Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 27
Samúel trúlofaðist eiginkonu
sinni á afmælisdaginn sinn árið 1965
og í maí sama ár fór hann í land og
hætti á sjó. „Ég innritaði mig í sjó-
mannaskólann en fór í millitíðinni að
vinna í byggingarvinnu, ætlaði að
vinna til hausts, en þá kynntist ég
mönnum sem vildu fá mig í pípu-
lagnir. Þannig varð úr að ég byrjaði
haustið 1965 í pípulögnum og út-
skrifaðist sem sveinn 1969 úr Iðn-
skólanum í Hafnarfirði.“ Samúel
vann í þrjú ár sem sveinn þar til
hann hóf sjálfstæðan rekstur 1972
þegar hann fékk löggildingu sem
pípulagningameistari. Árið 1998
kom Kári sonur hans inn í rekstur-
inn og þeir stofnuðu fyrirtækið
Pípulagnir Samúels og Kára ehf.
„Ég er nú nýlega búinn að selja syni
mínum reksturinn en ég held áfram
að vinna hjá fyrirtækinu.
Ég myndi segja að veiðieðlið væri
mér í blóð borið eftir að hafa alist
upp í afskekktri sveit á Ströndum og
eru helstu áhugamálin stangveiði,
sjóstangaveiði og skotveiði. Við
hjónin höfum líka ávallt verið dug-
leg að ferðast innanlands sem utan
og stundað göngur og útivist. Bestu
stundir okkar árlega eru þær er fjöl-
skyldan kemur saman á æskuslóð-
um mínum á Munaðarnesi. Það eru
forréttindi að fá að njóta náttúr-
unnar á þessum slóðum sem ég vil
meina að sé engri lík. Við vonum
auðvitað að samgöngur þangað
muni batna á næstu árum og bind-
um vonir við að byggð leggist ekki
af.“
Fjölskylda
Eiginkona Samúels er Bjarney
Georgsdóttir, f. 11.10. 1946, hús-
móðir. Foreldrar hennar voru hjón-
in Georg Alexander Sigurjónsson, f.
1916, d. 1978, vélvirki, og Ásta
Bjarnadóttir, f. 1916, d. 2008,
saumakona og verkakona. Þau voru
bús. á Siglufirði og í Reykjavík.
Börn Samúels og Bjarneyjar: 1)
Ásta, f. 22.3. 1966, skrifstofustjóri,
bús. í Kópavogi, maki: Gunnar Örn
Rúnarsson húsasmíðameistari, þau
reka Fagsmíði ehf. Börn þeirra:
Egill Örn, f. 24.9. 1988, d. 6.12. 2016,
dóttir hans: Ásta Sigríður, f. 2015;
Anton Örn, f. 26.1. 1991, sonur hans:
Eyjólfur Örn, f. 2015; Eva Lind, f.
13.9. 1999; 2) Pálína Sigurrós, f.
17.5. 1969, leikskólakennari, bús. í
Hafnarfirði, maki: Kristinn Samson-
arson, sérfræðingur hjá Rio Tinto,
börn þeirra: Þórdís Bakkmann, f.
13.1. 1995; Bjarney, f. 19.1. 2004, og
Selma Vilborg, f. 29.10. 2006; 3)
Kári, f. 20.11. 1973, pípulagninga-
meistari, bús. í Hafnarfirði, maki:
Ásta Sveinsdóttir, skrifstofustjóri
hjá Pípulögnum Samúels og Kára
ehf., börn þeirra: Kristófer Daði, f.
21.7. 1999, og Birna Karen, f. 17.11.
2006; 4) Harpa, f. 24.1. 1985, lög-
fræðingur hjá Íslenskum verð-
bréfum hf., bús. á Akureyri, maki:
Rúnar Bjarnason, endurskoðandi
hjá PwC á Norðurlandi, börn þeirra:
Salka Rannveig, f. 28.12. 2007, og
Vilberg Rafael, f. 1.3. 2014.
Systkini: Guðlaug, f. 1937, d. 2012,
húsfreyja, síðast í Mosfellsbæ; Guð-
mundur Gísli, f. 1939, fyrrverandi
bóndi, trillusjómaður og hreppstjóri
á Munaðarnesi, bús. á Grundarfirði,
Guðjón, f. 1942, fyrrverandi skip-
stjóri, bús. í Mosfellsbæ, Þorgerður
Erla, f. 1946, húsfreyja á Patreks-
firði, Ragnar, f. 1950, fv. starfs-
maður Vatnsveitu Hafnarfjarðar,
Anna Sigríður, f. 1951, húsfreyja í
Hafnarfirði, Jón Elías, f. 1955,
starfsmaður Norðuráls, bús. á Akra-
nesi, og Ólöf Brynja, f. 1961, mat-
ráður í Hafnarfirði.
Foreldrar Samúels voru hjónin
Jón Jens Guðmundsson, f. 27.5.
1912, d. 9.3. 2005, bóndi og refa-
skytta á Munaðarnesi, og Pálína
Sigurrós Guðjónsdóttir, f. 13.11.
1919, d. 24.5. 2006, húsfreyja.
