Morgunblaðið - 08.01.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 08.01.2019, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019 ✝ Erla Jónsdóttirfæddist í Reykjavík 14. októ- ber 1935. Hún lést á Landakotsspítala í Reykjavík 23. desember 2018. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Friðjónsdóttir, f. á Hólum í Dalasýslu 14. apríl 1905, d. 1988, og Jón Magnússon, f. á Flankastöðum á Miðnesi 1894, d. 1979. Erla var næst elst dætra þeirra hjóna, elst var Kristjana, f. 1933, d. 2007, og yngst Sigurbjörg, f. 1938, d. 2006. Sigurbjörg var gift Hauki Sigurjónssyni, f. 1931, skilin. Börn þeirra eru Sigurlaug Erla Hauksdóttir, f. 1961, Jón Þór Hauksson, f. 1963, og María Vilborg Hauksdóttir, f. 1964. Erla ólst upp í foreldrahúsum á Baldursgötunni en fjölskyldan fluttist síðar að Langholts- vegi 99. Síðustu ár- in bjó hún á Suðurlandsbraut 62 við Mörkina. Erla starfaði lengst af við afgreiðslu í Happ- drætti DAS og síðar í mötuneyti Hrafnistu DAS í Reykjavík. Útför Erlu fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, 8. janúar 2019, klukkan 13. Elsku Erla, þetta hafa verið óvenjuleg jól, þú tókst alltaf svo mikinn þátt í jólum okkar systk- inanna og góður matur og nota- legheit minna svo mikið á þig. Við fórum svo oft til þín í matar- boð á Langholtsveginn, bæði um helgar og um hátíðir. Þá fyllti matarilmur loftið á þínu kær- leiksríka heimili og alltaf eitt- hvað heimabakað eða ís á eftir. Eplakakan þín var alveg sér- staklega góð og alltaf þeyttur rjómi með, svo góð að eplakökur minna okkur alltaf á þig. Það var þér mikið hjartans mál að allir borðuðu vel og mikilvægt að bjóða upp á nokkrar sortir, jafn- vel þótt maður kíkti bara inn í örstutt kaffi. Á Langholtsvegin- um vorum við oft á sólríkum dögum og nutum dagsins með ykkur systrum, þér og Gógó. Garðurinn var nánast eins og lystigarður en þú hafðir mikinn áhuga á garðyrkju og hugsaðir vel um garðinn. Við fylltum stór- ar garðkönnur, vökvuðum blóm- in og lékum okkur svo í lítilli uppblásinni sundlaug og í minn- ingunni var alltaf sól og steikj- andi hiti á Langholtsvegi. Þú varst alltaf eins og amma okkar, barst svo mikla umhyggju fyrir okkur og hafðir svo mikinn áhuga á því sem við vorum að gera. Þegar við eignuðumst sjálf börn eignuðust þau þig sem langömmu og varst þú aldrei kölluð annað en amma Erla, ömmur eru líka hjartahlýjar og barngóðar eins og þú varst allt- af. Fyrir nokkrum árum fluttir þú á Suðurlandsbraut í Mörkina. Þar vorum við reglulegir gestir með fjölskyldur okkar, aðstoð- uðum þig við búðaferðir og aðrar sendiferðir og ekki síst við tæknilega erfiðleika, þegar sjón- varpið hlýddi illa og i-padinn vildi ekki sýna þér myndir af fjölskyldunni á facebook. Við áttum líka margar stundir þar sem við sýndum þér myndir frá sumarfríinu og öðrum atburðum í lífi okkar og alltaf varstu jafn áhugasöm um okkur og börnin okkur. Börnin okkar höfðu mikla ánægju af því að heimsækja þig og vissu að hjá ömmu Erlu væri nóg af góðgæti á boðstólum, mikil hlýja og allt látið eftir þeim. Elsku Erla, við þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og alla þá um- hyggju sem þú hefur sýnt okkur. Elísabet Sveinsdóttir, Bjarki Hrafn Sveinsson, Erla Margrét Sveinsdóttir. Elsku Erla móðursystir mín var mér alltaf mjög kær og sam- bandið á milli okkar kærleiks- ríkt. Síðustu mánuði dvaldi hún á Landakotsspítala á deild L 2 og vil ég þakka starfsfólki deild- arinnar fyrir einstaklega gott at- læti og umhyggju í garð Erlu. Við systkinin, börn Sigur- bjargar, vorum alin upp á Lang- holtsveginum í faðmi stórfjöl- skyldunnar þar sem móður- fjölskylda okkar, amma, afi og móðursystur mínar, Erla og Gógó, bar þungann af uppeldi okkar barnanna. Hver hafði sitt hlutverk og þróuðust mál þannig að ég varð með tímanum barnið