Morgunblaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019
Í tilefni af Valentínusardeginum
er 15% afsláttur af völdum vörum
hjá okkur 13. og 14. febrúar
SOMPEX Rautt
led kerti 18 cm
Verð 7.490,-
LUKKUTRÖLL
Kiss miss - Love
Verð 8.990,- stk.
KAY BOJESEN
Ástarfuglar
Verð 14.990,- parið
TARTELL TAKE
Borðlampi rauður
Verð 12.990,-
RITZENHOFF Krús
Verð 2.550,-
RITZENHOFF
Kampavínsglas
Verð 2.550,- stk.
CUERO
Íslensk gæra
Verð 14.900,-
LUKKUTRÖLL
Krúsir
Verð 1.990,- stk.
BIALETTI - MOKKA
ESPRESSO rauð f/3 bolla
Verð 5.290,-
LÉKUÉ poppskál
Verð 2.590,-
COMPONIBILI
Rauð 3ja hæða
Verð 18.900,- 15% afslá
ttur
13. og 14. f
ebrúar
af völdum
vörum
MIKKI MÚS Ást
espresso bollar
Verð 1.890,-
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ístarfi læknis erum við aðvinna með fólk í erfiðum að-stæðum og það kom mér áóvart hvað gert er ráð fyrir
litlum tíma til að sinna mannlegu hlið-
inni. Áherslan er því miður á að keyra
áfram, enda mikið álag allsstaðar í
heilbrigðiskerfinu, starfsfólk hefur
nánast engan tíma til að gefa sér stund
til að sýna þá nánd sem oft er nauðsyn-
leg. Ég sem læknanemi hef minni
skyldur og færri sjúklingum að sinna
heldur en starfandi læknar, og fyrir
vikið hef ég meira svigrúm. Starfandi
læknir hefur ekki tíma til að sitja heilt
kvöld á rúmstokki hjá manni sem ný-
lega missti konuna sína og ræða við
hann skáldsögur Halldórs Laxness og
ljóð Hannesar Péturssonar, eins og ég
gat gefið mér tíma til þegar ég fann að
maðurinn þurfti á því að halda,“ segir
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir,
læknanemi á sjötta og síðasta ári í
læknisfræði, sem skrifaði athyglis-
verða hugleiðingu í nýútkomið Lækna-
blað, en þar kom hún m.a. inn á hversu
miklu máli henni finnst skipta að sýna
samkennd sem læknir í samskiptum
við sjúklinga.
„Það er klárlega meiri áhersla á
mannlega þáttinn í læknanáminu en
áður var. Við læknanemar erum til
dæmis látin gera samtalsæfingar í
tengslum við að flytja slæmar fréttir,
þá leikum við lækni og sjúkling í þeim
aðstæðum. Við fáum til dæmis ákveðið
módel um það hvernig segja skal
manneskju slæm tíðindi, í hvernig
skrefum það er gert. En vissulega er
það allt annað að segja bekkjarbróður
á slíkri æfingu að einhver nákominn sé
dáinn, heldur en að þurfa að segja það
við ókunna manneskju þegar um raun-
verulegt andlát er að ræða. Reynslan
mun auðvitað vera besti skólinn í því.“
Venjumst seint dauðanum
Ingibjörg segist halda að allir
heilbrigðisstarfsmenn fari í gegnum
ákveðið ferli í tengslum við að sætta
sig við dauðann. „Það er innbyggt í
okkur mannfólkið að reyna að fresta
dauðanum eins og hægt er. Og þeg-
ar ekki er lengur hægt að fresta
honum, þá er ákveðinn hjalli að kom-
ast yfir að dauðinn sé eðlilegur hluti
af lífinu. Þetta er einmitt ástæðan
fyrir því að ég ákvað að vera í sex
vikur á líknardeild í mínu vali á loka-
árinu, því mér fannst ég þurfa að
kynnast þessum hluta af lífinu að-
eins betur,“ segir Guðrún Ingibjörg
og bætir við að nú séu lífslok orðin
henni aðeins kunnuglegri og eðli-
legri, því margir hafi kvatt á þeim
sex vikum sem hún hefur starfað á
líknardeildinni. „En ég held að mað-
ur venjist aldrei alveg dauðanum,
heldur læri að umgangast hann.“
En hvernig gengur henni að að-
skilja sig sem manneskjuna Guð-
rúnu Ingibjörgu og verðandi lækni?
Er ekki erfitt að passa að taka ekki
allt inn á sig sem á sér stað í
vinnunni, en leggja líka áherslu á að
sýna samkennd og láta sig varða um
sjúklingana?
„Þetta er mjög fín lína og fólk
er auðvitað mis-hlýlegt að eðlisfari.
