Morgunblaðið - 13.02.2019, Síða 33

Morgunblaðið - 13.02.2019, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 Lego-myndin The LegoMovie sem kom út árið2014 var tæknilegt þrek-virki, skemmtileg, sniðug og hugmyndarík. Var þar kynntur til sögunnar síkáti byggingarverka- maðurinn Hemmi sem bjó í Kubba- borg þar sem allt var svo frábært, eins og kom fram í aðallagi mynd- arinnar sem auðveldlega límdist við heilann. Margt kom á óvart í þeirri mynd og þá sérstaklega tenging Lego-karla og -kvenna við hinn raunverulega heim, okkar heim. Í lok myndar kom hið óvænta í ljós, að Kubbaborg var sköpunarverk feðga nokkurra og að vondi karlinn í sögunni, Harðstjórinn, var í raun miðaldra faðir sem var að hindra sköpunarþörf sonarins með því að leyfa honum ekki að breyta borg- inni sem hann var búinn að eyða mörgum árum í að byggja í kjall- aranum. Og Kraglið, efnið sem Harðstjórinn notaði til að njörva andstæðinga sína endanlega niður, var í raun Krazy Glue, límið ógur- lega sem allt getur fest saman. Boðskapur þeirrar myndar var að mikilvægt væri að leyfa sköp- unargleðinni að njóta sín og fara ekki alltaf eftir leiðbeiningum (sem er í raun skondið þegar litið er til þess að Lego dælir út settum sem tengjast Lego-myndum og nauð- synlegt að fara eftir leiðbeiningum við samsetningu þeirra). Feðgarnir lærðu á́ endanum að vinna saman en pabbinn setti syninum þó það skilyrði að yrði að leyfa litlu systur sinni að vera með. Nýja myndin hefst nokkrum ár- um síðar, strákurinn er orðinn ung- lingur og litla systir um sjö eða átta ára. Kubbaborg hefur breyst í Dómsdagsborg eftir innrás geim- vera sem eru Duplo-kubbar syst- urinnar (Dómsdagsborg minnir á dystópíur á borð við Mad Max- myndirnar sem er bráðfyndið). Hemmi er þó alltaf jafnkátur, jafn- vel þótt allt sé farið til fjandans en unnusta hans, Lísa, er hins vegar ekki eins kát og ósátt við þróun mála. Dag einn mætir undarleg vera í geimskipi á svæðið og nemur Lísu á brott ásamt nokkrum öðrum persónum, m.a. Batman og kisunni Unukisu. Veran flytur þau til ann- ars sólkerfis, Systrakerfisins, sem er allt annars eðlis og fullt af skær- um litum og glimmeri. Hemmi kynnist harðjaxlinum Rex Hættu- spili og saman halda þeir í leið- angur til Systrakerfisins til að bjarga Lísu og félögum. Þar hitta þeir fyrir drottninguna Hvaðsemer en hún er gerð úr kubbum og getur breytt sér í hvað sem er, eins og nafnið gefur til kynna. Í þessum heimi má einnig finna verur úr Lego Friends-línunni sem hafa ekki áður sést í Lego-mynd. En ekki er allt sem sýnist í þessum heimi og ein persónan siglir undir fölsku flaggi, eins og kemur í ljós undir lokin. Hemmi og félagar reyna að afstýra Harmammageddon, Lego- heimsendi sem felst í því að þeim verður öllum steypt ofan í mikið hyldýpi þar sem þau þurfa að dúsa til eilífðarnóns. Í lokuðum kassa í dimmri geymslu, með öðrum orð- um. Þetta er ágætisframhald á fyrri mynd þó ekki nái það sömu hæðum hvað varðar söguna og hið óvænta, sem fyrr segir. Undarlegt tíma- flakk kemur við sögu sem bætir litlu við og mun líklega rugla yngstu áhorfendur í ríminu. Algjör- lega óþarfur útúrdúr það, verður að segjast. Og þó að margt sé skondið, bæði fyrir börn og fullorðna, þá var fyrri myndin fyndnari og meira um grín fyrir fullorðna áhorfedur. En þessi er samt skondin og skemmti- leg og sumt er bráðfyndið, til dæm- is atriði um lag sem fólk fær um- svifalaust á heilann – sem það einmitt gerir – og Bubbi Morthens kemur líka við sögu í Lego-formi en það ku vera Bruce Willis í frum- útgáfunni, þeirri bandarísku. Full- orðnir bíógestir hlógu dátt að því spaugi. Það verður líka að telja þessari mynd til tekna að kvenpersónur eru fleiri en í þeirri fyrri og þá líka sem aðalpersónur. Veit þó ekki hvort hún stenst Bechtel-prófið. Einnig er farið víðar yfir Lego- landslagið með því að leyfa Duplo og Friends að vera með en fyrri línan á að höfða til ungra barna og sú seinni til stúlkna, þó að auðvitað eigi strákar og stelpur að geta leik- ið sér að sama Lego-i og það er einmitt hluti af boðskap sögunnar. Allir eiga að geta leikið sér saman, óháð aldri og kyni. The Lego Movie 2 fer mjög vel af stað en missir dálítið dampinn þegar á líður og er þar heldur þunnri sögu um að kenna. Það gengur mikið á nánast frá upphafi til enda sem er bæði kostur og galli, kostur að því leyti að börn- unum ætti ekki að leiðast en stund- um er hamagangurinn fullmikill og liggur við að vara þurfi flogaveika við litríkustu og æsilegustu atrið- unum. Eins og flugeldapakki á ára- mótum eru sumar bomburnar lit- ríkar og skemmtilegar í The Lego Movie 2 en aðrar fretast upp í loft, gefa frá sér örlítið píp og blossa og detta svo niður. Margt er samt sniðugt í þessari framhaldsmynd og þó hún nái ekki sömu hæðum og fyrri myndin er al- gjörlega hægt að mæla með henni sem góðri skemmtun fyrir börn og fullorðna. Þá ber að geta þess að myndin er vel þýdd og íslensk tal- setning gallalaus. Að lokum vil ég benda þeim sem ætla að sjá myndina á að hlusta á lokalagið sem hljómar á meðan list- inn yfir þá sem gerðu myndina rennur yfir tjaldið. Hann er býsna glúrinn og fjallar í stuttu máli um hversu frábær sá fjölmenni hópur er. Enda alltaf þrekvirki að gera mynd á borð við þessa, hvort sem hún er frábær eða ekki. Fjörug en ekki frábær Geimferð Batman, Lísa og vinir þeirra í geimskipi dularfullrar veru á leið inn í Systrakerfið. Sambíóin The Lego Movie 2: The Second Part bbbmn Leikstjórn: Mike Mitchell. Handrit: Phil Lord, Christopher Miller og Matthew Fo- gel. Bandaríkin, 2019. 106 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR » Íslensk-sænska kvik- myndin Vesalings elskendur var frumsýnd í Smárabíói í gærkvöldi en almennar sýningar hefjast á morgun. Myndin er rómantísk gamanmynd og segir af bræðrum í leit að ást- inni. Leikstjóri mynd- arinnar er Svíinn Max- imilian Hult og leikarar íslenskir. Elskendur í Smárabíói Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Frumsýning Ester Talía, Elvar Aron, Alex Leo, Sara Dögg, Maximilian Hult og Sigurður Karlsson fyrir sýningu kvikmyndarinnar Vesalings elskendur. Kátar Margrét og María á frumsýn- ingunni í Smárabíói í gærkvöldi. Sæt saman Karítas Ósk Þorsteinsdóttir og Stefán Kjærnested. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.