hennar Erlu þrátt fyrir að það væri aldrei rætt neitt sérstak- lega. Ég laðaðist því að henni og hún bar hag minn sérstaklega fyrir brjósti. Ég á margar góðar minningar úr barnæskunni um móðursyst- ur mínar, Erlu og Gógó, þær voru duglegar að ferðast og á ég góðar minningar um skemmti- legar útilegur í sveitinni hennar Unnar frænku. Minnisstæðast frá barnæskunni er ferðalag í Skaftafell með Erlu og vinkonu hennar Dísu 1974, stuttu eftir að brúin yfir Skaftárfljót var tekin í notkun, en þá var gist í tjaldi og gengið um svæðið. Erla var náttúrubarn í sér og naut sín best í ferðalögum og gönguferð- um á yngri árum og sótti frekar í slíkar ferðir en sólarlanda- ferðir. Hún elskaði að vera úti í garði þar sem hún hlúði að blómum, gróðursetti og hélt garðinum fínum. Erla var glaðlynd að eðlisfari og vinkonur hennar og frænkur löðuðust að henni enda var oft hlegið og spjallað saman í góðra vina hópi á Langholtsveginum hér áður fyrr. Náið samband var á milli fjölskyldna systkina Sigurlaugar móður Erlu og oft sem einhver af þeim leit inn. Erla hafði áhuga á matargerð og bakstri og því alltaf eitthvað gott til með kaffinu ef einhver leit inn. Ég átti því góða að þegar ég gifti mig tvítug og sá Erla að mestu um allar veitingar í brúð- kaupinu og fórst það vel úr hendi. Eftir að ég flutti að heiman og við Sveinn eignuðumst börnin okkar var okkur oft boðið í mat á Langholtsveginn og var börn- unum þá alltaf fagnað innilega. Þær systur, Erla og Gógó, komu alltaf saman í heimsókn til okkar enda nánar og gerðu flesta hluti saman. Börnin okkar Sveins litu því alltaf á þær eins og ömmur sínar og Erlu sem ömmu sína eftir að Gógó féll frá. Erla var barnelsk og hafði gaman af sam- vistum við börnin okkar, spurði um þau og var umhugað um að þeim gengi allt í haginn. Nú þegar Erla hefur kvatt þennan heim ylja góðar minningar um góðhjartaða og yndislega mann- eskju sem setti þarfir annarra ofar sínum. María V. Hauksdóttir. Erla M. Jónsdóttir ✝ Laufey Eiríks-dóttir fæddist 5. október 1980, daginn eftir 50 ára afmæli Þórðar (Didda) afa síns. Hún lést 26. des- ember 2018 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi, degi á eftir Didda afa sínum. Foreldrar Lauf- eyjar eru Arnþrúður Þórðar- dóttir og Eiríkur Bj. Barðason. Bræður hennar eru Gústav Þór í sambúð með Álfhildi Eiríks- dóttur sem á tvö börn. Dætur Gústavs eru Birgitta Ósk og Hilda Bríet, móðir þeirra er Þuríður Óskarsdóttir. Árni Þór, kvæntur And- reu Helgu Sig- urðardóttur, börn þeirra eru Styrmir Snær og Laufey Dröfn. Laufey flutti að heiman 18 ára og þá á Marbakka- braut í Kópavogi, síðan að Blikaási 1 í Hafnar- firði. Útför Laufeyjar og Didda afa fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju í dag, 8. janúar 2019, klukkan 13. Elsku Laufey okkar lést á ann- an dag jóla, degi á eftir afa sínum. Mér hefur ætíð fundist ég eiga mikið í Laufeyju. 4. október 1980, í 50 ára afmæl- isveislu tengdapabba, missir Þrúða mágkona mín vatnið. Við tvær fórum úr veislunni, hún klædd í sundskýlu pabba síns, ók- um sem leið lá á gamla Volvo Amazon upp á fæðingardeild. Ástæða þess að ég fór ein með henni inn á fæðingardeild var sú að Eiríkur var við störf úti á sjó. Þegar við komum á fæðingar- deildina vorum við Þrúða spurðar hvort ég ætlaði vera viðstödd fæð- inguna. Við litum í augun hvor á annarri og kinkuðum kolli. Það kom ekkert annað til greina en að ég yrði viðstödd. Það vissi enginn nema Þrúða að það var leynigestur með okkur. Ég var komin þrjá mánuði á leið með Thelmu mína. Laufey fædd- ist aðfaranótt 5. október, degi eft- ir að afi hennar átti 50 ára afmæli. Alla tíð hefur verið sterkur þráður á milli Laufeyjar og Thelmu. Alltaf þegar við Thelma komum i heimsókn til hennar gladdist Laufey mun meira við að hitta hana en mig. Sama ef við