Morgunblaðið - 09.02.2019, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
✝ Elín Sigur-björg Sig-
urðardóttir fædd-
ist á Dalvík 30.
maí 1928. Hún lést
á Dalbæ, heimili
aldraðra á Dalvík,
28. janúar 2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Petrína Þórunn
Jónsdóttir ljós-
móðir, f. á Dalvík
1891, d. 1974, og Sigurður
Þorgilsson, útgerðar- og
verkamaður á Dalvík, f. á
Sökku í Svarfaðardal 1891, d.
1951. Systkini Elínar: 1)
drengur, f. 1919, d. 1920, 2)
Þorgils, f. 1921, d. 1998, 3)
Kristín Sigríður, f. 1922, d.
2013, 4) drengur, f. 1924, d.
1924, 5) Rósa María, f. 1925, d.
2015, 6) Kristján Þorgils, f.
1930, d. 1940, 7) Jórunn Erla,
f. 1932, d. 2004, 8) Sigurveig, f.
1934.
Elín giftist 19. nóvember
1948 Óskari Gunnþóri Jóns-
syni, f. 19. júlí 1925 á Dalvík,
d. 19. janúar 2016, fram-
kvæmdastjóra vöruflutninga-
fyrirtækisins Óskar Jónsson &
Langömmubörnin eru 22 og
langalangömmubörnin 4.
Elín stundaði nám við
Barna- og unglingaskólann á
Dalvík. Hún lauk námi í ljós-
móðurfræðum frá Ljósmæðra-
skóla Íslands í Reykjavík 1948
og endurmenntunarnámi fyrir
ljósmæður 1967.
Elín var ljósmóðir á Dalvík
1948-1953 og 1968-1978, auk
þess starfaði hún um fimm ára
skeið hjá héraðslæknisembætt-
inu á Dalvík. Hún starfaði jafn-
framt við afgreiðslu og skrif-
stofustörf við vöruflutninga-
fyrirtæki þeirra hjóna, Óskar
Jónsson & co.
Elín starfaði við barnastúk-
una Leiðarstjörnuna í 10 ár á
sjöunda áratugnum. Hún var í
Dalvíkurdeild SVFÍ og í stjórn
þess í 11 ár. Hún var einn af
stofnendum Lionsklúbbsins
Sunnu og gegndi þar for-
mennsku og ýmsum trúnaðar-
störfum, fékk Melvin Jones-
orðuna 2009. Hún tók þátt í
stofnun Félags eldri borgara á
Dalvík og Hrísey og fjöl-
breyttu félagsstarfi, s.s. kór-
söng, ferðalögum,og handverki
af ýmsu tagi. Hún gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir Dal-
víkurbæ, sat t.d. í þjónustuhóp
aldraðra og safnaðarstjórn
Dalvíkurkirkju.
Útförin fer fram frá
Dalvíkurkirkju í dag, 9. febr-
úar 2019, klukkan 11.
co. Óskar var son-
ur hjónanna Jó-
hönnu Kristínar
Þorleifsdóttur f.
1988 á Hóli á
Upsaströnd, d.
1971, og Jóns Hall-
dórssonar Lyng-
stað, f. 1884 á
Ystabæ í Hrísey, d.
1963.
Börn Elínar og
Óskars: 1) Sigrún
Kristjana, f. 1950, börn: Óskar
og Elín Storeide. 2) Jón Viðar,
f. 1953, kvæntur Snjólaugu
Steinunni Jónmundsdóttur,
börn: Þorsteinn Snævarr,
Kristín Jónína, Petrína Þór-
unn, Elín Sigurveig og Óskar
Gunnþór. 3) Petrína Þórunn, f.
1955, gift Hákoni Viðari Sig-
mundssyni, börn: Elín Rósa,
Margrét Arnheiður, Ottó
Hrafn og Andri Viðar. 4) Jó-
hanna Kristín, f. 1957, börn:
Sindri Daði, Arnar Snær og
Erla, sambýlismaður Jóhönnu:
Hans-Jörgen Bang Andersen.
