Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 11

Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Morgunblaðið/Golli Óvissa Skip að loðnuveiðum fyrir utan Þorlákshöfn fyrir fimm árum. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Menn eru ekki úrkula vonar um að eitthvað finnist af loðnu og leyft verði að veiða, en þetta lítur ekki vel út og ekki annað hægt en að vera raunsær í þeim efnum,“ segir Sigur- geir Brynjar Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Sigurgeir segir að það hefði gríðarleg áhrif á allt sam- félagið í Vestmannaeyjum yrði ekki leyft að veiða loðnu í vetur. Í tilviki Vinnslustöðvarinnar bætist það við ástandið í humarveiðum, sem hafa dregist saman síðustu ár og á þessu ári er humarkvótinn mjög lítill. Ræða framhald vöktunar í dag Loðnuleiðangri lauk um helgina og segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrann- sóknastofnunar að niðurstaðan hafi verið vonbrigði. Mjög lítið hafi mælst fyrir norð- an og vestan í við- bót við það sem sást fyrir Suð- austurlandi í upp- hafi þessarar yfirferðar og hafði áður verið mælt í leiðöngr- um vetrarins. Þétt var farið yfir svæðið frá Suð- austurlandi á móti hefðbundinni loðnugöngu og endað úti af Vest- fjörðum. Auk rannsóknaskipa tóku tvö íslensk veiðiskip þátt í leiðangr- inum og einnig 1-2 norsk skip um tíma. Framhald vöktunar verður rætt í samráðshópi Hafrannsóknastofnun- ar og útgerða uppsjávarskipa í dag. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem verið hefur við loðnuleit undan- farið, fer í marsrall eða togararall um miðja vikuna. Sigurgeir Brynjar segir að það myndi hafa gríðarleg áhrif á sam- félagið í Vestmannaeyjum ef engar loðnuveiðar yrðu í vetur. Þar sé um þriðjungur loðnukvótans; Ísfélagið með 20%, Vinnslustöðin tæplega 11% og Huginn tæp 2%. Fyrir tveim- ur árum hafi loðna fundist um miðj- an febrúar sem gaf íslenskum skip- um um 190 þúsund tonna kvóta. Áætlað hefði verið að sá afli gæfi um 17 milljarða króna í útflutningsverð- mæti og tæplega þriðjungur þeirrar upphæðar skipti fyrirtækin í Vest- mannaeyjum gríðarlega miklu máli. Gjöld til hins opinbera Þá hefði hann jafnframt speglað skattspor Vinnslustöðvarinnar yfir á þennan tæplega 200 þúsund tonna loðnukvóta. Í vasa launafólks hefðu runnið um 3,3 milljarðar og um 500 milljónir í lífeyrissjóði. Beinar tekjur ríkis og sveitarfélaga hefðu numið um 3,5 milljörðum t.d. með útsvari, tekjuskatti og veiðigjöldum, sem og skatti af hagnaði. Óbeinar tekjur hins opinbera vegna kaupa fyrir- tækja á þjónustu og aðföngum eins og olíu og veiðarfærum hefðu skilað ríkinu svipaðri upphæð. Fólk greiddi síðan skatta og gjöld af neyslu, sem hækkaði þessa tölu enn frekar. Í vasa fyrirtækjanna hafi svo runnið um 1,7 milljarðar sem nýttist til af- borgana lána, fjárfestinga og arð- greiðslna. Sigurgeir segir að humarafli hafi dregist saman ár frá ári, en miðað við stöðuna fyrir 3-4 árum hefði Vinnslustöðin tapað um 500 milljón- um króna í tekjum á þeim sam- drætti. Samvinna til fyrirmyndar Hann áætlar að loðnuleitin í vetur hafi til þessa kostað útgerðir loðnu- skipa hátt í 120 milljónir, en kostn- aður vegna þátttöku loðnuskipa skiptist á útgerðir samkvæmt hlut- deild í loðnu. Hann segir líklegt að áfram verði svipast um til að kanna hvort eitthvað bætist við. „Á þessu stigi verður það þó að segjast að samvinna útgerðanna, Hafrannsóknastofnunar og sjávar- útvegsráðuneytisins hefur verið til fyrirmyndar. Það hefur verið vel að þessu staðið, fiskifræðingarnir hafa lagt sig fram og í ráðuneytinu er greinilega engin vitleysa í gangi núna,“ segir Sigurgeir Brynjar. Raunsæir en ekki úrkula vonar  Lítið bættist við í loðnuleit sem lauk um helgina  Hefði mikil áhrif á samfélagið í Vestmannaeyjum yrði ekki loðnuvertíð  Hjá Vinnslustöðinni bætist brestur í humarveiðum við óvissuna í loðnunni Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur falið fjármálastjóra sveitarfélagsins að fara yfir fjárhagsleg áhrif loðnu- brests á tekjur aðalsjóðs og hafnar- sjóðs bæjarins og leggja fyrir bæjar- ráð. Þetta var niðurstaða fundar ráðsins sem kom saman í gær. Í fundargerð ráðsins segir að ljóst sé að ef loðna finnist ekki í nægjan- legu magni á Íslandsmiðum á yfir- standandi vertíð verði áhrifin mikil á mörg sveitarfélög, þar sem upp- sjávarvinnsla sé mikilvægur þáttur í sjávarútvegi þeirra. „Óvíða er uppsjávarvinnsla meiri en í Fjarðabyggð og ljóst er að loðnubrestur mun hafa mikil áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Þá er einn- ig mikið áhyggjuefni að ekki er búið að ljúka samningum um kolmunna- veiðar í færeyskri lögsögu, sem ekki síður hefur mikil áhrif á sjávar- útvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð,“ segir í fundargerðinni. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að fara vel yfir stöðu þessara mála, enda sé það mikið hagsmunamál fyr- ir sveitarfélög, fyrirtæki og ríki, þar sem um sé að ræða verulegan hluta útflutningsverðmæta sjávarútvegs á Íslandi, eins og segir í fundargerð- inni. Loðnubrestur muni hafa mikil áhrif  Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð uggandi Morgunblaðið/Ómar Loðnuvinnsla Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð vilja að farið verði yfir áhrif loðnubrests á tekjur aðalsjóðs og hafnarsjóðs bæjarfélagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.