Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 Júlíana Hansdóttir Aspelund, deildarstjóri hjá SjúkratryggingumÍslands (SÍ), á 50 ára afmæli í dag. Hún lærði iðjuþjálfun í Dan-mörku og bjó þar á árunum 1995-99. Hún vann fyrst á Reykja- lundi og svo hjá Sjúkratryggingum Íslands en í millitíðinni lauk hún við MS nám í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands. Hún er núna deildarstjóri hjálpartækja- og næringarmála hjá SÍ. „Þetta er mjög fjölbreytt starf. Við afgreiðum umsóknir um allar tegundir hjálpartækja, einnota vörur og næringu, stoð- og meðferð- artæki og tæknileg hjálpartæki, allt frá göngugrindum og upp í um- fangsmiklar breytingar á bílum. Við sinnum ráðgjöf og kennslu, tök- um þátt í útboðum og mörgu fleira ásamt því að taka þátt í norrænu samstarfi. Þessa dagana erum við að hefja skipulagningu á norrænni setstöðuráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík 2021.“ Júlíana var formaður Iðjuþjálfafélags Íslands 2009-3013. Áhugamál hennar eru til dæmis ferðalög, garðyrkja og útivist. Júlíana fór til Suður-Afríku síðasta vor og skemmti sér mjög vel og í tilefni af stór- afmælinu ætlar hún með eiginmanni og vinafólki til Kambódíu og Víetnam í apríl, en það verður í fyrsta sinn sem hún kemur til Asíu- landa. „Við hjónin ætlum að fara út úr bænum í dag og vera á hóteli úti á landi en markmiðið er að halda veglega afmælisveislu síðar.“ Eiginmaður Júlíönu er Guðmundur Hjartarson, fjármálastjóri hjá ÍSAGA, og börn þeirra eru Snæfríður 26 ára, doktorsnemi í sálfræði við HR, Sóllilja 24 ára læknanemi við SDU í Óðinsvéum í Danmörku, og Ernir 21 árs laganemi við HÍ. Hjónin Guðmundur og Júlíana stödd á Rauða torginu í Moskvu. Heldur veglega upp á afmælið síðar Júlíana Hansdóttir Aspelund er fimmtug Ó lafur Haukur Ólafsson fæddist 9. febrúar í Reykjavík og ólst upp á Reynimelnum og Bú- staðablettinum. „Þá voru afi minn og föðurbróðir með býli þar. Þarna voru hestar, svín, kýr og hænur og sitt lítið af hverju. Afi kenndi mér að veiða í Þing- vallavatni í bústað sem hann átti, þeim fræga sem var rifinn í fyrra. En ég byrjaði að veiða silung áður en ég man eftir mér. Ég bjó í Sví- þjóð í sex ár, einn mánuð og tvo daga, frá 1959 og þar veiddi ég alls staðar þar sem ég komst í vatn. Við bjuggum víða úti því pabbi var í framhaldsnámi í kvensjúkdóma- og fæðingarlækningum og tók þær stöður sem hann átti kost á.“ Ólafur varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1969 og lauk cand.oecon. í viðskiptafræði frá Há- skóla Íslands 1974. „Ég fór að vinna á háskóla- árunum í fyrirtæki afa míns og frænda, Guido Bernhöft, en þeir stofnuðu heildverslunina H. Ólafs- son & Bernhöft árið 1929. Ég byrj- aði að vinna með Guido þegar hann var um sjötugt og við áttum í sam- starfi í 25 ár, en hann varð 96 ára.“ Ólafur hefur verið forstjóri fyr- irtækisins frá maí 1974. Fyrirtækið hefur flutt inn ýmis merki en síð- ustu árin aðallega verið með vörur frá Colgate Palmolive. „Svo hef ég átt í góðu samstarfi við frændur mína í O. Johnson & Kaaber.“ Ólafur sat í stjórn Félags ís- lenskra stórkaupmanna 1979-86. Hann var endurskoðandi Versl- unarbanka Íslands 1982-91 og sat í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavík- ur 1982-1996. „Stangveiðar hafa verið eitt af stóru áhugamálunum, þær hafa minnkað aðeins en kannski maður Ólafur H. Ólafsson forstjóri – 70 ára Fjölskyldan Ólafur og Sigurbjörg ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum um síðustu áramót. Byrjaði snemma í æsku að veiða silung Reykjavík Magnûs Óli Hall- dórsson fæddist 25. júní 2018 kl. 9.07 í Poole á Englandi. Hann vó 3.905 g en ekki er vit- að nákvæmlega um lengdina því það tíðkast ekki á spít- alanum í Poole að mæla lengd við fæðingu. Foreldrar hans eru Jenný Magnúsdóttir og Halldór Fannar Gíslason. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.