Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði
GLÆSILEGUR BORÐBÚNAÐUR
FYRIR HÓTEL OG VEITINGASTAÐI
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég hef haldið þeirri meginreglu að
vera helst ekki nema 10 ár á hverj-
um stað. Nú eru komin 12 ár hjá
Keili. Þess vegna var það löngu
ákveðið að ég myndi hætta á þessu
ári og það var tilkynnt með góðum
fyrirvara,“ segir
Hjálmar Árna-
son, fram-
kvæmdastjóri
Keilis - mið-
stöðvar vísinda,
fræða og atvinnu-
lífs á Ásbrú í
Reykjanesbæ.
Auglýst hefur
verið eftir nýjum
framkvæmda-
stjóra. Hjálmar segist verða viðloð-
andi reksturinn fram eftir árinu.
„Svo eldast menn,“ bætir hann
við, „menn mega ekki láta unglegt
útlit blekkja sig.“ Hjálmar verður
sjötugur á síðari hluta næsta árs.
Hann segir að verkefnin hafi haldið
honum ungum.
„Ég er ekki að setjast í helgan
stein. Er kominn með alls konar
verkefni, bæði launuð og ólaunuð,
en ætla ekki að vera í fastri vinnu,“
segir Hjálmar. Nefnir hann eitt
þeirra, stofnun Gönguhóps Suður-
nesja á dögunum sem 600 skráðu sig
í á stundinni. Það tengist einu af
mörgum áhugamálum Hjálmars,
fjallgöngum.
Margt eftir að skoða
„Ég hef gaman af að ferðast.
Við erum búin að skoða margt en
eigum eftir að skoða meira,“ segir
hann. Hjálmar var einmitt staddur á
Grænhöfðaeyjum í gær með eigin-
konu sinni, Valgerði Guðmunds-
dóttur, menningarfulltrúa Reykja-
nesbæjar. Þar er verið að byggja
upp ferðaþjónustu og því margt
frumstætt. Hann nefnir að þau hafi
farið í skoðunarferð, standandi aftan
á pallbíl eins og ISIS-skæruliðar.
Hann er ekki í vafa um að eftir tíu
ár verði ferðaþjónustan blómleg at-
vinnugrein á Grænhöfðaeyjum.
Hjálmar starfaði sem kennari
áður en hann tók við stöðu skóla-
meistara Fjölbrautaskóla Suður-
nesja á árinu 1985. Því starfi gegndi
hann í tíu ár. Hann var þingmaður
Framsóknarflokksins í tólf ár en tók
síðan að sér að leiða uppbyggingu
Keilis á árinu 2007 sem fram-
kvæmdastjóri.
Keilir einstakur
„Mér hefur alltaf þótt það starf
skemmtilegast sem ég er að sinna á
hverjum tíma. Ég sagði þetta þegar
ég var á þingi og í starfi skólameist-
ara,“ segir Hjálmar þegar hann er
spurður um áhugaverðasta verk-
efnið á ferlinum. „En Keilisverk-
efnið er einstakt, að búa til nýjan
skóla við mjög sérstakar aðstæður.
Það hefur verið afskaplega ögrandi
og skemmtilegt verkefni sem ég hef
unnið með frábærum hópi. Það
verður erfiðast á þessum tíma-
mótum að hætta að hitta þennan
skemmtilega og kraftmikla hóp á
hverjum degi.“
Yfir 3.000 nemar hafa útskrif-
ast frá Keili á þessum tíma. „Ég hef
upplifað gleðina hjá nemendum sem
margir hverjir hafa verið að fá ann-
að tækifæri í lífinu til að læra. Þá
gleði tekur maður með sér,“ segir
Hjálmar.
Bankahrunið var árið eftir að
Keilir tók til starfa og hann hefur
því gengið í gegnum erfiða tíma en
þó verið í stöðugri sókn. Þar er
starfrækt háskólabrú, flugakademía
og íþróttaakademía. Nýjasta skraut-
fjöðrin er tölvuleikjagerð. Það er ný
námsleið til stúdentsprófs með
áherslu á tölvuleikjagerð og verður í
boði frá næsta hausti, samkvæmt
samningi við menntamálaráðu-
neytið.
Samkvæmt nýrri samantekt
stunda hátt í 700 nemendur nám við
skólann á þessu skólaári. Nemendur
háskólabrúar eru fjölmennastir eða
317 talsins í stað- og fjarnámi.