Ég get ímyndað mér að það sé
ákveðin aðferð til að verja sig að
vera fjarlægur í samskiptum við
sjúklinga, líka til að brenna ekki
hreinlega út. Enda kemur fram í
nýrri könnun um líðan lækna á Ís-
landi að um helmingur þeirra hefur
íhugað að skipta um starf, vegna
álagsins. Margir finna fyrir einkenn-
um kulnunar og þunglyndis, svo það
þarf vissulega að passa sig. Þetta er
heilmikil kúnst að gefa af sér án þess
að það ræni mann allri orku, en
passa líka að vera ekki kaldur eða
vélrænn í samskiptum við sjúklinga
og aðstandendur.“
Tárast með sjúklingum
Guðrún Ingibjörg segir að það sé
stór hluti af hennar persónuleika að
vilja gefa af sér og það hafi átt sinn
þátt í því að hún valdi að fara í lækn-
isfræði. „Reyndar villtist ég hálfpart-
inn í læknisfræði, en ég kann mjög vel
við mig, sérstaklega í öllum þessum
mannlegu samskiptum sem starfinu
fylgja. En ég er meðvituð um að ég
muni klárlega ekki hafa allan þann
tíma sem ég vil til að sýna nánd þegar
ég byrja að starfa í haust sem læknir
á kandídatsári. En auðvitað getur
maður alltaf reynt að gefa af sér inn-
an þess tíma sem maður hefur, þó það
megi auðvitað aldrei verða á kostnað
læknisfræðinnar sjálfrar. Og ég veit
vel að fólk hefur misjafnar áherslur, og
vissulega þarf að passa að ganga ekki
of langt inn í samkenndina. Mér finnst
sjálfri allt í lagi að tárast með sjúkling-
unum mínum ef svo ber undir, mér
finnst það merki um að mér er ekki
sama ef viðkomandi líður mjög illa. En
öðrum finnst það alls ekki í lagi, þetta
er eitthvað sem hver og einn þarf að
meta fyrir sig. Og svo þarf maður að
vera læs á persónu hvers og eins sjúk-
lings, sumum hentar mögulega ekki að
þeim sé sýnd tilfinningaleg nánd, á
meðan aðrir fagna því. Alúð stendur
ekki fyrir það sama hjá öllum, hver og
einn verður að finna sína nálgun. Og
það geta ekki allir sýnt sömu sam-
kenndina, það er betra að sleppa því að
segja eitthvað vélrænt sem á að vera
huggandi ef þú meinar það ekki, því þá
virkar það falskt. Þetta þarf að koma
frá hjartanu.“
Hefur gaman af áskorunum
Guðrún Ingibjörg hefur ekki
ákveðið í hvaða sérnám hún ætlar sér,
en hún kann vel við sig á bráða-
móttökunni í Fossvoginum þar sem
hún starfar núna, svo hún segir ekki
ólíklegt að hún sérhæfi sig í bráða-
lækningum.
„Á bráðamóttökunni er mikill
hraði og mjög lítill tími til að sinna
hverjum og einum. Í slíkum massa-
lækningum er það mikil áskorun að
gefa af sér. Þegar maður sér tíu bein-
brot á einni vakt þá verður hvert bein-
brot lítið mál. En ef maður setur sig í
spor þess sem beinbrotnar, þá er það
meiri háttar mál fyrir viðkomandi og
setur stórt strik í daglegt líf hans um
langan tíma. Í hraða bráðadeildar er
áríðandi að hafa þetta í huga. En þar
sem ég hef alltaf haft gaman af áskor-
unum þá er það hluti af því að ég
heillast af því að starfa á bráða-
móttökunni. Það er mikil áskorun að
færa samkenndina inn í aðstæður þar
sem mjög takmarkaður tími er fyrir
hvern og einn sjúkling,“ segir Guðrún
Ingibjörg sem fer eftir sitt kandídats-
ár í sérnám til útlanda. „Ég tel allar
líkur á að ég komi til baka til að starfa
á Íslandi, því ég er mikill Íslendingur í
mér og mig langar að búa hér.“
Að sýna samkennd skiptir máli
Þegar Guðrún læknanemi sat í fyrsta sinn á rúmstokki dauðvona manns, fannst henni hún hjálparlaus, þar til hann hvíslaði: „Þakka þér
fyrir að sitja hjá mér“. Þá áttaði hún sig á mikilvægi þess að gefa sér tíma til að sinna mannlegu hliðinni í starfinu sem bíður hennar.
Morgunblaðið/Eggert
Guðrún Ingibjörg Hún hefur gaman af áskorunum og hana langar í sérnám í bráðalækningum.
Söguhringur kvenna hefur verið
starfandi undanfarin tíu ár og er
samstarfsverkefni Borgarbóka-
safnsins og W.O.M.E.N, samtaka
kvenna af erlendum uppruna.
Glæsileg vordagskrá Söguhrings
kvenna hefst n.k. sunnudag 17.
febrúar á fyrsta hittingi ársins sem
verður í Gerðubergi kl. 13.30 . Í til-
kynningu kemur fram að þá verði
Emiliana Torrini sérstakur gestur
og öll þau spennandi verkefni sem
eru framundan verða kynnt. Sögu-
hringurinn er vettvangur fyrir sköp-
un, fræðslu og samveru og í vor
verður sérstök áhersla lögð á tón-
list sem sameiginlegt tungumál.
María Rut Reynisdóttir, verk-
efnastjóri Tónlistarborgarinnar,
mun kynna einstakt tækifæri til
þess að taka þátt í þrískiptri tón-
listarsmiðju undir leiðsögn Sigrún-
ar Sævarsdóttur Griffith og annarra
tónlistarkvenna. Einnig verður boð-
ið upp á fræðslu og aðrar smiðjur í
vor. Til dæmis er á dagskrá að
safna saman uppáhaldsuppskriftum
kvenna og útbúa sameiginlega upp-
skriftabók. Nú er lag að hittast,
spjalla og kynnast. Allar konur eru
hjartanlega velkomnar og þátttaka
er ókeypis.
Kvennakraftur í Gerðubergi n.k. sunnudag
Söguhringur kvenna fer af stað
og Emiliana Torrini er gestur
Söguhringur Konur á öllum aldri og víða að komnar njóta sín þar.