Mummi komum í heimsókn þá var hann í meira uppáhaldi en ég. Enda voru þau einstakir vinir með algjörlega sama húmor. Ef ég kom ein nutum við vel samver- unnar. Aðallega að hlusta á músík og bara vera saman. Laufey átti alla tíð erfitt með að tjá sig en gaf allt til kynna með svipbrigðum. Hún notaði bliss- táknmál þegar við skildum hana ekki. En athygli hafði hún mikla. Sem dæmi þá gat hún horft á sjónvarp og hlustað á útvarp sam- tímis en samt tekið eftir öllu í kringum sig. Hún hlustaði mikið á tónlist, þar var í sérstöku uppáhaldi Jónsi (í Í svörtum fötum). Það var svo sannarlega gagnkvæmt því hún var líka í miklu uppáhaldi hjá hon- um. Þau voru miklir vinir og eru ófáir viðburðirnir sem Jónsi hefur boðið henni á. Álftagerðisbræður og ýmsir kórar voru líka ofarlega á lista hjá henni og fór hún oft á tónleika. Það leyndist í henni púki. Ef einhver rak óvart tána í stólinn hennar og kveinkaði sér, þá var Laufeyju skemmt. Hún kunni einstaklega vel að samgleðjast fólki. Þessi eiginleiki hennar leyndi sér ekki í brúð- kaupi Thelmu og Jóa í ágúst. Þótt hún væri mjög veik skein af henni gleðin. Toppurinn var þegar Salka Sól söngkona kom og sagði „Laufey, við erum alltaf að hitt- ast“. Laufey lýsti upp umhverfi sitt með sínu yndislega brosi. Hún jafnframt kenndi okkur hinum að meta það sem við höfum. Blessuð sé minning Laufeyjar. Fríða Eyjólfsdóttir. Við Laufey frænka mín tengd- umst sterkum böndum. Hún var rúmu hálfu ári eldri en ég en samt sem áður höfum við fylgst að allt frá fæðingu hennar. Mamma mín var nefnilega viðstödd fæðinguna hennar en þá vissu ekki margir að ég væri leynigestur í bumbunni. Þegar við vorum yngri áttum við margar góðar stundir saman. Stundum fékk ég að gista og þá var fjör hjá okkur. Eitt skipti er mér sérstaklega minnisstætt. Þá gisti Arnbjörg vinkona með okkur líka og við spiluðum uppáhalds- lagið okkar aftur og aftur í kass- ettutækinu og flissuðum langt fram eftir nóttu. Okkur þótti heldur ekki leiðin- legt þegar ég flutti í næsta hús við hana í Blikaásnum í seinni tíð. Ég gat oft veifað henni út um gluggann þegar hún var að koma heim eða fara út. Og svo gátum við nokkuð auðveldlega kíkt í heimsókn hvor til annarrar. Laufey var einstakur húmor- isti sem hafði mjög ákveðnar skoðanir á hlutunum. Hún kenndi mér margt og ég mun sakna hennar og ljúfa hlátursins hennar um ókomna tíð. Blessuð sé minning elsku Lauf- eyjar frænku minnar. Thelma. Elsku besta vinkona. Þú varst hress, kát, skemmti- leg og lífsglöð. Það var alltaf svo gaman að koma til þín og svo gott að vera í kringum þig. Það geisl- aði alltaf af þér gleðin. Þú sást erfiðleikana öðruvísi en við hin, þú tókst mjög vel á þeim og blést bara á það erfiða. Elsku besta Laufey mín, hvíldu í friði, þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Þín vinkona, Þóra Kristín Bárðardóttir. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma … (Bubbi Morthens) Tvær ungar stelpur liggja og fylgjast með Nágrönnum í sjón- varpinu. Önnur hefur aldur til, hin er aðeins að stelast og nýtur þess að vera í skjóli hjá stóru frænku sinni sem sýnir henni mikla þolinmæði. Þær bralla ým- islegt saman, æfa sig að mála sig, hlusta á tónlist saman inni í her- bergi og slúðra um daginn og veginn. Að alast upp í þarnæsta húsi frá Laufeyju og fjölskyldu voru og eru forréttindi mín. Ég heim- sótti þau svo oft, að á grasflötinni fyrir utan heimili mitt var sár í grasinu sem lá beint yfir til þeirra – eins og fjárgata þvert yfir túnið. Allt frá því að við vorum smá- stelpur höfum við Laufey átt sér- stakt stefnumót á aðfangadag og jóladag. Dýrmætustu stundir ársins. Við fórum yfir árið og jóla- gjafirnar, sögðum hrakfallasögur og skellihlógum, milli þess sem við kúrðum. Elsku Laufey mín, takk fyrir allt. Þú varst bjartari en sólin, tunglið