Morgunblaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Vætutíð Rignt hefur linnulítið á réttláta sem rangláta í höfuðborginni undanfarna daga. Þessir íbyggnu ferðamenn voru við votviðrinu búnir á göngu sinni upp hinn litríka Frakkastíg. Eggert Eitt af baráttu- málum Sambands ís- lenskra sveitarfélaga er að ríkið komi að því með sveitarfélög- unum að ljúka upp- byggingu á fráveitu- kerfum landsins. Sú umræða er ekki ný af nálinni og raunar voru sett lög árið 1995 um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af fráveituframkvæmdum sveitarfé- laga til ársins 2008. Náðust fram miklar umbætur um land allt á gildistíma lagannna. Óumdeilt er að verkefninu var hvergi nærri lokið enda voru aðstæður sveitar- félaga til þess að ráðast í stórar fjárfestingar á þessum tíma mis- jafnar. Eðlileg fjármögn- unarkrafa af hálfu sveitarfélaga Í þessu samhengi er rétt að minna á, að sveitarfélög á Íslandi hafa verulegar skyldur á sviði umhverfismála. Í mörgum tilvikum er um að ræða innleið- ingu löggjafar frá Evrópusambandinu, sem er skylt að lög- festa á Íslandi á grundvelli EES-samningsins og gerir skýrar kröfur í fráveitu- málum. Þessum kröfum eru sveitarfélög landsins, eðli máls samkvæmt, misjafnlega vel í stakk búin til að mæta. Það er eðlileg og réttmæt krafa, að þegar Alþingi samþykkir lög- gjöf sem felur í sér aukin útgjöld fyrir sveitarfélögin, komi ríkið að fjármögnun þeirra verkefna. Reynslan sýnir því miður að fátítt er að ríkið komi með beinum hætti að málum með þessum hætti, heldur er venjan almennt sú að sveitarfélögum er gert að standa ein undir slíkum fjárfestingum, á sama tíma og þeim ber einnig að fylgja ákvæðum sveitarstjórnar- laga um að skulda ekki meira en sem nemur 150% af reglulegum tekjum sínum. Virðisaukaskattur á klóak- og fráveitukerfi? Á landsþingi sambandsins sl. haust fögnuðu sveitarstjórnar- menn fréttum um að komið væri fram frumvarp þess efnis, að sveitarfélögum skyldi endur- greiddur virðisaukaskattur af fráveituframkvæmdum. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Jón Gunnarsson, formaður um- hverfis- og samgöngunefndar Al- þingis, og á hann þakkir skildar fyrir frumkvæðið. Verra er reynd- ar, að nærri hálfu ári síðar er ekk- ert að frétta af málinu. Fyrsta umræða um frumvarpið hefur ekki einu sinni farið fram! Þetta verður að teljast með nokkrum ólík- indum, í ljósi mikilvægis málsins sem hér um ræðir. Það skiptir sveitarfélögin miklu að fá endurgreitt sem nemur 20% af heildarkostnaði við fráveitu- mannvirki enda er hér um að ræða meiriháttar fjárfestingar á mælikvarða allra sveitarfélaga. Á meðan lagabreytingar sem sveitarfélögin hafa lengi kallað eftir ganga ekki í gegn, eru mest- ar líkur á að sveitarstjórnir haldi að sér höndum þrátt fyrir að óumdeilt sé, að þörfin á þessum framkvæmdum er mjög brýn víða um land. Skorað á Alþingi að ljúka málinu Fyrir hönd sveitarfélaganna í landinu skora ég hér með á al- þingisþingmenn að koma um- ræddu frumvarpi á dagskrá þingsins og tryggja því jafnframt brautargengi þannig að það verði að lögum fyrir þinglok í vor. Eftir Aldísi Hafsteinsdóttur » Það er eðlileg krafa, að þegar Alþingi samþykkir löggjöf sem felur í sér aukin útgjöld fyrir sveitarfélögin, komi ríkið að fjármögnun þeirra verkefna. Aldís Hafsteinsdóttir Höfundur er formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga. aldis@samband.is Er rétt að ríkið skattleggi almannaþjónustu? „Hef ég drepið mann eða hef ég ekki drepið mann? Hver hefur drepið mann og hver hefur ekki drepið mann? Hvenær drepur maður mann og hve- nær drepur maður ekki mann? Og þó.