Morgunblaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Það er okkar álit að það sé verið að
gera þetta með lögmætum hætti eins
og er gert. Að allir atkvæðisbærir
félagsmenn Eflingar, sem vinna
samkvæmt kjarasamningi um hótel
og veitingahús, greiði atkvæði um
vinnustöðvun sem þó er bundin við
hluta félagsmanna,“ segir Magnús
M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræði-
deildar ASÍ.
Í tilkynningu frá Samtökum at-
vinnulífsins sem barst fjölmiðlum í
gær var skorað á Eflingu að stöðva
framkvæmd atkvæðagreiðslu um
verkfallsaðgerðirnar sem fyrirhug-
aðar eru 8. mars, á grundvelli þess
að samtökin telja ólöglega staðið að
atkvæðagreiðslunni. Var vísað til
þess að samkvæmt lögum sé heimilt
að láta vinnustöðvun aðeins ná til
„ákveðins hóps félagsmanna en þá er
ákvörðun tekin með atkvæðum
þeirra sem vinnustöðvun er ætlað að
taka til“. Benda SA á að átta þúsund
félagsmenn Eflingar hafa atkvæðis-
rétt í atkvæðagreiðslu sem nær ein-
ungis til vinnustöðvunar 700 félags-
manna. Þá segir að SA hyggist höfða
mál gegn Eflingu fyrir félagsdómi
verði félagið ekki við kröfu samtak-
anna um að stöðva atkvæðagreiðsl-
una.
Efling sendi í gær frá sér frétta-
tilkynningu vegna áforma SA þar
sem stéttarfélagið lýsir vonbrigðum
með athugasemdir sem gerðar hafa
verið í tengslum við atkvæðagreiðsl-
una. Voru SA sökuð um að gera til-
raun til þess að hindra félagsmenn
Eflingar í að nýta lýðræðislegan rétt
sinn.
Engir dómar
Magnús segir löggjöfina bjóða upp
á að atkvæðagreiðsla verði haldin
meðal starfsmanna afmarkaðs hóps
og er þá gerð krafa um þátttöku
fimmtungs þeirra sem um ræðir til
þess að hún sé bindandi. Jafnframt
sé hægt að boða til allsherjar-
atkvæðagreiðslu meðal þeirra sem
heyra undir viðkomandi kjarasamn-
ing og þá sé ekki gerð krafa um þátt-
töku. Hins vegar er fátt sem kemur
fram í löggjöfinni um allsherjar-
atkvæðagreiðslu í tilfellum þar sem
um ræðir vinnustöðvun afmarkaðs
hóps. Spurður hvort fordæmi séu til
fyrir þessari aðferð svarar Magnús
að ekki hafi reynt á það. „Það hefur
ekki verið dæmt um þetta hingað
til,“ útskýrir hann.
Fleiri atkvæðagreiðslur
Atkvæðagreiðslan sem nú stendur
yfir er bundin við tillögu þess efnis
að um 700 félagsmenn Eflingar leggi
niður störf 8. mars frá klukkan tíu að
morgni til miðnættis sama dag. Þá
hafa þeir sem greiða atkvæði val
milli þess að samþykkja verkfallið,
hafna því eða taka ekki afstöðu.
Ítrekað hefur komið fram að VR,
Verkalýðsfélag Akraness og Verka-
lýðsfélag Grindavíkur, sem nú eru í
samfloti ásamt Eflingu, standa sam-
an að skipulagningu verkfalls-
aðgerða og að það stefni í fleiri verk-
föll en hingað til hafa verið boðuð. Ef
Efling hyggst taka þátt í frekari að-
gerðum mun þurfa kjósa um þær í
nýrri atkvæðagreiðslu meðal félags-
manna þar sem þær aðgerðir eru til-
greindar, að sögn Magnúsar.
Kosningabíll
Fulltrúar Eflingar hófu í gær
akstur færanlegs kjörstaðar í
merktu ökutæki sem ekið var á milli
vinnustaða og félagsmönnum þannig
gefið tækifæri til þess að kjósa.
„Þetta hefur alltaf tíðkast og stórir
vinnustaðir þar sem fólk á erfitt með
að komast frá hafa iðulega verið
heimsóttir. Til dæmis þegar þarf að
afgreiða kjarasamninga og þess
háttar,“ svarar Magnús þegar spurt
er hversu algengt sé að ekið sé milli
vinnustaða vegna atkvæðagreiðslu
innan stéttarfélags.
