Morgunblaðið - 26.02.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 26.02.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 SMÁRALIND www.skornirthinir.is VATNSHELDIR SKÓR Lytos Cosmic Run er léttur alhliða útivistarskór Verð 22.995 Stærðir 36 - 47 Innsóli: Anatomico Ortholite Sóli: Vibram Skyrunning Advanced Þyngd: 361 gr (í stærð 42) 26. febrúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.39 119.95 119.67 Sterlingspund 155.38 156.14 155.76 Kanadadalur 90.29 90.81 90.55 Dönsk króna 18.132 18.238 18.185 Norsk króna 13.839 13.921 13.88 Sænsk króna 12.753 12.827 12.79 Svissn. franki 119.22 119.88 119.55 Japanskt jen 1.0763 1.0825 1.0794 SDR 166.05 167.03 166.54 Evra 135.32 136.08 135.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.6792 Hrávöruverð Gull 1322.25 ($/únsa) Ál 1890.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.96 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Landsbankinn hf. hefur fallist á að greiða 15 milljóna króna sekt til Fjár- máleftirlitsins vegna tvíþætts brots á lögum um verðbréfaviðskipti. Í sam- komulagi, sem birt er á vefsíðu Fjár- málaeftirlitsins, kemur fram að Lands- bankinn hafi viðurkennt að hafa láðst að tilkynna um breytingu á veruleg- um hlut atkvæðisréttar í leigufélaginu Heimavöllum hf. Þá viðurkennir Lands- bankinn einnig að hafa láðst að tilkynna um breytingu á verulegum hlut atkvæð- isréttar í Heimavöllum innan lögbund- ins tímafrests. Brotin varða 78. og 86. gr. verð- bréfaviðskiptalaga er varða flöggunar- skyldu en Landsbankinn var eigandi að hlutum í Heimavöllum og var eignar- hlutur bankans yfir 5% af útgefnu hlutafé í fyrirtækinu. Þann 7. júní fór eignarhlutur Landsbankans undir 5% af útgefnu hlutafé án þess að tilkynnt væri um viðskiptin. Hinn 11. júní fór eignar- hlutur bankans yfir 5% á ný og láðist að tilkynna það innan settra tímamarka. 15 milljóna króna sekt Landsbankans STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Seðlabanki Íslands fer þess á leit við ríkissjóð að þær sektir og sátta- greiðslur sem lagðar voru á ein- staklinga og lögaðila á árunum 2009 til 2011 vegna meintra brota gegn lögum og reglum um gjaldeyrishöft, verði endurgreiddar. Nú sé orðið ljóst að skort hafi á heimildir í lög- um til að knýja á um slíkar sátta- og sektargreiðslur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér síðla dags í gær. Beiðnin er að sögn bankans lögð fram, nú þegar ríkissaksóknari hefur, í svari við fyrirspurn sem Seðlabankinn beindi til hans, tekið af allan vafa um að „reglusetningarheimild í bráða- birgðaákvæði laga um gjaldeyris- mál hafi ekki uppfyllt áðurnefnd skilyrði um framsal lagasetningar- valds og skýrleika reglusetningar- heimilda. Þar með gætu reglur um gjaldeyrismál, sem settar voru á grundvelli bráðabirgðaákvæðisins, ekki talist gildar sem refsiheimild“. Þess krafist að bankinn endurskoðaði ákvörðun sína Þar vísar Seðlabankinn til álita- máls sem Umboðsmaður Alþingis tók til umfjöllunar í áliti sem birt var í janúar síðastliðnum vegna kvörtunar sem Þorsteinn Már Bald- vinsson, forstjóri Samherja, hafði lagt fram vegna afgreiðslu Seðla- bankans á kröfu hans þess efnis að bankinn afturkallaði, að eigin frum- kvæði, stjórnvaldsákvörðun vegna brota gegn reglum um gjaldeyris- mál. Í niðurstöðu Umboðsmanns kem- ur fram að við meðferð málsins hafi Seðlabankinn ekki tekið afstöðu til röksemda sem lutu að ummælum sem ríkissaksóknari lét falla 20. maí 2014 um gildi laga og reglna um gjaldeyrismál sem refsiheimilda. Frá því að Umboðsmaður birti álit sitt hefur Seðlabankinn haft til skoðunar hvað í álitinu felst og leiddi sú skoðun til þess að bankinn sendi áðurnefnda fyrirspurn á rík- issaksóknara. Allt fram til gærdags- ins hefur Seðlabankinn haldið því fram að refsiheimildir bankans hafi verið