Morgunblaðið - 09.02.2019, Qupperneq 44
SÆKJA
ÞETTA
DUB?
Síminn Síminn Síminn Síminn Símin
Síminn Síminn Síminn Síminn S
Síminn Síminn Síminn Síminn Símin
Síminn Síminn Síminn Síminn S
Síminn Síminn Síminn Sími
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Sím
Síminn Síminn
Síminn Sím
Síminn
Síminn
Síminn
Síminn Síminn
Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
íminn Síminn Síminn Síminn
n Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
nn Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn
Síminn Síminn
nn
Síminn
nn Síminn
Síminn Síminn
inn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Sími
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Sím
Síminn Síminn
Síminn Sím
Síminn
Sím
Síminn
Síminn
Síminn Síminn
Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn Sím
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn Sím
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn
Síminn Síminn
Síminn
Síminn
nn
Síminn
inn Síminn
Síminn Síminn
inn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn
minn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
minn Síminn Síminn Síminn Síminn
Síminn Síminn Síminn Síminn
Raftónlistartvíeykið ClubDub hefur
farið sigurför um landið. Aron Kristinn
og Brynjar áttu sér draum um að sigra
heiminn og láta ekkert stoppa sig.
Velkomin um borð í rússíbanann
sem er ClubDub.
ClubDub the Movie er komin
í Sjónvarp Símans appið!
Kíktu einnig á úrval af skemmtilegum
þáttaröðum sem þú getur gripið
í hvenær sem henta
LEIKSTJÓRI VIGNIR DAÐI VALTÝSSON YFIRFRAMLEIDANDI BERGÞÓR MÁSSON KLIPPING EDDA KRISTÍN ÓTTARSDÓTTIR OG VIGNIR DAÐI VALTÝSSON
HANDRIT ARON KRISTINN JÓNASSON, BERGÞÓR MÁSSON, BRYNJAR BARKARSON, EDDA KRISTÍN ÓTTARSDÓTTIR OG VIGNIR DAÐI VALTÝSSON
FRAMLEIDENDUR ARON KRISTINN JÓNASSON, BERGÞÓR MÁSSON, BRYNJAR BARKARSON, VIGNIR DAÐI VALTÝSSON
NÁÐU ÍAPP
TIL AÐ HORF
r.
IÐ
A
200. sýningin á Elly, sem fjallar um
ævi og ástir einnar vinsælustu
söngkonu Íslands, er sýnd í Borgar-
leikhúsinu í kvöld sem er nýtt met.
Fyrra metið átti Mamma mia! sem
var sýnd 188 sinnum. Elly var frum-
sýnd í mars 2017 á Nýja sviðinu og
sýnd þar 54 sinnum áður en sýn-
ingin var færð yfir á Stóra sviðið
þar sem hún hefur verið sýnd tæp-
lega 150 sinnum fyrir fullu húsi.
Rúmlega 95 þúsund leikhúsgestir
hafa séð sýninguna til þessa, en
sýningum lýkur í mars.
Elly sýnd í 200. skiptið
LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 40. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Höfuðmeiðsli íþróttafólks hafa verið
nokkuð í umræðunni á undanförnum
árum enda hefur slíkum tilfellum
fjölgað talsvert í seinni tíð. Karlalið
Gróttu í handknattleik hefur misst
út þrjá leikmenn í lengri eða
skemmri tíma í vetur og í íþrótta-
blaðinu er rætt við Einar Jónsson
þjálfara Gróttu, Reyni Björnsson
lækni og Reyni Stefánsson formann
dómaranefndar HSÍ um málið. »2-3
Höfuðmeiðsli í íþrótt-
um algengari en áður
80 - 90 - 100 Mark! er yfirskrift tón-
leika Kvennakórs Háskóla Íslands
kl. 16 á sunnudaginn í Hátíðarsal HÍ.
Efnisskráin er tileinkuð 80, 90 og
100 ára merkisafmælum þriggja
tónskálda árið 2018. Sá yngsti er
Atli Heimir Sveinsson, þá Jón Ás-
geirsson og Leonard Bernstein
hefði orðið 100 ára.
