Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
✝ Rafn Ólafssonfæddist í
Reykjavík 7. maí
1937. Hann lést á
gjörgæsludeild
LSH 25. janúar
2019.
Foreldrar hans
voru Ólafur K.
Ólafsson, f. 24. júlí
1914, d. 27. júlí
1995, og María
Guðmundsdóttir, f.
7. október 1915, d. 1. nóvember
1957
Uppeldisforeldrar Rafns voru
Skarphéðinn Sigurðsson, f. 25.
mars 1891, d. 23. júní 1962, og
Sigríður Einarsdóttir, f. 13. jan-
úar 1899, d. 27. júní 1971.
Bróðir Rafns er Birgir, f.
1939, látinn, uppeldissystkini
hans eru Einar Skarphéðinsson,
f. 1927, látinn, og Ragnheiður
Skarphéðinsdóttir, f. 1931.
Rafn kvæntist hinn 30.
nóvember 1963 eftirlifandi
eiginkonu sinni, Hrafnhildi Lillu
Guðmundsdóttur frá Gröf, f. 24.
ágúst 1942. Börn þeirra eru: 1)
Kristbjörn, f. 1959, giftur Guð-
rúnu Pálsdóttur,
sem lést 2015, þau
eiga Agnesi Ýri,
Örnu Rún og Helga
Rafn og fjögur
barnabörn. Sam-
býliskona Krist-
björns er Oddný
Gréta Eyjólfsdóttir.
2) Bárður, f. 1960,
giftur Dóru Aðal-
steinsdóttur. Þau
eiga Kára, Hrafn-
hildi og Svein og sex barnabörn.
3) Unnur María, f. 1964, gift Ei-
ríki Helgasyni. Þau eiga Helga
og Borghildi og þrjú barnabörn.
4) Héðinn Rafn, f. 1975, giftur
Jóhönnu Beck Ingibjargar-
dóttur. Þau eiga tvo syni, Þórólf
Rafn og óskírðan.
Rafn ólst upp á Hjarðarbóli
og á Grund í Eyrarsveit. Hann
bjó alla ævi á æskuslóðum sínum
við Grundarfjörð. Hann starfaði
meðal annars í fiskvinnslu, en
mest við múrverk og byggingar-
vinnu.
Rafn verður jarðsunginn frá
Grundarfjarðarkirkju í dag, 9.
febrúar 2019, klukkan 14.
Elsku pabbi minn, það er enn
frekar óraunverulegt að þú sért
farinn. Það er samt það eina sem
við vitum fyrir víst í lífinu, að
þetta er leiðin okkar allra. Sökn-
uðurinn er samt mikill. En ég á
yndislegar og dýrmætar minn-
ingar um þig sem munu lifa.
Þú varst ljúfur og skemmti-
legur maður og áttir auðvelt
með að segja frá og gott var að
ræða við. Það var gott að leita til
þín ef mig vantaði upplýsingar,
hvort heldur var varðandi bíla-
viðgerðir eða húsaviðgerðir. Og
ef þú gast komstu bara inn í
Hólm og rumpaðir þessu af. Þú
varst ákaflega laginn og næmur
og það endurspeglaði þína ævi,
dýrin löðuðust að þér, þú gast
allt og gerðir það sem þú ætlaðir
þér. Það lék allt í höndum þér,
hvort sem þú varst að teikna,
mála, gera upp ökutæki, ný-
framkvæmdir eða viðhald.
Stangveiði var mikið áhuga-
mál hjá þér og þú fórst ófáar
veiðiferðirnar í seinni tíð.
Mér er minnisstætt sem barn
þegar öll fjölskyldan fór í veiði-
ferðir. Þetta gátu verið langar
gönguferðir og erfitt fyrir litla
fætur að komast yfir, þá tókst
þú mig á háhest. Já þær eru fjöl-
margar góðu minningarnar sem
rifjast upp í gegnum uppvaxt-
arárin mín.