Samúel Vilberg
Jónsson
Kristín Guðmundsdóttir
húsfreyja á Þóroddsstöðum
Jónas Eiríksson
bóndi á Þóroddsstöðum
í Hrútafirði
Anna Jónasdóttir
húsfreyja í Skjaldabjarnarvík
Guðjón Kristjánsson
bóndi í Skjaldabjarnarvík í Árneshreppi
Ólína Sigurðardóttir
vinnukona, frá Eyri í
Ingólfsfirði
Kristján Loftsson
bóndi í Litlu-Ávík í Árneshreppi
Elísabet Guðmundsdóttir
húsfreyja á Felli í Árneshreppi
Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja
á Neðri-Fitjum í Víðidal, Hún.
Pálína Sigurrós Guðjónsdóttir
húsfreyja á Munaðarnesi
Ingigerður Guðjónsdóttir skólastýra
Húsmæðraskólans á Staðarfelli
Anna Guðjónsdóttir
úsfreyja á Dröngumh
Sveinn Kristinsson
formaður Rauða krossins
Kristján Sigmundur
Guðjónsson húsa- og
kipasmiður á Ísafirðis
Guðjón A. Kristjánsson
skipstjóri og
alþingismaður
Eiríkur
Guðjónsson
kirkjuvörður
á Ísafirði
Eyvindur
Eiríksson
rithöfundur
Erpur Eyvindsson
rappari
Þorgerður Sveinsdóttir
húsfreyja í Ingólfsfirði
Jón Sigurðsson
bóndi á Reykjanesi
í Árneshreppi
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja á Munaðarnesi
Guðmundur Gísli Jónsson
bóndi á Munaðarnesi
Elísabet Guðmundsdóttir
húsfreyja á Munaðarnesi
Jón Gíslason
bóndi á Munaðarnesi í Árneshreppi, Strand.
Úr frændgarði Samúels Vilbergs Jónssonar
Jón Jens Guðmundsson
bóndi og refaskytta á Munaðarnesi
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
GOLA
skinnkragi
16.800
Velkomin í hlýjuna
EIR úlpa
158.000
EIR úlpa
m/refaskinni
158.000
BÁRA
leðurhanskar
5.900
ÞYTUR
prjónahúfa
9.200
BELGINGUR
mokkahanskar
6.200
ÞOKA
ennisband úr
refaskinni
12.900
85 ára
Guðný Hálfdánardóttir
Guðrún Ragnheiður Lárus-
dóttir
Sigurður J. Kristjánsson
80 ára
Aðalheiður Sigurðardóttir
Elísabet Vilhjálmsdóttir
Gunnlaugur Sigurðsson
Jónína H. Arndal
Lindís Kr Hatlemark
Magnús Kristján Halldórss.
75 ára
Dagbjartur Björnsson
Hannes Ólafsson
Jón Ebbi Björnsson
Kolbrún Baldvinsdóttir
Samúel Vilberg Jónsson
Unnur Þorsteinsdóttir
70 ára
Birna Þórðardóttir
Björg Júlíana Árnadóttir
Hermann G. Arnviðarson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Kristín G. Vigfúsdóttir
Kristjana S. Bjarnadóttir
Ólafur Kristjánsson
Ragnar Gunnlaugsson
Ragnar Sverrisson
Vigdís Violeta Rosento
Þorsteinn Berg
60 ára
Ásdís Thoroddsen
Ásta Bergljót Stefánsdóttir
Björn Harðarson
Edda Björnsdóttir
Eiríkur Hjartarson
Gunnar Óskarsson
Hólmfríður H. Einarsdóttir
Katrín Björgvinsdóttir
Magni Þór Rósenbergsson
Páll Lindberg Björgvinsson
Simon Neil Stacey
Steinþór Berg Lúthersson
Þórarinn I. Sigvaldason
50 ára
Andrés Einarsson
Eva Alguno Martil
Eydís F. Hjaltalín
Guðbjörg Lilja Svansdóttir
Guðný Gréta Eyþórsdóttir
Jónína Unnur Gunnarsd.
Kolbrún Aðalbjörg Hjartard.
Magni Guðjón Gunnarsson
Mariusz Miroslaw Gorski
Victoria Koponen
Þorgerður Bjarnadóttir
40 ára
Auður Þorgeirsdóttir
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Daníel Bjarnason
Edda Björg Jónsdóttir
Garðar Hólm Birgisson
Gísli Herjólfsson
Guðný Lára Thorarensen
Ingunn Ásta Sigmundsd.
Jónatan Grétarsson
Karólína Borg Sigurðard.
Kristinn Ingi Pétursson
Maciej Wydra
Maren Brynja Kristinsdóttir
Margeir Örn Óskarsson
Melanie Ingeborg Lorenz
Rögnvaldur Ómar Reyniss.
Þorsteinn Jafet Arnþórsson
30 ára
Aron Friðrik Georgsson
Daníel Örn Svavarsson
Erik Steinn Þorsteinsson
Hjalti Friðriksson
Iðunn Arna Björgvinsdóttir
Lárus Gohar Kazmi
Lukasz Dabrowski
Sunna Jónsdóttir
Tinna Eyberg Örlygsdóttir
Valgeir Björnsson
Örn Erlendsson
40 ára Ragnheiður er
Selfyssingur og viðskipta-
fræðingur og vinnur á
skrifstofu Jötuns véla.
