Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 23
lengur ef forveri stað- alsins er tekinn með. Fyrirtæki sem höfðu ISO/IEC 27001- vottun þegar ný per- sónuverndarlög tóku gildi stóðu tvímæla- laust betur að vígi þegar kom að því að innleiða nýju persónu- verndarlöggjöfina. Stjórnkerfið inniheld- ur stýringar (ráðstaf- anir) sem minnka áhættu við vinnslu upplýsinga, gætir þess að gögnum sé ekki breytt án þess að skráð sé hver og hverju var breytt og að gögn séu alltaf tiltæk þegar á þarf að halda. Með því að skilgreina og skjalfesta m.a. verkferli, hlutverk, ábyrgð og Mynd/© Images.com/Corbis Upplýsingaöryggi var mikið til umræðu á árinu 2018. Ný per- sónuverndarlöggjöf tók gildi hér á landi og við það var löggjöfin færð til samræmis við nútíðina í mál- efnum persónuupplýsinga- og gagnavinnslu. Það reyndist heldur ekki seinna vænna, því að á árinu kom í ljós hversu lítið hefur í raun verið hugsað um þær persónu- upplýsingar sem fólk hikar ekki við að láta fyrirtækjum í té. Í mars 2018 bárust fregnir af því að ráðgjafarfyrirtækið Cam- bridge Analytica (CA) sem sér- hæfði sig í pólitískum herferðum hefði safnað miklu magni persónu- upplýsinga og einstaklingarnir sem þessar upplýsingar varða vissu ekki af þessari söfnun. Í þessu tilviki höfðu sumir þessara einstaklinga veitt CA allar upplýs- ingarnar frjálsri hendi í gegnum persónuleikapróf en forritið misnotaði heimild sína og sótti gögn frá öllum not- endum sem voru vinir viðkomandi á Face- book. Þessir ein- staklingar voru ekki upplýstir um söfnun persónuupplýsing- anna og í hvaða til- gangi ætti að nota þær. Upp úr dúrnum kom að CA notaði upplýsingarnar til að aðstoða við pólitískar herferðir og beina sérhönnuðum auglýsingum að móttækilegum hópum fólks, í þeim tilgangi að hafa áhrif á hegðun þess og skoðanir. Þetta er aðeins eitt dæmi um hvernig má nota persónuupplýs- ingar til þess að bæta hag fyrir- tækis. Persónuupplýsingar hafa virði og það vita stórfyrirtæki á borð við Google, Facebook og Amazon. Það er því mikilvægt að fyrirtæki sem geyma gögn og per- sónuupplýsingar fari vel með þær og gæti þess að óviðkomandi hafi ekki aðgang að þeim. Stjórnkerfi byggð á staðlinum ISO/IEC 27001 hafa nú verið við lýði í 16 ár – og stefnu og nota til þess viðeigandi skjalastjórnunarkerfi er miklu auðveldara að bregðast við breyt- ingum í lagaumhverfi. Á sama tíma er unnt að fullvissa alla við- skiptavini með trúverðugum hætti um að gögn þeirra og upplýsingar séu í öruggum höndum. 21. nóvember síðastliðinn til- kynnti SL lífeyrissjóður að starf- semi sjóðsins hefði fengið faggilda vottun skv. öryggisstaðlinum ISO/ IEC 27001 og gæðastaðlinum ISO 9001. SL lífeyrissjóður er fyrsti lífeyrissjóður á Íslandi til að fá slíkar vottanir. Þetta er jákvæð þróun því ljóst er að lífeyrissjóðir landsins búa yfir miklu magni gagna og upplýsinga sem nauð- synlegt er að halda vel utan um. Upplýsingarnar þurfa að vera réttar og tiltækar þegar á þarf að halda. Það er óskandi að fleiri fjármálastofnanir á borð við SL lífeyrissjóð fylgi hans fordæmi og setji upp vottuð og örugg stjórn- kerfi sem munu gagnast öllum tengdum aðilum. Eftir Aron Friðrik Georgsson »Mikið af persónu- upplýsingum er geymt hjá lífeyrissjóð- um landsins. SL lífeyr- issjóður er fyrsti lífeyr- issjóðurinn til að fá faggildar vottanir. Aron Friðrik Georgsson Höfundur er viðskiptafræðingur og ráðgjafi í upplýsingaöryggismálum hjá Stika ehf. aron@stiki.eu Upplýsingaöryggi Verðmæti „Persónu- upplýsingar hafa virði og það vita stórfyrirtæki á borð við Google, Face- book og Amazon.“ Persónuupplýsingar í lífeyrissjóðum UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 Hjörvar Steinn Grétarssonvann öruggan sigur áSkákþingi Reykjavíkursem lauk á sunnudaginn og er því Skákmeistari Reykjavíkur 2019. Hjörvar hlaut átta vinninga af níu mögulegum og varð ½ vinningi fyrir ofan Guðmund Kjartansson sem hlaut 7½ vinning. Guðmundur galt þess að geta ekki teflt í 1. um- ferð vegna þátttöku sinnar í Hast- ings og varð að taka dýra ½ vinnings yfirsetu. Í 3.