5) Óskar, f. 1963, kvæntur
Lilju Björk Ólafsdóttur, börn:
Telma Ýr, Karen Lena og Ar-
on Birkir.
Þá er hún elsku Ella tengda-
mamma mín komin í Sumarlandið
og ég sé hana fyrir mér heilbrigða
og hlæjandi, dansandi við Óskar
sinn í blómabreiðu umvafin fólk-
inu sínu og vinunum sem farin eru.
Takk elsku Ella fyrir:
Alla ástúðina í minn garð,
viðurkenningu sem ég fann hjá
þér frá fyrsta degi, vináttuna, að-
stoð með börnin, ráðgjöf með hitt
og þetta sem ég kunni ekki, að
hafa alltaf reynst mér sem önnur
móðir, hláturinn, allar sögurnar
sem þú sagðir mér frá æskunni og
ljósmóðurstarfinu, traustið, tím-
ann sem þú áttir alltaf til þó að
brjálað væri að gera, umhyggju
fyrir mér og mínu fólki, þakklætið
sem þú sýndir mér, hughreyst-
andi orð og aðstoð þegar þú varst
næturlangt með okkur rúmlega
tvítugum verðandi foreldrum á
fæðingardeildinni á Akureyri, það
að vera alltaf til staðar hvenær
sem við þurftum á að halda, að
vera frábær fyrirmynd og hvatn-
ing fyrir okkur öll, að sýna okkur
að það er allt hægt bara ef viljinn
er fyrir hendi, fyrir gleðina sem
fylgdi þér ævinlega, að vera ofur-
amma fyrir börnin okkar, að
kenna okkur að lifa lífinu lifandi,
að hafa auðgað líf mitt og kennt
mér að ég er nóg.
Starfsfólk Dalbæjar fær inni-
legar kveðjur og þakklæti fyrir ást
og einstaka umhyggju.
Ég elska þig.
Þín tengdadóttir,
Lilja Björk.
Það er alltaf erfitt að sjá á bak
góðum félaga. Elín var einn af
stofnendum Lionsklúbbsins
Sunnu og var þar alla tíð, og var
virkur og góður félagi sem alltaf
var gott að leita til. Miðlaði hún
reynslu og visku til okkar sem
yngri voru, og var sérstaklega
gaman að hlusta á hana þegar hún
sagði okkur frá ljósmóðurstarfinu,
sem var svolítið öðruvísi en það er
í dag. Þurfti hún að vera að heim-
an jafnvel dögum saman, þrátt
fyrir að vera sjálf með mörg ung
börn. Við vorum stoltar af því að
hafa svona fullorðna og glæsilega
konu í okkar hópi, var hún búin að
fá Melvin Jones, æðstu viðurkenn-
ingu Lionshreyfingarinnar, fyrir
sín miklu og góðu störf, sem við
þökkum henni fyrir hér.
Vottum við aðstandendum inni-
lega samúð.
Sunnusöngur:
Nú komum við systur hér saman á
fund
með sólskin og djörfung í hug.
Við ætlum að eiga hér ágæta stund
og andríkið hefja á flug.
Sýnum samtakamátt
berum höfuðið hátt,
horfum djarfar á framtíðarbraut.
Eflum frelsi og frið,
veitum líðendum lið
og líknum í sérhverri þraut.
(Halldór Jóhannesson)
Fyrir hönd Lionsklúbbsins
Sunnu,
Hólmfríður Jónsdóttir
formaður.
Elín Sigurbjörg
Sigurðardóttir
✝ SteinunnSveinsdóttir
fæddist á Siglufirði
6. janúar 1934. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Hvammi 3.
febrúar 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Sveinn Ás-
mundsson bygg-
ingameistari, f. 16.
júní 1909, d. 26.
febrúar 1966, og
Margrét Snæbjörnsdóttir hús-
freyja, f. 8. ágúst 1912, d. 13.
desember 1983.
Systkini Steinunnar eru Ás-
björn Ólafur, lyfjafræðingur, f.
24. nóvember 1942, og Snæ-
björn, rafmagnstæknifræð-
ingur, f. 19. september 1946.
