Morgunblaðið - 08.01.2019, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Útsalan er hafin
Your shoes
götuskór
Útsöluverð
.2 699
er ur . 5
-
30-70%
afsláttu
r
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru ýmsar breytingar sem þig
langar til að ná fram. Þú hefur fyllstu ástæðu
til þess að vera ánægður með sjálfan þig en
mundu að dramb er falli næst.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki feimnina hindra þig í að njóta
afraksturs verka þinna. Talaðu hreint út við
vinnufélaga þína og hugaðu betur að sjálfum
þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Forðastu misskilning annarra með
því að setja mál þitt fram með ótvíræðum
hætti. En mundu, að það er gott að vera á
varðbergi svo vonbrigði verði ekki ofan á.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru ekki allir sammála skoðunum
þínum, en þær eru samt gott framlag. Gættu
þess samt að gefa fólki tækifæri til að hugsa.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt umfram allt að stefna að því að
láta drauma þína rætast, hversu fjarlægt sem
takmarkið virðist í upphafi. Fáðu góðan vin til
að slást í för með þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hlustaðu á ráð þér eldri og reyndari
manneskju. Vinátta ykkar skiptir þig meira
máli þannig að þú ættir að hafa í huga að vin-
ir þurfa ekki alltaf að vera sammála.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú stendur frammi fyrir svo mörgum
valkostum, að það væri óráð að taka sér ekki
góðan tíma til þess að fara í gegn um málin.
Nýttu tímann vel og vertu um leið opinn fyrir
nýjum tækifærum til að grípa..
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur skapað eitthvað fallegt,
notadrjúgt, sniðugt eða nauðsynlegt. Nýttu
þér andlegt og líkamlegt atgervi þitt til hins
ýtrasta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leggðu áherslu á jákvæða styrk-
ingu á vinnustað, þannig fer sem minnstur
tími til spillis. Taktu stjórnina í þínar hendur í
stað þess að láta tilviljanirnar ráða ferðinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vilt gjarnan losna undan rútínu
dagsins. Breytingarnar þurfa ekki að vera
stórvægilegar til þess að skipta sköpum.
Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt
er í góðu lagi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Oft er betri krókur en kelda. Til að
ná árangri þarftu að kafa eftir þeim sann-
indum sem hjálpa þér að skilja eðli hlutanna
og leysa þá.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki láta skoðanaárgreining við vin
eða í hópi koma þér úr jafnvægi. Heppnin er
með þér ef þú einbeitir þér að þeim sem þú
elskar.
Sigurlín Hermannsdóttir hefurorð á því, að nú séu útsölur í
fullum gangi og eins gott að fara
varlega í verslunarferðum:
Frú Björg sagðist hundur þá heita
ef hætti hún of fljótt að leita
er bóndi’ hennar trylltist
í Bauhaus og villtist.
Nú biðlar til björgunarsveita.
Bogi Sigurðsson sendi mér
skemmtilega kveðju sem ég get ekki
stillt mig um að birta í Vísnahorni:
Vont er að sjá hvernig veröldin lætur
víðsjár í heiminum alls staðar gína.
Himnarnir opnast og Herrann þar grætur
hörmungarnar á þegnana sína.
Og alþingismenn seint bíða þess bætur
að brjóta’ allar reglur á klaustrinu fína.
Kallið er komið
skaðinn er skeður
skiluðu engu í flaustrinu.
Hvín þar í hveljum
sjálf okkur seljum
svona er lífið á klaustrinu.
Ég fékk líka góðar áramóta-
kveðjur frá Jónasi Frímannssyni:
Eru komin áramót
áfram flýgur stundin.
Hækkar sólin himni mót
helgum samning bundin.
Friðrik Steingrímsson sendi vini
kveðju sem afmæli átti 25. des.:
Tuttugast’og fjórða talið er
að til oss kæmi bróðir allra fyrstur,
því er ljóst á þessum fréttum hér
að þú ert bara degi yngri en Kristur.
