Morgunblaðið - 08.01.2019, Side 20

Morgunblaðið - 08.01.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019 ✝ Óttarr Möllerfæddist í Stykkishólmi 24. október 1918. Hann lést á Hrafnistu Reykjavík 19. desember 2018. Foreldrar hans voru William Thomas Möller, f. 6.4. 1885, d. 17.4. 1961, og Kristín El- ísabet Sveinsdóttir, f. 2.8. 1879, d. 4.1. 1926. Seinni kona Williams Thomasar var Margrét Jónsdóttir, f. 24.10. 1905, d. 18.1. 2003. Alsystkini: Guðrún Sveina, f. 3.7 1914, d. 18.2. 1994, og Jó- hann, f. 7.2. 1920, d. 26.2. 2011. Hálfsystkini: Agnar, f. 3.12. 1929, d. 12.6. 2010, Kristín, f. 4.1. 1940, d. 21.10 2014, og William Thomas, f. 12.1. 1942. Óttarr kvæntist 20. febrúar 1948 Arnþrúði Kristinsdóttur Möller, f. 29. nóvember 1923, d. 24. febrúar. 2009. Dætur þeirra eru: 1) Emilía Björg, f. 1950, maki Valgeir Ástráðsson. Hún var áður gift Óskari Kristjáns- syni, látinn. Dætur hennar og Óskars eru a) Arna, gift Sigurði Jóhanni Stefánssyni og eiga þau þrjú börn, b) Anna Mar- grét, gift Eiríki Benedikt Ragn- arssyni, eiga þau tvo syni, c) Emilía Björg, á hún tvær dæt- ur. 2) Kristín Elísabet, f. 1951, maki Jóhannes Jóhannesson. Börn þeirra eru a) Arnar Gylfi, í sambúð með Díönu Brá Bragadóttur, eiga þau eina dóttur, b) Bergþór, c) Alex- andra Rós, í sambúð með Krist- jáni Val Sigurjónssyni. Áður yfirmenn skipafélaga. Óttarr réðst til Eimskipafélags Íslands 1938 og starfaði á skrifstofum þess í New York og í Reykjavík. Hann var viðskiptalegur fram- kvæmdastjóri hjá Sameinuðum verktökum um tíma. Hann var forstjóri Eimskipafélagsins 1962-1979. Óttarr var ráðunautur í sigl- ingamálum í stjórnskipaðri nefnd sem fór til Rússlands 1959. Þá var hann í stjórn og stjórnarformaður Flugfélags Ís- lands um tíma, í stjórn Flug- leiða hf., Tollvörugeymslunnar hf. , Slippstöðvarinnar á Akur- eyri, Ferðaskrifstofunnar Úr- vals, í stjórn og framkvæmda- stjórn Eimskipafélags Reykja- víkur og í stjórn Íslenskrar endurtryggingar. Þá var Óttarr formaður full- trúaráðs og yfirstjórnar St. Jós- efsspítala, Landakoti, og sat í orðunefnd hinnar íslensku fálkaorðu. Hann var í sam- bandsstjórn Vinnuveitenda- sambands Ísland og í fram- kvæmdastjórn þess, í fulltrúa- ráði Hins íslenska fornrita- félags, í stjórn Heimdallar og síðar í fulltrúaráði og í fjár- málaráði Sjálfstæðisflokksins. Óttarr var einnig heiðursfélagi Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi. og félagi í Rótarý- klúbbi Reykjavíkur og frímúr- arareglunni á Íslandi um ára- tuga skeið. Óttarr var sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálka- orðu 1964 og stórriddarakrossi 1971 fyrir störf að siglinga- málum, ásamt fjölmörgum orð- um og viðurkenningum er- lendra ríkja. Útför Óttars fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 8. janúar 2019, klukkan 13. átti Kristín Sigfús Helga Helgason, kvæntur Hildi Markúsdóttur og eiga þau þrjá syni, og Auði Helgadótt- ur og á hún tvo syni. 3) Erla, f. 1954, maki Sig- urður Kristinn Sig- urðsson. Börn þeirra eru a) Ótt- arr Þór, í sambúð með Guðrúnu Tinnu Valdimars- dóttur, eiga þau tvær dætur, b) Arnþrúður Dögg, gift Sindra Páli Kjartanssyni, eiga þau tvær dætur, c) Sigurður Krist- inn, í sambúð með Stefaníu Steinarsdóttur og eiga þau tvo syni. 4) Auður Margrét, f. 1959, maki Guðmundur Már Stefáns- son. Dætur þeirra a) Signý Ásta, í sambúð með Kristjáni Ara Úlfarssyni, eiga þau einn son, b) Ásdís Björk, í sambúð með Antoni Ellertssyni, eiga þau tvo syni, og c) Edda Rún. Óttarr ólst upp í Möllershúsi í Stykkishólmi, en faðir hans var póst- og símstöðvarstjóri þar 1910-1954. 