19. október 1957 giftist Stein-
unn Hauki Ákasyni rafvirkja-
meistara, f. 18. janúar 1933, d.
26. júlí 2000. Synir þeirra eru: 1)
Sveinn, f. 23. mars 1958, raf-
virki í Reykjavík,
kvæntur Yupin
Chamnongsak, f.
11. október 1974,
sonur hennar er
Natthapong Orach-
un, fæddur 12.
september 1997. 2)
Áki, f. 24. júní 1965,
rafvirki á Húsavík,
kvæntur Örnu Þór-
arinsdóttur, f. 27.
ágúst 1969, og eiga
þau þrjú börn: Hauk Inga, f. 24.
ágúst 1989, Karen Ósk, f. 16. júlí
1996, og Rakel Rán, f. 27. febr-
úar 1999. 3) Haukur, f. 21. maí
1969, verkamaður.
Steinunn ólst upp á Siglufirði
og gekk þar í skóla.
Vorið 1954 útskrifaðist hún
frá Húsmæðraskólanum á
Blönduósi.
Útför Steinunnar fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, 9. febr-
úar 2019, klukkan 14.
Elskuleg Steinunn tengdamóð-
ir mín kvaddi þetta jarðlíf nýorðin
85 ára.
Einfari í eðli sínu, þrjósk og
skemmtilega stíf, ljúf og góð per-
sóna sem gerði ekki flugu mein.
Mikil áhugamanneskja um fót-
bolta og handbolta, horfði á allar
stærstu keppnir í sjónvarpi. Sat
yfir og spáði mikið um hverjir
mundu vinna keppnina og átti sín
uppáhaldslið.
Krossgátuglöð og oftar en ekki
var hún búin með blöðin sem voru
stundum keypt óvart aftur.
Moggann keypti hún alla tíð og
kannski bara af gömlum vana en
þar var jú líka krossgáta.
Hún elskaði það að vera vel til-
höfð alltaf, og ekki er til ein ein-
asta mynd af henni nýkominni á
fætur eða úr baði. Hún hreinlega
var alltaf með hárið uppsett og
neglurnar voru hennar aðals-
merki, helst rauðar og vel lakk-
aðar.
Strigaskó sá ég ekki á hennar
fótum heldur flotta háhælaskó og
leðurstígvél, alltaf var hún vel til-
höfð og glæsileg daman allt sitt líf.
Hún borðaði ekki fisk heldur
vildi hún steikur, sætar kökur og
kruðerí.
Þegar ég spurði hana: „En
Steinunn, þegar það var fiskur í
matinn þegar þú varst barn, hvað
gerðir þú þá?“ svaraði hún skjótt:
„Nú, ég borðaði bara ekki.“
Á laugardaginn þegar hún var
orðin veik og hún vaknaði um
stund spurði ég: „Steinunn, það er
laugardagur í dag, hvað langar
þig í svona á laugardegi?“ Stein-
unn svaraði: „Nú, er laugar-
dagur?“ „Já,“ sagði ég, Steinunn
svaraði: „Brennivín.“
Svo hún vissi alltaf hvað hún
vildi, það var alveg kristaltært.
Þú elskaðir að koma í heim-
sókn og hitta Önnu Lilju köttinn
okkar og hundinn Tinnu, þá
brostir þú allan hringinn, þegar
þær sátu hvor sínum megin við
þig í sofa og klappaðir þeim, þig
langaði alltaf í hund þegar þú
varst barn.
Þú varst stolt af barnabörnun-
um þínum, Hauki Inga, Karen
Ósk og Rakel Rán, og alltaf var
jafn gaman að sjá hvað þú ljóm-
aðir þegar þið hittust hvort sem
var á Hvammi eða heima hjá okk-
ur. Þau biðja fyrir kveðju til þín,
elsku Steinunn mín.
Þú misstir mikið þegar Haukur
þinn kvaddi og í sama mánuði
kvaddi einnig Unnur besta vin-
kona þín, en það var árið 2000.
Góða ferð í sumarlandið og þau
taka vel á móti þér, það er ég viss
um.
Gráttu ekki
yfir góðum
liðnum tíma.