“ Þessum spurningum varpaði Jón Hregg- viðsson fram og var alls ekki viss um að hann hefði drep- ið böðul kóngsins. Nú tekst alheimurinn á við nýja ógn sem farin er að drepa fólk, það er kallað sýklalyfjaónæmi. Hverjir bera ábyrgð á þessum voða? Eru það bændurnir í ESB? Kannski enn frekar iðnaðarframleiðsla á mat- vælum, verksmiðjubú sem nota pensilín í óhófi í húsdýrin sín og setja pensilín einnig í fóðrið til að koma í veg fyrir sjúkdóma í dýrun- um. Svo setja þeir þetta eitraða kjöt út á markaðinn og komast upp með að selja það á milli landa. Er þessi vá á ábyrgð stjórnvalda í viðkomandi löndum, skortir lög, reglur og ekki síst eftirlit í landbúnaði þjóðanna? Vill ráðherra, sem er með bestu mat- væli á borðum sinnar þjóðar, taka áhættu eða skerst heilbrigðisráð- herra í leikinn? Vill ríkisstjórn og Alþingi í slíku landi loka eyrum sín- um og taka áhættuna? Landbúnað- arráðherra, sem nú telur tíu ára skuldbindingu orðið sitt baráttumál, þrátt fyrir nýtt og glæpsamlegt at- ferli í landbúnaði margra ESB- landa. Jafn ágætur maður og Krist- ján Þór Júlíusson er fer að eins og ráðamenn gerðu í Icesave, álítur málið tapað. Hann skammar Bænda- samtökin í grein í Morgunblaðinu, talar um vörn þeirra í lífs- baráttu sem „frum- hlaup“. Varaðu þig nú, Kristján Þór Júlíusson, þú þarft að skoða fleira en að framfylgja dómi Hæstaréttar og EFTA-dómstólsins sem snerist um við- skipti en gæti unnist sem lýðheilsumál. Nú ber að meta hvort leið- irnar að kjarna málsins opnist ekki, verði málið sótt á rökum EES-samningsins og Rómarsátt- málans sem „vernd lífs og heilsu manna og dýra,“ það var ekki gert í dómsmálunum. Ég vil kalla þessa leið hina leiðina. Ég tel það einnig okkar skyldu að neita að slík áhætta verði leidd yfir land og þjóð sem er hvergi bundin eða bendluð við slíkan landbúnað. Þetta stríð er auðlinda- og land- helgisstríð, þetta stríð er barátta fyrir matvælum án eiturefna gegn lífshættulegum framleiðsluaðferðum margra erlendra þjóða. Þetta stríð snýst um líf og heilsu manna og dýra. Prófessorar tala um lífshættu Þeir voru afdráttarlausir í mál- flutningi sínum prófessorarnir Karl G. Kristinsson og Bandaríkjamað- urinn Lance Price á fundi á Hótel Sögu á dögunum. Svar Lance Price var afdráttarlaust þegar hann var spurður hvort hann myndi banna innflutning á hráu kjöti til Íslands væri honum falið að úrskurða um málið. Hann svaraði hiklaust: „Yes.“ Svo bætti hann við að hann væri bú- inn að grandskoða í alþjóðlegri töl- fræði og þeim rannsóknum sem fram hafa farið m.a. hér á landi og hann hefði aðgang að í gegnum sam- starf sitt á því sviði, að aðstæður okkar á Íslandi væru einstakar og hvergi í heiminum betri. Við værum öfundsverð þjóð og margar þjóðir vildu vera í okkar sporum. Þetta ættum við skilyrðislaust að verja með öllum ráðum og aldrei að fórna. Báðir tóku þeir fram að þeir ættu hvergi hagsmuna að gæta, hvorki í landbúnaði né stjórnmálum. Karl sagði þetta einungis hugsjón sína sem faglegur sérfræðingur og lækn- ir og þar með almenna umhyggju fyrir fólki, börnum sínum og barna- börnum. Báðir tilgreindu þeir lönd í Evrópu, sem þeir sögðust sjálfir ekki myndu neyta kjöts frá. Undir þessar áhyggjur taka örugglega allir sem eru á sama stað í lífinu og Karl og Lance Price hvar sem þeir standa í þjóðfélaginu sem foreldri eða amma og afi. Málið er að færast á grafalvarlegan stað verði þetta bann gefið eftir bæði gagnvart lýðheilsu manna og dýravernd. Eru bæði