Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þetta er góður dagur til að ræða
við fjölskylduna um fjármálin og allt sem
þeim tengist. Oft er góðsemi endurgoldin.
Gamall vinur mun verða á vegi þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Mundu að það er farsælast að vinna
hvert mál fyrir sig í áföngum. Biddu um
aðstoð ef þú þarft hana, þú átt fjölda vina
sem glaðir hjálpa. Margar hendur vinna
létt verk.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú finnur sannarlega til góð-
mennsku í garð annarra og vilt hjálpa
þeim sem minna mega sín. Spjallaðu við
fjölskyldumeðlimi og gáðu hvað þeir vilja.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Losaðu þig við sektarkenndina út
af því sem liðið er. Þú færð góða gesti í
heimsókn bráðlega sem munu færa þér
skemmtilegar fréttir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er aldrei að vita hvenær lukkan
ber að dyrum, vertu tilbúin/n. Prófaðu að
klappa vinum þínum á bakið, eða segja
það hreint út að þér þyki vænt um þá.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er um að gera að njóta líðandi
stundar, því hún kemur aldrei aftur og
betra að hafa hana góða í minningunni.
Gæfan eltir þig á röndum þessar vikurnar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er komið að þér að láta ljós þitt
skína. Notaðu daginn til þess að sletta úr
klaufunum, láta hugann reika eða slappa
af.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú leiðir saman fólk sem
myndi ekki þekkjast ef ekki væri vegna
þín. Láttu eldmóðinn ráða för, og þú munt
bera af.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gleðst yfir því að öldurnar
hefur lægt og allir eru á eitt sáttir.
Reyndu að taka á málunum af skynsemi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki gleyma að setja þér mark-
mið fyrir vikuna. Haltu þeim sem gerir
eitthvað sem þér mislíkar í hæfilegri fjar-
lægð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt erfitt með að skilja af
hverju aðrir sýna þér ekki sama traust og
þú þeim. Láttu ekki hugfallast því erf-
iðleikar eru til þess að sigrast á þeim.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki eyða tíma í að bera þig sam-
an við aðra. Vertu á varðbergi gagnvart
sölufólki og haltu fast um budduna. Nú er
rétti tíminn til þess að skipuleggja fjár-
málin.
Ólafur Stefánsson yrkir á Leirfyrir helgi og kallar „Skamma
stund“:
Það var fyrir stuttu í víðáttu góðæri
miðju
að virtist þjóðin mín flest kunna orka
og mega.
Svo nýlega sloppin, brennd frá hrunára
hryðju
menn hreyktu sér ákaft: nú skyldi alls
ekkert geiga.
Landsmenn þá flugu á vit sinna
villtustu drauma,
jafnt vinnuferðir til Bali, hvað þá heldur
annað.
Vítt út um landið sáum við katlana
krauma,
að „kunna’ekki að meikaða“, það var
hreinlega bannað.
Byggð voru hótel og haldið út
Air-bi-in-bíi,
hressleika gestir frá Asíu litu á staðinn.
Allur heimurinn virtist þá vera í fríi
og vildi svo ólmur koma hér, – gjaldeyri
hlaðinn.
En nú hefur dofnað, heyrist því minna
en áður,
hark fyrir dyrum, traðk eða þys inni á
börum.
Hvort reyndist enn Landinn vera of
veiðibráður,
er velsældin nýja sem kíkti með hraði á
förum?
Þorraþræll var á laugardag en
fyrsti dagur í góu á sunnudag. Í
„Veðurfræði Eyfellings“ segir
Þórður Tómasson: „Þorraþrællinn
var í litlum metum hjá mönnum, því
löngum þótti loða við hann leitt
veður. Um góuveðrið giltu orð
gömlu vísunnar:
Ef hún góa öll er góð
öldin má það muna,
þó mun harpa, hennar jóð,
herða veðráttuna.