30. júní 1927 kvæntist faðir hans síðari konu sinni, Margréti Jónsdóttur, sem gekk þeim systkinum í móður- stað. Þau Arnþrúður bjuggu fyrst í Mávahlíð 36, síðan í Vestur- brún 24 og svo í Efstaleiti 12. Óttarr brautskráðist frá Verzlunarskóla Íslands 1936, stundaði verslunarnám í Bret- landi og nam skipaútgerð við New York-háskóla 1942-46. Þá sat hann námskeið hjá War Shipping Administration fyrir Elsku pabbi minn er látinn og þó svo hann hafi verið orðinn 100 ára og ég búin að eiga hann að í 67 ár er samt sárt að kveðja. Pabbi var besti pabbi sem hægt var að hugsa sér og hann bar hag okkar systra og mömmu heitinnar alltaf fyrir brjósti. Við vorum númer eitt ásamt fjölskyldum okkar. Pabbi missti móður sína ungur sem var honum mikill harmdauði en eftir að faðir hans kvæntist aft- ur yndislegri konu eignaðist pabbi stjúpu sem reyndist hon- um og systkinum hans sem besta móðir og var það mikið lán fyrir þau og okkur afkom- endur ömmu. Pabbi var ótrúlega næmur og mikil tilfinningavera þó svo hann flíkaði þeim ekkert. Hann fylgdist vel með okkur dætr- unum, hvatti okkur til náms og að bera virðingu fyrir öðrum, bæði mönnum og dýrum. Ósjaldan sátum við pabbi inni á skrifstofu á Vesturbrún og ræddum málin. Hann vildi vita hvað væri að gerast hjá mér og gaf ráð. Við vorum ekki alltaf sammála en yfirleitt hafði hann vinninginn. Pabbi kynnti okkur menningarviðburði, fór með okkur á leiksýningar, ballett, söngleiki o.fl. Við fengum einnig að kynnast viðburðum erlendis og var hann ólatur við að sýna okkur fræga staði, kastala og kirkjur og bjóða okkur út að borða. Þetta voru yndislegir tímar sem lifa í minningunni. Eftir að barnabörnin og barnabarnabörnin komu sýndi hann þeim mikla alúð og hvatti þau óspart áfram. Pabbi átti hesta í Fáki í Reykjavík í nokk- ur ár. Fyrst fann hann góðan töltara fyrir mömmu og fór svo að leita að skeiðhesti fyrir sig. Seinna var hann með kindur austur á Hellu sem hann var af- ar stoltur af og lagði mikla rækt við. Pabbi fylgdist af miklum áhuga með búskapnum hjá mér eftir að ég flutti í sveitina og var duglegur að koma til okkar Jonna og gisti oft hjá okkur. Börnin hlökkuðu alltaf til að afi kæmi og ekki var verra að hann kom alltaf með bland í poka og gaf þeim. Elsku pabbi minn, með þess- um fátæklegu orðum kveð ég þig með þakklæti fyrir allan þinn stuðning, ást og hlýju. Kristín Elísabet Möller. Í dag kveðjum við Óttar Möller tengdaföður minn. Það var ómetanleg reynsla og skóli fyrir mig að kynnast þess- um mæta manni fljótlega eftir að ég kynntist dóttur hans Erlu 1975. Allt frá fyrstu kynnum var auðfundið að þar fór hreinskipt- inn, kraftmikill persónuleiki sem um leið var hlýr og góður maður. Smám saman uxu kynni okk- ar sem urðu að vináttu sem aldrei bar skugga á í blíðu og stríðu, vináttu sem varð að einni minni mestu gæfu. Óttarr Möller var mótaður af því umhverfi sem hann ólst upp við í Stykkishólmi, þar sem danska var töluð á sunnudögum. Hann missti móður sína 8 ára gamall og fór þá um sinn til vandalausra en kom aftur heim þegar faðir hans