fyrr ef loftslag hlýnar.
Blómgunartími þeirra tegunda sem
blómgast almennt síðsumars breytist
meira og færist framar. Þetta verður
til þess að heildar-blómgunartíminn
styttist,“ sagði Ingibjörg.
„Helsta áhyggjuefnið er að þetta
gæti haft áhrif á skordýr sem nýta
sér blómgunina, það er frjóbera. Það
er ekki víst að þeir svari hlýnun á
sama hátt og plönturnar,“ sagði Ingi-
björg. Rannsóknir benda til þess að
þarna geti myndast ákveðið ósam-
ræmi (mismatch) milli blómgunar-
tíma plantnanna og æviskeiðs frjó-
beranna. Ef þetta hefur verulega
neikvæð áhrif á frjóberana þá gæti
það komið niður á frjóvgun plantn-
anna. Ingibjörg segir að það sé verið
að rannsaka þann þátt betur.
Hún segir að blómgunin sé einn
þátturinn í þroskaskeiði plantnanna.
Breytingin á blómgunartímanum
bendi til þess að plönturnar nái
þroska fyrr á sumrinu en ella, líka
hvað varðar vöxt. Ýmsir grasbítar
eru háðir þessum plöntum sér til
framdráttar. Hreindýr á norður-
slóðum bera t.d. á ákveðnum tíma og
ungviði þeirra er háð því að dýrin hafi
aðgang að næringarríku fóðri. Ef
plönturnar þroskast of snemma þá
gæti ungviðið misst af næringartoppi
plantnanna.
Hlýindi nú ekki góð
Hlýindin nú í desember og janúar
eru almennt ekki góð fyrir plönturn-
ar, að sögn Ingibjargar. „Við vitum
að veturinn er ekki úti. Sumar
plöntur hafa aðlagast umhleyping-
unum og láta ekki plata sig, eins og til
dæmis birkið. Það fer ekki að laufgast
þó að það sé hlýtt í janúar. Aðrar
plöntur stjórnast meira af hita en
birtu og fara ekki að vetra sig í þess-
um hlýindum. Vetrunin er ákveðið
ferli. Þegar svo veturinn kemur þá
gætu þær farið illa. Við erum þá fyrst
og fremst að tala um innfluttar teg-
undir,“ sagði Ingibjörg.
Hlýnun flýtir blómgunartíma heimskautablóma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Getur mögulega haft áhrif á dýralíf
Hagsmunasamtök heimilanna hafa
vísað til Mannréttindadómstóls
Evrópu afgreiðslu íslenskra stjórn-
valda og dómstóla á málum sem
varða gengistryggð lán. Kæran var
send skömmu fyrir jól. Telja sam-
tökin að þau hafi áður látið reyna á
öll möguleg úrræði innan lands,
meðal annars margoft fyrir íslensk-
um dómstólum.
Í tilkynningu frá Hagsmuna-
samtökum heimilanna kemur fram
að með því að víkja sérstökum lög-
um um neytendalán til hliðar í
trássi við skuldbindingar íslenska
ríkisins samkvæmt EES-samn-
ingnum og leggja margfalt hærri
vexti en um var samið á lán sem
voru með ólöglegri gengistrygg-
ingu hafi íslenskir neytendur verið
sviptir mikilvægum grundvallar-
réttindum.
Kæran byggist á því að með þeim
hætti hafi verið brotið gegn þeirri
friðhelgi sem eignarréttur skal
njóta samkvæmt ákvæði Mannrétt-
indasáttmála Evrópu og stjórnar-
skrár Íslands, auk þess sem ekki
hafi verið gætt jafnræðis við úr-
lausn slíkra mála.
Sækja rétt sinn til Mannréttindadómstóls
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út í Tunguhverfi í Mos-
fellsbæ í gærkvöldi vegna alelda
bíls sem stóð fyrir utan bílskúr í
íbúðahverfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu voru tveir bílar sendir
á vettvang um klukkan átta í gær-
kvöldi en í fyrstu var óttast að
eldurinn gæti teygt sig í bílskúr
hússins.
Betur fór en á horfðist og tókst
slökkviliði að ráða niðurlögum elds-
ins í bílnum án þess að eldurinn
næði að breiðast út.
Alelda bíll í íbúða-
hverfi í Mosfellsbæ
Allt um
sjávarútveg