Morgunblaðið - 13.02.2019, Side 12

Morgunblaðið - 13.02.2019, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 Í tilefni af Valentínusardeginum er 15% afsláttur af völdum vörum hjá okkur 13. og 14. febrúar SOMPEX Rautt led kerti 18 cm Verð 7.490,- LUKKUTRÖLL Kiss miss - Love Verð 8.990,- stk. KAY BOJESEN Ástarfuglar Verð 14.990,- parið TARTELL TAKE Borðlampi rauður Verð 12.990,- RITZENHOFF Krús Verð 2.550,- RITZENHOFF Kampavínsglas Verð 2.550,- stk. CUERO Íslensk gæra Verð 14.900,- LUKKUTRÖLL Krúsir Verð 1.990,- stk. BIALETTI - MOKKA ESPRESSO rauð f/3 bolla Verð 5.290,- LÉKUÉ poppskál Verð 2.590,- COMPONIBILI Rauð 3ja hæða Verð 18.900,- 15% afslá ttur 13. og 14. f ebrúar af völdum vörum MIKKI MÚS Ást espresso bollar Verð 1.890,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ístarfi læknis erum við aðvinna með fólk í erfiðum að-stæðum og það kom mér áóvart hvað gert er ráð fyrir litlum tíma til að sinna mannlegu hlið- inni. Áherslan er því miður á að keyra áfram, enda mikið álag allsstaðar í heilbrigðiskerfinu, starfsfólk hefur nánast engan tíma til að gefa sér stund til að sýna þá nánd sem oft er nauðsyn- leg. Ég sem læknanemi hef minni skyldur og færri sjúklingum að sinna heldur en starfandi læknar, og fyrir vikið hef ég meira svigrúm. Starfandi læknir hefur ekki tíma til að sitja heilt kvöld á rúmstokki hjá manni sem ný- lega missti konuna sína og ræða við hann skáldsögur Halldórs Laxness og ljóð Hannesar Péturssonar, eins og ég gat gefið mér tíma til þegar ég fann að maðurinn þurfti á því að halda,“ segir Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknanemi á sjötta og síðasta ári í læknisfræði, sem skrifaði athyglis- verða hugleiðingu í nýútkomið Lækna- blað, en þar kom hún m.a. inn á hversu miklu máli henni finnst skipta að sýna samkennd sem læknir í samskiptum við sjúklinga. „Það er klárlega meiri áhersla á mannlega þáttinn í læknanáminu en áður var. Við læknanemar erum til dæmis látin gera samtalsæfingar í tengslum við að flytja slæmar fréttir, þá leikum við lækni og sjúkling í þeim aðstæðum. Við fáum til dæmis ákveðið módel um það hvernig segja skal manneskju slæm tíðindi, í hvernig skrefum það er gert. En vissulega er það allt annað að segja bekkjarbróður á slíkri æfingu að einhver nákominn sé dáinn, heldur en að þurfa að segja það við ókunna manneskju þegar um raun- verulegt andlát er að ræða. Reynslan mun auðvitað vera besti skólinn í því.“ Venjumst seint dauðanum Ingibjörg segist halda að allir heilbrigðisstarfsmenn fari í gegnum ákveðið ferli í tengslum við að sætta sig við dauðann. „Það er innbyggt í okkur mannfólkið að reyna að fresta dauðanum eins og hægt er. Og þeg- ar ekki er lengur hægt að fresta honum, þá er ákveðinn hjalli að kom- ast yfir að dauðinn sé eðlilegur hluti af lífinu. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég ákvað að vera í sex vikur á líknardeild í mínu vali á loka- árinu, því mér fannst ég þurfa að kynnast þessum hluta af lífinu að- eins betur,“ segir Guðrún Ingibjörg og bætir við að nú séu lífslok orðin henni aðeins kunnuglegri og eðli- legri, því margir hafi kvatt á þeim sex vikum sem hún hefur starfað á líknardeildinni. „En ég held að mað- ur venjist aldrei alveg dauðanum, heldur læri að umgangast hann.“ En hvernig gengur henni að að- skilja sig sem manneskjuna Guð- rúnu Ingibjörgu og verðandi lækni? Er ekki erfitt að passa að taka ekki allt inn á sig sem á sér stað í vinnunni, en leggja líka áherslu á að sýna samkennd og láta sig varða um sjúklingana? „Þetta er mjög fín lína og fólk er auðvitað mis-hlýlegt að eðlisfari. Ég get ímyndað mér að það sé ákveðin aðferð til að verja sig að vera fjarlægur í samskiptum við sjúklinga, líka til að brenna ekki hreinlega út. Enda kemur fram í nýrri könnun um líðan lækna á Ís- landi að um helmingur þeirra hefur íhugað að skipta um starf, vegna álagsins. Margir finna fyrir einkenn- um kulnunar og þunglyndis, svo það þarf vissulega að passa sig. Þetta er heilmikil kúnst að gefa af sér án þess að það ræni mann allri orku, en passa líka að vera ekki kaldur eða vélrænn í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur.“ Tárast með sjúklingum Guðrún Ingibjörg segir að það sé stór hluti af hennar persónuleika að vilja gefa af sér og það hafi átt sinn þátt í því að hún valdi að fara í lækn- isfræði. „Reyndar villtist ég hálfpart- inn í læknisfræði, en ég kann mjög vel við mig, sérstaklega í öllum þessum mannlegu samskiptum sem starfinu fylgja. En ég er meðvituð um að ég muni klárlega ekki hafa allan þann tíma sem ég vil til að sýna nánd þegar ég byrja að starfa í haust sem læknir á kandídatsári. En auðvitað getur maður alltaf reynt að gefa af sér inn- an þess tíma sem maður hefur, þó það megi auðvitað aldrei verða á kostnað læknisfræðinnar sjálfrar. Og ég veit vel að fólk hefur misjafnar áherslur, og vissulega þarf að passa að ganga ekki of langt inn í samkenndina. Mér finnst sjálfri allt í lagi að tárast með sjúkling- unum mínum ef svo ber undir, mér finnst það merki um að mér er ekki sama ef viðkomandi líður mjög illa. En öðrum finnst það alls ekki í lagi, þetta er eitthvað sem hver og einn þarf að meta fyrir sig. Og svo þarf maður að vera læs á persónu hvers og eins sjúk- lings, sumum hentar mögulega ekki að þeim sé sýnd tilfinningaleg nánd, á meðan aðrir fagna því. Alúð stendur ekki fyrir það sama hjá öllum, hver og einn verður að finna sína nálgun. Og það geta ekki allir sýnt sömu sam- kenndina, það er betra að sleppa því að segja eitthvað vélrænt sem á að vera huggandi ef þú meinar það ekki, því þá virkar það falskt. Þetta þarf að koma frá hjartanu.“ Hefur gaman af áskorunum Guðrún Ingibjörg hefur ekki ákveðið í hvaða sérnám hún ætlar sér, en hún kann vel við sig á bráða- móttökunni í Fossvoginum þar sem hún starfar núna, svo hún segir ekki ólíklegt að hún sérhæfi sig í bráða- lækningum. „Á bráðamóttökunni er mikill hraði og mjög lítill tími til að sinna hverjum og einum. Í slíkum massa- lækningum er það mikil áskorun að gefa af sér. Þegar maður sér tíu bein- brot á einni vakt þá verður hvert bein- brot lítið mál. En ef maður setur sig í spor þess sem beinbrotnar, þá er það meiri háttar mál fyrir viðkomandi og setur stórt strik í daglegt líf hans um langan tíma. Í hraða bráðadeildar er áríðandi að hafa þetta í huga. En þar sem ég hef alltaf haft gaman af áskor- unum þá er það hluti af því að ég heillast af því að starfa á bráða- móttökunni. Það er mikil áskorun að færa samkenndina inn í aðstæður þar sem mjög takmarkaður tími er fyrir hvern og einn sjúkling,“ segir Guðrún Ingibjörg sem fer eftir sitt kandídats- ár í sérnám til útlanda. „Ég tel allar líkur á að ég komi til baka til að starfa á Íslandi, því ég er mikill Íslendingur í mér og mig langar að búa hér.“ Að sýna samkennd skiptir máli Þegar Guðrún læknanemi sat í fyrsta sinn á rúmstokki dauðvona manns, fannst henni hún hjálparlaus, þar til hann hvíslaði: „Þakka þér fyrir að sitja hjá mér“. Þá áttaði hún sig á mikilvægi þess að gefa sér tíma til að sinna mannlegu hliðinni í starfinu sem bíður hennar. Morgunblaðið/Eggert Guðrún Ingibjörg Hún hefur gaman af áskorunum og hana langar í sérnám í bráðalækningum. Söguhringur kvenna hefur verið starfandi undanfarin tíu ár og er samstarfsverkefni Borgarbóka- safnsins og W.O.M.E.N, samtaka kvenna af erlendum uppruna. Glæsileg vordagskrá Söguhrings kvenna hefst n.k. sunnudag 17. febrúar á fyrsta hittingi ársins sem verður í Gerðubergi kl. 13.30 . Í til- kynningu kemur fram að þá verði Emiliana Torrini sérstakur gestur og öll þau spennandi verkefni sem eru framundan verða kynnt. Sögu- hringurinn er vettvangur fyrir sköp- un, fræðslu og samveru og í vor verður sérstök áhersla lögð á tón- list sem sameiginlegt tungumál. María Rut Reynisdóttir, verk- efnastjóri Tónlistarborgarinnar, mun kynna einstakt tækifæri til þess að taka þátt í þrískiptri tón- listarsmiðju undir leiðsögn Sigrún- ar Sævarsdóttur Griffith og annarra tónlistarkvenna. Einnig verður boð- ið upp á fræðslu og aðrar smiðjur í vor. Til dæmis er á dagskrá að safna saman uppáhaldsuppskriftum kvenna og útbúa sameiginlega upp- skriftabók. Nú er lag að hittast, spjalla og kynnast. Allar konur eru hjartanlega velkomnar og þátttaka er ókeypis. Kvennakraftur í Gerðubergi n.k. sunnudag Söguhringur kvenna fer af stað og Emiliana Torrini er gestur Söguhringur Konur á öllum aldri og víða að komnar njóta sín þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.