Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 26

Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 15. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. mars. SÉRBLAÐ Núna er ég að klippa mynd um íslenska matargerð og matarsöguen býst ekki við að hún verði klár fyrr en í haust því ég á eftirað taka upp efni um kæsingu á hákarli og sauðamjaltir,“ segir Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður, sem á 60 ára afmæli í dag. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni og ég hef flækst víða um landið, en rauði þráðurinn í myndinni er viðtal við konu frá Bustarfelli í Vopnafirði, Elínu Metúsalemsdóttur.“ Ásdís hefur gert tvær leiknar kvikmyndir í fullri lengd, Ingaló og Draumadísir, en hefur snúið sér að heimildarmyndagerð og var síðasta mynd hennar Skjól og skart – handverk og saga íslensku búninganna, sem kom út árið 2017 og verður sýnd í sjónvarpinu nú með vorinu. Svo er Ásdís að byrja á öðru verkefni sem er heimildarmynd um skógrækt og landgræðslu. „Ég hirði upp verkefni sem öðrum hefur láðst að sinna, en það er furðulegt að ekki hafi verið gerðar myndir um íslenska matarsögu og skógrækt. Þessi mynd er alveg á frumskeiði og er ég búin að fá handritsstyrki eða fyrirtæki mitt, Gjóla. Svo er ég að skrifa í tómstundum sem eru reyndar fáar, en það er skáldsaga byggð á sönnum atburðum“, en fyrsta skáldsaga Ásdísar, Utan þjónustusvæðis, kom út árið 2016. Ásdís verður fjarverandi í dag á afmælinu og heldur til Raufarhafnar þar sem hún er að gera upp elsta kaupfélagshúsið. „Húsið var byggt ár- ið 1927 og við erum búin að gera upp neðri hæðina og slá upp einu her- bergi á efri hæðinni, sem var lagerinn, og nú er að bæta við því næsta.“ Ásamt Ásdísi í þessu verkefni eru meðal annarra Pétur Magnússon, myndlistarmaður og kærasti Ásdísar. Börn Ásdísar eru Gunnur Martinsdóttir Schlüter og Grímkell Gollino. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kvikmyndagerðarmaðurinn Ásdís vinnur að heimildarmynd um ís- lenska matarsögu og næsta verkefni er um skógrækt og landgræðslu. Gerir upp gamla kaup- félagið á Raufarhöfn Ásdís Thoroddsen er sextug í dag S amúel Vilberg Jónsson fæddist 26. febrúar 1944 á Munaðarnesi í Árnes- hreppi og ólst þar upp til 16 ára aldurs. „Það var gott að alast upp á Ströndum. Þá var hvorki vegur né rafmagn í hreppn- um – en okkur fannst okkur ekki skorta neitt.“ Skólaganga Samúels eða Villa eins og hann er kallaður af Stranda- mönnum hófst þegar hann var níu ára og það var 10-12 km ganga á heimavistina í Trékyllisvík. Skólinn stóð í mánuð á haustin, mánuð eftir áramót og mánuð á vorin, árlega til 14 ára aldurs. „Við fórum heim eftir hálfan mánuð til að skipta um föt, á svokölluðum skiptihelgum. Það fór allur laugardagurinn í að ganga heim og svo allur sunnudagurinn í að ganga aftur í skólann. Ég fór 11 ára gamall að salta síld í Djúpuvík í tvo mánuði. Við unglings- aldur vorum við krakkarnir svo oft í vegavinnu á sumrin, þegar byrjað var að gera vegina um hreppinn. Svo var maður lánaður á bæina, 14-15 ára, einn til tvo mánuði í senn, til að aðstoða við ýmis störf, en það var al- gengt ef það voru veikindi og annað slíkt á bæjunum. Daginn er ég varð 16 ára fór ég til Hnífsdals og réð mig í frystihús þar til vors. Um haustið 1960 fór ég til Ísa- fjarðar og réð mig á línubátinn Straumnes sem kokkur. Ég fór svo suður til Reykjavíkur og réð mig á togarann Narfa. Fór þá beint á Grænlandsmið og þar voru frost- hörkur miklar. Vorum fyrstu níu dagana að höggva ís af skipinu með ísöxum. Um haustið 1961 fór ég á togarann Júpíter. Um veturinn björguðum við áhöfninni á togar- anum Elliða, sem fórst í vitlausu veðri út af Snæfellsnesi, 28 mönnum var bjargað en tveir drukknuðu í björgunarbát sem hafði slitnað frá skipinu. Þegar togaraverkfall hófst í Reykjavík vorum við nokkrir beðnir að fara á togarann Síríus á tilrauna- veiðar með þorskanet. Það var gufu- togari og í maí 1962 varð ketil- sprenging um borð í togaranum þannig að vélin eyðilagðist og okkur rak í tvo sólarhringa í ágætisveðri úti fyrir Snæfellsnesi, allt þar til togarinn Júpíter var leystur úr verkfalli í skjóli nætur og sótti okk- ur og dró Síríus til Reykjavíkur. Eftir þetta fór ég á strandferða- skipið Skjaldbreið, var þar í tæp tvö ár sem háseti. Í kjölfarið fór ég á nótaskipið Pétur Sigurðsson í Reykjavík. Við fórum á síldveiðar á rauða torgið svokallaða, þar sem tvö hundruð rússnesk skip voru alltaf að veiða, tvö hundruð mílur út af Aust- fjörðum.“ Samúel Vilberg Jónsson pípulagningameistari – 75 ára Hjónin Samúel Vilberg og Bjarney í Hestsskarði fyrir ofan Siglufjörð, en þau eru dugleg að stunda göngur. Veiðieðlið í blóð borið Bræður Samúel og Ragnar eiga báðir afmæli í dag, Raggi er 69 ára. Reykjavík Anna Vigdís Guð- jónsdóttir fæddist í Reykja- vík 12. júní 2018. Hún vó 3.100 g og var 49 cm. For- eldrar hennar eru Guðjón Pétursson og Hulda Katrín Stefánsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.