Morgunblaðið - 09.02.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 09.02.2019, Síða 1
L A U G A R D A G U R 9. F E B R Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  34. tölublað  107. árgangur  LÍFIÐ, LISTIN OG SÖNG- FERILLINN ÞURFUM AÐ HLUSTA Á STÚLKURNAR HÚN ER ALHEIMURINN 12VIÐTALSTÓNLEIKARÖÐ 41 Uppgefnir á lokun gatna  Fjöldi rótgróinna fyrirtækja ritar borgarstjórn opið bréf  Segja mál að linni hvað varðar lokun gatna í miðborginni  Grafalvarleg staða í verslun miðborgar að rekstur okkar verulega undanfar- in ár. Nú er mál að linni og kominn tími til að borgaryfirvöld láti af öllum fyrirætlunum um lokun gatna,“ segir í niðurlagi bréfsins. Þau sem skrifa undir opna bréfið reka fyrirtæki sem starfað hafa í miðbænum í 25 ár eða lengur. Sam- anlagður viðskiptatími þeirra 26 rekstraraðila sem skrifa undir bréfið er 1.629 ár. Fyrirtækin segjast hafa staðið vaktina í miðborginni þrátt fyrir opnun Kringlu, Smáralindar og fleiri verslunarkjarna. Kaupmennirnir segja að staðan í verslun í miðbænum sé grafalvarleg. Rótgróin fyrirtæki séu að hverfa á braut og fleiri hugsi sér til hreyfings. Það sé ekki síst vegna götulokana á undanförnum árum. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Talsmenn fjölda fyrirtækja í mið- borg Reykjavíkur hafa ritað borgar- stjórn opið bréf og mótmælt lokun gatna. Þeir segjast til þessa hafa tal- að fyrir daufum eyrum borgaryfir- valda. „Við eigum það öll sameigin- legt að leggjast gegn lokunum gatna í miðbænum. Lokanirnar hafa skað- Miðborgarkaupmenn » Hátt í 170 rekstrarað- ilar við Laugaveg, Skóla- vörðustíg og Bankastræti hafa skrifað undir lista þar sem lokun gatna er mótmælt. MSamdráttur í verslun »2 Forsetasetrið á Bessastöðum var opið almenn- ingi í gærkvöld og var það liður í Vetrarhátíð og Safnanótt 2019. Gestum bauðst að skoða Bessa- staðastofu, móttökusal og bókhlöðu forsetaset- ursins milli klukkan 19.00 og 22.00. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og eiginkona hans, Eliza Jean Reid, tóku á móti gestunum sem voru á öllum aldri. Margir notuðu tækifærið og létu taka myndir af sér með forsetahjónunum. Morgunblaðið/Hari Gestkvæmt á Bessastöðum Ítrekað var óskað eftir því í borgar- ráði að fá álit Persónuverndar um fyr- irhugaðar aðgerðir Reykjavíkurborg- ar til að auka kosningaþátttöku í sveitarstjórnarkosningunum 2018. Persónuvernd úrskurðaði á fimmtu- daginn að borgin og Háskóli Íslands hefðu brotið lög með vinnslu persónu- upplýsinga í aðgerðum sínum. Persónuvernd tekur einnig fram að skilaboð sem send voru ungum kjós- endum hafi verið gildishlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þeirra í kosningunum. Athugasemd færð í trúnaðarbók Fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, Kjartan Magnússon, óskaði ítrekað eftir því í aðdraganda kosninganna að fá álit Persónu- verndar á aðgerðum borgarinnar. Því var bæði frestað og síðar hafnað. At- hugasemd hans í borgarráði eftir að tillagan var felld af meirihlutanum var færð í trúnaðarbók. Því birtist hún ekki í fundargerðum borgarráðs fyrr en eftir kosningar. „Það er ljóst að það voru engin trúnaðarmál í þessu,“ segir Kjartan sem gagnrýnir vinnulag borgarinnar í málinu harðlega. »4 Ítrekað var óskað eftir áliti  Borgin braut lög um persónuvernd Morgunblaðið/Eggert Ráðhús Borgin var fundin brotleg. Eftir að Sævar Þór Jónsson var beittur kynferðisofbeldi af þremur ókunnugum einstaklingum þegar hann var aðeins átta ára byrgði hann þá skelfilegu lífsreynslu inni og sagði ekki nokkrum manni frá því sem gerst hafði, ekki einu sinni foreldrum sínum. Næstu þrjá ára- tugi eða svo fór hann á hnefanum, eins og hann orðar það, gegnum líf- ið; einangraði sig, var félagsfælinn og skaðaði sjálfan sig. „Það er furðuleg tilfinning, þessi sektarkennd þolandans. Lúmsk en yfirþyrmandi og mér gekk illa að átta mig á henni. Tilfinningalíf mitt varð mjög flókið. Þótt maður eigi enga sök fer einhver mekanismi í gang sem gerir það að verkum að maður hugsar þetta í grunninn rangt og verður fullur af skömm og reiði. Þess vegna réðst ég á sjálfan mig. Það var þrautaganga að byggja upp sjálfsmyndina og kom- ast gegnum lífið,“ segir Sævar í við- tali við Sunnudagsblað Morgun- blaðsins. Eftir að hann varð fullorðinn stakk hann sér á bólakaf í vinnu. Til að gleyma. Það var ekki fyrr en fyrir örfáum árum að uppgjörið hófst; annars vegar ýtti föðurhlutverkið við Sæv- ari og hins vegar mál ungs manns sem hann tók að sér sem lögmaður. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppgjör Eftir mikla þrautagöngu er Sævar Þór Jónsson lögmaður á góðum stað í lífinu í dag og hefur fundið jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs. Lúmsk er sektarkennd þolandans  Sævar Þór Jónsson var beittur kyn- ferðisofbeldi þegar hann var barn  Tekjur Reykjanesbæjar af stað- greiddu útsvari launþega jukust um 1,5 milljarða milli áranna 2017 og 2018 og námu um 9,9 milljörðum. Með því er Reykjanesbær fjórða tekjuhæsta sveitarfélag landsins í þessu efni. Til samanburðar var það í sjötta sæti 2017. Reykjavík hefur sem fyrr lang- hæstu útsvarstekjurnar. Þær námu um 72,3 milljörðum í fyrra sem er um 43% meira á nafnvirði en 2014. Þrjú sveitarfélög höfðu rétt tæpa 10 milljarða í útsvarstekjur: Akur- eyri, Garðabær og Reykjanesbær. Er útlit fyrir að sex sveitarfélög hafi yfir 10 milljarða í útsvars- tekjur í ár í fyrsta sinn í sögunni. Sigurður Á. Snævarr, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfé- laga, segir tekjuaukninguna í takt við hækkandi laun í landinu. »16 Stórauknar tekjur Reykjanesbæjar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.