Hjálmar er stoltur af uppbygg-
ingunni, eins og fram kemur hér að
framan.
Umsóknarfrestur um stöðu
framkvæmdastjóra rennur út 10.
mars. Hjálmar segir að stjórnin
muni taka sér góðan tíma til að
finna rétta persónuleikann í starfið
enda sé það mikilvægt.
Ljósmynd/Keilir
Flugkennsla Flugakademían er vaxandi deild hjá Keili. Þar er hægt að fara í einka- og atvinnuflugnám, fá rétt-
indi til flugkennslu og læra flugvirkjun í samvinnu við AST, sem er áratugagamall flugvirkjaskóli í Skotlandi.
Ögrandi og skemmtilegt
verkefni að búa til skóla
Hjálmar Árnason hættir í ár eftir 12 ára starf sem framkvæmdastjóri Keilis
Hjálmar
Árnason
Þrír keppendur úr Hnefaleikafélagi
Kópavogs tóku þátt á sterku hnefa-
leikamóti á Norður-Írlandi um
helgina og náðu þar góðum árangri.
Emin Kadri Eminsson keppti við Ír-
ann Charlie Ward úr Mullinger
Elite og sigraði Emin örugglega.
Emin var einnig valinn besti boxari
mótsins og hlaut viðurkenningu fyr-
ir það. Jafet Örn Þorsteinsson
keppti við Írann Jack Gonroy úr
Mullingar Elite en þurfti að lúta í
lægra haldi eftir jafnan bardaga.
Þess má geta að Jack vann til silfur-
verðlauna á seinasta ári á EM í
hnefaleikum. Kristján Ingi Krist-
jánsson keppti við Bretann Tim Ola
frá Romford BC og tapaði á klofinni
dómaraákvörðun en viðureignin var
hnífjöfn og þótti vera viðureign
kvöldsins.
Næsta mót Hnefaleikafélags
Kópavogs verður 16. mars næstkom-
andi. Er það er 100 ára minningar-
mót Guðmundar Arasonar, hnefa-
leikakappa og athafnamanns, og
verður mótið haldið í húsakynnum
félagsins við Smiðjuveg í Kópavogi.
Góður árangur box-
ara úr Kópavogi
Hnefaleikar Boxarar úr Kópavogi kepptu á Norður-Írlandi um helgina.
Búið er að taka skýrslu af bæði öku-
mönnum og farþegum í umferðar-
slysi sem varð þegar tveir bílar rák-
ust saman á Suðurlandsvegi, austan
við Hjörleifshöfða, um miðjan
mánuðinn.
Um harðan árekstur var að ræða
og segir Oddur Árnason, yfirlög-
regluþjónn á Suðurlandi, rannsókn
slyssins enn vera í gangi en lögregla
bíður m.a. eftir frekari rannsóknar-
gögnum og áverkavottorðum.
Hann segir þó ekkert hafa komið
fram sem hreki þá skoðun lögreglu
að annar bíllinn hafi snúist í hálku
og farið yfir á öfugan vegarhelming
og það hafi orðið til þess að öku-
tækin skullu saman.
Búið er að útskrifa þann bílstjóra
sem slasaðist af Landspítalanum en
báðir farþegarnir liggja þar enn að
sögn lögreglu. Þeir slösuðust meira
og þurfti m.a. að beita klippum við
að ná þeim út úr bílunum.
Ökumenn og far-
þegar í skýrslutöku
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Umferð Frá vettvangi slyssins.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur vísað frá kæru
veiðifélags Árnesinga, Náttúru-
verndarsamtaka Íslands og nátt-
úruverndarfélagsins Laxinn lifi,
vegna útgáfu Matvælastofnunar á
rekstrarleyfi fyrir allt að 500 tonna
seiðaeldi á ári í seiðaeldisstöð Laxa
fiskeldis ehf. í Þorlákshöfn.
Niðurstaða nefndarinnar byggist
á því að náttúrverndarfélögin upp-
fylli ekki skilyrði til kæruaðildar að
málinu þar sem fyrir liggi ákvörð-
un Skipulagsstofnunar um að fram-
kvæmdin sé ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum.
Þá vísaði nefndin einnig frá kæru
veiðifélagsins með þeim rökum að
það hefði ekki raunhæft gildi fyrir
lögvarða hagsmuni þess að fá leyst
úr ágreiningi um lögmæti rekstrar-
leyfisins.
Kæru vegna seiða-
eldis vísað frá