Fyrstu 11 æviárin mín bjugg-
um við á Grundargötu 21. Árið
1974 ákváðuð þið mamma að
byggja ykkur hús í Gröf, og það
gerðuð þið sjálf með aðstoð eldri
bræðra minna. Allt byggt frá
grunni í ykkar frítíma.
Elsku pabbi minn, þakka þér
fyrir allt það sem þú kenndir
mér, sem barn að meta náttúr-
una og vera sjálfum sér nógur.
Þakka þér fyrir allar góðu og
skemmtilegu samverustundirn-
ar. Þú munt ávallt vera í hjarta
mér.
Þín dóttir,
Unnur María.
Nú kveð ég þig, vinur minn og
tengdafaðir Rafn Ólafsson,
Rabbi í Gröf.
Ég man vel eftir þegar við
hittumst í fyrsta sinn fyrir rúm-
um 39 árum í september 1979.
Ég var að eltast við einkadóttur
þína og þú varst ekki alveg sátt-
ur við það að ókunnugur strákur
innan úr Stykkishólmi væri að
þvælast heima hjá þér í þessum
erindagjörðum. En það stóð
ekki lengi yfir; þegar við fórum
að tala saman þá sýndir þú þinn
rétta mann, blíðan góðan mann
sem allt vildi fyrir mig gera og
gerðir í gegnum tíðina. Skera af
og fella net, múra tröppur, flísa-
leggja, mála, gera við bílana, þú
bókstaflega gast gert allt, því-
líkur þúsundþjalasmiður sem þú
varst. Bílskúrinn var þitt must-
eri, þar varstu kóngur, gerðir
upp bíla og traktora. Ég man að
þegar þú keyptir Toyota Tercel
keyptirðu aðra ónýta sem þú
reifst niður í varahluti sem þú
pússaðir og málaðir svo þeir
voru eins og nýir og allt í einu
áttir þú tvær. Fyrir mér voru
þetta galdrar. Það var gaman að
koma til þín í skúrinn og sjá
hvað þú varst að dunda þér við.
Áhuginn leyndi sér ekki og ég
fékk að heyra allt og sjá hvert
einasta smáatriði meðan þú
leiddir mig í gegnum völundar-
húsið, allt í röð og reglu en samt
allt í drasli. Fyrir mig voru þess-
ar stundir heilt ævintýri. Dýra-
vinur varstu og vildir hafa þau í
kringum þig. Aldrei var langt í
hund þar sem þú varst. Þeim
fannst eins og mér nærveran við
þig góð. Þegar við hittumst
spurðir þú um kindurnar mínar,
þú hafðir áhuga á því hvernig
þeim vegnaði, það skipti þig
máli.
Hraunsfjörður, Hólalækur,
Lárós, Selvallavatn, Hrauns-
fjarðarvatn; þetta voru þínar
veiðilendur, þarna þekktir þú vel
til og hvernig best væri að haga
veiðinni, miða við vind og
strauma, enda fékkst þú oft fisk
þó að enginn annar yrði var.
Alltaf komstu heim með veiðina,
þú vildir bera björg í bú, þú
varst ekki alinn upp við það að
veiða og sleppa. Listamaður og
náttúruunnandi, fáir með eins
tignarlegan fjallahring úr eld-
húsglugganum sínum, þar gastu
setið og skoðað fjallgarðinn tím-
unum saman og sagðir að hann
væri aldrei tvisvar eins miðað
við birtu. Kirkjufellið var þitt
fjall, þú málaðir það og teiknaðir
óteljandi sinnum. Í því sástu
huldufólk, svo næmur varstu
þegar kom að þessum yfirnátt-
úrulegum hlutum. Þegar ég fór
með hestamönnum upp í fjöllin
fyrir ofan Grundarfjörð og þú
heyrðir hvaða leið við færum
baðst þú mig að fara varlega
niður brekkuna niður á
Grundarbotn. Þarna þekktir þú
hverja þúfu, hafðir hlaupið um
þessi lönd uppvaxtarárin þín á
Grund. En þegar ég væri kom-
inn niður ætti ég að fara inn í
huldukonufoss og skila kveðju til
huldukonunnar frá Rabba, en
fara rólega, henni væri illa við
öll læti. Jæja Rabbi minn, ég get
endalaust rifjað upp þegar ég
hugsa til þín sem heillaðir mig
svo mikið, sögumaðurinn, veiði-
maðurinn, lífskúnstnerinn,
altmuligmaðurinn, listamaður-
inn og síðast en ekki síst vinur.