Fyrstu dagar góu voru merki-
dagar veðurs samkvæmt gömlu
þulunni „Grimmur skyldi góudag-
urinn fyrsti, annar og þriðji, fjórði
verstur en fimmti bestur, þá mun
hún góa góð verða.“ Góuþrællinn
var oft veðurvondur, og sjómenn
höfðu af honum vonda reynslu eins
og fram kemur í vísunni:
Nú er best að brjóta disk
og brenna í eldi hálfan.
Guð vill sjaldan gefa fisk
á góuþrælinn sjálfan.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af góðæri og
fyrsta degi í góu
„ég hélt líka í gamla
afritunarkerfiÐ okkar.”
„pabbi, myndir þú leyfa mér aÐ prófa
nálastungur ef þér fer ekki aÐ líÐa
betur?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að ákvarða hvors
hjarta slær hraðar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Í DAG ER
LUKKUDAGURINN
MINN
NEMA AÐ HANN
SÉ Á MORGUN
HANN ER Á
MORGUN
HRÓLFUR, ÞÚ VERÐUR AÐ
TALA VIÐ LIÐSMENNINA!
ÞEIR ERU SÍKVARTANDI!
ÉG ER UPPTEKINN!
AF HVERJU GETUR ÞÚ
EKKI BARA TALAÐ VIÐ
ÞÁ?
ÉG MERST SVO
AUÐVELDLEGA
Öfgar og æði samtímans taka ásig ýmsar myndir og stundum
verða árekstrar. Þannig heyrði Vík-
verji af virðulegu kaffiboði fyrir
skemmstu þar sem kona ein hafði
boðið gömlum skólasystrum heim.
Gestgjafinn ákvað að gera vel við
gesti sína og sækja veitingar í vin-
sælt bakarí, Brauð & co, þar sem
áhersla er lögð á vandað handverk
og hráefni, eins og vinsælt er í dag.
Gekk gestgjafinn rogginn út með
fullan poka af góðgæti, hæfilega
blöndu af brauði og sætmeti sjálf-
sagt, til að allir yrðu nú sáttir. Fyrir
þetta voru greiddar eitthvað um sex
þúsund krónur. Það er nú kannski
ekki stór upphæð í samhengi alls og
alls ekki þegar gleði gömlu vin-
kvennanna er annars vegar. Það
runnu hins vegar tvær grímur á
gestgjafann þegar gömlu skólasyst-
urnar litu ekki við veitingunum fínu.
Í ljós kom að allar voru þær á ketó-
mataræðinu. Eins og er vinsælt í
dag.
x x x
Víkverji hefur síðustu árin alfariðsniðgengið Óskarsverðlauna-
hátíðina. Felst sú sniðganga í því að
sjá helst ekki nokkra einustu mynd
sem þar er tilnefnd eða verðlaunuð,
í það minnsta ekki fyrir hátíðina en
helst ekki eftir hana heldur. Þetta
hefur gefist nokkuð vel og útlit er
fyrir að framhald verði á enn um
sinn. Það skal reyndar viðurkennt
að Víkverji myndi gjarnan vilja sjá
eina og eina af þessum myndum.
Skyldur á heimilinu ganga hins veg-
ar fyrir og eitthvað verður undan að
láta. Þá er einhvern veginn einfald-
ara að láta sér einn og einn sjón-
varpsþátt duga. Helst stuttan grín-
þátt en einstaka sinnum 50 mínútna
framhaldsþátt.
x x x
Í vetrarfríi er gaman að keyra umsveitir landsins og njóta þess sem
þar býðst. Umferðin á Gullfossi og
Geysi í gær var eins og hún hefði
verið á góðum júlídegi fyrir nokkr-
um árum. Af svipnum á andlitum
ferðamanna að dæma voru nokkrar
spýjur úr Strokki nóg til að gera
ferðina frábæra. Einlæg bros og
gleði mátti sjá á flestum ferða-
löngum. vikverji@mbl.is
Víkverji
En þú, Drottinn, ert miskunnsamur
og líknsamur Guð, þolinmóður,
gæskuríkur og harla trúfastur.
(Sálm: 86.15)