kvæntist seinni konu sinni Margréti, sem reyndist þeim systkinunum hin besta móðir. Óttarr réð sig til starfa hjá Eimskipafélagi Ís- lands 1938 og vann sig upp í stöðu forstjóra af einskærum dugnaði og ósérhlífni sem óhjá- kvæmilega varð til þess að sóst var eftir starfskröftum hans víða í samfélaginu vegna dugn- aðar og meðfæddra stjórnunar- hæfileika. Óttarr var harður í horn að taka þegar það átti við en ætíð sanngjarn og sáttfús þegar svo bar undir. Óttarr var m.a. stjórnarfor- maður Flugfélags Íslands og í stjórn Flugleiða svo eitthvað sé nefnt. Þá þótti honum vænt um þegar nunnurnar á Landakoti báðu hann um að koma til yf- irstjórnar Landakotsspítala. Vinnudagar Óttars voru oft langir en það var einstakt lán hans að eiga Lillu sem eigin- konu sem sá um heimilið og uppeldi dætra þeirra af ein- stakri móðurást og glæsi- mennsku, hún stóð þétt við hlið hans. Óttarr átti einnig góðar stundir í sínu einkalífi, stundaði hestamennsku, ferðaðist um landið í hestaferðum, átti marga góða og ljúfa gæðinga en hafði sjálfur mest gaman af að ríða harðviljugum skaphestum, hafði gaman af að glíma við þá. Hann kom sér upp góðri aðstöðu á Helluvaði á Rangárvöllum þar sem hann hafði hesta og síðar þegar um hægðist kom sér upp kindum og hafði mikið gaman af fjárbúskapnum. Þá keypti hann sér land í nágrenni Helluvaðs og hóf þar uppgræðslu, þar stendur nú Gilsbakki sem nú er skógræktarjörð í eigu okkar Erlu og fjölskyldu okkar. Það var oft gestkvæmt á Helluvaði og dæturnar, barnabörn og tengdasynir dvöldust þar löngum stundum með Óttari afa og ömmu Lillu. Það var athyglisvert þegar Óttarr hafði dregið sig í hlé frá daglegum störfum hvað fjöl- skyldan skipti hann miklu máli, allt annað var hjóm eitt sagði hann. Hann undi sér hvergi bet- ur en í sveitinni og hefði örugg- lega orðið góður bóndi. Með- fædd tónlistargáfa stytti Óttari oft stundir við úrlausn flókinna verkefna en þá settist hann nið- ur við píanóið eða með harm- onikkuna og spilaði löngum stundum og samdi ef því var að skipta. Óttarr hafði yfir sér virðuleik og festu en alltaf var stutt í glettni og gáska þegar það átti við. Á góðum stundum var spilað og sungið á Helluvaði. Þeir sem kynntust Óttari áttu auðvelt með að finna hversu traustur hann var. Hann var prýddur krossum og heiðurs- merkjum margra landa sem mátu hans störf mikils en sjálf- ur gerði hann lítið af því að flíka vegtyllum og lét gera miniatura af þessum merkjum til að vera minna áberandi, gerði meira af því að láta verkin tala. Óttarr var félagi í Rótarý- klúbbi Reykjavíkur og mjög virkur í starfi Frímúrararegl- unnar á Íslandi, þá mat hann boðskap Reglunnar og það góða starf sem þar er unnið mikils og taldi það eitt af sínum mestu gæfusporum að ganga í Frímúr- araregluna. Löngum starfsdegi Óttars Möller er lokið og miklu var komið í verk. Ég vil að leiðarlokum þakka þessum heiðursmanni samfylgd- ina og vináttuna. sem hefur átt ríkan þátt í að gera mig að betri manni en ég hefði nokkurn tíma orðið ef hans hefði ekki notið við. Börn og barnabörn og lang- afabörn kveðja nú góðan afa en góðar minningar munu hjálpa til við að sefa söknuð þeirra. Far þú í Guðs friði. Meira: mbl.is/minningar Sigurður Kr. Sigurðsson. Við vorum sex systkinin, Guðrún elst, síðan Óttarr, Jó- hann Georg, Agnar, Kristín og undirritaður, yngstur, einn