Ég vil þakka þér fyrir öll okkar
kynni og samverustundirnar, en
mest þó fyrir þessa yndislegu
konu sem þú gafst mér forðum
daga. Elsku Lillu og börnum
votta ég mína dýpstu samúð.
Megi algóður Guð gefa ykkur
styrk.
Þinn tengdasonur,
Eiríkur Helgason.
Þá er komið að því að fylgja
góðum manni síðasta spölinn,
hann tengdapabbi hefur kvatt
þetta líf. Sorgin er sár og sökn-
uðurinn mikill en minningarnar
sem við eigum eru góðar og lifa
áfram í hjörtum okkar.
Dugnaður, nægjusemi og
gleði einkenndu Rabba og ég er
honum þakklát fyrir margt og
sérstaklega fyrir stuðning hans
við nafna sína. Hann fylgdist
ætíð með byggingarfram-
kvæmdum okkar hjóna af mikl-
um áhuga og átti alltaf góð ráð
þegar á þurfti að halda. Þá
fylgdist hann spenntur með
veiðiáhuga sonar okkar dafna og
var alltaf til í að hlusta á veiði-
sögur þótt mismikill væri aflinn,
enda mikill veiðimaður sjálfur.
Ég þakka Rabba samveru-
stundirnar undanfarin ár. Það
var notalegt að tylla sér hjá hon-
um við eldhúsborðið í Gröf og
sérstaklega gaman þegar hann
rifjaði upp gömlu tímana og
sagði frá lífi sínu og starfi eða
spáði og spekúleraði í veðrinu.
Takk fyrir allt,
Jóhanna Beck.
Rafn Ólafsson
Stolt, ákveðin,
glæsileg og hrífandi
elsku amma okkar
er látin 93 ára að
aldri.
Sem krakkar í Brekkugötu
hlupum við oft yfir til ömmu og
afa og elskuðum að hafa þau
nærri. En fyrstu búskaparár
mömmu og pabba voru í Brekku-
götu 3, í bakhúsinu hjá þeim. Líf
og fjör einkenndi árin okkar á
Brekkugötu þar sem pabbi var að
vinna við verslun á neðstu hæð-
inni ásamt afa og bræðrum sín-
Ásta
Sigmarsdóttir
✝ Ásta fæddist 3.nóvember
1925. Hún lést 29.
janúar 2019.
Útför hennar fór
fram 8. febrúar
2019.
um. Fjölskyldan
safnaðist oftast
saman á Brekku-
götu daglega og
samgangur því mik-
ill milli frændsystk-
ina þar sem leikvöll-
urinn var
Brekkugata 3 og
nánasta umhverfi.
Kvöldkaffi, kjötfars
á öllum tímum eiga
sterka minningu
tengda ömmu sem okkur þykir
vænt um.
Amma var sérstök kona sem
var einstaklega glæsileg. Það
sem hún tók alltaf eftir þegar þú
hittir hana var hvernig þú varst
til fara, og sagði hún þér alveg
hvað henni fannst. En glæsileik-
inn einkenndi hana alla tíð alveg
sama hversu gömul hún var orð-
in, alltaf var hún glæsileikinn
uppmálaður.