og stjörnurnar og ég sakna þín. Elsku Þrúða, Eiki, Árni Þór, Gústi og fjölskyldan öll. Hugur minn er hjá ykkur. Ásta Sigrún Magnúsdóttir. Elsku Laufey er farin frá okk- ur. Við sem hittum hana á hverj- um degi eigum eftir að sakna hennar mjög mikið. Laufey var einstaklega falleg, sjálfstæð og ákveðin ung kona sem vissi alltaf hvað hún vildi eða vildi ekki. Laufey lét það skýrt í ljós ef við gleymdum einhverju sem hún þurfti að nota eða taka með sér í vinnuna. Hún var líka alltaf jafn fljót að brosa við okkur þegar við sáum hverju var gleymt. Hver fer til dæmis af stað að heiman án þess að taka með sér tjáninguna, s.s. tjáskiptamöppuna eða tölvuna? Þegar við áttuðum okkur á því að við hefðum gleymt að setja tölv- una eða möppuna ofan í tösku brosti Laufey til okkar því enginn brosti eins og hún. Laufey brosti með hjartanu. Laufey var afar næm á sam- ferðafólk sitt og var hún því oft spurð af samstarfskonum sínum þegar þær voru barnshafandi hvort þær gengju með dreng eða stúlku. Laufey vissi alltaf rétta svarið við þeim spurningum. Laufey hafði yndi af mörgu, hún elskaði að fara í vinnuna í Bæj- arhrauni, fara í sjúkraþjálfun eða í Fjölmennt þar sem hún tók þátt í fjölmörgum námskeiðum. Hún elskaði sjónvarpsþætti og tónlist, þó sérstaklega fallegar karla- raddir í kórum og einsöngvara. Enginn komst þó nær hjarta hennar með söng sínum en hann Jónsi. Laufey fór á marga tón- leika og dansleiki og þá var dregið fram fínasta dressið, silfur, glimmer og glans. Þar naut hún einstakrar vináttu og aðstoðar frá henni Tinnu sinni, auk allra þeirra fjölmörgu sem aðstoðuðu Lauf- eyju við að taka þátt í lífinu. Þrátt fyrir veikindi sín var Laufey þátt- takandi allt fram á síðustu stundu í lífinu sem hún elskaði. Laufey var í miklum og góðum tengslum við fólkið sitt sem fylgdi henni í gegnum lífið og einnig síðasta spölinn þar sem hún dvaldi allra síðustu dagana á líknardeild þar til yfir lauk að morgni annars dags jóla. Stórt skarð er nú komið í hóp- inn okkar hérna í Blikaási. Við sem bjuggum með henni og hittum á hverjum degi söknum hennar afar mikið; Sigurjón, Sigga, Valur, Siggi og Holberg. Við þökkum þér af öllu hjarta, elsku Laufey, fyrir samfylgdina. Við sendum fjölskyldu hennar, vinum, samstarfs- og samferða- fólki okkar innilegustu samúðar- kveðjur með kærum þökkum fyr- ir samfylgdina. Fyrir hönd íbúa og starfsfólks í Blikaási, Arndís Magnúsdóttir. Laufey Eiríksdóttir Elsku bróðir okkar, frændi og vinur, ZOPHONÍAS PÁLMASON, Hnausum 2, lést laugardaginn 29. desember 2018. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jón Pálmason Ellert Pálmason og fjölskylda Sigríður Rut Gunnarsdóttir og fjölskylda Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALDA ÞORGRÍMSDÓTTIR, Brekkugötu 38, Akureyri, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt föstudagsins 4. janúar. Ómar Garðarsson Rannveig Benediktsdóttir Smári Garðarsson Páll Garðarsson Sigurður Ö. Guðbjörnsson Eydís Garðarsdóttir Bjarni Einarsson Viðar Garðarsson Sigríður Á. Viðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR E. GUÐMUNDSSON, m.a. fv. framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, Raufarseli 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 6. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Helga Sigurðardóttir Friðrik Friðriksson Benedikt Sigurðsson Kjartan Emil Sigurðsson Aldís Eva Friðriksdóttir Dagur Páll Friðriksson Emelía Rut Viðarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, BALDUR EYÞÓRSSON verkfræðingur, Espigerði 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans að morgni nýársdags. Útförin fer fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn 10. janúar klukkan 13. Jóhanna Hlíf Stefánsdóttir börn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.