eftir. Við fæddumst öll og ólumst upp í Stykkishólmi, þeim fallega bæ við Breiðafjörð. Ég man fyrst eftir Óttari bróður mínum þegar ég var fjögurra ára og hann hátt á þrí- tugsaldri. Hann kom vestur í Hólm, þá fluttur suður til Reykjavíkur. Hann setti mig í ferðatösku á neðri hæðinni í húsinu okkar, lokaði töskunni og bar hana með mér í upp á loft þar sem hann sleppti mér út. Ég hafði gaman af þessu, hann líka. Öll voru samskipti okkar Óttars góð alla tíð. Ég var 19 ára þegar faðir okkar dó. Óttarr var mér stoð og stytta, fylgdist með mér, gaf mér góð ráð. Til hans var alltaf gott að leita. Óttarr vann um tíma í Am- eríku og sendi okkur um jól kassa með eplum, appelsínum og grape, fáséð á þeim árum. Það voru ekki margir sem gátu gefið félögunum að smakka slíkt góðgæti. Þegar ég var 10 ára var ég sendur suður til Reykjavíkur til þess að læra sund í Sundhöll- inni. Ég var lítil hrædd sál í stórborginni. Það var mér til happs að ég bjó hjá Óttari og Lillu, minni elskulegu mágkonu, en þau bjuggu í Mávahlíð 36. Var hjá þeim í þrjár vikur. Á hæðinni fyrir ofan voru Jóhann bróðir og Dúddí kona hans. Ég hafði mjög gaman af því að hlusta á Óttar spila búggívúggí á píanó og bað hann oft um það. Þegar hann fékk nóg fór ég upp á loft til Jóhanns því hann átti líka píanó og kunni að spila búggívúggí. Ég flutti með foreldrum mín- um til Reykjavíkur 1957 og bjuggum við í nokkra mánuði á heimili Óttars og Lillu í Vest- urbrún 24 þar til við fluttum í íbúð í húsinu nr. 18 við Eskihlíð. Kristín systir hafði flutt til Reykjavíkur nokkrum mánuð- um áður. Við áttum góðar stundir í Vesturbrúninni. Í Eskihlíðina komu systkini mín og fjölskyldur þeirra yf- irleitt í heimsókn á sunnudögum og var þá glatt á hjalla. Bræður mínir og pabbi ræddu málin og stundum var deilt hart og talað hátt og í ákafa, hæst þegar þeir voru sammála. Allt í vinsemd. Faðir minn var íhaldsmaður af gamla skólanum, fastur fyrir. Þegar Óttarr hætti störfum höfðu þau Lilla komið sér upp húsi við Hellu á Rangárvöllum og fjárhúsi. Óttarr varð fjár- bóndi. Einu sinni fór ég með honum austur til þess að líta eftir fénu. Það var þá dreift um beitarland sem var grasivaxið land, öldótt landslag, lægðir og hólar. Til stóð að koma fénu í rétt sem var þarna. Ég bjó mig undir að fara út úr bílnum, Mercedes Benz af dýrari gerð- inni, til þess að smala fénu sam- an. En Óttarr vildi það ekki heldur ók að fénu, og fram og til baka, safnaði því þannig saman og rak það inn í réttina. Ég hafði verið í sveit og smalað fé. Aldrei séð þetta áður. Við Anna sendum systrunum, Emilíu Björgu, Kristínu, Erlu og Auði Margréti og fjölskyld- um þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Góður drengur, þéttur á velli og þéttur í lund er geng- inn, horfinn í þann heim sem við þekkjum ekki. Þar hittir hann fyrir Lillu, sína yndislegu eig- inkonu, fagnaðarfundir. Blessuð sé minning þeirra. William Thomas Möller. Höfðingi er genginn til feðra sinna. Látinn er Óttarr Möller fv. forstjóri Eimskipafélags Ís- lands, hundrað ára að aldri. Hann átti merkilega ævi. Að gegna svo ábyrgðarmiklu starfi, að vera forstjóri stærsta hluta- félags landsins, frá 1962 til 1979, krafðist mikilla hæfileika og þrautseigju. Það var ekki gert nema eiga góðan lífsföru- naut sem var Arnþrúður Möller (Lilla). Óttarr var fæddur