skýrar. Vísar bankinn í yfir- lýsingu sinni til nokkurra atriða þeirri afstöðu til varnar. Þannig hafi bankinn fengið utanaðkomandi lögfræðiálit sem staðfest hafi þá skoðun, ráðuneytið, sem farið hafi með málaflokkinn hafi auk þess ver- ið sama sinnis. Þá hafi það verið niðurstaða Lagastofnunar Háskóla Íslands í úttekt á stjórnsýslu Seðla- bankans við framkvæmd gjald- eyriseftirlitsins sem unnin var að beiðni bankaráðs bankans. Enn fremur segir í yfirlýsingu bankans að hann hafi talið „vilja löggjafans skýran um þetta efni og því fram- fylgt fjármagnshöftunum með viðurlögum í ljósi þeirra ríku al- mannahagsmuna sem þeim var ætl- að að vernda“. Nú hefur Seðlabankinn hins veg- ar, í ljósi yfirlýsingar ríkissaksókn- ara, óskað eftir því að fallið verði frá ákvörðunum sem teknar voru á grundvelli laganna sem giltu á ára- bilinu 2008 til 2011, eða þar til að ný löggjöf gekk í gildi undir lok síðar- nefnda ársins. Snýr endurskoðunin að 18 málum og nema fjárhæðirnar í þeim alls um 40 milljónum króna, samkvæmt svari Seðlabankans við fyrirspurn Morgunblaðsins. Meira endurgreitt Í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag var greint frá því að af þeim sektum og sáttagreiðslum sem Seðlabankinn lagði á einstaklinga og lögaðila á árabilinu 2012-2018, á grundvelli nýrrar lagasetningar, hefur bankinn verið látinn, fyrir til- stilli dóma Hæstaréttar, endur- greiða um 114 milljónir króna af þeim ríflega 204 milljónum sem bankinn hafði innheimt á grundvelli sekta og sáttagreiðslna vegna meintra brota gegn lögum um gjaldeyrismál á því tímabili. Seðlabankinn fellur frá sektum og sáttagreiðslum Morgunblaðið/Golli Afturreka Enn á ný er Seðlabankinn knúinn til þess að falla frá íþyngjandi ákvörðunum sem tengjast gjaldeyriseftirliti bankans. Því var komið á laggirnar árið 2009 en hefur sætt mikilli gagnrýni vegna framgöngu starfsmanna þess.  Bankinn óskar eftir því að ríkissjóður endurgreiði 40 milljónir króna Þann 25. janúar var fyrirtækið Tesla Motors Iceland ehf. stofnað og er fyrirtækið með lögheimili í Efstaleiti 5. Þar er Lögmannsstofan Logos með aðsetur en hún annaðist stofnun fé- lagsins. David Jon Feinstein er skráður stjórnarformaður fyrirtækis- ins, en hann er titlaður framkvæmda- stjóri alþjóðaviðskipta og nýrra markaða hjá Tesla. Í ÍSAT atvinnu- greinaflokkun RSK er starfsemi fyrirtækisins flokkuð sem bílasala. Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá Tesla um fyrirhugaða opnun starfsstöðvar hér á landi. Til svara varð fulltrúi Tesla í Noregi, Even Sandvold Roland. Staðfesti hann að Tesla vinni að opnun hér á landi en bætti hann við að nánari upplýsinga um þau umsvif yrði að vænta innan skamms. Vildi flýta ferlinu Feinstein er einnig skráður stjórn- armaður í nýstofnuðu fyrirtæki Tesla í Póllandi en það var skráð þar í upp- hafi þessa árs, að því er fram kemur á pólsku rafbílavefsíðunni Elektro- woz.pl. Samkvæmt fyrirtækjaskrá í Tékklandi var sams konar fyrirtæki einnig stofnað í Tékklandi í desember síðastliðnum. Þar er Feinstein einnig skráður í stjórn. Í maí á síðasta ári sagðist Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, ætla sér að flýta komu Tesla til Íslands eftir að árvökull Twitter-notandi hafði bent frumkvöðlinum á háar sölutölur raf- bíla hér á landi. Baðst Musk á þeim vettvangi einnig afsökunar á töfinni og þakkaði fyrir að hafa fengið þær upplýsingar. Í lok árs 2018 var fjöldi hreinna rafbíla 2.681 á Íslandi sam- kvæmt tölum EAFO og stækkaði flotinn um 37% frá árinu 2017 er 1.956 rafbílar voru skráðir hér á landi. peturhreins@mbl.is AFP Tesla Búið er að stofna fyrirtækið Tesla Motors Iceland hér á landi. Tesla Motors Ice- land ehf. stofnað  Rafbílaframleið- andinn þreifar fyr- ir sér hér á landi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.