Seinni árin fylgdist hún vel
með því sem var að gerast í sam-
félaginu. Tvö útvörp og eitt sjón-
varp í gangi og blöðin lesin upp til
agna. Fyrir utan það að vera
áskrifandi að Stöð 2 Sport á efri
árum, en amma fylgdist með öll-
um íþróttum sama hvað þær
hétu. Þegar hún var komin á ní-
ræðisaldur vakti hún oft á næt-
urnar til að fylgjast með NBA-
körfuboltanum og vissi upp hár
hver gerði hvað.
Okkur systkinin langar að
kveðja þessa merkilegu konu
með þessum fallegu orðum:
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Vertu kært kvödd, elsku
amma Ásta.
María, Bjarni og Einar Logi
Sveinsbörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, tengdasonur, bróðir og mágur,
ÞÓRIR MAGNÚSSON
málarameistari,
Stapasíðu 11 B,
varð bráðkvaddur 30. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 12. febrúar klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Oddfellowregluna á
Akureyri.
Svava Svavarsdóttir
Magnús Þórisson
Anna Karen Þórisdóttir
Þórey Sif Þórisdóttir
Árdís Svanbergsdóttir
Ragnar Magnússon Kristín Steindórsdóttir
Einar Magnússon Guðný Sigurharðardóttir
Ottó Magnússon Guðrún Gísladóttir
Svavar Konráðsdóttir Anna Friðriksdóttir
Anna Soffía Svavarsdóttir Halldór G. Halldórsson
Konráð Svavarsson Pálmey Sigtryggsdóttir
Sigurður Örn Svavarsson
fjölskylda og vinir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli,
áður Litlagerði 7,
lést miðvikudaginn 6. febrúar. Útförin fer
fram frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn
16. febrúar klukkan 13.
Arnbjörg Hjaltadóttir Ámundi H. Þorsteinsson
Arnar Hjaltason Arna Ragnarsdóttir
Anna Steinþórsdóttir
Brynja Hjaltadóttir Jón Berg Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
BALDUR JÓHANNSSON,
Flúðaseli 81, Reykjavík,
andaðist á blóðskilunardeild Landspítalans
sunnudaginn 3. febrúar.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 15. febrúar
klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á að láta líknarfélög njóta þess.
Hanna Hannesdóttir
Bogi Baldursson Steinunn Jónsdóttir
María Erla Bogadóttir Hjalti Kolbeinsson
Alexander Þór Hjaltason Snædís Ida Hjaltadóttir
Jón Baldur Bogason Haukur Heiðar Steingrímsson
Ingi Björn Bogason Magdalena V. Michelsen
Arnþrúður Baldursdóttir
Hanna Lára Pálsdóttir
Helena Marý Óðinsdóttir
Sigurður Markús Harðarson Halldóra F. Guðmundsdóttir
Baldur Þór Harðarson Lilja Dögg Guðmundsdóttir
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma,
langamma, systir og mágkona,
GUÐRÚN EGILSDÓTTIR,
áður til heimilis á Grenimel 49,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
að morgni þriðjudagsins 5. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 18.
febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa.
Kristín Ágústa Björnsdóttir Viðar F. Welding
Estiva Birna Björnsdóttir Baldur Þ. Harðarson
ömmu og langömmubörn
Sigurður Egilsson Guðbjörg Valdimarsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN BJÖRNSSON,
bóndi og húsasmíðameistari,
Ytri-Löngumýri, Blönduósi,
lést á Landspítalanum mánudaginn
28. janúar. Útförin fer fram frá
Blönduóskirkju mánudaginn 11. febrúar klukkan 13.
Ólöf Birna Björnsdóttir Styrmir Magnússon
Bjarki Björnsson Hjördís María Ólafsdóttir
Steinn Örvar Bjarnarson Svanhvít Helga Magnúsdóttir
Brynhildur Una Björnsdóttir
Haukur Hafliði Björnsson
María Sigrún, Viktoría Dagný, Kristófer Bjarnar,
Óli Björn og Eva Katrín
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgun-
blaðslógóið í hægra horninu efst
og viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum.
Einnig er hægt að slá inn slóð-
ina www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar