Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019 Jólin tekin niður Heilmikið hefur verið að gera í borginni við að taka niður jólatré, hér er maður að störfum í Hafnarstræti. Eggert Góð regla sem allir sem stunda útivist og fjallgöngur þurfa að eiga og kunna að nota er reglan að snúa við, hætta för og halda heim á leið. Auðvitað er ánægjulegt að komast á tindinn eða þangað sem í upphafi var stefnt en það á ekki að vera markmiðið með ferðinni. Mark- miðið á að vera að koma heil heim, njóta ferðarinnar. Stundum er sagt að slys geri ekki boð á undan sér. Rann- sóknir á slysum í fjalllendi sýna hins vegar að viðvörunarbjöllur hringja stundum á ákveðnum stöðum á leiðinni og þá er mikil- vægt að hlusta og bregðast við. Dæmi um slíkar viðvörunar- bjöllur eru t.d. þegar maður er seinn af stað, gleymdi símanum, talstöðinni, gps-tækinu eða öðr- um búnaði. Veðurspáin er vond, jafnvel versnandi. Ég er illa fyrirkallaður, hálfslappur. Að- stæður er slæmar af einhverj- um ástæðum. Ég er ekki alveg viss um hvar leiðin liggur. Þannig má lengi telja. Þetta eru allt viðvörunarbjöllur sem hver og ein getur verið næg ástæða til snúa við, hætta för og halda heim á leið. Góður undirbúningur er mikilvægur fyrir hverja ferð. Allur öryggisbúnaður og nesti til ferðarinnar er til staðar. Ég þekki leiðina og veit hverjar eru aðstæður, hef kynnt mér veðurspá, skilið eftir ferðaáætlun og veit að ferða- félagar mínir eru vel undirbúnir. Mikilvægt er að vera ekki einn á ferð og þótt maður vilji stundum vera einn með sjálf- um sér þá má finna ferðafélaga sem gefa slíkt svigrúm. Best er að vera aldrei færri en þrjú á ferð til fjalla eða utan byggðar. Helstu hættur í vetrarferðamennsku eru meðal annars; hætta á að hrasa, renna, hrapa, hætta á að villast, týnast, verða blautur, kaldur, hætta á að falla í gegnum ís á vatni, hætta á að lenda í steinkasti, snjóflóði, aurskriðu, hætta á að lenda í aðstæðum þar sem maður er vanbúinn, hætta á að ofmeta sjálfan sig og eigin getu, hætta á að lenda í of- þornum, næringarskorti. Um allar þessar hættur þarf hver ferðamaður að vera meðvitaður og um leið undir það búinn að lenda í slíkum aðstæðum. Það er sannarlega gaman að ferðast um íslenska náttúru þegar allt gengur eins og í sögu. Um leið er ömurlegt að lenda í aðstæðum þar sem þú hefur ekki lengur stjórn á eigin öryggi. Það er oft auðveldara að halda áfram en að taka ákvörð- unina að snúa við. Það þarf hugrekki og aga til að taka slíka ákvörðun en oftast er það þannig að um leið og hún hefur verið tekin líður manni betur og finnur að ákvörðunin var rétt. Góða ferð og komum heil heim. Eftir Pál Guðmundsson » Góð regla sem allir sem stunda útivist og fjallgöngur þurfa að eiga og kunna að nota er reglan að snúa við, hætta för og halda heim á leið. Páll Guðmundsson Höfundur er framkvæmdastjóri FÍ. palli@fi.is Snúum við Þeir komu fram í sjónvarpsfréttum laugardagskvöldið 5. janúar sl. prófessorinn og yfirlæknir Land- spítalans, Karl G. Kristinsson, og biss- nessmaðurinn Ólafur Stephensen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Karl ræddi læknavísindi og mestu heilsuógn sam- tímans, ógeðslega sýklalyfjanotkun í landbúnaði bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Karl var að koma af ráðstefnu þar sem færustu læknar og vísindamenn ræddu vandann, sem er sá að 70-80% allra sýklalyfja fara í búfénað. Til að anna síaukinni eftirspurn eftir kjöti eru lyfin sett í fóður til að auka vöxt til að koma í veg fyrir sjúk- dóma. Sýklalyfin eru svona nýtt bragðefni á tungubroddinum í þess- um heimsálfum, en manneskjan fyllist sýklalyfjaóþoli. 99% kjúk- lingakjöts og 95% svínakjöts þar eru framleidd í verksmiðjubúum. Karl sagði að kjötið innihéldi mikið af bakteríum sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og úrgangurinn skilaði sér svo út í jörð og vatn og þannig í græn- metið. Karl varar al- veg sérstaklega við innfluttu grænmeti en einnig kjöti, segir eft- irlitið slakt hér og vill af þessum ástæðum að Ísland setji sér þau markmið að verða sjálfbært í framleiðslu landbúnaðarafurða. Að íslenskum bændum verði falið að anna eft- irspurn eftir öllu kjöti, mjólkurvörum og grænmeti, ekki síst til að verja heilsu unga fólksins og ófæddra. Ólafur niðurlægði prófessorinn og vísindin Enginn skilur af hverju Ólafur Stephensen var kallaður í viðtal í sama fréttatíma og Karl. Ólafur veit lítið í læknisfræði og sennilega minna í vísindum en auðvitað mikið í „frelsi“. En stundum er eins og RÚV skammist sín ef komið er við rétttrúnaðargræðgina. Ég hefði viljað sjá þann lækni eða prófessor sem hefði gengið fram og andmælt orðum og rökum Karls þetta kvöld. Eðlilegt framhald fréttarinnar hefði verið viðtal við heilbrigðis- eða for- sætisráðherra því þessi mikla ógn mannkynsins, sýklalyfjaóþol og dýrasjúkdómar, er til umræðu með- al vísinda- og stjórnmálamanna um allan heim. Ólafi Stephensen brást hins veg- ar ekki pólitísk verslunargræðgi enda étur hann grautinn sinn hjá heildsalastéttinni og hefur hags- muni af að berjast fyrir innflutn- ingi. Ég vil hins vegar efast um að allir hans félagar leyfi sér að fylgja honum í glórulausri lítilsvirðingu hans á ummælum prófessorsins. Því Ólafur vændi Karl um að vera í pólitískri herför en ekki vísinda- legri umræðu. Læknar hafa eitt fram yfir margar aðrar stéttir; þeir eru bundnir læknaeiðnum (Hippó- kratesareiðnum). Íslenska útgáfan af eiðnum var útfærð 1932 og undir þau heitorð hafa nánast allir læknar hér ritað eiðstaf sinn síðan, segir google. Ólafur fullyrti að skoðun Karls væri skoðun „eins vís- indamanns en aðrir vísindamenn hefðu aðra skoðun“. Jahá, heyr á endemi, Karl stendur einn? Enn- fremur sagði hann að „það væru veik tengsl á milli sýklalyfja- notkunar í landbúnaði og sýkla- lyfjaónæmis í mönnum“. Ekki vildi ég gera þig að lækni mínum, Ólafur Stephensen. Heiti á þig, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Ætli ráðamenn okkar geri sér grein fyrir hvað hraðinn er mikill og innflutningur- inn eykst stöðugt? Á fimm árum hefur innflutningur á kjúklingakjöti aukist úr 500 tonnum í 1.400 tonn og 25% af öllu svínakjöti eru flutt inn, var 4% fyrir fimm árum, og nautakjötið farið á sama tíma úr 190 tonnum í 850. Næstu fimm árin gætu lagt íslenska framleiðslu og landbúnað að velli verði ekki brugð- ist við. Lifandi dæmisaga: Sá er þetta ritar fór á glæsilegt veitingahús í Reykjavík að borða með góðu fólki. Þjónninn kom með matseðilinn og mælti sérstaklega með nauti frá Bandaríkjunum, þó var íslenskt naut á matseðlinum. Spurt var: En frá hverjum er grænmetið? Ég veit það ekki, svaraði þjónninn. Gæti það nú ekki verið góð land- kynning hér að bera fram matseðil með íslensku grænmeti nauti, lambi, kjúklingi eða svíni og kynna í leiðinni einstakt matvælaland fyrir erlendum sem innlendum gestum? Þegar Ólafi tók að „vefjast tunga um tönn“ dró hann landamæra- vörslu á EES-svæðinu og fisk inn í umræðuna. Allt er að breytast og alltaf er nauðsyn að endurskoða eða segja upp samningum við breyttar aðstæður. Um þessa nýju ógn í sýklalyfja- ónæmi og hvernig landbúnaðurinn okkar er að tapa markaðnum hér ætti Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra að taka upp umræðu við ráðherra sína, lækna, vísindamenn og Bændasamtökin og setja í gang umræðu um markmið um að treysta matvælalandið Ísland. Þótt gott sé nú að græða, Ólafur minn Stephensen, þá er betra að berjast með móður jörð og land- búnaði sem skilar því besta og ógn- ar ekki lífi og heilsu mannkynsins. Því þar er hinn dýrmæti gróði, lýð- heilsan, hún er dýrmætari en allir „silfurpeningarnir“. Karl G. Kristinsson, þú varst sannfæringu þinni trúr ,,því eigi veldur sá er varar“. Eftir Guðna Ágústsson » Þótt gott sé nú að græða, Ólafur minn Stephensen, þá er betra að berjast með móður jörð og landbúnaði sem skilar því besta og ógn- ar ekki lífi og heilsu mannkynsins. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Hvor var trúverðugri, læknirinn Karl eða bissnessmaðurinn Ólafur?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.