-5. sæti komu Vignir Vatnar Stefánsson, Björgvin Víglundsson og Jóhann Ragnarsson, allir með 6½ vinning. Þessi niðurstaða er athygl- isverð en Vignir Vatnar, sem er að- eins 15 ára gamall, er greinilega á uppleið og Björgvin Víglundsson, sem var tvisvar í ólympíuliði Íslands á áttunda áratug síðustu aldar, hefur verið duglegur að tefla undanfarið. Jóhann Ragnarsson átti eitt sitt besta mót. Í 6.-10. sæti urðu Sigurbjörn Björnsson, Davíð Kjartansson, Þor- varður Ólafsson, Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson, allir með sex vinninga. Sigurbjörn Björnsson komst í efsta sætið með því að vinna fjórar fyrstu skákirnar en missti unnið tafl niður í tap í 5. umferð. Í lokaumferð- inni gafst hann of fljótt upp þegar hann tefldi við Guðmund Kjart- ansson: Guðmundur – Sigurbjörn Þessi staða gat komið upp eftir 55. leik hvíts, Be6-f5+. Það virðist fokið í flest skjól enda gafst Sigurbjörn upp. Var það rétt ákvörðun? Hvað með 55. … Hg6? Eftir 56. Bxe4 er svartur patt! Aðrir leikir duga skammt, t.d. 56. Df7+ Kh8 57. Dxg6 Dg2+! 58. Dxg2 – aft- ur patt! En Sigurbjörn á þjáningarbróður því að í 12. umferð stórmótsins í Wijk aan Zee á dögunum gerðist þetta: Giri – Shankland Síðasti leikur Giris var 45. b5-b6. Eins og sjá má hefur riddarinn verið króaður af og hlýtur að falla. Shank- land sá sæng sína uppreidda og gaf skákina. En leiki hann 45. … Kd6 46. Kg4 Kd7 47. Kxh3 er staðan jafn- tefli. Hvítur kemst ekki í tæri við b7- peðið án þess að patta svartan. Þessi staða minnir svolítið á lok 1. einvíg- isskákar Spasskís og Fischers í Laugardalshöll sumarið 1972. Ef hægt er að draga einhvern lær- dóm af þessum dæmum er hann sá að maður á aldrei að gefast upp! Hjörvar með fullt hús á skákhátíð MótX Hjörvar Steinn er einnig á góðri leið með að vinna MótX-mótið sem stendur yfir í Stúkunni á Kópavogs- velli þar sem teflt er einu sinni í viku. Eftir fimm umferðir hefur hann unnið allar fimm skákir sínar en í 2.-3. sæti eru Jón L. Árnason og Guðmundur Kjartansson með fjóra vinninga. Jón L. Árnason hefur teflt vel en var óheppinn gegn Hjörvari Steini eins og rakið var í pistli um daginn. Á þriðjudagskvöldið síðasta vann hann skák sína með svörtu í aðeins 19 leikjum: Skákhátíð MótX 2019; 5. umferð: Björgvin Víglundsson – Jón L. Árnason Enskur leikur 1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. e4 Bb4 5. d3 d6 6. Be2 h6 7. 0-0 0-0 8. Rd5 Bc5 9. h3 a5 10. Be3 He8 11. a3 Rh7 12. Rd2 Rd4 13. Bg4 c6 14. Bxc8 Dxc8 15. Rc3 Rg5 16. Hc1? Sennilega leikið til að undirbúa 17. Dg4 en þessi leikur er of hægfara. Hann varð að leika 16. Re2 þótt svarta staðan sé betri. 16. … Rxh3+! 17. gxh3 Dxh3 18. Re2 Eða 18. Bxd4 He6! og vinnur. 18. … Rxe2+ 19. Dxe2 He6! – og hvítur gafst upp. Það finnst engin vörn við hótuninni 20. … Hg6+. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Heimasíða TR Skákþing Hjörvar Steinn Grétars- son, Skákmeistari Reykjavíkur 2019, við taflið í Faxafeni. Aldrei að gefast upp Allt um sjávarútveg 230,7 m2 raðhús, tilbúin til innréttinga, á tveimur hæðum. Fallegt útsýni. Á jarðhæð er forstofa, bílskúr, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvotta- herbergi, og geymsla. Á efri hæðinni er hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa og svalir. V. 63,9-64,9 m. Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 fastmos.is // fastmos@fastmos.is Sigurður Gunnarsson Löggiltur fasteignasali S. 899 1987 Svanþór Einarsson Löggiltur fasteignasali S. 698 8555 Mjög fallegt og skemmtilega hannað 278,8 m2 einbýlis- hús með bílskúr á glæsilegum útsýnisstað innst í lokuðum botnlanga. Eignin skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, þrjú barnaherbergi, eitt gesta/vinnherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi, baðherbergi, þvottahús, hol, geymslu og bílskúr. Stór timburverönd í suðvesturátt. Mjög hátt er til lofts í stofu sem opnar sig á móti fallegu útsýni til Esjunnar. Góð staðsetning stutt í skóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt. V. 103,9 m. Vogatunga 87-91 - 270 Mosfellsbær *Laust strax* Skálahlíð 21 - 270 Mosfellsbær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.