Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 38
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Kvikmyndin Börn náttúrunnar(1991) eftir Friðrik ÞórFriðriksson vann sér fljótt
sess sem eitt helsta þrekvirki Íslend-
inga í þeim listmiðli og er eina ís-
lenska kvikmyndin í fullri lengd sem
hefur verið til-
nefnd til Ósk-
arsverðlauna en
hún var tilnefnd í
flokknum Besta er-
lenda kvikmyndin
árið 1992. Næmi og
fegurð myndarinnar var listavel
undirstrikuð með tónlist sem Hilmar
Örn Hilmarsson samdi. Eftir henni
var sömuleiðis tekið og fékk Hilmar
Felix-verðlaunin svokölluðu sama
ár, eða evrópsku kvikmyndaverð-
launin.
Útgáfusaga tónlistarinnar er
athyglisverð en það var ekki fyrr en
fimm árum síðar (1996) að hið virta
Kannski var það feigðin …
merki Touch gaf hana út (og svo aft-
ur árið 2003). Touch einbeitir sér að
útgáfu framsækinna nútíma-
tónskálda og hefur m.a. gefið út
plötur með Jóhanni Jóhannssyni
(Englabörn, 2002), Oren Ambarchi,
Christian Fennesz og Hildi Guðna-
dóttur svo fátt eitt sé nefnt. Tónlistin
hefur verið ófáanleg á markaði um
allnokkurt skeið og gerðu 12 tónar
loks gangskör í þeim efnum og end-
urútgáfu á síðasta ári, bæði á geisla-
disk og vínil, en tónlistin hefur ekki
verið pressuð á síðarnefnda formið
áður. Á meðal tónlistarmanna sem
fram koma á þessari bráðum þrjátíu
ára gömlu plötu eru Szymon heitinn
Kuran (fiðla), Joolie Wood (fiðla),
Stefán Örn Arnarson (selló), Chhi-
med Rig’dzin Rinpoche (kangling og
damaru) og Sigtryggur Baldursson
(slagverk). Tónlistin var tekin upp í
Stúdíó Sýrlandi, af þeim Hilmari
(HÖH) og Tómasi Magnúsi Tóm-
assyni, sem, eins og Szymon, er far-
inn yfir móðuna miklu.
Hilmar átti eftir að vinna tónlist
við fjölda mynda í kjölfarið, var
nokkurs konar hirðskáld Friðriks en
vann einnig að erlendum myndum
og voru þær taldar í tugum á tíunda
áratugnum og þeim fyrsta. M.a. á
Hilmar tónlistina við In the Cut
(2003) sem Jane Campion leikstýrði.
Það rennur ýmislegt í gegnum
hugann er maður sækir þessa vel
heppnuðu tónlist aftur heim. Hilmar
var á þessum tíma brautryðjandi á
margan hátt og heyra má t.d. í Sigur
Rós og Jóhanni Jóhannssyni í tónlist-
inni. Sigur Rós var þó ekki stofnuð
fyrr en þremur árum síðar og átti
u.þ.b áratug í það að sækja á lík mið,
og þá reyndar með HÖH sér við hlið
(hér er ég að tala um tónlist Hilmars
við Engla alheimsins). Þannig að þar
sem ég sit og hlusta á hið ægifagra
„Suðurgata“ verður himinljóst
hversu þungt listræna pundið er í
honum HÖH okkar, hann deilir
næminu og fegurðarinnsæinu með
kollegum sínum í Sigur Rós og snilli-
menninu Jóhanni Jóhannssyni sem
áttu eftir að fara með þetta skapalón
um veröld víða síðar meir. Um leið
uppgötvar maður, sér til skelfingar,
12 tónar hafa nú endurútgefið tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar
við kvikmyndina Börn náttúrunnar á vínil og geisladisk.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Barnaóperan Konan og selsham-
urinn, sem Hróðmar I. Sigur-
björnsson tónskáld samdi í sam-
starfi við Ragnheiði Erlu
Björnsdóttir,
fyrrverandi
nemanda sinn í
tónsmíðum í
Listaháskóla Ís-
lands, verður
frumsýnd í
Kaldalóni í
Hörpu kl. 13
sunnudaginn 10.