Til orðaskipta kom á milli Sólveig-
ar Önnu Jónsdóttur, formanns Efl-
ingar, og Árna Sólonssonar, eiganda
og framkvæmdastjóra City Park-
hótelsins í Ármúla, þegar kosninga-
bíllinn kom að hótelinu í þeim til-
gangi að veita starfsfólki þar tæki-
færi til þess að greiða atkvæði.
Fullyrti Sólveig Anna á Facebook að
Árni hefði reynt að hindra félags-
menn Eflingar í því að kjósa. Árni
sagði hins vegar í samtali við mbl.is í
gær að tímasetningin hefði hentað
illa þegar þau komu klukkan tólf og
hann hefði boðið þeim að koma
klukkan tvö í staðinn.
Framvindan við gerð kjarasamninga
2018
10. október
Samninganefnd Starfsgreinasam-
bands Íslands samþykkir kröfugerð
á hendur Samtökum atvinnulífsins
þar sem meðal annars er krafist 425
þúsund króna lágmarkslauna við lok
þriggja ára samningstíma. Einnig
er beint sérstökum kröfum að
stjórnvöldum, meðal annars um tvö-
földun persónuafsláttar til að gera
lægstu laun skattfrjáls. Öll nítján
aðildarfélög Starfsgreinasambands-
ins standa að kröfugerðinni.
14. febrúar
Starfs-
greina-
sambandið
(SGS) fær
tilboð frá
Samtökum
atvinnulífs-
ins á sömu
nótum og
það sem fé-
lögin fjögur
fengu á
sáttafundi
daginn
áður.
15. febrúar
Samninganefnd
Eflingar leggur
fram gagntilboð
og segir að þar sé
komið til móts við
kauphækkunarboð
Samtaka atvinnu-
lífsins, með því skil-
yrði að stjórnvöld
setji fram og standi
við skattkerfis-
breytingar. Samtök
atvinnulífsins hafna
gagntilboðinu.
18. febrúar
Sameyki,
sameinað
félag SFR
og Starfs-
mannafé-
lags Reykja-
víkurborgar,
kynnir
kröfugerð
fyrir
Reykja-
víkurborg.
20. febrúar
Formenn
Eflingar, VR,
Verkalýðsfé-
lags Akraness
og Verka-
lýðsfélags
Grindavíkur
fá umboð
frá sínum
félögum til
þess að slíta
viðræðum
við Samtök
atvinnulífs-
ins.
22. febrúar
Lands-
samband
íslenzkra
verslunar-
manna vísar
kjaradeilu
sinni við
Samtök at-
vinnulífsins
til ríkissátta-
semjara
25. febrúar
Atkvæða-
greiðsla
Eflingar um
verkfalls-
boðun
hefst. SA
telja fram-
kvæmdina
ólöglega og
hyggjast
höfða mál
fyrir Félags-
dómi.
15. október
Trúnað-
arráð VR
samþykkir
kröfugerð
þar sem
einnig er
krafist
425.000
króna lág-
markslauna
í lok samn-
ingstímans.
19. október
Fyrsti
samninga-
fundur
samn-
inganefnda
Starfs-
greinasam-
bandsins
og Samtaka
atvinnulífs-
ins haldinn.
26. nóvember
Góður gangur
er sagður vera í
kjaraviðræðun-
um og stór
viðfangsefni
komin upp á
borðið.
20. desember
Efling og
Verkalýðsfélag
Akraness, VLFA,
afturkalla samn-
ingsumboð sitt
frá Starfsgreina-
sambandinu.
Stjórn VR ákveð-
ur að fara fram
með Eflingu og
VLFA í kjaravið-
ræðunum.
21. des.
Félögin
þrjú vísa
kjara-
deilum
sínum
sameig-
inlega til
ríkis-
sátta-
semjara.
2019
8. janúar
Verkalýðsfélag
Grindavíkur aftur-
kallar samnings-
umboð sitt frá
Starfsgreinasam-
bandinu og vísar
kjaradeilu sinni
til ríkissáttasemj-
ara. Félagið óskar
eftir samstarfi
við VR, VLFA og
Eflingu.