„Allt á sömu leið,“ segir Ármann
Þorgrímsson og skýrir það nánar:
Andinn dugar ei til neins
alveg bitlaust raupið
hann er núna orðinn eins
og áramótaskaupið.
Rétt er að rifja upp stöku eftir
Stephan G.:
List er það líka og vinna
lítið að tæta upp í minna,
alltaf í þynnra þynna
þynnkuna allra hinna.
Ármanni Þorgrímssyni þykir
miða hægt með heimsfriðinn:
Miskunn og friður í minningu geymt
mannkyni stöðugt að hnigna
kristilegt hugarfar grafið og gleymt
gullkálfinn þjóðirnar tigna.
Jón Þorláksson á Bægisá orti:
Margur rakki að mána gó,
mest þegar skein á heiði,
en ég sá hann aldrei þó
aftra sínu skeiði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Útsölur og enn
af klausturlífi
Í klípu
„ÉG ER EKKI VISS UM AÐ ÞÚ SÉRT
RÉTTI MAÐURINN Í STARFIÐ. SÁ SEM ÞÚ
TEKUR VIÐ AF VAR ALGERT UNDRABARN.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EKKI TALA VIÐ MIG Í
HEIMSÓKNARTÍMANUM. KONAN MÍN
HELDUR AÐ ÉG SÉ Í DÁI.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann vill
smakka óáfenga
drykkinn þinn.
ÉG ER OF SADDUR. ÉG
GET EKKI HREYFT MIG!
EKKI ÞAÐ AÐ MIG
LANGI TIL ÞESS
SMELL ÞÚ VANNST, HRÓLFUR!
Bruce Dickinson, söngvari breskabárujárnsbandsins Iron Maiden
og flugstjóri með meiru, fór mikinn
í bráðskemmtilegri uppistandssýn-
ingu í Hörpu skömmu fyrir jól;
gerði óspart grín að sjálfum sér og
öðrum.
Ein sagan sem hann sagði fjallaði
um heimsókn nokkurra rokktónlist-
armanna í Buckingham-höll, þar
sem þeir fengu að hitta Elísabetu
Englandsdrottningu og Filippus
drottningarmann. Sá síðarnefndi er
víðfrægur fyrir hnyttni sína og
skondin tilsvör og Dickinson fékk
að kynnast því af eigin raun í þess-
ari heimsókn.
x x x
Skyndilega stóð Filippus við hlið-ina á honum og spurði hver
hann væri. Þegar Dickinson hafði
kynnt sig benti drottningarmaður á
mann sem stóð þar álengdar og
skar sig aðeins úr hópnum, umboðs-
maður Iron Maiden. Stútungsgóður
miðaldra karl í góðum holdum.
„Einmitt það,“ sagði Filippus, þegar
Dickinson hafði gert grein fyrir
manninum. „Hann lítur ekki út fyrir
að hafa misst af málsverði lengi.“
Að svo mæltu lét drottningar-
maður sig hverfa.
x x x
Bruce Dickinson er ekki með há-vöxnustu mönnum og óttaðist í
þessu tilviki að hann myndi fyrir
vikið skera sig sjálfur úr hópnum.
Til allrar hamingju, frá hans bæjar-
dyrum séð, var þó einn maður í hópi
rokkenda sem hann gat „litið niður
á“, Roger Daltrey, söngvari hins
fornfræga bands The Who.
Hið fornkveðna, margur er knár
þótt hann sé smár, á augljóslega við
í rokkinu en þessir ágætu menn
hafa tekið þátt í að selja á þriðja
hundrað milljónir hljómplatna um
dagana. Og eru hvergi nærri hættir.
x x x
En ljúkum þessu endilega á öðrukvóti í Filippus drottningar-
mann, þann aldna höfðingja. Í sam-
ræðum um hjónaband varð honum
einu sinni að orði: „Ef eiginmaður
opnar bíldyr fyrir konunni sinni er
það annaðhvort nýr bíll eða ný
kona.“ vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, athvarf á degi neyð-
arinnar, hann annast þá sem leita
hælis hjá honum
(Nahúm 1.7)