febrúar. Fyrst
gerði Ragnheið-
ur Erla líbrettóið eftir þessari
þekktu íslensku þjóðsögu og í
sumar sem leið tók Hróðmar til
óspilltra málanna við tónsmíð-
arnar. Óperan er sú fjórða í tón-
leikaröðinni Gamalt og glænýtt
sem útgáfufélagið Töfrahurð hefur
staðið fyrir síðan árið 2016. Í tón-
leikaröðinni er gömul sagnahefð
Íslands færð í nýjan búning fyrir
börn og unglinga og tónskáld og
textahöfundar fá tækifæri til að
endurskapa þjóðsögurnar með
sínu lagi.
Hróðmar er þekktur fyrir aðra
tónlist en barnaverk. Hann hefur
alla tíð unnið með söngtónlist,
samið lagaflokka við ljóð Ísaks
Harðarsonar og Gyrðis Elíasson-
ar, hljómsveitarverk, einleikskons-
erta, kammertónlist, kvikmynda-
og sjónvarpstónlist svo fátt eitt sé
talið. Tónlistarferill hans spannar
þrjátíu ár, einnig kennsluferill, en
síðustu fimmtán árin hefur hann
aðallega kennt við tónlistardeild
LHÍ og verið fagstjóri tónsmíða
og tónfræða síðastliðin fjögur ár.
„Sjö börn á landi og sjö í sjó“
„Pamela De Sensi, flautuleikari
og stofnandi Töfrahurðar, hafði
samband við mig í fyrravor og
pantaði hjá mér barnaóperu. Satt
best að segja leist mér ekkert á
hugmyndina í upphafi, en eftir því
sem ég velti henni meira fyrir mér
fór ég að sjá ýmsa fleti sem ég
hafði gaman af að skoða. Mér datt
fljótlega í hug að byggja óperuna
á sögunni Konan og selshamurinn,
en hún fjallar um togstreitu móð-
ur sem þarf að velja á milli „sjö
barna á landi og sjö í sjó“.
Þessi saga kom líka fyrst upp í
huga flestra vina og vandamanna
sem ég bað um að nefna einhverja
íslenska þjóðsögu. Síðan hugsaði
ég með mér að gaman væri að
vinna verkefnið með Ragnheiði
Erlu, sem eftir BA-námið í LHÍ
lauk meistaraprófi í ritlist frá Há-
skóla Íslands og vinnur mikið með
að blanda saman tónlist og orðum.
Ég hafði fylgst svolítið með skrif-
Barnaópera um togstreitu móður
Töfrahurð frumsýnir barnaóperuna
Konan og selshamurinn í Kaldalóni
Morgunblaðið/Hari
Á fjölunum Um tuttugu manns, leikarar, söngvarar og hljóðfæraleikarar, stíga á svið í barnaóperunni.
Hróðmar I.
Sigurbjörnsson
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 10.2. kl. 14. Leiðsögn með Helgu Vollertsen, sérfræðingi
í munasafni Þjóðminjasafns: Frá kristnitöku til siðaskipta.
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal
Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal
Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur
úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON
OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS
Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Kordo-strengjakvartettinn heldur
sína fyrstu tónleika í Norðurljósum í
Hörpu kl. 16 á morgun, sunnudag.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röðinni Sígildir sunnudagar. Leikin
verða verk eftir Mozart, Webern og
Borodin.
Strengjakvartett nr. 21 í D-dúr
eftir Mozart er sá fyrsti í röð svo-
kallaðra prússneskra kvartetta. Sex
bagatellur op. 9 eftir Anton Webern
taka aðeins um fimm mínútur í flutn-
ingi en eru mikilvægt skref í þróun
atónal tónmáls 20. aldar. Tónleik-
unum lýkur á strengjakvartett nr. 2
eftir Alexander Borodin.
Strengjakvartettinn skipa fiðlu-
leikararnir Vera Panitch og Páll
Palomares, víóluleikarinn Þórarinn
M. Baldursson og sellóleikarinn
Hrafnkell Orri Egilsson, sem öll
leika einnig í Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Nýstofnaður strengjakvartett Vera, Páll, Hrafnkell Orri og Þórarinn.
Kordo á Sígildum sunnudögum