Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is 2097/30 Gino Sarfatti, 1958 Verð frá 199.000,- Spunlight T2 Sebastian Wrong, 2003 Verð frá 139.000,- Taccia small Achille & Pier Giacomo Castiglioni, 1962 Verð frá 129.000,- Frisbi Achille Castiglioni, 1978 Verð 62.900 Smithfield S Jasper Morrison, 2009 Verð frá 119.000,- Snoopy Achille & Pier Giacomo Castiglioni, 1967 Verð 142.000,- Meirihlutinn í Reykjavík féll ísíðustu kosningum en Við- reisn stóð undir nafni og reisti hann við að kosningum loknum. Þrátt fyrir þessa viðreisn hins fallna meirihluta rétt hangir hann á einum manni í 23 manna borgar- stjórn.    Og tæpt stóð, þvíað Samfylk- ingin átti síðasta mann inn og með lítilsháttar breytingu hefði Sjálfstæðisflokk- urinn bætt við sig manni en Sam- fylkingin tapað manni. Þá hefði Viðreisn ekki dugað til og Dagur og félagar ekki getað haldið áfram óráðsíunni og stjórn- leysinu.    Þegar svo tæpt stendur er nýrúrskurður Persónuverndar enn meira umhugsunarefni en ella væri.    Fyrir kosningar réðust fallandiborgaryfirvöld í að láta borgina senda líklegum kjós- endum sínum sérstök skilaboð með hvatningu um að mæta á kjörstað. Persónuvernd hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að með þessu hafi lög verið brotin. Á það var líka bent, meðal annars með bréfi dómsmálaráðuneytisins, að ósatt væri sem haldið væri fram í skilaboðum borgarinnar að það væri skylda að kjósa.    Hvernig hefðu úrslit kosning-anna orðið ef borgaryfirvöld hefðu ekki misnotað aðstöðu sína og hverjir væru þá í meirihluta í borginni nú?    Um það er engin leið að full-yrða en efinn undirstrikar hve alvarlegur glæpurinn var. Dagur B. Eggertsson Kosningabrot Reykjavíkurborgar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Alls leituðu 115 á heilsugæslur og bráðamóttökur í síðustu viku vegna inflúensulíkra einkenna. Það er aukning frá vikunum á undan, en inflúensan er nokkuð seinna á ferð- inni nú en fyrri ár. Enn er lítið um innlagnir á Landspítala vegna stað- festrar inflúensu. Þetta kemur fram í samantekt Embættis landlæknis. Flestir þeirra, sem greinast með inflúensu eru með inflúensu A(H1N1) og í þeim hópi er fólk á öll- um aldri. Nokkrir hafa greinst með inflúensu af öðrum A-stofni, sem heitir A(H3N2) og eru það helst eldri borgarar. Tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er vetri. Í samantektinni segir að inflúensa hafi verið að aukast á meginlandi Evrópu. Leitt er að því líkum að hugsanlega seinki bólusetning gegn inflúensu útbreiðslu hennar hér á landi og dragi úr fjölda sýkinga, einkum meðal eldri borgara. Af öðrum sýkingum, sem greind- ust í síðustu viku má nefna að níu greindust með RSV-veiruna, flestir þeirra voru börn á fyrsta og öðru aldursári og 20 greindust með veirur sem valda niðurgangi. Í samantekt- inni segir að sá fjöldi sé eins og gera megi ráð fyrir á þessum árstíma. Inflúensan er seinna á ferðinni í ár  Fáir inni á spítala vegna inflúensu  Bólusetning talin seinka útbreiðslu Morgunblaðið/Hari Inflúensa Bólusetning er talin seinka útbreiðslu hér á landi. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Embætti landlæknis hefur sent frá sér athugasemd vegna fréttar Stöðv- ar 2 um sjálfsávísanir lækna. Í at- hugasemdinni kemur fram að sjálfs- ávísanir lækna séu heimilar samkvæmt lögum og séu undir sér- stöku eftirliti. Ekki sé litið svo á að sjálfsávísanir og fíkn lækna sé um- talsverður vandi. Undir þetta tekur Reynir Arn- grímsson, formaður Læknafélags Íslands. Hann segir að árið 2018 hafi 1.500 læknar verið með læknaleyfi á Íslandi, rúmlega 500 hafi ávísað á sig lyfjum og í 10 tilfellum hafi land- læknir tekið mál til skoðunar. Af þessum tíu læknum voru þrír eldri læknar. Reynir segir niðurstöðuna betri en hann hafi gert sér í hug- arlund. „Á meðan læknar eru með lækn- ingaleyfi hafa þeir rétt á að ávísa lyfj- um. Læknar sem starfa utan spítala verða að geta ávísað lyfjum sem þeir þurfa að hafa með sér þegar þeir fara í vitjanir eða koma að slysum. Lækn- ir getur t.d. þurft að ávísa parkódíni við verkjum eða afhenda svefnlyf til fólks eða aðstandenda vegna áfalla,“ segir Reynir sem kannast ekki við umræðu um að læknum verði bannað að ávísa lyfjum á sjálfa sig. Hann seg- ir rafrænt eftirlit með lyfjaávísunum hafa skilað sér í betra eftirliti. Kristófer Þorleifsson, formaður öldungadeildar Læknafélags Íslands, segir lækna hafa leyfi til þess að starfa á sjúkrahúsum eins lengi og þeir geti og að læknar hafi leyfi til þess að reka stofu til 75 ára aldurs. Eftir það þurfi þeir að undirgangast skoðun öldrunarlæknis og sálfræð- ings. Fyrst á tveggja ára fresti og síð- ar á hverju ári. Hann segir tæknina koma í veg fyrir að sumir eldri læknar geti ávísað ávanabindandi lyfjum því það sé einungis hægt raf- rænt í gegnum lyfjagáttina. Sjálfsávísanir lækna ekki stórt vandamál  Betri niðurstöður en formaður Lækna- félagsins átti von á Morgunblaðið/Kristinn Læknataska Nauðsynlegt er fyrir lækna að hafa með sér lyf í vitjanir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.