Njóttu þess heldur
að ylja þér við minningarnar,
gleðjast yfir þeim
og þakka fyrir þær
með tár í augum,
en hlýju í hjarta
og bros á vör.
Því brosið
færir birtu bjarta,
og minningarnar
geyma fegurð og yl
þakklætis í hjarta.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Takk fyrir allt, Steinunn mín.
Kærleikskveðja,
þín tengdadóttir
Arna.
Elsku systir okkar Steinunn
Sveinsdóttir (Unna) er látinn.
Hún lést eftir mjög skammvinn
veikindi á sjúkrastofnun Húsavík-
ur. Elsku systir, þín verður sárt
saknað og góða skapsins sem allt-
af fylgdi þér eftir að þú loksins
fullorðnaðist, sem tók reyndar
lengri tíma en gengur og gerist.
Það var alveg sama hvenær við
hringdum eða hvernig stóð á hjá
þér, aldrei var neinn barlómur eða
bölmóður, bara góða skapið. Við
eigum margar góðar og ljúfar
minningar sem orna okkur frá
Sigló, Blönduósi eða Sauðárkróki.
Við bræðurnir óskum þér góðr-
ar ferðar til nýrra heimkynna þar
sem þú hittir örugglega mömmu,
pabba, Hauk og sjálfsagt marga
fleiri.
Margt þú hefur misjafnt reynt,
mörg þín dulið sárin.
Þú hefur alltaf getað greint,
gleði bak við tárin.
(J.Á.)
Ásbjörn og Snæbjörn.
Steinunn
Sveinsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
frænku okkar og mágkonu,
SIGRÚNAR HÓLMGEIRSDÓTTUR
frá Hellulandi, Aðaldal,
Gnoðarvogi 72, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
í heimahjúkrun fyrir góða umönnun og hlýju.
Þorbjörg Aðalsteinsdóttir Hólmgeir Hermannsson
Karen H. Jóhannsdóttir Magnús Hermannsson
Þorbjörg Völundardóttir Hanna Dóra Hermannsdóttir
Kristbjörg Kristjánsdóttir Bergþór Hermannsson
María G. Hannesdóttir
og aðrir aðstandendur
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN HÓLMSTEINN JÚLÍUSSON
flugvirki,
lést laugardaginn 2. febrúar.
Útför hans fer fram í Kópavogskirkju
miðvikudaginn 13. febrúar klukkan 13.
Dóra Hannesdóttir
Guðrún Jónsdóttir Steingrímur Hauksson
Freysteinn G. Jónsson Björg Kjartansdóttir
Edda Ólína S. Jónsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir Ólafur Björnsson
Sigríður Jónsdóttir Heimir Barðason
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar,
BRAGI HRAFN SIGURÐSSON
smiður,
Norðurbrún 1,
áður til heimilis á Njálsgötu 85,
andaðist á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 24. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Kristín Elfa Bragadóttir
Baldur Bragason
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns og föður okkar,
SIGURÐAR BJÖRNSSONAR,
Markarvegi 2,
Reykjavík.
Ásdís Magnúsdóttir
Björn Darri Sigurðsson
Magnús Harri Sigurðsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar dóttur minnar og systur okkar,
RANNVEIGAR PÁLSDÓTTUR,
læknis,
Strandvegi 7, Garðabæ.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki 11 E á Landspítala fyrir
einstaka umönnun og hlýju.
Soffía Stefánsdóttir
Svana Pálsdóttir Guðbjörg Pálsdóttir
Gísli Pálsson Soffía Pálsdóttir
og fjölskyldur
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Blikalóni á Melrakkasléttu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun og hlýju.
Eiríkur Jóhannsson Sigríður Helga Olgeirsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir Pálmi Jónsson
og fjölskyldur
Hjartkær bróðir okkar,
PÉTUR PÉTURSSON,
Hátúni 12,
Reykjavík,
lést á Gran Canaría miðvikudaginn
16. janúar. Útförin fer fram frá Áskirkju
þriðjudaginn 12. febrúar klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á líknarfélög. Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ármann Pétursson
Helga Sigríður Pétursdóttir