M.a. flytur kórinn Jónasarlög Atla
Heimis við ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar, sjaldheyrð lög Jóns fyrir
kvennakór og syrpu af þekktum
lögum úr söngleiknum West Side
Story eftir Bernstein.
Kvennakór Háskóla
Íslands skipa 26 kon-
ur úr hópi nemenda
og kennara háskól-
ans. Kórstjóri er Mar-
grét Bóasdóttir.
Tónleikar í tilefni af
merkisafmælum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Alþjóðleg vitundarvika um með-
fædda hjartagalla hófst í fyrradag
og stendur til 14. febrúar. Neistinn,
styrktarfélag hjartveikra barna,
hefur umsjón með átakinu hér-
lendis og gefur meðal annars öllum
nýburum, sem fæðast þessa viku,
sérhannaða, rauða Neistahúfu til að
heiðra baráttu hjartveikra barna.
Fríða Björk Arnardóttir, fram-
kvæmdastjóri Neistans, segir að
þessa daga sé sérstök áhersla lögð
á að fræða almenning um með-
fædda hjartagalla, „hetjurnar sem
lifa með þá alla sína ævi, fjölskyldur
þeirra og lífið með hjartagalla“.
Eitt atriði sé valið daglega til kynn-
ingar í samfélagsmiðlum og fjöl-
miðlum. Útbúin hafi verið stutt
myndbönd með viðtölum við sex
börn og unglinga með hjartagalla
og fjölskyldur þeirra til þess að
gefa innsýn í líf þessa fólks auk ým-
issa fróðleiksmola. „Öll börn, sem
fæðast þessa viku, fá sérhannaða
húfu, sem Margrét Harpa Garð-
arsdóttir hjartamamma hannaði og
sjálfboðaliðar og hjartavinir prjón-
uðu,“ bætir Fríða við og bendir á að
húfum hafi verið dreift á fæð-
ingastaði um landið.
Ráðstefna og sumarbúðir
Neistinn heldur úti viðamiklu
starfi og framundan eru meðal ann-
ars spilakvöld, árshátíð, bingó, sum-
arhátíð og fleira. „Við höldum ráð-
stefnu og aðalfund evrópsku
barnahjartasamtakanna (ECHDO )
í maí og það er einn stærsti við-
burður okkar í ár,“ segir Fríða. Á
dagskrá verða til dæmis erindi
hjartalæknis á barnaspítalanum í
Boston og tvær norskar stúlkur
með hjartagalla segja sögu sína fyr-
ir og eftir aðgerð. „Vandamálin
hverfa ekki með aðgerð,“ leggur
Fríða áherslu á.
Neistinn er jafnframt gestgjafi
norrænu sumarbúðanna fyrir hjart-
veika 14-18 ára unglinga. Búðirnar
verða á Hjarðarbóli í Ölfusi 19.-26.
júlí nk. „Við höfum unnið að und-
irbúningi síðan sumarbúðunum
lauk í Svíþjóð í júlí í fyrra,“ segir
Fríða. 50 unglingar frá Íslandi,
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Dan-
mörku auk fararstjóra taka þátt í
verkefninu og margir leggja hönd á
plóg.
Árlega fæðast um 70 börn með
hjartagalla hérlendis og yfir 400
fjölskyldur eru í Neistanum. Takt-
ur, félag fullorðinna með meðfædda
hjartagalla, var stofnaður í maí í
fyrra með stuðning og félagsskap
fyrir einstaklinga 18 ára og eldri í
huga. „Neistinn er félag fyrir börn
með hjartagalla og okkur þótti
ástæða til þess að hafa sérstakt fé-
lag fyrir 18 ára og eldri, því stuðn-
ingurinn breytist með aldrinum,“
segir Fríða.
Birkir Árnason, formaður Takts,
segir að byrjun félagsins lofi góðu.
„Við vorum með fyrsta fræðslu-
kvöldið fyrir skömmu og framundan
eru fleiri viðburðir,“ segir hann.
Morgunblaðið/Eggert
Vitundarvika Fríða Björk Arnardóttir, framkvæmdastjóri Neistans, með sérhönnuðu húfuna.
Hetjur með hjartagalla
Neistinn heiðrar baráttu hjartveikra barna í alþjóðlegri
vitundarviku og gefur nýburum sérhannaða rauða húfu