og uppal- inn í Stykkishólmi. Hann missti móður sína barn að aldri. Þá voru aðrir tímar því við fráfall móður hans þurfti að koma þeim systkinum, Guðrúnu og Jóhanni auk Óttars, fyrir hjá vandalausum. Þetta var erfitt hlutskipti fyrir William föður þeirra. Hans keppikefli var að ná fjölskyldunni aftur saman. Það var ekki venjulegt á þeim tíma að ungir karlmenn önn- uðust uppeldi ungra barna sinna. Hann var einstaklega heppinn að frétta af ungri stúlku, Margréti, frá Suðureyri við Tálkafjörð. Hann hafði sam- band við hana og bað hana að koma til Stykkishólms og að- stoða sig við uppeldi barnanna og heimilishaldið. Þegar börnin höfðu fundið fótfestu í lífinu hvarf hún aftur til Suðureyrar. Fljótlega áttaði William sig á því hvað mikilvægt væri að hús- móðir væri á heimilinu sem börnin væru einkar hænd að. Hann hafði samband við Mar- gréti og bað hana að koma aftur til Stykkishólms, hvað hún gerði. Þegar hér var komið sögu felldu þau hugi saman og gengu í heilagt og farsælt hjónaband. Saman eignuðust þau þrjú börn, þau Agnar, Kristínu mína og William. Þessi heiðurskona átti því eftir að verða tengdamóðir mín. Þegar Óttarr hóf störf hjá Eimskipafélagi Íslands var það hlutskipti hans að standa fyrir endurnýjun skipaflotans. Það verkefni tókst mjög vel. Eft- irminnilegustu skipin voru svo- nefndir þríburar, smíðaðir eftir sömu teikningu. Þeir tóku auk áhafnar 12 farþega. Handan við hornið var gjörbylting í flutn- ingum, sem var að flytja nær allan varning til og frá landinu í gámum. Eðlilegt var að mörg ábyrgð- armikil störf söfnuðust á herðar Óttari, svo hæfileikaríkur sem hann var. Hann var mjög virkur í stjórn Flugleiða til margra ára og sat í framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands Ís- lands, svo fátt eitt sé nefnt. Þar lágu leiðir okkar saman. Hann hafði einstakt lag á að ávinna sér traust verkalýðsforystunnar. Jafnvel þannig að mér fannst stundum nóg um, enda vorum við ekki alltaf sammála á þeim vettvangi eins og eðlilegt er, ég 20 árum yngri. Það var mik- ilvægt að fá að njóta leiðbein- inga Óttars á langri ævi hans. Eftir að hann lauk starfi hjá Eimskipafélaginu beitti hann starfskröftum sínum í þágu líknarmála. Hann var stjórnar- formaður Landakotsspítala til margra ára og lét málefni hans sig miklu varða. Það var mér mikils virði hvað mér var vel tekið þegar ég varð hluti af fjölskyldunni, þegar ég kvæntist hálfsystur Óttars, Kristínu minni. Ég færi dætrum Óttars, mök- um þeirra og fjölskyldum inni- legar samúðarkveðjur. Megi minning um góðan dreng lengi lifa. Kristján Ragnarsson. Óttarr Möller Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NANNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Djúpavogi, andaðist á líknardeild Landspítalans 2. janúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, þriðjudaginn 15. janúar, klukkan 13. Ómar Ólafsson Sigríður Eysteinsdóttir Stefán Ólafsson Edda Andrésdóttir Jónína Kristín Ólafsdóttir Sigurjón Sigurbjörnsson Atli Ólafsson Guðfinna Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR frá Blikalóni á Melrakkasléttu, sem lést 31. desember, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. janúar klukkan 13. Eiríkur Jóhannsson Sigríður Helga Olgeirsdóttir Margrét Jóhannsdóttir Pálmi Jónsson og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.