13. febrúar
Samtök
atvinnulífsins
(SA) leggja fram
tilboð til lausnar
kjaradeilu
samtakanna við
félögin fjögur. Er
þar m.a. gert ráð
fyrir 20 þúsund
króna hækkun
mánaðarlauna á
ári næstu þrjú ár.
19. febrúar
Ríkisstjórnin
kynnir hug-
myndir um
nýtt neðsta
skattþrep í
tekjuskatti
sem verði
4 prósentu-
stigum
lægra til
þess að
lækka skattbyrði og nýtt viðmið í breytingum persónuaf-
sláttar. Forsvarsmenn launþegasamtaka og verkalýðsfé-
laga gagnrýna þessar hugmyndir harðlega og segja þær
ekki ganga nógu langt til að jafna kjör í landinu.
28. desember
Fyrsti samningafundur undir stjórn
ríkissáttasemjara.
21. febrúar
Á sáttafundi hjá ríkissáttasemjara slíta félögin
fjögur formlega viðræðunum við Samtök atvinnu-
lífsins. Starfsgreinasambandið vísar kjaradeilu
sinni við Samtök atvinnulífs-
ins til ríkissáttasemjara.
Samninganefnd Eflingar
samþykkir að láta fara fram
almenna atkvæðagreiðslu
um boðun eins dags vinnu-
stöðvunar 8. mars sem nái til
allra þrifa, á öllum hótelum
og gistihúsum innan höfuð-
borgarsvæðisins, Hveragerð-
is og Sveitarfélagsins Ölfuss.
Greiða atkvæði um eina aðgerð
Aldrei reynt á aðferð atkvæðagreiðslu Eflingar fyrir dómi Frekari aðgerðir kalla á fleiri atkvæðagreiðslur
Morgunblaðið/Hari
Eflingarbíll Atkvæðagreiðsla félagsmanna hófst í gær. Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður Eflingar, ferðaðist með færanlegum kjörstað félagsins.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Ekki er heimilt að skipta um stéttar-
félag eða ganga úr félagi þegar
kjaradeila er hafin, segir Magnús M.
Norðdahl, deildarstjóri lögfræði-
deildar ASÍ. „Síðan er það svolítið
teygjanlegt hvenær kjaradeila er
hafin. Það byggist á skilgreiningu
laga hvers stéttarfélags,“ útskýrir
hann.
Fram kom í umfjöllun Morgun-
blaðsins í gær að nokkrir félags-
menn VR hefðu óskað eftir úrsögn
úr félaginu, en þeir hefðuverið upp-
lýstir um að þeim væri ekki heimilt
að segja sig úr félaginu eftir að
kjaradeilu hefði verið vísað til ríkis-
sáttasemjara.
„Meðlimur stéttarfélags hættir að
vera bundinn af samþykktum félags
síns og sambands þess þegar hann,
samkvæmt reglum félagsins, er far-
inn úr því,“ segir í lögum um stéttar-
félög og vinnudeilur. Þá segir í lög-
um VR að „enginn getur þó sagt sig
úr félaginu, eftir að kröfugerð í
vinnudeilu hefur verið vísað til ríkis-
sáttasemjara og þar til samningar
hafa náðst“. Ákvæði laga Eflingar
eru ekki jafn skýr, en þar kemur
fram að „enginn getur sagt sig úr fé-
laginu meðan viðræður um kjara-
samninga, vinnudeila sem snertir
kaupgjald eða vinnuskilmála við-
komandi félagsmanna stendur yfir.“
Þrátt fyrir að stéttarfélög hafi
mismunandi ákvæði segir Magnús
vera takmörk fyrir því hversu langt
sé hægt að teygja skilgreiningar-
atriði. „Það er algjörlega ljóst að
þegar viðræður eru komnar til ríkis-
sáttasemjara sökum árangursleysis,
þá er það orðið of seint fyrir úr-
sögn.“ Væru ekki slík ákvæði um
bundna aðild þegar kjaradeilur eru
annars vegar segir Magnús að verk-
föll yrðu erfið í framkvæmd.
Úrsögn óheimil í kjaradeilu
Verkföll erfið í framkvæmd, væru ekki slík ákvæði
Morgunblaðið/Hari
Kjör Ekki er hægt að segja sig úr
félagi eftir að kjaradeila er hafin.
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblásarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB
Kjaradeilur