Maki: Ögmundur Krist-
jánsson, f. 1971, vinnur
við gangagerð í Noregi.
Börn: Alexander Örn, f.
2009, og Kristján Elí, f.
2011.
Foreldrar: Jón G. Bergs-
son, f. 1954, eigandi
Kjarnabókhalds, og Ásdís
Óskarsdóttir, f. 1954,
sjúkraliði hjá HSU.
Ragnheiður I.
Jónsdóttir
40 ára Steinunn er fædd
í Ósló en ólst upp í
Reykjavík og býr þar. Hún
er íþróttafræðingur hjá
Sóltúni Heima.
Maki: Jóhann Aron
Traustason, f. 1972, þjón-
ustufulltrúi hjá Jaguar,
Land Rover.
Börn: Valgerður, f. 2010,
og Leifur Atli, f. 2012.
Foreldrar: Leifur Þor-
steinsson, f. 1949, líffr. og
Sigríður Sólveig Friðgeirs-
dóttir, f. 1952, hjúkrunarfr.
Steinunn
Leifsdóttir
30 ára Gísli er Borgnes-
ingur, hann lærði húsa-
smíði en er vélamaður hjá
Borgarverki.
Maki: Katrín Rós Ragn-
arsdóttir, f. 1992, vinnur á
dvalarheimilinu Brákar-
hlíð.
Sonur: Andri Snær, f.
2014.
Foreldrar: Sólon Árni
Gíslason, f. 1964, verk-
stjóri hjá Loftorku, og
María Þórarinsdóttir, f.
1966, starfsm. Öldunnar.
Gísli Grétar
Sólonsson
Til hamingju með daginn
Eydís Huld Magnúsdóttir hefur varið
doktorsverkefni sitt frá tækni- og verk-
fræðideild Háskólans í Reykjavík. Titill
rannsóknarinnar er Flokkun huglægs
vinnuálags út frá lífeðlisfræðilegum
einkennum fyrir vöktun á vinnuálagi (e.
Cognitive workload classification with
psychophysiological signals for moni-
toring in safety critical situations).
Leiðbeinandi rannsóknarinnar var dr.
Jón Guðnason, dósent við Háskólann í
Reykjavík, ásamt meðleiðbeinend-
unum dr. Kamillu Rún Jóhannsdóttur,
lektor við Háskólanum í Reykjavík, og
dr. Arnab Majumdar Reader hjá Imperi-
al College í London.
Markmið rannsóknar Eydísar var að
fylgjast með huglægu vinnuálagi hjá
einstaklingum sem starfa í ábyrgðar-
miklum störfum, s.s. flugumferðar- og
flugstjórn, með það að markmiði að
hafa jákvæð áhrif á jafnt árangur, líðan
þeirra og síðast en ekki síst öryggi
þeirra og öryggi almennings. Með öðr-
um orðum hvort unnt væri að setja
mælistiku á það hvenær einstaklingar
eru komnir að þeim þröskuldi álags/
stress að þeir geti ekki sinnt starfi sínu
með fullnægjandi og ábyrgum hætti og
þannig koma í veg fyrir hugsanleg mis-
tök sem kunna að
stafa af álagi.
Niðurstöður
rannsóknarinnar
sýndu að vel væri
hægt að flokka ein-
kenni álags út frá
tali sem og hjarta-
og æðakerfi, í þrjá
flokka með þeim
aðferðum sem unnið var með í rann-
sókninni. Þá náðist sá merki áfangi í
rannsókninni að unnt var að greina
augljós einstaklingsbundin viðbrögð
við álagi á milli hvíldarástands og verk-
efna sem kröfðust mikils huglægs
vinnuálags. Með jákvæðar niðurstöður
rannsóknarinnar að leiðarljósi er núna
hægt að vinna áfram með þær til að
þróa enn frekara eftirlitskerfi með
ástandi hjá þeim starfsgreinum sem
eru undirsettar verulegu álagi í dag-
legum störfum sínum. Er um að ræða
fyrstu rannsókn sinnar tegundar hér á
landi sem og erlendis.
Rannsóknin var unnin í samstarfi og
með tilstuðlan styrkja frá Isavia og Ice-
landair og í gegnum samstarf
Háskólans í Reykjavík og Imperial
College í London.
Eydís Huld Magnúsdóttir lauk B.Sc-námi í vörustjórnun frá Tækniháskóla Ís-
lands árið 2004 og meistaraprófi í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið
2014. Hún starfar nú við rannsóknir á þessu sviði við HR þar sem markmiðið er
að þróa líkan til notkunar í rauntíma byggt á hennar rannsóknum. Eiginmaður
Eydísar er Lárus M.K. Ólafsson, lögfræðingur og viðskiptastjóri hjá Samtökum
iðnaðarins, og eiga þau börnin Ástrós Lilju, 12 ára, og Ólaf Magnús 4 ára.
Doktor
Eydís Huld Magnúsdóttir