ríkisstjórn og Alþingi búin að gefist upp? Því verður ekki trúað að ríkis- stjórn eða Alþingi hafi gefist upp við að leita öruggustu lausna, þótt frum- varp landbúnaðarráðherra gefi frið og tíma til að leita allra lausna. Hægt er að velta fyrir sér hvort kjötmálið hafi aðeins verið með- höndlað á stigi viðskipta og á borði embættismanna? Aldrei verið sett skör hærra upp á plan ráðherra eða stjórnmálamanna sem endanlega ábyrgð bera. (Minna má á deilu sem upp kom við ESB um útflutning á saltfiski árið 2010 sem leyst var á ráðherraplani.) Stjórnmálamenn stynja og segja málið bæði hafa gengið í gegnum dómstóla hér, þ.e. Hæstarétt, og hjá EFTA. Samn- ingur sé samningur – gömul mistök og ESB ræði það ekki frekar. Því verður ekki trúað að samningar sé svo geirnegldir að breyttar for- sendur og nýjar aðstæður kalli ekki á áheyrn og upptöku samnings- ákvæða, sérstaklega ef vegið er að lýðheilsu og almannaheill og einstök sérstaða okkar lands verði sett í uppnám. Það á einnig að spyrja for- svarsaðila ESB áleitinna spurninga og fá skýrar útlistanir og forsendur fyrir því hvers vegna svo gríðarlega breytilegar aðstæður eru innan ESB-landa í sýklalyfjanotkun í bú- fjárframleiðslu, en öll aðildarlönd falli undir sama eftirlitskerfi sam- bandsins! Hvernig má þetta vera? Svo þegar samningurinn um Evr- ópska efnahagssvæðið er skoðaður kemur í ljós að þar eru skýr ákvæði sem við sem þjóð getum gripið til í neyð. Því í samningnum um EES, sem hver maður getur nálgast á vef Stjórnarráðs Íslands, má sjá í 13. gr. samningsins (sem vísar jafnframt í 34. gr. Rómarsáttmálans) að „bann- ákvæði 11. og 12. gr. koma ekki í veg fyrir að leggja megi á innflutning, útflutning eða umflutning vara, bönn eða höft sem réttlætast af al- mennu siðferði, allsherjarreglu, al- mannaöryggi, vernd lífs og heilsu manna og dýra eða gróðurvernd, vernd þjóðarverðmæta“. Nú spyr ég hvort í þessum rökum sé nauðvörn sem við eigum og ríkis- stjórn gæti tekið upp við æðstu ráð- menn ESB. Ráðherra færi á fundinn með færustu lögfræðingum, yfir- dýralækni og réði þessa vísinda- menn, bæði Karl G. Kristinsson og Lance Price, til að rökstyðja hætt- una sem myndi fylgja því að leyfa innflutning á hráum kjötvörum, eggjum og ógerilsneyddum mjólkur- vörum frá ESB-löndum? Líf og heilsa manna og dýra liggur við Heilsa okkar Íslendinga, við- kvæmir en hreinustu búfjárstofnar sem fyrirfinnast í veröldinni, ein- stakt grunnvatn og gróður sem vex úr hreinni mold og af hreinu vatni, það eru þjóðargersemar. Við höfum rétt okkar staðfestan í m.a. samn- ingnum um EES og einnig með stoð í Rómarsáttmálanum. Þessu verðum við að fylgja eftir, frá öðru sjónar- horni en til þessa. Það er neyðar- réttur okkar í aðstæðum sem okkar einangraða og viðkvæma land stend- ur frammi fyrir. Því eigum við að fylgja eftir og aldrei að hvika eða gefast upp. Það er orrusta sem krefst þrautseigju og vilja en upp- skeran verður varanleg verðmæti. Bændur og neytendur, þetta er ykk- ar hvorra tveggja baráttumál. Þessu stríði er ekki lokið. Komum í veg fyr- ir að íslenskir ráðamenn þurfi síðar ef illa fer að spyrja sig sömu spurn- inga og Jón gamli Hreggviðsson. Eftir Guðna Ágústsson »Heilsa okkar Íslend- inga, viðkvæmir en hreinustu búfjárstofnar sem fyrirfinnast í ver- öldinni, einstakt grunn- vatn og gróður sem vex úr hreinni mold og af hreinu vatni, það eru þjóðargersemar. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Innflutningi á hráu kjöti fylgir lífsháski

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.