Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.01.2019, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019 DRAUMAEIGN Á SPÁNI FLOTTAR EIGNIR - GÓÐAR STAÐSETNINGAR FJÖLBREYTT ÚRVAL - EITTHVAÐ FYRIR ALLA Flamenca Village, Playa Flamenca Arenales del Sol, Los Arenales Mare Nostrum, Guardamar Gala, Villamartin Muna, Los DolsesAllegra, Dona Pepa Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 Mér finnst merkilegt að uppgötva hvernig viðhorf manns ogtilfinningar breytast með árunum,“ segir Karl Örvarssonsem er 52 ára í dag. „Karl Daníel sonur okkar hjóna keyrir póstflutningabíl og fór fyrir skemmstu að næturlagi vestur í Stykkis- hólm með sendingar. Veðurútlit var tvísýnt, ég því eðlilega smeykur um strákinn og í varúðarskyni slóst ég með í för sem gekk vel. Leið- angurinn var samt lærdómsríkur því þarna fann ég hvað sonurinn er ábyrgðarfullur og öruggur bílstjóri. Þetta er maður sem ég get treyst fullkomlega fyrir lífi mínu og það er góð tilfinning.“ Karl ólst upp á Akureyri og segist eiga þaðan góðar minningar. Strax á barnsaldri var hann byrjaður í tónlist og var í Stuðkompaní- inu sem árið 1987 vann Músíktilraunir. „Þá tók við skemmtilegur tími með alls konar spiliríi um land allt. Í raun má segja að þessar tilraunir mínar í músík standi enn yfir,“ segir Karl. Hann hefur einnig lagt fyr- ir sig að skemmta á mannamótum með eftirhermum. „Það eru ýmsir karakterar í safninu og að undanförnu hefur Gylfi Ægisson komið sterkur inn sem fyrirmynd. Þess utan höfum við líka stundum komið fram saman,“ segir Karl sem að aðalstarfi er graf- ískur hönnuður hjá eigin fyrirtæki. Er í sambúð með Hrefnu Erlings- dóttur og eiga þau þrjú börn. „Já, ég gengst fúslega við að vera listamaður. Er týpan sem tek hlutina mátulega alvarlega, veiti því athygli og bý til litla leikþætti úr öllu dæminu. Það er lífið sjálft.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grafískur hönnuður Karl gengst fúslega við því að vera listamaður. Listamaður sem safnar karakterum Karl Örvarsson er 52 ára í dag A ndré Bachmann Sigurðs- son fæddist 8. janúar 1949 í timburhúsinu Steinhólum við Klepps- veg í Reykjavík sem nú hefur verið flutt suður fyrir Straums- vík. Hann ólst síðan upp í Reykjavík og var í Laugarnesskóla. André hefur m.a. unnið við geð- deild Barnaspítalans, verið aðstoðar- maður sjúkraþjálfara við Borgar- spítalann, unnið við auglýsinga- og markaðsdeild DB, DV og Vikunnar og við auglýsingadeild Tímans. Þá hefur hann verið vagnstjóri hjá Strætó frá 1992 en hefur nýlokið störfum þar. André hefur spilað á trommur og sungið með ýmsum danshljóm- sveitum frá 1972, s.s. Hljómsveit Þor- steins Guðmundssonar (Steina spil), Aríu, Hljómsveit Andrés Bachmanns og loks hljómsveitinni Gleðigjöfum. André gaf út diskana Gleðigjafinn, André Bachmann, Til þín, 1995, og Með kærri kveðju, 2007. Þá hefur hann verið að gefa út hljómdiska til styrktar Barnaspítala Hringsins, Styrktarfélagi vangefinna og Sjálfs- björg – Landssambandi og Lands- björg. Auk þess hefur hann haldið jólahátíðir fyrir fatlaða árlega í 36 ár. André skipulagði dægurlagakeppn- ina Landslagið, skipulagði, ásamt Kiwanisklúbbnum Viðey, styrktar- dansleik vegna sundlaugarbyggingar fyrir fatlaða í Reykjadal, skipulagði Kántrýhátíð, ásamt Magnúsi Kjart- anssyni, á Hótel Sögu og gaf út fyrir André Bachmann tónlistarmaður – 70 ára Ljósmynd/Guðmundur Jónsson Á jólahátíð fatlaðra André tekur lagið við góðar undirtektir, en hann hefur haldið jólahátíð fatlaðra í 36 ár. Alltaf gaman að gleðja Góðir gestir Meðal þeirra sem hafa sótt jólahátíðina heim er Ólafur Ragnar Grímsson, í þrjú skipti, hér með hjónunum Emilíu og André. Garðabær Rúrik Hrafn Dags- son fæddist 11. ágúst 2017 kl. 22.30. Hann vó 16 merkur og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Elísa Rut Hallgríms- dóttir og Dagur Jónsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.